Morgunblaðið - 05.07.2012, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 05.07.2012, Qupperneq 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2012 ✝ Erla Júl-íusdóttir fædd- ist á heimili föð- urforeldra sinna á Sigtúnum í Eyja- firði 14. september 1930, en ólst upp á Akureyri. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 27. júní 2012. Foreldrar Erlu voru Júlíus Péturs- son, f. 28. október 1905, d. 4. september 1969, og kona hans Brynhildur Jóhannsdóttir, f. 16. maí 1903, d. 9. nóvember 1976. Systkini Erlu eru Þórlaug, f. 13. janúar 1932 og Jóhann, f. 22. desember 1932, d. 13. sept- ember 1981. Hinn 17. september 1949 steinn Aðalbjörnsson og eiga þau Eddu Katrínu og Jón Vikt- or. 2) Brynhildur, f. 1. febrúar 1958 í Reykjavík, maki hennar er Einar Þór Jónatansson, f. 15. nóvember 1950 og eiga þau þrjá syni: Gylfa Þór, f. 1979, Arnar, f. 1990 og Birgi, f. 1993. Gylfi Þór og unnusta hans, Eirný Dögg Steinarsdóttir, eiga tvö börn, Karítas Diljá og Ara Þór. Erla og Birgir bjuggu mest- allan sinn búskap hér sunnan heiða, í Kópavogi og Reykjavík. Erla starfaði við verslunarstörf en lengst af starfaði hún sem bankamaður í Landsbanka Ís- lands þar sem hún starfaði þar til hún lét af störfum 67 ára. Aðalhugamál þeirra hjóna voru ferðalög utanlands og innan. Útför Erlu fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 5. júlí 2012, kl. 13. Jarðsett verður í Kópavogskirkjugarði. giftist Erla eftirlif- andi manni sínum, Birgi Stefánssyni, f. í Búðum í Fá- skrúðsfirði 11. september 1928, foreldarar hans voru Stefán Pétur Jakobsson og kona hans Þorgerður Sigurðardóttir. Erla og Birgir eiga tvær dætur 1) Þorgerður Edda, f. 23. maí 1951 á Akureyri, maki hennar er Jón Ellert Sverrisson, f. 9. nóvember 1950, þau eiga tvö börn: Birgi, f. 1973, í sambúð með Lísu Ólafsdóttir, eiga þau fjóra syni, Daníel, Alex, Kára og Sindra; Erlu Kristínu, f. 1977, maður hennar er Þor- Það eru margar minningar sem vakna í hugum okkar systranna við andlát mömmu okkar, það er með þakklæti, stolti og væntum- þykju sem við kveðjum hana. Þessi fallega og glaðværa nútíma- kona var svo sannarlega áræðin og dugleg í öllu sem hún tók sér fyrir hendur, hvort sem það var að sauma, baka, mála eða afgreiða í gluggatjaldaverslun sem hún gerði í mörg ár og ekki vafðist fyr- ir henni að fara í nám með vinnu og húsmóðurstörfum eins og hún gerði þegar hún fór í Öldunga- deild Menntaskólans við Hamra- hlíð og svo seinna þegar hún fór og lærði snyrtifræði hjá Margréti Hjálmtýs og starfaði í snyrtivöru- versluninni að Laugavegi 76 í mörg ár, en lengst af vann hún í Landsbanka Íslands og lauk sinni starfsævi þar. En umfram allt var hún yndisleg mamma og börnun- um okkar systra einstök amma. Mamma var alltaf fremst í flokki þegar var verið að gera eitthvað, t.d. málaði hún heilu íbúðirnar og teppalagði og mest af öllu langaði hana til að eignast sína eigin bor- vél og læra á hana. Síðastliðin ár hafa verið okkur öllum þungbær og sérstaklega pabba okkar sem gerði henni mögulegt að búa heima þar til fyr- ir fáum mánuðum. Hann pabbi okkar er hetja. Minningin um mömmu okkar lifir björt og falleg eins og hún var sjálf, og mamma veit að við pössum pabba vel fyrir hana. Elsku mamma, takk fyrir allt, minning þín lifir í hjörtum okkar. Þínar dætur, Edda og Brynhildur. Tengdamamma mín hefur nú lokið sinni lífsgöngu eftir erfið veikindi. Ég kynntist henni fyrir nær 25 árum og hef átt margar góðar stundir með henni, hvort sem það er heima, í sumarbú- staðnum eða í útlöndum og ég geymi þessar minningar vel og leita nú í þær þegar komið er að leiðarlokum. Bíbí reyndist mér góð tengda- móðir, hún var glæsileg, drífandi og umvefjandi okkur öll og vildi alltaf allt fyrir okkur fjölskylduna gera. Sl. ár voru tengdamóður minni erfið og okkur öllum í fjöl- skyldunni, en Birgir tengdafaðir minn er einstakur maður og gerði allt sem í hans valdi stóð til að hún gæti verið sem lengst heima hjá honum, það er aðdáunarvert hve vel ástúðlega og lengi hann gat hugsað um sína konu, hún var heima hjá honum alveg fram í febrúar á þessu ári og þá sá ég best hvað þeirra samband var sterkt og ástríkt. Tengdafaðir minn á nú um sárt að binda en við stöndum við hlið hans og styrkjum hann og hann á alla mína samúð. Minningin um mína góðu tengdamóður lifir björt og hlý. Hvíl í friði mín kæra. Einar. Mig langar í fáeinum orðum að minnast ástkærrar tengdamóður minnar og þakka 47 ára samfylgd sem aldrei bar skugga á. Erla eða Bíbí eins og hún var kölluð var glæsileg Akureyrarmær sem ung giftist eiginmanni sínum og lífs- förunauti Birgi Stefánssyni. Fyrsta minning mín um Bíbí er frá því er ég ungur sveinn stóð sveittur og skjálfandi á tröppum heimilis þeirra hjóna í Melgerðinu í Kópavogi og safnaði kjarki til að spyrja eftir stúlkunni sem síðar varð eiginkona mín. Þegar ég hafði loks kjark til að hringja dyrabjöllunni kom til dyra glæsi- leg kona sem brosti sínu blíðasta til mín og beið eftir að sveinninn ungi bæri upp erindið. Mér tókst að stynja upp spurningu um hvort Edda dóttir hennar væri heima. Bíbí bauð mér innfyrir og sagðist ætla að sækja heimasætuna. Mér leið strax betur því viðmót hennar var hlýlegt og glettið og eftir á að hyggja er ég ekki frá því að henni hafi barasta litist þokkalega á pilt- inn. Það er margs að minnast eftir svo löng kynni og kærar eru minningar frá góðum stundum á ferðalögum stórfjölskyldunnar hér heima og erlendis í gegnum tíðina. Einnig koma fram í hugann minningar um glæsilegar matar- og kaffiveislur sem henni tókst að töfra fram fyrirvaralaust við ótrú- legustu aðstæður. Bíbí var kjarnakona. Fram- takssöm, sterkgreind, dugleg, ósérhlífin, snillingur í höndunum og skemmtileg á allan hátt. Hún saumaði föt, gardínur, rúmteppi, málaði hús og íbúðir og eins og það væri ekki nóg þá tók hún sig til á miðjum aldri og fór í öldunga- deildina til að læra tungumál, í framhaldi af því skellti hún sér í að læra snyrtifræði. Þetta gerði hún allt ásamt því að vinna fulla vinnu utan heimilis. Henni var alltaf mikið í mun að hafa stórfjölskyld- una hjá sér helst öllum stundum og við sem flest tækifæri og öll símtöl hennar við fjölskyldumeð- limi hófust á orðunum: ætlarðu ekki að fara að koma í heimsókn? Einstakt lag hafði hún á að laða til sín ungu kynslóðina og voru heim- sóknir ungviðisins til hennar og afa ævintýraferðir, oftast með óvæntum dularfullum uppákom- um, sögustundum og leikatriðum. Bíbí hélt vel utan um fjölskyld- una sína og vildi allt fyrir hana gera og passaði hún og Birgir allt- af vel uppá að fjölskylduna skorti ekkert. Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að njóta þeirra forréttinda að kynnast kjarnakonunni Bíbí og að hafa fengið að njóta lífsgleði hennar og visku svo lengi sem varð. Blessuð sé minning þín, kæra tengdamamma. Jón Ellert Sverrisson. Í dag kveð ég Bíbí ömmu, þessa fáguðu og skemmtilegu konu. Bíbí amma var engri lík, þessi gullfallega kona var amma mín og af því er ég stolt. Bíbí amma átti stóran part í lífi mínu og eru ótal minningar sem streyma um huga minn þessa dag- ana. Amma hafði mikinn áhuga á tísku og var alltaf svo fín og flott. Hún var sífellt að kaupa sér föt og var mjög dugleg að leyfa mér, einu stúlkunni í barnabarna hópn- um, að leika mér að fötunum, skónum og snyrtidótinu. Það eru ótal minningar þar sem að ég sit við snyrtiborðið hennar, búin að klæða mig í sparikjól af henni og maka á mig varalit og augnskugga og henni fannst ég alltaf flottust. Skóherbergið hennar var ævin- týraland út af fyrir sig, heilt her- bergi með öllum týpum af skóm og það mátti prófa þá alla og þramma í þeim um allt. Amma var mikil útivistarmann- eskja og fannst henni mjög gaman að fara á skíði, í gönguferðir og að dvelja í sumarbústað þeirra við Þingvallavatn. Það voru ófá skipt- in sem ég fékk að fljóta með í þær ferðir og þá var sungið hástöfum alla leiðina í bílnum allskyns dæg- urlög. Það eru mér dýrmætar minningar allar gönguskíðaferð- irnar og bústaðaferðirnar þar sem amma gekk á undan bílnum í djúpum snjó til að passa að allt væri í lagi og þegar bíllinn komst ekki lengra þá voru skíðin tekin fram og skíðað upp í bústað og drukkið heitt kakó. Amma var mjög nýjungagjörn og það er mér mjög minnisstætt þegar að ég var að byrja að búa og hún hringdi í mig og bauð mér í mat. Ég að sjálfsögðu þáði það með þökkum og mætti full til- hlökkunar að fá ömmumat en þá ákvað hún að kynna fyrir mér hversu þægileg matseldin væri fyrir nútímakonur og sýndi mér hversu handhægir 1944 réttirnir væru og svo var tilbúin frosin súkkulaðikaka í eftirrétt og þessu var öllu skellt í örbylgjuna og þar með hafði hún framreitt tveggja rétta máltíð á 4 mín. Þetta fannst henni mjög sniðugt og mikil fram- för fyrir útivinnandi konur. Amma og afi héldu alltaf flottar gamlársveislur sem voru þær allra skemmtilegustu veislur sem hægt var að komast í. Þegar við barnabörnin urðum eldri og önn- ur partý voru farin að kalla á okk- ur á þessu kvöldi sagði hún alltaf, „Komið og borðið með okkur og svo keyri ég ykkur í hitt partýið“ og það varð úr. Hún skellti sér í pelsinn og keyrði ungdóminn eftir miðnætti í partý um allan bæ og bauðst svo til að sækja okkur ef við ættum í erfiðleikum með að fá leigubíl. Amma var alltaf reiðubúin að aðstoða og bauð sig iðulega fram í að passa langömmubörnin. Alltaf kvaddi hún mig með þeim orðum að ef mig vantaði einhverja aðstoð með krakkana þá væri hún alveg til í að passa þau, og meira að segja í síðasta sinn sem ég heim- sótti hana á Hrafnistu, þá kvaddi hún mig með því að segja, „Kitta mín! láttu mig svo vita ef ég get passað fyrir þig elskan“. Hún amma var einstök. Elsku besta Bíbí amma mín, takk fyrir allar yndislegu stund- irnar sem við áttum saman. Ég er þakklát fyrir að hafa átt þig sem ömmu og mun varðveita minning- arnar okkar um alla tíð. Erla Kristín Jónsdóttir (Kitta). Eftir allt of stutt kynni ertu fallin frá. Bíbí! Þín er sárt saknað. Ég kynntist þér fyrir rúmum 15 árum síðan, þá voru þú og Biggi nýflutt úr Seljugerðinu þar sem ég og Kitta áttum eftir að eyða ófáum stundum saman. Edda og Nonni voru þá nýflutt inn í Selju- gerðið og ég og Kitta nýbúin að kynnast hvort öðru. Það leið sem sagt ekki á löngu áður en tengda- foreldrar mínir sem keyptu af ykkur Seljugerðið gáfu okkur Kittu þak yfir höfuðið. Þið fluttuð vestur í bæ, nánar tiltekið á Grandaveginn, þar sem mér var í ófá skipti boðið í heimsóknir, mat- arboð og aðrar veislur sem eru minnisstæðar, ekki síst vegna kræsinganna sem í boði voru. Það var alltaf lagt á borð fyrir heilu herdeildirnar og sá siður lifir góðu lífi enn þann dag í dag, því hann erfðist til Eddu dóttur þinnar og tengdamóður minnar og þaðan yf- ir á barnabarnið hana Kittu mína. Það var alltaf mikið gaman að koma í heimsókn til þín og fá þig í heimsókn, alltaf svo jákvæð og glöð. Mér er mjög minnisstæð heimsókn ykkar Bigga til okkar Kittu til Danmerkur sumarið 2005. Það sem við gátum spjallað saman langt fram eftir, kvöld eftir kvöld, á pallinum í frábæru dönsku sumarveðrinu, í frábærum félagsskap ykkar. Yndislegur tími sem gleymist aldrei. Um vorið 2006 fluttum við Kitta heim og þá beint í Seljugerð- ið til tengdó og þremur mánuðum síðar fluttum við í Hafnarfjörðinn. Það var síðan árið 2010 sem þið Biggi komuð til okkar í Hafnar- fjörðinn og keyptuð íbúð á Hrafn- istu, skömmu eftir að þú greinist með þennan hörmulega sjúkdóm. Við áttum góðar stundir með ykk- ur þar sem annars staðar og flutn- ingur ykkar í fjörðinn varð til þess að heimsóknir okkar margfölduð- ust til ykkar og öfugt. Það er svo margt sem ég minn- ist þín fyrir og eitt er það hversu ungleg og falleg þú varst allt til enda, fylgdir alltaf nýjustu straumum og stefnum í tískunni og gafst unglingsstelpunum ekk- ert eftir í fatavali og skarti. Þú verslaðir flest í búðum sem stíl- aðar voru á ungu kynslóðina og barst allt með svo miklum glæsi- leika að eftir var tekið. Þú varst alltaf svo kát og gladdist um allan helming þegar við komum með krakkana til þín í heimsókn. Það sem þú leyfðir þeim að leika sér að, það eru ekki allir sem myndu leyfa börnum að leika sér að öllum skartgripunum sínum, fötunum, skónum og bara hverju því sem þau báðu um að fá að leika sér að, þú neitaðir þeim aldrei um neitt ef þau gátu búið sér til leik úr því. Gjafmildi þín og hlýleiki, ég get haldið endalaust áfram. Ég er svo þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast þér og að börnin mín, þau Edda Katrín og Jón Viktor, hafi fengið að kynnast þér líka. Elsku Biggi og fjölskylda, Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Hafðu það sem allra best á nýja staðnum Bíbí. Hvíl í friði. Þorsteinn Aðalbjörnsson. Í dag kveðjum við kæra frænku mína Erlu Júlíusdóttur eða Bíbí eins og hún var alltaf kölluð af vin- um og ættingjum. Þegar ég lít yfir farinn veg eru minningarbrotin sveipuð gleði, kærleika og þakklæti fyrir að eiga hana Bíbí mína að, vinátta okkar hefur varað frá því ég fæddist. Ég leit alltaf á hana sem eldri systur mína, hún bar alltaf mikla umönn- un fyrir mér og vildi mér alls hins besta. þegar ég flutti til Reykjavíkur opnuðu þau Birgir maðurinn hennar heimili sitt fyrir mér og bjó ég hjá þeim í langan tíma. Er ég þeim hjónum og dætr- unum Eddu og Brynhildi þakklát fyrir þann tíma. Fyrir mér var þetta dásamleg- ur tími vináttu og góðra minninga. Við Erling og fjölskyldan þökk- um samfylgdina og allar góðu stundirnar sem við áttum saman og sendum Birgi og fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi þig, kæra frænka. Ragna. Erla Júlíusdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku langamma, þú varst rosalega skemmtileg við okkur og takk fyrir að vera svona góð við okkur. Við elskum þig langamma. Takk fyrir að gefa okkur alltaf Opal og súkkulaði. Takk fyrir að gefa mér (Eddu) snyrtiborðið þitt og leyfa mér að leika mér að snyrtidótinu þínu. Þú varst falleg og góð langamma. Við söknum þín. Edda Katrín og Jón Viktor. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, GUÐRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, lést á Líknardeild Landspítalans laugardaginn 30. júní. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 9. júlí kl. 13:00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknardeild Landspítalans. Jón Þór Eyþórsson, Olga Stefánsdóttir, Daníel Eyþórsson, Sigurlaug Kr. Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn og systkini.✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, dóttir, systir, tengdadóttir og frænka, MARGRÉT JONNÝ BIRGISDÓTTIR, Miðhúsum 8, 112 Reykjavík, lést sunnudaginn 1. júlí á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Útför fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 11. júlí kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á námsreikning Thelmu Bjargar, 0114-15-381199, kt. 200491-2979. Magnús Helgi Arnarson, Thelma Björg Magnúsdóttir, Rögnvaldur Geir Hannah, Hanna Helgadóttir, Birgir Dagbjartsson, Sigrún Birgisdóttir, Ingvar Sigurðsson, Lára Birgisdóttir, Ragnar Guðlaugsson, Brynja Dögg Birgisdóttir, Hannes Guðlaugsson, Björg Magnúsdóttir, Örn Henningsson og frændsystkini. ✝ Okkar ástkæra ESTER JÚLÍUSSON, sem lést föstudaginn 29. júní, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju mánudaginn 9. júlí kl. 15:00. Ragnheiður Friðjónsdóttir, Sigurþór Aðalsteinsson, Guðrún Friðjónsdóttir, Þórður Þórðarson, Júlíus Lennart Friðjónsson, Þóra Jónsdóttir, Hjördís H. Friðjónsdóttir, Sigurður Davíðsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Kær vinkona mín, DROPLAUG GUÐMUNDSDÓTTIR, til heimilis á Dalbraut 27, Reykjavík, andaðist á öldrunarlækningadeild Landspítalans, Landakoti, sunnudaginn 1. júlí. Útför hennar fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 9. júlí kl. 13.00. Kristín Waage. ✝ Elskulegi maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRNI HREIÐAR ÁRNASON húsgagnameistari, Furugerði 1, Reykjavík, lést á heimili sínu þriðjudaginn 3. júlí. Jarðarförin auglýst síðar. Jytte I. Árnason, Guðrún Árnadóttir, Gísli Grétar Sólonsson, Rannveig Árnadóttir, Eiríkur Jón Ingólfsson, Inga M. Árnadóttir, Anna Arndís Árnadóttir, Leifur Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.