Morgunblaðið - 19.07.2012, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2012
LEIÐRÉTT
Leiðsögn í
Listasafni í dag
Í dag, fimmtudaginn 19. júlí kl. 13,
verður í Listasafni Íslands leiðsögn
á frönsku í fylgd Huldu Hlínar
Magnúsdóttur, listfræðings og
myndlistarmanns, um sýningarnar:
Ölvuð af Íslandi, Dáleidd af Íslandi
og Hættumörk.
Röng dagsetning birtist í blaðinu í
gær. Beðist er velvirðingar á þess-
um leiðu mistökum.
Sumaropnun:
Virka daga
frá kl. 9.00-18.00
Laugardaga
frá kl. 10.00-16.00
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Útsalan
í fullum gangi
Nýtt kortatímabil
Skoðaðu úrvalið
www.jens.is
Kringlunni og
Síðumúla 35
Brúðkaup 2012
Persónuleg þjónusta
og mikið úrval
úr eðalstáli skreyttur
íslenskum steinum
Íslensk hönnun
og handverk
Kökuhnífur 11.800.-
Borðbúnaður
Salattöng
17.800.-
Demantshringur með
10 punkta demanti
131.900.-
Handsmíðaðir hringar
úr 14 karata gulli
133.400.- parið
Ostahnífur
5.900.-
Smjörhnífur
5.900.-
Settu upp óskalista
hjá okkur og fáðu
15% af andvirði
þess sem verslað er
fyrir í brúðkaupsgjöf
frá Jens!
Mikið úrval af
fallegum skóm
og töskum
Gæði &
Glæsileiki
www.gabor . i s - f a cebook . com/gaborse r ve r s lun
FÁKAFENI 9 - Sími: 553 7060
Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-16
Sérverslun með
25 ár
á Íslandi
ÚTSALAN
Í FULLUM GANGI
NÚ ENN MEIRI AFSLÁTTUR – ALLT AÐ 60%
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Erum flutt í bláu
húsin v/Faxafen
Bikini
Tankini
Sundbolir
Sími 553 7355 • www.selena.is
Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard.
Bláu húsin v/Faxafen - Suðurlandsbraut 50
Nýtt
kortatímabil
á nýjum stað!
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Afkoma ríkissjóðs varð 43 milljörðum
króna verri árið 2011 en áætlanir
gerðu ráð fyrir. Tekjujöfnuðurinn
varð neikvæður um 89 milljarða en
áætlanir höfðu gert ráð fyrir að hann
yrði neikvæður um 46 milljarða.
Tekjuhallinn er um 18% af heildar-
tekjum ársins og 5,5% af landsfram-
leiðslu, samkvæmt fréttatilkynningu
fjármálaráðuneytisins.
Tekjur ríkissjóðs urðu sex milljörð-
um króna meiri en gert var ráð fyrir
og gjöldin fóru 49 milljarða fram úr
áætlun. Þótt niðurstaðan sé lakari en
ráðgert var þá er hún betri en árið
2010 þegar tekjujöfnuðurinn var nei-
kvæður um 123 milljarða króna.
Ráðuneytið segir frávik frá áætl-
unum skýrast mest af óreglulegum
liðum og eins skiptis kostnaði sem
ekki var gert ráð fyrir og tengist að
hluta uppgjöri við hrunið árið 2008.
„Mest munar um gjaldfærslur
vegna SpKef sparisjóðs upp á 20
milljarða króna. Þá námu niður-
færslur eignarhluta hjá Byggðastofn-
un um 7 milljörðum króna og Ný-
sköpunarsjóði atvinnulífsins um 5
milljörðum króna en þær skýrast af
afskriftum vegna tapreksturs þeirra
undanfarin ár. Þá er gjaldfærsla líf-
eyrisskuldbindinga tæpum 5 milljörð-
um króna umfram áætlun og afskrift-
ir skattkrafna um 5 milljarða króna,“
segir í tilkynningunni.
Auknar tekjur, minni gjöld
Tekjur ríkissjóðs í fyrra urðu alls
486,5 milljarðar króna eða 29,8% af
landsframleiðslu. Tekjurnar árið 2010
voru 478,7 milljarðar og 31,2% af
landsframleiðslu. Tekjurnar jukust
milli ára um 7,8 milljarða sem var
1,6% hærra en áætlun gerði ráð fyrir.
Skattar á tekjur og eignir einstak-
linga jukust um 3,6 milljarða en fjár-
magnstekjuskattar lækkuðu um 12,4
milljarða.
Gjöld ríkissjóðs árið 2011 voru
575,9 milljarðar eða 35,3% af lands-
framleiðslu. Gjöldin voru 32,2 millj-
örðum meiri en fjárheimildir leyfðu.
Stærstu útgjaldaliðirnir, almanna-
tryggingar, velferðarmál og heil-
brigðismál, voru um 44,9% af heild-
argjöldum ársins 2011.
Árið 2010 voru gjöldin 602 milljarð-
ar eða 39,2% af landsframleiðslu.
Lækkun gjalda milli ára nam 26 millj-
örðum eða um 8% að raungildi.
Afkoma ríkis-
sjóðs 89 millj-
arðar í mínus
Útgjöld vegna SpKef, Byggðastofn-
unar og fleira juku á halla ríkissjóðs
Morgunblaðið/Þorkell
Ríkiskassinn Tekjurnar voru meiri
í fyrra en 2010 og gjöldin minni.
Ríkisfjármálin
» Fjármálaráðuneytið segir að
árangur sem stefnt var að í að-
haldi ríkisfjármála hafi náðst.
» Ráðuneytið segir að efna-
hagsumhverfið 2011 hafi sýnt
jákvæð merki um bata með
vexti í landsframleiðslu.
» Framundan er áframhald-
andi glíma við að vinna að fullu
bug á hallarekstrinum eins og
efnahagsáætlun gerir ráð fyrir,
að sögn ráðuneytisins.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
- nýr auglýsingamiðill