Morgunblaðið - 05.07.2012, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 05.07.2012, Qupperneq 40
FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 187. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Bannaði Katie að leika í … 2. Vöruð við að fara til Bandaríkjanna 3. „Ég gat ekki verið nálægt þeim“ 4. Sárnar aðfinnslur um holdafarið »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Unnsteinn Manúel Stefánsson, liðsmaður hljómsveitarinnar Retro Stefson, setti saman nýjasta laga- lista Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, IMX, á myndbandavefnum YouTube. Má þar m.a. finna lög með Kimono, Svani og Moses Hightower. Morgunblaðið/Valdís Unnsteinn setur sam- an lagalista fyrir IMX  Rapparinn Tiny frumsýnir á morg- un myndband við lag sitt „1000 Eyes“ á vefnum Vísi. Lagið var samið af Agli „Tiny“ Thor- arensen og Sölva Blöndal. Að gerð myndbandsins komu, auk Tiny, þær Rakel Mjöll Leifsdóttir og Katrín Braga. Frumsýningarteiti verður haldin annað kvöld á Prikinu kl. 22. Tiny frumsýnir myndband  Myndlistarmaðurinn Ragnar Helgi Ólafsson frumsýnir fjölrása mynd- band, Axis Mundi (fyrir Sydney), í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, í dag kl. 17 og er það hluti af hinni breytilegu innsetningu The Demented Diamond of Kling & Bang’s Con- fected Video Arc- hive og er hluti af sýningunni Sjálfstætt fólk. Axis Mundi (fyrir Sydney) í Hafnarhúsi Á föstudag og laugardag Suðvestlæg átt, 3-8 m/s og súld með köflum á vestanverðu landinu, en bjart að mestu eystra. Hiti 11 til 16 stig. Á sunnudag Norðvestlæg átt, víða 5-10 og rigning um mestallt land, þó síst suðaustanlands. Kólnar heldur í veðri. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Skýjað með köflum víðast hvar og þurrt að kalla. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast suðaustanlands. VEÐUR Fimm íslensk knattspyrnu- félög eiga von á greiðslum frá UEFA, Knattspyrnu- sambandi Evrópu, þegar tekjum af úrslitakeppni EM í Póllandi og Úkraínu verður deilt niður á milli aðildar- landanna. Samkvæmt sam- komulagi sem UEFA og ECA gerðu dreifast 100 milljónir evra á milli félaga í öllum 53 aðildarlöndum UEFA, en það eru tæpir 16 milljarðar ís- lenskra króna. »1 Fimm íslensk fé- lög fá EM-tekjur „Ég er ekki í vafa um að þessi fé- lagaskipti verða Gylfa til framdráttar. Hann er það góður fótboltamaður í grunninn að ég held að það verði ekk- ert vandamál fyrir hann að verða fljótur að aðlagast hlutunum hjá Tottenham,“ segir Guðjón Þórðarson um Gylfa Þór Sigurðs- son og ákvörðun hans um að fara til Totten- ham. » 3 „Þessi skipti verða Gylfa til framdráttar“ Þrjú íslensk lið verða í baráttunni í fyrstu umferð Evrópudeildar UEFA í kvöld. FH fær Eschen/Mauren frá Liechtenstein í heimsókn í Kaplakrika en bæði ÍBV og Þór eru komin til Du- blin þar sem þau mæta írskum and- stæðingum. Eyjamenn vilja koma fram hefndum frá því í fyrra, Þór þreytir frumraun sína í Evrópukeppni og þjálfari FH varar við vanmati. »2-4 Evrópuleikir í Kapla- krika og Dublin ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Guðrún Sóley Gestsdóttir gudrunsoley@mbl.is Vatn, ís og uppruni lífs í alheimi er heiti alþjóðlegs sumarskóla í stjörnulíffræði sem fer fram hér á landi 2. til 15. júlí 2012. Á fimmta tug framhaldsnema og ungra vísindamanna á aldrinum 25- 35 ára taka þátt. „Þetta eru úrvals- nemendur í meistara- og doktors- námi frá Bandaríkjunum og Evrópu, og einn er þar að auki kominn alla leið frá Úrúgvæ,“ segir Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnuskoð- unarfélags Seltjarnarness og nemi í stjörnufræði við Háskólann í Lundi. Spennandi vettvangsferðir Að hans sögn er námskráin fjöl- breytt. „Meðal annars er efnafræði í geimnum á dagskrá, til að mynda hvernig vatn verður til í skýjum sem mynda sólkerfið.“ Ýmislegt fleira er brallað á þeim tæpu tveimur vikum sem skólinn er starfræktur. „Þetta verður ennþá skemmtilegra eftir því sem líður á og nær hámarki þegar farið verður í vettvangsferðir á Suðurland, þar sem hverir verða skoðaðir, sýni tek- in úr jöklum og fleira spennandi,“ segir Sævar Helgi, en nemendurnir fara að Fimmvörðuhálsi, inn í Land- mannalaugar og upp á Sólheima- jökul, allt undir dyggri leiðsögn vís- indamanna. „Námið snýst að miklu leyti um jaðarlífverur sem mögulega gætu þrifist á stöðum með miklum kulda og geislunum, eins og til dæmis Mars,“ segir Sævar. Að hans sögn stunda nemendur skól- ans nám í greinum á borð við jarðfræði, stjörnufræði, efnafræði og líffræði. „Nám- skeiðið er í raun mjög þverfaglegt og sameinar af- skaplega margt undir einum stjörnulíffræðihatti,“ segir Sævar. Aðspurður af hverju Ísland hafi orðið fyrir valinu sem staður fyrir skólann segir hann skýringuna liggja í aðstæðum hér á landi. „Ís- land og Havaí eru ung landsvæði á jörðinni, þar sem greiður aðgangur er að hverasvæðum og nýrunnum hraunum og jöklum. Þessum að- stæðum svipar til þeirra sem fyrir- finnast á Mars, fyrir utan hraunin. Við erum sem sagt að skoða hlið- stæður í landslagi á Íslandi og Havaí samanborið við aðra staði í sólkerf- inu okkar,“ segir Sævar en þeir stað- ir verða rannsóknarefni NASA og ESA í geimferðum næstu ár og ára- tugi. Hliðstæður á Íslandi og Mars  Alþjóðlegur sumarskóli í stjörnulíffræði Morgunblaðið/Golli Stjörnulíffræðirannsóknir Nemendur skólans skara allir fram úr á sínu sviði, en þeir ferðast að Fimmvörðuhálsi, inn í Landmannalaugar og upp á Sólheimajökul meðan á Íslandsdvölinni stendur. Skólinn er starfræktur á um tveggja ára fresti á Íslandi og Havaí til skiptis, en á bak við hann standa á vegum NordForsk: Ha- vaíháskóli, NASA Astrobiology Institute og Háskóli Íslands. „Skólahald- ið hefur gríðarlega jákvæð áhrif á vís- indasamstarf Ís- lands við erlenda háskóla, bæði nú og í framtíðinni, svo um er að ræða mikla lyftistöng fyrir íslenskt fræðastarf,“ segir Sævar Helgi. Þrír íslenskir sérfræðingar kenna við skólann, þeir Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur, Magnús Tumi Guðmundsson jarð- eðlisfræðingur og Þorsteinn Þor- steinsson jöklafræðingur. Auk þess kenna erlendir vísindamenn sem eru heimsþekktir innan þessa geira. Styrkir fræðasamfélagið LYFTISTÖNG FYRIR ÍSLENSKAR VÍSINDARANNSÓKNIR Magnús Tumi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.