Morgunblaðið - 19.07.2012, Blaðsíða 6
BAKSVIÐ
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
Nýlega lauk tíu daga sandsílaleið-
angri Hafrannsóknastofnunar-
innar á rannsóknaskipinu Dröfn
RE 35. Markmið leiðangursins var
m.a. að meta breytingar í stofn-
stærð og afla
upplýsinga um
styrk árganga
sandsílis. Sjö-
unda sumarið í
röð voru athug-
uð fjögur svæði
við landið, þ.e.
Breiðafjörður,
Faxaflói, Vest-
mannaeyjar að
Vík og Ingólfs-
höfði.
Í leiðangrinum fékkst talsvert
af seiðum í Faxaflóa og fengust
seiði um allt rannsóknarsvæðið
þar. Þetta er mesta magn af seið-
um sem fengist hefur í flóanum
frá því að athuganir hófust árið
2006. „Þetta lítur þokkalega út í
Faxaflóa en svo vitum við ekki
hvernig þeim reiðir af,“ segir Val-
ur Bogason, útibússtjóri hjá Haf-
rannsóknastofnun.
Lítil nýliðun í stofninn
Lítið fékkst af eldra síli á öllum
svæðum en þau sem fengust voru
líklega flest af 2007
árganginum.
Eins og í fyrra var þéttleiki
eldra sandsílis lítill og einnig
virtist útbreiðslan vera minni en
áður innan hvers svæðis. Við
fyrstu sýn virðist árgangurinn frá
því í fyrra ekki ætla að skila nýlið-
un inn í stofninn sem máli skiptir,
en ekki er hægt að segja til um
það fyrr en á næsta ári með því að
meta þá fjölda eins árs sandsíla.
Mun minna fékkst af seiðum á
öðrum svæðum. „Ástandið er lítið
búið að breytast. Þetta er það sem
við höfðum áhyggjur af þegar við
lögðum af stað,“ segir Valur.
Þessar fyrstu niðurstöður eru
háðar óvissu því þær eru eingöngu
byggðar á lengdarmælingum
á síli en ekki á aldurslesningum.
Vöxtur á milli ára er breytilegur
hjá síli og einnig er mikill
breytileiki í lengd eftir aldri
innan árs og milli svæða.
Niðurstöður leiðangursins gefa
þó til kynna að jákvæð teikn séu á
lofti í Faxaflóa vegna
magns sandsílaseiða þar og
verður áhugavert að sjá hvernig
þeim reiðir af fyrsta árið. Hins
vegar er sandsílastofninn ennþá
í mikilli lægð og þessar athuganir
benda til að nokkra
aldurshópa vanti í stofninn.
Á næstu mánuðum munu svo
fara fram aldursgreiningar á sýn-
um ársins og frekari úrvinnsla.
Áhrif á sjófugla
Sjófuglum hefur fækkað tölu-
vert víða um land og hafa þeir
sem til þekkja helst talað um að
fuglinn vanti æti. Er í því sam-
bandi bent á að skortur sé á sand-
síli í ár. „Sandsílastofninn er
ennþá í lægð og á meðan það er
getum við gert ráð fyrir að sjó-
fuglastofninn eigi ekki eftir að
rétta úr kútnum fyrr en það
lagast. Hann á allavega ekki eftir
að koma í bungum þó svo að full-
orðni fuglinn geti hugsanlega lifað
á einhverri annarri fæðu,“ segir
Valur.
Sandsílastofninn enn slakur
Nýlega lauk tíu daga sandsílaleiðangri Hafrannsóknastofnunarinnar
Skortur á sandsíli hefur áhrif á sjófugla Jákvæð teikn á lofti í Faxaflóa
Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun
Úr leiðangri Eins og í fyrra var þéttleiki og útbreiðsla eldra sandsílis lítil.
Leiðangurinn
» Markmið leiðangurs var m.a.
að meta breytingar í stofn-
stærð og afla upplýsinga um
styrk árganga sandsílis.
» Í leiðangrinum fékkst tals-
vert af seiðum í Faxaflóa og
fengust seiði um allt rannsókn-
arsvæðið þar.
» Sjófuglum hefur fækkað
töluvert víða um land og hafa
þeir sem til þekkja helst talað
um að fuglinn vanti æti.
Valur
Bogason
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2012
Varðskipið Þór fer fljótlega til eft-
irlits á miðunum og er gert ráð fyr-
ir rekstri Þórs alveg út árið, að
sögn Ásgríms L. Ásgrímssonar,
framkvæmdastjóra aðgerðasviðs
Landhelgisgæslunnar.
Varðskipið Týr kom til hafnar á
mánudaginn var eftir að hafa sinnt
eftirliti á miðunum við landið sunn-
an- og austanvert. Varðskipsmenn
fóru m.a. um borð í færeysk og ís-
lensk fiskiskip. Einnig var lagt út
öldumælisdufl undan Kögri og unn-
ið við nokkur ljósdufl.
Varðskipið Ægir er í slipp í
Reykjavík þar sem sinnt er reglu-
bundnu eftirliti og viðhaldi. Stefnt
er að því að Ægir fari í Miðjarðar-
hafið síðar í mánuðinum og taki
þátt í gæslu landamæra Schengen-
svæðisins fyrir Frontex, landa-
mærastofnun ESB. gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Varðskip Þór fer senn til eftirlits á miðunum
og Ægir fer til eftirlits í Miðjarðarhafinu.
Varðskipið Þór gert
út til áramóta
Tólf ára stúlka, sem slasaðist alvar-
lega þegar hún varð undir drátt-
arvél með sláttuvél í eftirdragi í
Skagafirði 5. júlí síðastliðinn, hefur
verið útskrifuð af gjörgæsludeild
Landspítalans. Hún liggur nú á al-
mennri deild og er líðan hennar eft-
ir atvikum.
Slysið varð á sveitabæ skammt
frá Sauðárkróki. Beiðni barst
Landhelgisgæslu Íslands um miðj-
an dag, frá fjarskiptamiðstöð lög-
reglu, um þyrluáhöfn í viðbragðs-
stöðu vegna alvarlegs slyss.
Beiðnin var staðfest skömmu síð-
ar og stúlkan sótt. Gekkst hún und-
ir aðgerð á Landspítala undir kvöld
en hún hafði hlotið áverka á hand-
leggjum og fótum.
Stúlkan útskrifuð af
gjörgæsludeild
Ákvörðun um hvort lundi yrði
veiddur í Vestmannaeyjum í
sumar var tekin á fundi umhverf-
is- og skipulagsráðs Vest-
mannaeyja í gær. Bjargveiðifélag
Vestmannaeyja hafði fyrir fund-
inn lagt fram tillögu um tak-
markaðar lundaveiðar í vís-
indaskyni.
„Á fundinum var tekin sú
ákvörðun að leyfa ekki lunda-
veiðar í sumar. Það er fyrst og
fremst vegna þess að lunda-
stofninn er í válegri stöðu,“ seg-
ir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum.
Elliði furðar
sig á því að
haldið sé áfram
þeirri vegferð að
forræðið á slík-
um ákvörðunum
sé tekið úr nán-
asta umhverf-
inu. „Við berum
fulla ábyrgð á
þessu, þekkjum
til aðstæðna og umgöngumst
náttúruna af þeirri virðingu sem
hún á skilið,“ segir Elliði, en
hann segir alla Vestmannaeyinga
mjög svekkta með veiðibannið.
Lundaveiðar áfram bannaðar
LUNDAVEIÐAR Í VESTMANNAEYJUM
Lundinn treystir
mikið á sandsílið.
Töluverð hreyfing virðist vera á
prestsembættum um þessar
mundir. Biskup Íslands hefur að
undanförnu auglýst nokkur emb-
ætti laus til umsóknar.
„Það hefur ekki verið svo mikil
hreyfing undanfarið en einmitt um
þessar mundir eru allnokkur emb-
ætti að losna. Það eru að minnsta
kosti fjórir sem hafa sagt störfum
sínum lausum og ástæður eru
margvíslegar, m.a. eru tveir á leið
til útlanda og einn hættir vegna
aldurs,“ segir Anna Ólafsdóttir,
verkefnastjóri hjá Biskupsstofu.
Mörg embætti auglýst
Nokkur prestsembætti hafa ver-
ið auglýst laus til umsóknar hér á
höfuðborgarsvæðinu. Í Hjalla-
prestakalli er embætti prests aug-
lýst en þar er Sigfús Kristjánsson
prestur að láta af störfum. Emb-
ætti sóknarprests eru auglýst í
Langholtsprestakalli og Seltjarn-
arnesprestakalli en þar láta af
störfum þeir Jón Helgi Þór-
arinsson og Sigurður Grétar
Helgason.
Fyrr í sumar var auglýst eftir
sóknarprestum í Dalaprestakalli
og í Tjarnarprestakalli. Í Dala-
prestakalli lætur Óskar Ingi Inga-
son af störfum. Þar sækja fjórir
um, þau Anna Eiríksdóttir, Jó-
hanna Magnúsdóttir, Salvar Geir
Guðgeirsson og Torfi K. Stef-
ánsson Hjaltalín. Þrír sóttu um í
Tjarnarprestakalli, þau Brynja
Vigdís Þorsteinsdóttir, Kjartan
Jónsson og Sveinbjörn Dagnýj-
arson. Í embættið veitist þann 1.
ágúst þegar Bára Friðriksdóttir
lætur af störfum. Þá hefur Ásta
Ingibjörg Pétursdóttir verið skip-
uð sóknarprestur í Bolungarvík-
urprestakalli þar sem Agnes M.
Sigurðardóttir, nýkjörinn biskup,
þjónaði áður.
„Margir hafa sótt um þau emb-
ætti sem hafa verið auglýst. Mis-
margir eftir því hvar prestaköllin
eru, þau á höfuðborgarsvæðinu
virðast vera eftirsóttari. Oft fer
ákveðin hringrás af stað þegar
embætti losnar því stundum
skipta þjónandi prestar um
prestakall. Hinsvegar koma líka
nýir prestar til starfa,“ segir
Anna.
heimirs@mbl.is
Hreyfing á prestum
Morgunblaðið/Eggert
Áhugi Allnokkur prestsembætti hafa verið auglýst. Töluverður áhugi virð-
ist vera á embættunum, sérstaklega á prestaköllum á höfuðborgarsvæðinu.
Nokkur emb-
ætti laus til um-
sóknar Ýmsar
ástæður
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Landhelgisgæslan (LHG) hefur lýst
áhuga á að taka að sér allt sjúkraflug
hér á landi, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Hugmyndin hefur
verið rædd innan stjórnkerfisins en
engin ákvörðun liggur fyrir.
Flugfélagið Mýflug hefur sinnt
sjúkraflugi allt frá árinu 2006 sam-
kvæmt samningi. Núgildandi samn-
ingur við Mýflug rennur út í árslok.
Þyrlur LHG hafa sinnt sjúkraflugi
við aðstæður sem krefjast þyrlu, t.d.
vegna slysa, og eins til Vestmanna-
eyja þegar ekki hefur verið fært
þangað fyrir aðrar flugvélar.
Rökin fyrir því að LGH annist allt
sjúkraflug munu vera hagræðingin
sem fylgir því að hafa allt sjúkraflug
á einni hendi og eins betri nýting á
mannskap, tækjum og aðstöðu LHG.
Auk þess myndi þetta styrkja fjár-
hagslegan grundvöll stofnunarinnar.
Vinnuhópur um fyrirkomulag
sjúkraflutninga mun hafa gert til-
lögu um að LHG annist allt sjúkra-
flug hér á landi. Taki LHG við öllu
sjúkraflugi er stefnt að því að flytja
höfuðstöðvar flugdeildar LHG til
Akureyrar. LHG mun þá bæta
sjúkraflugvél sömu gerðar og Mý-
flug notar í flugflota sinn og hefur
verið rætt um að leigja flugvél í þeim
tilgangi. Eins verði eftirlitsflugvélin
TF-SIF staðsett á Akureyri og einn-
ig þyrla með vakt allan sólarhring-
inn. Verði af þessu er ljóst að margir
starfsmenn LHG þurfa að flytja til
Akureyrar.
Þá hefur einnig verið rætt um
hvort sjúkraflugið eigi fremur að
heyra undir innanríkisráðuneyti en
velferðarráðuneyti.
Allt sjúkraflug
á einni hendi
Landhelgisgæslan hefur áhuga á að
taka við öllu sjúkraflugi hér á landi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þyrla Miðstöð sjúkraflugs yrði á
Akureyri ef LHG tæki við því.