Morgunblaðið - 05.07.2012, Side 36
Innilegt Stilla úr heimildarmyndinni,
hátíðargestir á rómantískri stundu.
Heimildarmyndin Glastonbury the Movie (in
Flashback) verður frumsýnd í Bíó Paradís í
dag en hún er endurgerð á heimildarmynd
með sama heiti frá árinu 1995. Einn höfunda
myndarinnar, Robin Mahoney, endurvann
myndina frá grunni, fann efni úr hrátökum
og tók upp nýtt að hluta, að því er fram kem-
ur á vef kvikmyndahússins. Þá hafi öll tón-
listin í myndinni verð endurhljóðblönduð. Í
myndinni er fjallað um Glastonbury tónlist-
arhátíðina sumarið 1993 en þá komu m.a.
fram Lemonheads, Stereo MCs, Spiritual-
ized, The Verve og The Orb. Hin nýja útgáfa
af myndinni var frumsýnd í Lundúnum 29.
júní sl. en einn tökumanna myndarinnar er
hinn íslenski Úlfur Hróbjartsson.
Endurunnin heimildarmynd um Glastonbury
Málmsmenn Hljómsveitin Muck, sem leikur á
Faktorý í kvöld, flytur unaðslegan metal.
Hljómsveitirnar Retro Stefson og Muck halda
tónleika í kvöld á skemmtistaðnum Faktorý
og hefjast þeir kl. 22.59 en húsið verður opn-
að kl. 22. Retro Stefson hefur verið iðin við
upptökur að undanförnu, að breiðskífu sem
kemur út 18. ágúst en auk þess verður hún ið-
in við tónleikahald og mun flakka milli helstu
tónlistarhátíða Evrópu. Muck-arar hafa farið
mikinn í málmi hér á landi og munu þeir ef-
laust bíta í skjaldarrendur í kvöld. Muck hef-
ur komið fram á ýmsum evrópskum tónlist-
arhátíðum undanfarnar vikur og slær ekki
slöku við. Þema þessara tveggja hljómsveita á
tónleikunum í kvöld mun vera „unaður
metalsins og krafturinn endalausi“, skv. til-
kynningu.
Unaður metalsins og krafturinn endalausi
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2012
Lára Hilmarsdóttir
larah@mbl.is
„Við fundum strax að það var
mikil stemning í bænum,“ segir
Guðrún Dís Emilsdóttir, umsjón-
armaður þáttanna Flikk flakk, en
fyrsti þátturinn gerist í Vest-
mannaeyjum og er sýndur í Rík-
issjónvarpinu í kvöld kl. 20.05. Í
þáttunum munu fjórir íslenskir
hönnuðir breyta hafnarsvæðum í
torg þar sem bæjarbúar taka svo
við og hafa tvo daga til þess að
ljúka framkvæmdum. Guðrún er
einnig kunnug mörgum sem út-
varpskonan Gunna Dís í morgun-
útvarpsþáttunum Virkir morgnar
á Rás 2. „Mitt hlutverk er að
fylgjast með framkvæmdum,
hvetja fólk áfram og taka bæjar-
búa tali.“
Óvænt viðbrögð
Gunna Dís lýsir þáttunum sem
hágæða íslensku raunveruleika-
sjónvarpi. „Fólk ætti að horfa á
þættina því ekkert svona hefur
sést áður í íslensku sjónvarpi.“
Við tökur á fyrstu þáttunum seg-
ir Gunna Dís það hafa komið á
óvart hversu samtaka fólk var í
að ná tilsettu markmiði. „En eðli-
lega hljóta einhverjir að spyrja
sig þegar lið hönnuða kemur inn
í bæjarfélag: „Er þetta allt í lagi?
Ætlum við að breyta þessu og
gera hlutina svona?“ því sumir
líta á hafnarsvæði sem vinnu-
svæði þar sem ekki þurfi að huga
að fagurfræði.“ Hún bætir þó við
að fagurfræðin og vinnusvæði
geti haldist í hendur: „Fólk sann-
færist af sjálfu sér þegar það sér
hvað hlutirnir koma vel út.“
Upp um fjöll og firnindi
„Ég er minnst í því að drulla mig
út og taka þátt í framkvæmdum.
Ég er meira að fylgjast með og svo
skýst ég í að skoða allt sem mig
langar til að sjá og það sem svæðin
hafa upp á að bjóða,“ segir Gunna
Dís og því má segja að í þáttunum
sameinist umturnun hafnarsvæða
og ferðalög víðs vegar um land.
„Ég fór upp um fjöll og firnindi og
á sjó líka,“ segir Gunna Dís en
snjósleðaferð um Vatnajökul, fugla-
skoðun á Ingólfshöfða og sprang í
Vestamannaeyjum er meðal þess
sem sjá má í þáttunum. Aðspurð
hver hápunkturinn hingað til hafi
verið, segir Gunna Dís valið vera
erfitt. „Er nokkuð hægt að gera
upp á milli hvort sé skemmtilegra
að fara upp á Vatnajökul eða í mót-
orkross með bæjarstjóranum í
Vestmannaeyjum?“
Fyrsta skipti á skjánum
Flikk flakk er fyrsta sjónvarps-
þáttaröðin sem Gunna Dís vinnur
að. Mestu aðlögunina segir hún
hafa verið að venjast því að sjá sig
á skjánum. „Manni bregður og
hugsar; bíddu, er ég virkilega
svona?“
Flakkað um með Gunnu Dís
Gunna Dís umbreytir höfnum í nýrri þáttaröð í Ríkissjónvarpinu
„Ekkert slíkt sést áður í íslensku sjónvarpi,“ segir Gunna Dís
Baksviðs Gunna Dís við tökur á nýrri íslenski þáttaröð, Flikk flakk, þar sem íslenskum hafnarsvæðum er umbreytt.
Útlit er fyrir að franska kvikmynd-
in Intouchables slái aðsóknarmet
hér á landi, að því er fram kemur í
tilkynningu frá Senu, dreifingar-
aðila myndarinnar. Þar segir að að-
sókn að myndinni hafi farið vax-
andi í þriðju sýningarviku sem
„brjóti í raun öll lögmál kvik-
myndabransans“. Um sl. helgi hafi
aðsóknin aukist um 30% miðað við
helgina á undan, heildaraðsókn
nálgist 12 þúsund miða og ekki
ólíklegt að 25-30 þúsund miðar
verði seldir í heildina. Verði svo
muni myndin slá aðsóknarmet:
verða aðsóknarmesta franska kvik-
myndin á Íslandi, aðsóknarhæsta
evrópska myndin og aðsóknarhæst
af þeim myndum sem eru á öðru
tungumáli en ensku eða íslensku.
Slær Intouchables
aðsóknarmet?
Bandaríski leikarinn Andy Griffith
er látinn, 86 ára að aldri. Þekktasta
hlutverk Griffiths var lögmaðurinn
Matlock í samnefndum þáttum sem
eru eflaust mörgum Íslendingnum í
fersku minni. Þá lék Griffith einnig
lögreglustjórann Andy Taylor í
The Andy Griffith Show á árunum
1960 til 1968, svo önnur hlutverk
séu nefnd. Griffith var sæmdur
frelsisorðu forsetaembættisins árið
2005 af þáverandi Bandaríkja-
forseta, George W. Bush.
Griffith látinn
Heiður George W. Bush veitti Griffith
frelsisorðuna árið 2005.
AFP
THE AMAZING SPIDERMAN 3D Sýnd kl. 4 - 7 - 10 (Power)
INTOUCHABLES Sýnd kl. 4 - 8 - 10:20
MADAGASCAR 3 3D Sýnd kl. 4 - 6
WHAT TO EXPECT... Sýnd kl. 8 - 10:15
Ein vinsælasta sögupersóna
veraldar snýr aftur í
sumarstórmynd ársins
EKKI MISSA
AF ÞESSARI!
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
MYNDIN SEM
ALLIR ERU
AÐ TALA UM!
ÍSL TEXTI
HHHH
-FBL
HHHH
-MBL
CAMERON DIAZ JE
NNIFER LOPEZ EL
IZABETH BANKS
WHAT TO EXPECT
WHEN YOU´RE EX
PECTING
BRÁÐSKEMMTILE
G GAMANMYND!
HHHH
-KVIKMYNDIR.IS
HHHH
-FBL
HHHH
-TV, KVIKMYNDIR.IS
HHHH
-VJV, SVARTHÖFÐI
- TV, KVIKMYNDIR.IS
- VJV, SVARTHÖFÐI
MYNDIN SEM ALLIR
ERU AÐ TALA UM!
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
SPIDERMAN 3D KL. 8 - 10.30 10
WHAT TO EXPECT WHEN... KL. 8 L
INTOUCHABLES KL. 6 - 10 12
SPIDER-MAN 3D KL 6 - 9 12
INTOUCHABLES KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
MIB 3 3D KL. 5.30 - 8 – 10.30 10
STARBUCK KL 5.30 - 8 L
WHAT TO EXPECT WHEN EXPECTING KL 10.20 L
SPIDER-MAN 2D KL. 5 -8 - 10.50 10
SPIDER-MAN 3D LÚXUS KL. 5 - 8 - 10.50 10
SPIDER-MAN 3D KL. 4 - 5 - 8 - 10.50 10
PROMETHEUS 3D KL. 8 - 10.30 16
MADAGASCAR 3D ÍSL.TAL KL. 3.40 - 5.50 L
WHAT TO EXPECT WHEN EXPECTING KL. 8 - 10.25 L
EIN VINSÆLASTA
SÖGUPERSÓNA VERALDAR
SNÝR AFTUR Á HVÍTA TJALDIÐ
Í SUMARSTÓRMYND ÁRSINS
EKKI MISSA AF ÞESSARI!
HLUTI AF
HVERJUM
SELDUM
BÍÓMIÐA
ALLAN JÚLÍ
- rennur til
Barnaheilla