Morgunblaðið - 19.07.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.07.2012, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 9. J Ú L Í 2 0 1 2  Stofnað 1913  167. tölublað  100. árgangur  BARCELONA KEYPTI VERKEFNIÐ VIÐSKIPTI SAUÐFJÁRSETUR, MENNING OG FERÐAÞJÓNUSTA Viðskiptavild afskrifuð í endurskipulagningu KIRKJUBÓLSHJÓNIN 16ARNAR INGI 34 Berglind Ásgeirsdóttir matgæðingur vikunnar Bladur Arnarson baldura@mbl.is „Kína er að verða stærsta hagkerfi heimsins. Ef við sjáum fyrir okkur umskipunarhöfn á Íslandi hlýtur stór hluti af vörum sem um hana fara að fara til Kína og Japans. Það er því mjög mikilvægt að þessi ríki séu beinir og óbeinir þátttakendur í slíkri vinnu,“ segir Halldór Jóhanns- son, talsmaður Huang Nubo, sem miðlar Kína gögnum um hafnir hér. Halldór segir Kínverja sýna mik- inn áhuga á Íslandi og siglingum norður af landinu og staðfestir að í ágúst verði haldið málþing í Háskóla Íslands í tilefni af komu kínverska ís- brjótsins Snædrekans til landsins. Þátttaka Kínverja nauðsynleg Kína sé að verða stærsta hagkerfi heims og án aðkomu Kínverja sé ólíklegt að hægt verði að byggja upp nauðsynlega innviði, svo sem fyrir umskipunarhöfn, á norðurslóðum. Halldór bendir jafnframt á að gífurleg auðæfi kunni að leynast á norðurslóðum og að þau geti, ásamt umskipun- arhöfn, kallað á stórfellda upp- byggingu á Aust- urlandi. Þá setji ESB nú aukið fé í rannsóknir á svæðinu. Trausti Valsson, prófessor í skipu- lagsfræði við Háskóla Íslands, hvet- ur Íslendinga til að gjalda varhug við áformum Kínverja hér á landi. „Kínverjar líta á Ísland sem sér- staka vinaþjóð. Mörg vestræn ríki eru orðin tortryggin þegar kínversk- ar sendinefndir eru annars vegar en hér á landi eru þær leiddar inn í innsta hring,“ segir Trausti og bend- ir á hugsanlegan olíuauð í norðri. MHorfa til umskipunarhafnar »14 Skoða hafnir á Íslandi  Talsmaður Huang Nubo segir Kínastjórn áhugasama um umskipunarhöfn hér  Prófessor í skipulagsfræði varar við stórauknum umsvifum Kínverja á Íslandi Halldór Jóhannsson  Sigurður Líndal, prófessor em- eritus, segist efast um að nokkur einstaklingur myndi hafi lögvar- inna hagsmuna að gæta í máli þar sem krafist væri ógildingar á þjóð- aratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs vegna annmarka á ákvörðun um kjördag atkvæða- greiðslunnar. Spurður að því hver gæti mögu- lega átt aðild að slíku ógilding- armáli segir Sigurður: „Ég held að Alþingi eitt geti þá gert eitthvað í málinu. Það er að segja ákveðið að hætta við þetta eða taka nýja ákvörðun um kjördag á grundvelli laganna.“ »12 Engir lögvarðir hagsmunir Á Íslandi hafa menn lært að taka veðurspánni með fyrirvara en svo mikið er víst að rigningaskúrir að sumri vekja ólíkar tilfinningar hjá þeim sem vill rækta tún sitt annars vegar og þeim sem vill sóla sig á því hins vegar. Svo virðist sem sumarblíðan víki nú fyrir grárra veðri en von er á djúpri lægð til landsins frá Kanada. Mun hún bætast í hóp amerískra Íslandsvina um helgina, með tilheyrandi rigningu og vindi. »4 Skjótt skipast veður í lofti Morgunblaðið/Ómar Grænlenska makrílveiðiskipið Erika fékk ekki að landa hér makríl sem það veiddi í grænlensku efnahags- lögsögunni. Útgerðin hafði reiknað með að geta landað á Íslandi. Skipið var búið að fá 550 tonn, að sögn fréttavefjarins Sermitsiaq, þegar bannið kom í fyrradag og átti að- reyna að landa í Færeyjum. Ane Hansen, sem fer með sjáv- arútvegsmál í grænlensku land- stjórninni, hafði samband við íslensk stjórnvöld vegna málsins. Stjórn- arformaður útgerðar Eriku sagði Ís- lendinga haga sér gagnvart Græn- lendingum eins og þeir sökuðu ESB um að koma fram við sig. Eiríkur Björnsson Fiskistofu- stjóri sagði ástæðuna fyrir því að Erika fékk ekki að landa hér að finna í íslenskum lögum. Í lögum um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands (22/1998) segi að skip sem stunda veiðar úr fiskistofnum sem ekki eru samn- ingar um nýtingu á, eins og makríl- stofninum, sé óheimilt að koma til hafna á Íslandi. Eiríkur benti á að lögin væru frá 1998 og því nokkuð langsótt að tengja þetta makríldeil- unni. gudni@mbl.is »2 Fékk ekki að landa hér makríl Ljósmynd/Markús Karl Valsson Erika Skipið var búið að fá 550 tonn af makríl í grænlensku lögsögunni.  Eriku vísað frá Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Bandaríska samheitalyfjafyrirtækið Alvogen, sem Róbert Wessmann stýrir, er á lokametrunum með áform um að reisa verksmiðju hér á landi. Vonir standa til að búið verði að ganga frá fjármögnun á verkefninu fyrir lok september, herma heimildir Morgunblaðsins. Þá ætti að vera orð- ið fullljóst hvort af þessu verður. Gangi það eftir hefst bygging- artímabil sem tekur 15-18 mánuði. Fyrirtækið hefur þegar fengið nokk- Alvogen, gaf út 220 milljóna króna skuldabréf um miðjan maí til þess að fara fjárfestingaleið Seðlabankans. Sú leið veitir þeim sem eiga erlent fjármagn og eru reiðubúnir til að binda það til lengri tíma á Íslandi hagstæðara kaupgengi á krónu. Miða má við að það sé um 20% hagstæðara kaupgengi. Heimildir Morgunblaðs- ins herma að ráðist hafi verið í þessa skuldabréfaútgáfu í tengslum við uppbyggingu lyfjaverksmiðjunnar og að útgáfan sé gróft á litið innan við 5% af því sem þarf til framkvæmdar- innar. »Viðskipti urt fé til landsins í gegnum fjárfest- ingaleið Seðla- bankans vegna uppbyggingar verksmiðjunnar en það er engu að síður einungis lít- ið brot af þeim fjármunum sem til þarf, herma heimildir. Hér er því teflt um háar fjárhæðir. Aztiq Pharma, sem er eignarhalds- félag undir stjórn Róberts og á í Vilja reisa lyfjaverksmiðju  Róbert Wessmann sér tækifæri á að fjárfesta á Íslandi Róbert Wessmann –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG FINNUR.IS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.