Morgunblaðið - 05.07.2012, Side 32

Morgunblaðið - 05.07.2012, Side 32
32 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Fátt er svo með öllu illt að ei boði gott. Aðrir hlusta á þig og þú skalt nýta það til að reyna að hafa bætandi áhrif á samfélag þitt. Farðu þér hægt og sérstaklega í fjár- málum. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ættir að setjast niður með þínum nánustu og fara í gegnum málin, sérstaklega hvaða væntingar þið hafið hvert um annað. Settu þér ákveðna dagskrá og farðu eftir henni. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er í góðu lagi að leyfa ein- hverjum öðrum að taka við taumunum í vinnunni. Það er oft þægilegra að ræða málin við skoðanabræður sína heldur en hina sem ekki eru á sama máli. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Farðu vel yfir öll smáatriði í vinnunni í dag. Reyndu að sjá allt það góða í því hvernig hlutirnir þróast, og þú endar á toppnum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er ýmislegt, sem þig langar til þess að kanna og þú ættir að athuga möguleikana á að láta það eftir þér. Hugur þinn er tilbúinn til að leggja hart að sér. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Sjálfstæði þitt gerir það að verkum að þú lætur engan ráðskast með þig í fjár- málum. Og þá er bara að láta til skarar skríða. 23. sept. - 22. okt.  Vog Viðkvæm vandamál koma upp og krefj- ast allrar þinnar athygli. Og í einkalífinu mun gamall vinur koma þér til hjálpar með fersk- um hugmyndum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Gefðu þér tíma til þess að gera verðsamanburð. Það margborgar sig og þeim tíma, sem fer í það, er því vel varið. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það reynir á samskipti þín við yfirboðara, foreldra eða yfirmenn í dag. Reyndu því ekki að troða málum þínum áfram. 22. des. - 19. janúar Steingeit Fólk sýnir þér mikla velvild í dag. Takirðu fagnandi á móti breytingum hefurðu byrinn með þér. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú þarft að tala svo skýrt og skor- inort að engin hætta sé á að fólk misskilji þig. Allt hefur sinn tíma og það þýðir ekkert að reyna að ýta á eftir hlutunum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ímyndunarafl þitt og forvitni eru vakin í dag. Og þeir sem halda að þú, kæri fiskur, sért ekki langrækinn eiga eftir að komast að hinu gagnstæða. Um helgina var mikið umleikis.Sigrún Haraldsdóttir segir á vefnum: „Við Magnús Ólafsson vor- um heldur góð með okkur á Lands- móti hestamanna enda stoltir hlut- hafar í stóðhestinum og heimsmeistaranum Nóa frá Stóra- Hofi.“ Hún bætir því við, að vegna þessa hafi hún endurskoðað stefnu sína í lífinu: Elli minni ætla ég að fresta, á mig fús ég verkefnunum hleð. Núna vil ég nýja rækta hesta og njóta þeirra áður en ég kveð. Það kveður við annan tón hjá Davíð Hjálmari Haraldssyni. Hann segist hafa verið að velta mismun- andi kostum og hæfileikum for- setaframbjóðendanna fyrir sér á föstudagsmorgun: Frambjóðendur meir og meir met ég í því ljósi að allir saman eru þeir eins og kýr í fjósi. Og jafnframt er þess getið, að einhver DHH hafi látið miða fylgja kjörseðlinum: Framboð hér er feikinóg frökena og sveina. Kristján Eldjárn kýs ég þó komi hann til greina. Enn segir Davíð Hjálmar Har- aldsson á Leirnum, að á tindi hæstu fjalla verði maðurinn smár en hugsunin háleit. Hann hafi gengið á Ystuvíkurfjall sem er heldur lægra en Everest, – „þar kom andinn yfir mig,“ segir hann: Allur heimur fyrir fótum mér, furðu nálæg eru loftin blá: Hve bungumynduð jörðin okkar er af Ystuvíkurfjalli glöggt má sjá. Sem varð Guðmundi Stefánssyni að yrkisefni: Ærinn bratta andinn kleif óðfús svarar kalli. Yfir Davíð uppi sveif á Ystuvíkurfjalli. Þessi staka olli aftur því að Arn- þór Helgason gat ekki orða bund- ist: Á þaki heimsins hreykti sér halur einn á Norðurlandi. Fræknum þegni fögnum vér, fjallganga er mikill vandi. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Allur heimur fyrir fótum mér G æ sa m am m a o g G rí m ur G re tt ir S m áf ól k H ró lf ur hr æ ði le gi F er di n an d HVAÐ ER AÐ? ÞAÐ HVÆSTI Á MIG SKO... UH... ÉG... UH... ÞÚ... VEIST... SKO... UH... BLESS ÉG VAR AÐ REYNA AÐ SKILJA EFTIR SKILABOÐ HANDA LÍSU ÞAÐ HJÁLPAR AÐ VITA HVAÐ ÞÚ ÆTLAR AÐ SEGJA ÁÐUR EN ÞÚ HRINGIR AF HVERJU GETUM VIÐ EKKI TALAÐ SAMAN VIÐ MATARBORÐIÐ EINS OG ÖNNUR PÖR!? ...OG TALAÐ LÍKA SAMA TUNGUMÁL ÞIÐ VERÐIÐ AÐ TRÚA MÉR, ÞESSI LEIKFÖNG ERU LIFANDI! ÞESSI SPARIBAUKUR HÓTAÐI MÉR! NEITAÐI HANN AÐ OPNA SIG? HA, HA, VOÐA FYNDIÐ! Þýska tímaritið Die Zeit gerirEvrópumeistaramótið í knatt- spyrnu upp á heimasíðu sinni. Þar talar Oliver Fritsch um vonbrigði, sérfræðingarnir hafi notið sín við að greina hið smáa, en yfir heildina hafi varkárni ráðið ríkjum. „Sum lið beittu ekki einu sinni pressu, sum lið fóru ekki einu sinni í gagnsókn,“ skrifar hann. „Meira að segja í átta liða úrslitum reyndu Grikkir, Frakkar og Englendingar að beita varnarmúrsaðferðinni, reyndar án árangurs.“ x x x Fritsch segir að þrír leikir íkeppninni hafi verið á sama stalli og meistaradeild Evrópu og Spánverjar hafi leikið í þeim öllum, gegn Portúgölum og í tvígang gegn Ítölum, í úrslitaleiknum og í riðla- keppninni, sem hafi verið besti leik- ur mótsins. „En meira að segja snillingarnir frá Spáni blésu fyrst til sóknar í úrslitaleiknum,“ skrifar hann. „Með því að vera mikið með boltann og þéttriðið sendinganet, sitt „tiki-taka“, höfðu þeir fram að því í raun boðið upp á sýndarsókn. Í stað þess að leita leiðarinnar að markinu földu þeir boltann fyrir andstæðingnum. Sóknin leystist úr læðingi í framlengingu undanúrslit- anna gegn Portúgal … Spænsku blöðin voru lengi vel pirruð, en úr- slitaleikurinn friðaði þau.“ x x x Víkverji verður að viðurkenna aðeins hrifinn og hann hefur verið af leik Spánverja undanfarin ár furðaði hann sig á leik þeirra á EM. Þeir sendu boltann fram og til baka án þess að reyna að komast að marki og velti Víkverji því stundum fyrir sér hvort markið hefði verið fjarlægt af vellinum og spænsku leikmennirnir biðu þess að því yrði komið fyrir aftur. Jafnvel hvarflaði að Víkverja að nú þyrfti að taka upp skotklukku í fótbolta líkt og gert er í körfubolta. En síðan kom leiftr- andi snilld eins og hin fullkomna sending Xavis á Jordi Alba þegar Spánverjar komust í 2-0 í úrslita- leiknum á móti Ítölum og spænska liðið fékk uppreisn æru. víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: En hvert tré þekkist af ávexti sínum, enda lesa menn ekki fíkjur af þistlum né vínber af þyrni- runni. (Lúkas 6, 44.) Þú færð skírnargjöfina hjá okkur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.