Morgunblaðið - 05.07.2012, Page 19

Morgunblaðið - 05.07.2012, Page 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2012 Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Evrópuþingið felldi ACTA, alþjóð- legan sáttmála sem meðal annars er beint gegn sjóræningjastarfsemi á Netinu, í atkvæðagreiðslu í gær. Tuttugu og tvö ríki Evrópusam- bandsins höfðu þegar skrifað undir sáttmálann en hann hafði ekki verið endanlega staðfestur. Alls kusu 478 þingmenn gegn honum en aðeins 39 vildu samþykkja sáttmálann. Flestir telja að atkvæðagreiðslan í gær sé lokanaglinn í kistu ACTA, að minnsta kosti í þessari mynd, en nið- urstaðan þýðir að ekkert aðildarríki sambandsins getur tekið sáttmálann upp. Mætti harðri mótspyrnu ACTA hefur vakið upp miklar deilur en baráttufólk á Netinu hefur haldið því fram að sáttmálinn muni skerða netfrelsi fólks verulega. Markmið hans var að samræma höf- undarréttarlög til að vinna gegn ólöglegri dreifingu höfundarrétt- arvarins efnis. Samkvæmt honum væri hægt að dæma fólk í fangelsi og sektir fyrir slík brot. Hefur ACTA verið líkt við SOPA- frumvarpið sem lagt var fram í Bandaríkjunum og var einnig ætlað að vinna gegn sjóræningjastarfsemi. Það var hins vegar fellt niður eftir hörð mótmæli. Síðasti naglinn í kistu ACTA AFP Mótmæli Fjöldi þingmanna hélt á spjöldum sem á stóð „Halló lýðræði, bless ACTA“, þ.á m. Eva Joly (fyrir miðju), þegar sáttmálinn var felldur.  Sáttmálinn kolfelldur af Evrópuþingi Alþjóðlegur samningur » ACTA stendur fyrir Anti- counterfeiting Trade Agree- ment og setur alþjóðleg við- mið um höfundarrétt. » Eitt umdeildasta ákvæði ACTA er um stofnun sem hefði umsjón með beitingu sáttmál- ans en þyrfti ekki að svara til æðra yfirvalds. Yfir milljón heimili voru enn án rafmagns á stórum svæðum í Indíana- og Virg- iníuríki í Banda- ríkjunum í gær en þá voru fimm dagar síðan mik- ill stormur gekk yfir svæðið. Raf- orkufyrirtæki hafa varað við því að sumir íbúar gætu orðið án rafmagns út vikuna. Sums staðar hefur þurft að grípa til þess ráðs að dreifa mat til fólks sem ekki getur eldað heima hjá sér af þessum sökum. Alls hafa um 23 látist frá því á föstudag í óveðrinu og í mikilli hita- bylgju sem nú ríkir víða í Banda- ríkjunum. kjartan@mbl.is Varað við raf- magnsleysi Bandaríkin Rafmagns- laus í 5 daga Erfðu illa fenginn auð Börn Augusto Pi- nochets, fyrrver- andi einræð- isherra, erfðu auðæfi hans sam- kvæmt erfðaskrá hans sem birt var í gær. Birting erfða- skrárinnar var hluti af rannsókn á þeim auði sem hann sankaði að sér þegar hann stjórnaði landinu með harðri hendi. Talið er að hann hafi dregið að sér jafnvirði um 3,3 milljarða króna en meirihluti þess fjár er talinn liggja á bankabókum erlendis. Erfingjar einræðisherrans hafa haldið því fram að þeir séu á von- arvöl en erfðaskráin bendir til að svo sé ekki raunin. kjartan@mbl.is Augusto Pinochet, Síle Þingmenn í Níkaragva samþykktu lög á þriðjudag til þess að undirbúa byggingu skipaskurðar þvert í gegnum landið sem gæti veitt Panamaskurðinum samkeppni. Skurðurinn yrði um 200 kílómetra langur og gera áætl- anir ráð fyrir að bygging hans gæti kostað allt þrjátíu milljarða dollara. Það er þó eftir miklu að slægjast því að umferð um Panamaskurðinn skilaði þarlendum stjórnvöldum milljarði dollara í tekjur á fjárhagsárinu 2010-2011. Daniel Ortega, forseti Níkaragva, segir að skurðurinn geti híft landsmenn upp úr fátækt en land hans er næstfátækast allra Ameríkuríkja á eftir Haítí. Skip á ferð um Panamaskurðinn Níkaragva Vilja veita Panama- skurðinum samkeppni Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, segir að ekkert mæli gegn því að lík Yassers Arafats, fyrrverandi leið- toga Palestínumanna, verði grafið upp og rannsakað eftir að rannsókn fréttastofunnar Al-Jazeera leiddi í ljós að mögulegt væri að eitrað hefði verið fyrir honum með geislavirka efninu pólóníum. Töluvert magn af efninu fannst í fötum hans og öðrum eigum. Ekkja Arafats, Suha, hefur farið fram á það við pal- estínsk stjórnvöld að þau grafi lík eiginmanns hennar upp þar sem hann er grafinn í Ramallah til að hægt sé að skera úr um hvort hann hafi verið myrtur. Þegar Arafat lést skyndilega úr veik- indum árið 2004 hafnaði hún því að lík hans væri krufið. „Það eru engar pólitískar eða trúarlegar ástæður sem koma í veg fyrir slíka rannsókn,“ segir Nabil Abu Rudeinah, talsmaður Abbasar. Saeb Erekat, aðalsamninga- maður Palestínumanna, hefur einnig kallað eftir því að stofnuð verði alþjóðleg nefnd til að kanna dauða Arafats, lík þeirri sem rannsakar nú morðið á líbanska forsætis- ráðherranum Rafik Hariri árið 2005. kjartan@mbl.is Vilja grafa upp lík Arafats  Kallað eftir alþjóðlegri rannsókn á dauða hans Yasser Arafat · Brúðkaup · Fermingar · Árshátíðir · Afmæli · Ættarmót · Útskriftir · Erfidrykkjur Sími 551 4430 · laekjarbrekka.is Erum staðsett í hjarta Reykjavíkur Bjóðum upp á veislusali fyrir allt að 100 manns Litlabrekka Kornhlaðan Er veisla í vændum? 60 ára og eldri Frábær félagsskapur, aðhald og stuðningur Betri heilsa borgar sig! Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is Hópþjálfun tvisvar í viku með einföldum æfingum. Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal -Lokað námskeið (4 vikur) -Hefst 9. júlí -Mán og mið kl. 11-12 -Verð kr. 9.900,- Skráning á mottaka@heilsuborg.is eða í síma 560 1010 Komdu og prófaðu! ”Það er svo gott að koma í Heilsuborg. Hér er manni heilsað og það er vel tekið á móti manni. Ég vissi ekki hverju ég ætti von á og hvort ég ætti eitthvað erindi í Heilsuborg en strax eftir fyrsta tímann var ég ákveðin í að halda áfram.” -Margrét Eiríksdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.