Morgunblaðið - 19.07.2012, Síða 4
FRÉTTASKÝRING
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Sumarblíðan er senn á enda, a.m.k.
tímabundið, ef marka má spár veð-
urfræðinga. En þótt flestir kjósi hæg-
viðri og sólskin munu bændur og lax-
veiðimenn eflaust kætast yfir
væntanlegu regni. Ástæða góðviðr-
isins í sumar er stöðugur háþrýst-
ingur sem hefur verið við landið und-
anfarið. En skjótt skipast veður í lofti
því afar djúp lægð mun nú taka við af
ráðandi hæðarsvæði. Þessi djúpa
lægð kemur frá Nýfundnalandi og
Kanada og áhrifa hennar mun gæta
um helgina.
Kollsteypa á miðju sumri
Gert er ráð fyrir einni mestu dýpt
sem sést hefur við norðanvert Atl-
antshaf á þessum árstíma. Einar
Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir
spár gera ráð fyrir 965 hPa suðvestur
af landinu snemma á sunnudaginn. Til
að setja hlutina í samhengi bendir
hann á að lægsti mældi loftþrýstingur
sem mælst hefur í júlí á Íslandi hafi
verið 974 hPa en það hafi verið árið
1901. Einar gerist svo djarfur að tala
um kollsteypu í veðrinu – og það á
miðju sumri.
Líkist haustlægðum
Einar segir viðvarandi hæðarsvæði,
sem legið hafi við vestanvert landið og
Grænland, skýra hægviðri, stöð-
ugleika og litla úrkomu liðinna vikna.
Það skýri einnig þá vætusömu ónotat-
íð sem gengið hafi yfir meginland
Norður-Evrópu og Bretlandseyjar.
En nú taki þessi djúpa lægð við. „Við
verðum að hafa það í huga að djúpra
lægða er síst að vænta í júlí og um
mitt sumarið er lofþrýstingur hvað
stöðugastur frá einum degi til ann-
ars,“ segir Einar. Það breytist vana-
lega í lok ágúst og byrjun september
með komu haustlægðanna. „Þessi
sem nú er í vændum líkist einna helst
slíkri án þess þó að vera haustlægð í
eðli sínu,“ segir Einar. Hann segir
umrædda lægð eiga uppruna að rekja
til samspils háloftakulda yfir Norð-
austur-Kanada og hlýs lofts yfir Atl-
antshafinu. Einar segir miðju lægð-
arinnar þó ekki spáð beint yfir landinu
heldur aðeins sunnar.
„Góðar líkur eru á því að einhverjar
stöðvar sunnanlands komi til með að
mæla undir 980 hPa seint á sunnudag
og fram á mánudag, jafnvel niður í 975
hPa.“
20 mjólkurfernur á fermetra
En hvað þýðir það að djúp lægð
leggist yfir landið? Einar segir að
lægðirnar muni ganga yfir með SA-
strekkingi og jafnvel hvössum vindi
en vindhraðinn sé þó óráðinn. Þetta
muni hefjast seint á laugardaginn og
standa fram á sunnudag. Þá muni
rigna um allt land, minnst þó norð-
austantil en úrkomumagnið gæti víða
orðið 20-25 mm frá laugardagskvöldi
fram á mánudagsmorgun. „20 mm eru
svo sem engin ósköp þannig lagað séð
í úrkomu, en fyrir tjaldbúa og aðra þá
sem hyggja á útiveru jafngildir magn-
ið eins og hellt væri hægt og rólega úr
20 mjólkurfernum á hvern fermetra
lands,“ segir Einar.
Þegar djúpar lægðir koma yfir
landið fylgir oft vindasamt veður. Ein-
ar segir að lægðin muni eflaust snúast
í norðaustan og norðan vinda eftir
helgina. Því gæti orðið nokkuð vinda-
samt um tíma. „En vitanlega er enn of
snemmt að fullyrða nokkuð um það
enn,“ segir Einar. Hins vegar muni
kólna og gera kalsa um norðanvert
landið ef fari sem horfi. „Það telst til
láns hins vegar að ekki er mikið um
kalt loft norður undan, en sjórinn er
vitanlega kaldur lengra í burtu og haf-
ís til staðar sem mótar lofthitann
djúpt í norðri og norðvestri,“ segir
Einar. Hann á allt eins von á að það
snjói í fjöll norðan- og austantil og
einkum þá hærri fjöll og þá vænt-
anlega á þriðjudag.
Einar segir sumarið að mörgu leyti
óvenjulegt, ekki aðeins hér á Íslandi
heldur um alla Norður-Evrópu og
jafnvel víðar. En á sama tíma og Ís-
lendingar hafa notið veðurblíðunnar
hefur regn og kuldi plagað íbúa á
meginlandi Norður-Evrópu og á
Bretlandseyjum. En hvað tekur við,
hvernig mun sumarveðrið þróast?
Líklegt að góða veðrið láti aftur
sjá sig eftir lægðina
Einar segir tvennt líklegast í stöð-
unni næstu vikur. Annars vegar að við
Ísland byggist upp fleiri lægðir sem
muni ganga yfir með norðan-
átt og leiðindaveðri fram á
haust. En hins vegar, sem er
jafnvel líklegra, gæti sama
staða og hefur verið ríkjandi í
sumar tekið sig upp aftur með
háþrýstingi. Það myndi
þýða sól og hægviðri á
Íslandi. Einar segir þó
lítið hægt að fullyrða en
það skýrist vonandi þeg-
ar þessi óvenjulega lægð
hafi gengið yfir í næstu
viku.
Gengur yfir með leiðindaveðri
( Gert er ráð fyrir einni dýpstu lægð sem sést hefur við norðanvert Atlantshaf á þessum árstíma nú
um helgina ( Rigning um allt land og vindasamt veður ( Þó er líklegt að góða veðrið snúi aftur
Morgunblaðið/Kristinn
Breytingar Veðurspár gera ráð fyrir því að mjög djúp lægð, miðað við árstíma, gangi yfir landið um helgina. Í kjölfarið fylgir væntanlega rok og rigning.
Óvenjugott sumar hingað til skýrist af hæðarsvæði við Grænland en það hefur haft þveröfug áhrif á meginlandi Norður-Evrópu og á Bretlandseyjum.
Kort/Veðurstofa Íslands
Veðurspá Á myndinni má sjá mikið úrkomusvæði sem fylgir lægðinni.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2012
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Viðvarandi hæðarsvæði við Græn-
land hefur skýrt óvenjugott sumar á
Íslandi og Grænlandi. Einar Svein-
björnsson, veðurfræðingur, segir
ástandið nokkuð óvenjulegt því
venjulega gangi hæðirnar um norð-
urhvelið á þessum árstíma. Nú sé
hæðakerfið hins vegar nokkuð stað-
bundið.
Ónotatíð í Skandinavíu
Ekki hafa allir verið jafn heppnir,
ef svo má segja, því umrædd hæð
hefur haft öfuga þýðingu fyrir meg-
inland Norður-Evrópu og Bret-
landseyjar miðað við Ísland. Þar
hefur sumarið einkennst af vætu og
ónotatíð. Einar segir að kalt loft hafi
borist til suðurs fyrir austan land og
yfir Bretlandseyjar og Norður-
Evrópu. Því hafi fylgt grunnar lægð-
ir og raki af Atlantshafinu. Því hafi
verið óvenju úrkomusamt í Skandin-
avíu og á Bretlandi.
Nýlega bárust fréttir þess efnis að
sumarhitinn væri farinn að vera til
vandræða á Grænlandi þar sem hröð
bráðnun jökla hefur haft óhemju-
kröftugar leysingar í för með sér. Í
Suðvestur-Grænlandi mældist t.d.
um daginn 23,4°C og í höfuðstaðnum
Nuuk náði hitinn 20,3°C í síðustu
viku sem verður að teljast óvenju-
legt. Samtímis bárust fréttir af roki
og rigningu í Skandinavíu. Meira að
segja kom haglél í Stokkhólmi. Svíar
hafa þurft að berjast við flóð und-
anfarnar vikur og sérstaklega var
ástandið slæmt í Suður- og Mið-
Svíþjóð þar sem talsverðar skemmd-
ir urðu á húsum og samgöngu-
mannvirkjum.
Þá hafa borist fréttir af öfga-
kenndu veðri í Póllandi þar sem
sterkir hvirfilbylir gengu yfir síð-
ustu helgi.
Hitabylgja í Bandaríkjunum og
gríðarleg flóð í Japan
Einar segir að hæðakerfið við
Grænland hafi bein áhrif á veðrið um
allt norðurhvel jarðar. Hann bendir
á að sumir vísindamenn hafi viljað
tengja hæðarsvæðið við Grænland
við hitabylgjuna sem gengið hefur
yfir austurströnd og miðríki Banda-
ríkjana og jafnvel megi tengja flóðin
í Japan í síðustu viku til ástandsins
hér við Ísland og Grænland. Þau
tengsl þurfi þó að rannsaka betur.
Áhrif um allt norðurhvel
( Viðvarandi hæðarsvæði orsakar óvenjulegt veðurfar
www
Þú finnur fleiri
boostuppskriftir á
Léttboost
1 lítið
½
½
dass
6-8
.skyr.is
Vanilluskyr.is
banani
sneið af melónu
pera
hreinn appel-
sínusafi
ísmolar
SVO LJÚFT
OG LÉTT
Afar þurrt hefur verið á landinu
undanfarnar vikur. Er svo kom-
ið að víða hafa tún brunnið illa.
Í frétt mbl.is í gær um þurrk-
ana kemur m.a. fram að tjón
bænda vegna þeirra sé umtals-
vert en miklum fjárhæðum hafi
til að mynda verið eytt í áburð
sem litlu hafi skilað því
sáralítið fáist af túnum. Þá
megi einnig gera ráð fyrir að
verð á heyi komi til með að
rjúka upp í haust.
Hugsanlegt er að rign-
ingar í næstu viku
geti bætt einhvern
þann skaða sem
túnin hafa orðið
fyrir en það er
þó með öllu
óvíst.
Tún hafa víða
brunnið illa
ÞURRKAR TIL VANDRÆÐA