Morgunblaðið - 05.07.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.07.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2012 og að því leytinu til er þetta byggð- arverndunartillaga. Að auki leggur hún til skemmtilega byggðarþétt- ingu og uppbyggingu á svæðinu, sem við teljum að geti styrkt það mikið, raunverulega á allar hliðar; bæði við Kirkjustræti og að Víkurgarði, og einnig að þetta muni styrkja um- gjörð Austurvallar,“ segir Páll, sem var formaður dómnefndar. Hann segir djörfustu tillögu arki- tektanna ef til vill þá að byggja menningarhús á Ingólfstorgi en á móti komi að torgið verði stækkað að húsunum við Hafnarstræti og Veltu- sund og muni því í raun ekki minnka neitt. Breyttar áherslur Gildandi deiliskipulag á svæðinu er frá 1986 og gerir það ráð fyrir talsvert mikilli uppbyggingu en margt hefur breyst síðan það tók gildi. Að teknu tilliti til nýrra áherslna og sjónarmiða voru tillögur að breyttu skipulagi í nágrenni við Ingólfstorg lagðar fram árið 2009 en í þeim var m.a. gert ráð fyrir að nýtt hótel yrði byggt við Vallarstræti, að Nasa yrði rifinn og að Hótel Vík og Brynjólfsbúð yrðu færð inn á Ing- ólfstorg. Tillögunum var harðlega mótmælt og voru m.a. gerðar at- hugsemdir við fyrirhugað bygg- ingamagn, minnkun Ingólfstorgs, rekstur hótels á svæðinu og tilfærslu húsanna. Páll segir fyrirliggjandi tillögu að mörgu leyti ólíka þeim sem lágu fyr- ir 2009 en næsta skref verði að vinna upp úr henni deiliskipulagsdrög sem verða svo tekin fyrir af skipulagsráði borgarinnar. „Þegar þau hafa verið samþykkt þar fara þau í þetta lög- boðna kynningar- og umsóknarferli en það er ekki hægt að hefjast handa við að hanna húsin endanlega fyrr en því er lokið,“ segir Páll. Unnið í góðri samvinnu Það var Reykjavíkurborg sem efndi til samkeppninnar í samvinnu við Arkitektafélag Íslands en Pétur Þór Sigurðsson, sem á margar af fasteignunum á skipulagssvæðinu, greiddi helming kostnaðarins og sat í dómnefnd. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem borgin tekur þátt í að halda samkeppni um lóð í einkaeigu en Páll ítrekar að dómnefndin hafi verið óvanalega fjölskipuð og að eigandi hafi aðeins átt eitt atkvæði af sjö. „Auðvitað er það eigandinn sem er að fara að framkvæma þessa upp- byggingu, þannig að það er mjög eðlilegt að hann sé aðili að þeirri nið- urstöðu sem hann þarf að hlíta og hann þarf að fjármagna og byggja,“ segir Páll um fyrirkomulagið. En fari svo að atburðarás ársins 2009, þegar borgin dró tillögurnar til baka, endurtaki sig, hefur eigandinn þá skuldbundið sig til að hlíta þeirri niðurstöðu? „Þetta hefur verið unnið í mjög miklu og góðu samráði við eigand- ann og ég sé alls ekki að þetta komi upp, að það komi upp einhver ágreiningur,“ segir Páll. „Ég held að þetta verði bara áfram unnið í góðu samstarfi og við komumst að sam- eiginlegri, bestri niðurstöðu,“ segir hann. Hagsmunir eiganda og borg- arinnar þurfi að fara saman og eigi að geta farið saman. Samkeppnistillögurnar verða til sýnis í Landssímahúsinu að Thor- valdsensstræti 6 til 29. júlí en einnig má kynna sér þær á vefsíðu ASK arkitekta, www.ask.is. Skipulag í hjarta miðborgarinnar Uppbygging Páll segir ljóst að samfara þróun tillögunnar þurfi að skoða umferðarmál á svæðinu í stærra samhengi, t.d. hvað varðar umferð hópferða- og fjallabíla. Hótelrekstri fylgi þó minni umferð en skrifstofum og íbúðarhúsnæði.  Vinningstillaga um skipulag í miðborg gerir ráð fyrir menningarhúsi á Ingólfstorgi  10.000 fer- metra, 159 herbergja hótel í Landssímahúsinu og nýbyggingu  Nasa skemmti- og ráðstefnusalur Umdeilt Tillögur sem fólu m.a. í sér að Hótel Vík og Brynjólfsbúð yrðu færð inn á torgið féllu í grýttan jarðveg og voru endurskoðaðar af borginni. Nýjar hugmyndir Björn Ólafs arkitekt teiknaði nýja tillögu að útliti Vallarstrætis eftir að fyrri tillögum var mót- mælt en nýja tillagan gerði ráð fyrir að gömlu húsin stæðu áfram á sínum stað en að byggt yrði á milli þeirra. FRÉTTASKÝRING Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is „Ég held að þetta sé bara mjög góð tillaga sem getur varðað veginn að því hvernig við byggjum upp í mið- bænum,“ segir Páll H. Hjaltason, formaður skipulagsráðs Reykjavík- urborgar, um vinningstillöguna í samkeppni um uppbyggingu í Kvos- inni í Reykjavík. Höfundar tillög- unnar eru ASK arkitektar ehf., Þorsteinn Helgason og Gunnar Örn Sigurðsson, en samkvæmt henni verða þær byggingar sem fyrir eru ekki rifnar niður né stendur til að færa eldri hús. Í tillögunni er uppbyggingunni skipt í þrjá áfanga en gert er ráð fyr- ir tæplega 10.000 fermetra og 159 herbergja hóteli í Landssímahúsinu og nýbyggingu sem mun rísa við Kirkjustræti. Aðalinngangur hótels- ins mun liggja að strætinu en frá veitingasal hótelsins verður inn- angengt í gamla Nasa sem verður endurbyggður sem skemmti- og ráð- stefnusalur. Þá er gert ráð fyrir að í Vallarstræti verði fjölbreytt versl- unar- og þjónustuhúsnæði og að með nýbyggingu á syðri hluta Ingólfs- torgs, þar sem Hótel Ísland stóð, fái strætið heildstæðara götuform. Djörf tillaga um menningarhús „Það er fyrst að nefna að tillagan tekur þá afstöðu að hreyfa ekki við byggð sem þegar er komin á svæðið Teikning/ASK arkitektar Kristín Þorleifsdóttir landslags- arkitekt, sem tilefnd var í dóm- nefndina af Reykjavíkurborg, skil- aði séráliti en henni þótti engin tillaga uppfylla kröfur samkeppn- isauglýsingarinnar á nógu sann- færandi hátt. „Það er mjög margt í þessum tillögum sem var gott og það má ekki gleyma því. En svona miðað við samkeppnislýsinguna, þar sem mikil áhersla var lögð á nærgætni við gömlu byggðina sem fyrir er, þessar merku byggingar sem eru þarna allt um kring og almenn- ingsrými, þá fannst mér þessar tillögur ekki virða það,“ segir Kristín en henni hafi ekki fundist rétt að velja eina stofu til að halda áfram á þessum tímapunkti, heldur hefði þurft að vinna tillög- urnar betur. Þá segir Kristín að sér hafi fundist flestar tillögurnar gera ráð fyrir of miklu byggingamagni, sérstaklega í ljósi þess að tillögu- höfundar höfðu nokkurt svigrúm hvað það varðaði. Kristín gerði athugsemdir við það í upphafi að eigandi fasteigna á svæðinu ætti sæti í dómnefnd- inni en segir að það hafi ekki haft áhrif á störf nefndarinnar. „Það voru umræður um þetta en eftir á að hyggja þá fannst mér það ekki trufla nefndarstörfin,“ segir hún. Engin tillaga stóðst kröfurnar SÉRÁLIT Árin segja sitt1979-2012 BISTRO Laugarásvegi 1 | 104 Reykjavík | Sími: 553 1620 | laugaas.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.