Morgunblaðið - 05.07.2012, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 05.07.2012, Qupperneq 30
30 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2012 Ég ætla bara að taka því rólega og heilsa upp á ömmu mína,“segir Pétur Guðmundur Ingimarsson, sagnfræðingur og af-mælisbarn dagsins, en hann er þrítugur í dag. „Þetta er bara afmælisdagur eins og hver annar,“ segir Pétur, sem vill ekki gera of mikið úr áfanganum. „Það er samt alltaf gaman að eiga afmæli.“ Pétur Guðmundur syngur í Háskólakórnum og hefur gert um ára- bil. Einn daginn voru kórfélagarnir að tala saman um hljóðfæri, og þá fékk Pétur þá hugmynd um að smíða sitt eigið langspil: „Þetta er ekki voðalega flókið, þetta er bara smávinna,“ segir Pétur. „Megin- skrokkurinn er úr greni, botninn er úr birki og hálsinn er úr lindi- tré.“ Pétur Guðmundur segir að hann hafi mætt á kóræfingar með hljóðfærið og það hafi vakið mikla lukku. Hann er þó með fleiri hljóð- færi í smíðum: „Ég ætla að smíða annað langspil, alveg eins nema að- eins smærra, því að hitt er með stærri langspilum sem eru til.“ Það er yfir metri að lengd, en yfirleitt munu langspil vera um 80 cm að lengd. Pétur þykir flinkur tungumálamaður, og hefur hann meðal annars lært japönsku í háskólanum, en hann byrjaði á því námi þegar hann útskrifaðist úr MR. Hluti af því námi er að búa í Japan í skiptinámi. Pétur bjó þá í borginni Hirakata, sem er rétt hjá Osaka og Kyoto og þótti honum það mjög merkileg lífsreynsla. sgs@mbl.is Pétur Guðmundur Ingimarsson 30 ára Ljósmynd/ Pétur Guðmundur Ingimarsson Fjölhæfur á fertugsaldri Pétur Guðmundur talar japönsku, spilar á langspil og syngur með Háskólakórnum. Smíðaði langspil úr greni og birki Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Ellen Ósk Grant Hólm- arsdóttir og Álfheiður Björk Hannesdóttir héldu tombólu við versl- un Hagkaupa á Akureyri, einnig föndruðu þær og seldu í miðbænum ým- iskonar muni sem þær höfðu perlað. Þær söfn- uðu 10.800 kr. sem þær gáfu Rauða krossi Ís- lands. Hlutavelta Selfoss Kristín Birta fæddist 8. októ- ber kl. 08.53. Hún vó 3.760 g og 52 cm. Foreldrar hennar eru Kristjana Ólöf Friðriksdóttir og Jón Helgi Daníelsson. Nýir borgarar G arðar fæddist í Reykja- vík og ólst þar upp. Hann lauk stúdents- prófi frá MR 1962, stundaði nám í arki- tektúr við Rheinisch-Westfälische Technische Hochschule í Aachen í Þýskalandi 1962-68 og lauk þaðan prófum 1968. Garðar starfaði á skipulagi borgarverkfræðings sumarið 1964, var arkitekt hjá Húsameistara rík- isins 1968-76, yfirarkitekt hjá Húsa- meistara ríkisins 1976-79, húsa- meistari ríkisins 1979-96 og hefur starfrækt eigin teiknistofu í Reykja- vík frá 1997. Margar glæstar byggingar Meðal helstu verka Garðars sem hann hefur unnið á eigin vegum og með öðrum má nefna Systraheimilið í Garðabæ, Vöruflutningamiðstöð- ina, Sundaklett, (skrifstofu Eim- skips í Reykjavík) Sjálfstæðishúsið Valhöll, ásamt Halldóri H. Jónssyni, Fiskvinnsluhús Granda hf., ásamt Ingimundi Sveinssyni, en meðal verka hans í embætti Húsameistara ríkisins má nefna geðdeild og K- byggingu á Landspítalalóð, há- skólabyggingarnar Lögberg og Læknagarð, hönnun Listasafns Ís- lands við Fríkirkjuveg, Flugstöð Leifs Eiríkssonar (norðurbyggingu og síðar viðbygginu við hana, ásamt VA - Arkitektum), nýja kirkju og Snorrastofu í Reykholti, hönnun endurbyggingar Þjóðleikhússins og hönnun og endurbyggingu á forseta- setrinu á Bessastöðum, í samvinnu við Þorstein Gunnarsson. Garðar var stjórnarformaður stjórnar Byggingarþjónustu AÍ 1975-77, sat í skipulagsstjórn rík- isins frá 1976 og var formaður skipulagsstjórnar ríkisins 1982-84 og 1991-93, sat í skipulags- og bygg- Garðar Halldórsson arkitekt 70 ára Hestamannafjölskyldan Garðar og Birna, dæturnar tvær og tengdasonurinn eru öll í hestamennsku. Hestamannafjölskylda „Ríðum heim að Hóli“ Garðar með tvö barnabarnanna á góðri stund. „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Hljóðkerfi og hljóðbúnaður í miklu úrvali. Hljóðkerfistilboð á www.hljodfaerahusid.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.