Morgunblaðið - 05.07.2012, Qupperneq 16
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Reykjadalur ofan Hveragerðis hef-
ur látið verulega á sjá á undanförn-
um árum og ljóst er að verði ekkert
að gert munu skemmdirnar aukast
hratt. Skemmdir eftir hross og
göngufólk blasa víða við og algengt
er að sjá göngustíga breiða úr sér.
Þegar fyrsti stígurinn er orðinn að
svaði er byrjað að ganga við hliðina
á stígnum og svo koll af kolli.
Jakob K. Kristjánsson, fyrrver-
andi prófessor við Háskóla Íslands,
vakti athygli á slæmu ástandi dals-
ins í grein í Morgunblaðinu á
fimmtudag. Hann benti m.a. á að
dalurinn væri vinsæll meðal ferða-
manna, þar færu 1.000 manns gang-
andi á hverjum degi að sumarlagi,
auk þeirra sem þar færu á vegum
hestaleigna. „Ágangur á svæðið er
því orðinn mjög mikill, og nokkrar
skemmdir orðnar, mest þó af völd-
um hesta. Í heild hefur þó tekist
furðu vel að varðveita svæðið þó
helst virðist vera eins og þetta sé
einskismannsland með engu skipu-
lagi og að allir geti farið þar sínu
fram eins og þeim sýnist,“ sagði
Jakob meðal annars.
Þegar blaðamaður fór í dalinn um
helgina, á laugardag og sunnudag,
var töluverður mannfjöldi í dalnum,
einkum erlendir ferðamenn. Margir
fóru í dalinn í blíðunni á laugardag
og úrhellisrigningin á sunnudag
virtist ekkert draga úr aðsókninni.
Meðal ferðamanna í dalnum var um
20 manna hópur sænskra ferða-
manna. Flestir voru þeir með bak-
poka eða innkaupapoka úr plasti og
stefndu greinilega á að baða sig í
heita læknum.
Auðvelt að komast í dalinn
Auðvelt er að komast í Reykjadal
úr tveimur áttum; annars vegar úr
Hveragerði og er þá gengið upp
Rjúpnabrekkur, og hins vegar frá
Ölkelduhálsi en þangað liggur nú
línuvegur. Varla er hægt að ræða
um að stígur liggi upp Rjúpna-
brekkur, nær væri að tala um stíga-
flækju. Þótt leiðin sé stikuð hafa
stígarnir breitt úr sér og er stíga-
breiðan sums staðar á að giska 15-
20 metra breið. Í rigningunni á
sunnudag safnaðist vatnið saman í
allmyndarlega læki sem runnu eftir
stígunum og skoluðu jarðvegi með
sér.
Þegar komið er ofar í Reykjadal-
inn er gengið báðum megin heita
lækjarins. Þar er hið sama uppi á
teningnum, stígarnir tvístrast tvist
og bast og þegar keldur hafa mynd-
ast á þeim miðjum krækja ferða-
menn fyrir þá með fyrirsjáanlegum
afleiðingum.
Heitur lækur
Lækurinn er vel heitur og hentar
afskaplega vel til baða. Á nokkrum
stöðum hefur verið hlaðið fyrir
þannig að laug myndast. Við að
minnsta kosti þrjá slíka baðstaði má
sjá sviðinn grassvörð og eru þetta
líklega ummerki þessi að ferðafólkið
hefur grillað við lækinn.
Þegar gengið er ofar getur að líta
staura og víra við mýrblautan gras-
bala, efnivið í rafmagnsgirðingu fyr-
ir hross. Það sem girt hefur verið af
hefur augljóslega látið á sjá.
Enn ofar, við Klambragil, er síð-
an búið að grafa fyrir undirstöðum,
þ.e. plaströrum sem hægt er að
steypa ofan í og gætu þær t.d. dug-
að fyrir lítinn skála en þessar fram-
kvæmdir gagnrýndi Jakob harðlega
í grein sinni sl. fimmtudag.
Gönguleiðir fyrir ofan dalinn hafa
sömuleiðis spillst. Þetta á bæði við
Reykjadalur slitnar undan þu
Vinsæll meðal ferðafólks og hestamanna Stígarnir flækjast um brekkur og mýrblautar hlíðar
Umbóta er þörf Undirstöður sem gætu dugað fyrir lítinn skála eru komnar innst í dalinn
Morgunblaðið/Rúnar Pálmason
Drulla Algeng sjón í Reykjadal. Göngustígurinn var orðinn eitt drullusvað þegar gerði hellidembu síðastliðinn sunnudag.
um leiðina á Ölkelduhálsi og brekk-
una sem gengin er áður en komið er
á gönguleiðina að Álftatjörn og
Kattatjörnum en í þá brekku er
komið mikið jarðvegsrof. Ekki þarf
að spyrja að leikslokum þar, frekar
en svo víða annars staðar í Reykja-
dal, það er að segja ef engin breyt-
ing verður á umgengni um þessa
frábæru náttúrusmíð.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2012
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð
dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur
um að sérstökum saksóknara sé
heimilt að leggja fram greinargerð
um rannsókn Vafningsmálsins.
Málið snýst um ákæru á hendur
Lárusi Welding og Guðmundi
Hjaltasyni, en þeir eru ákærðir fyrir
að hafa misnotað aðstöðu sína og
stefnt fé Glitnis í stórfellda hættu
með tíu milljarða króna lánveitingu
til Milestone ehf., í formi pen-
ingamarkaðsláns.
Sérstakur saksóknari lagði fram
greinargerð um rannsóknina á
Vafningsmálinu, en verjendur Lár-
usar og Guðmundar hafa krafist
þess að málinu verði vísað frá á
Má leggja
Hæstiréttur
staðfestir úrskurð
vegna rannsóknar
Vafningsmálsins
Fáðu
garðsláttinn
í áskrift
og slakaðu á í sumar
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is