Morgunblaðið - 19.07.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2012
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Upphafið að þessu öllu márekja til þess að bróðirminn sem er fimmtán ár-um yngri en ég sat alltaf
límdur við leikjatölvu þegar við fjöl-
skyldan ferðuðumst í bíl. Fyrir vikið
sá hann aldrei neitt af því sem fyrir
augu bar í keyrslunni á ferðalögum
okkar um Ísland. Hann vissi aldrei
hvað fjöllin hétu sem mamma benti
á, jafnvel þó að við værum að fara
framhjá þeim í tíunda sinn,“ segir
Guðrún Gyða Franklín, arkitekt og
hugmyndasmiður, sem hannaði og
framleiddi bílabingó, en það er ætlað
fyrir alla fjölskylduna á ferðum ak-
andi um Ísland.
„Árið 2008 fór ég í hringferð um
landið með tvö börn, stjúpson minn
og systur hans, og ég velti fyrir mér
hvað ég gæti gert til að vekja athygli
krakkanna á því sem fyrir augu
bæri. Mér datt í hug að búa til bingó-
spjald með myndum af því sem
mögulega yrði á vegi okkar, hestum,
kindum, heyböggum, kirkjum,
ferðamönnum, vörðum, vegaskiltum
og mörgu fleiru. Þegar eitthvað af
þessum fyrirbærum birtist er lokað
fyrir viðeigandi glugga. Sá sigrar
sem fyrstur nær að loka öllum
gluggum. Ég prentaði þetta út og
setti plast utanum og það sló í gegn
hjá krökkunum. Tíminn flaug í bíln-
um og þau tóku eftir ýmsu sem þau
annars hefðu ekki tekið eftir.“
Gerði sjálf í höndunum
Vinnufélögum Guðrúnar Gyðu
fannst þetta svo sniðugt að hún
prentaði nokkur spjöld fyrir þá.
„Þetta vakti svo mikla lukku að ég sá
Sérðu heybagga,
kind eða ferðamann?
Börnum þarf ekki að leiðast þegar þau sitja lengi í bíl á ferðalögum um landið.
Þau geta skemmt sér við að fara í Bílabingó og tekið í leiðinni eftir öllu því
skemmtilega sem fyrir augu ber, hvort sem það eru hestar, vörður eða fjöll. Guð-
rún Gyða bjó til bílabingó með myndum úr sveitaumhverfinu og bílategundum.
Morgunblaðið/Ómar
Hugmyndasmiður Guðrún Gyða segir hausinn fara af stað í fæðingarorlofi.
Gaman Tíminn er fljótur að líða hjá þeim Loga og Andreu með bílabingóið.
Nú þegar Íslendingar flakka hvað
mest um landið sitt, er vert að minna
á hin ýmsu söfn sem þar er að finna.
Eitt af þeim sem gaman er að heim-
sækja er Fiskasafnið Sæheimar í
Vestmannaeyjum. Þar eru til sýnis lif-
andi fiskar og aðrar sjávarlífverur.
Einnig finnast þar uppsettir flestir ís-
lenskir fuglar og fjöldi annarra nátt-
úrugripa. Gaman getur verið að hita
upp með því að fara inn á heimasíðu
safnsins, www.saeheimar.is, en hún
er einstaklega myndrík, skemmtileg
og fróðleg. T.d. kemur þar fram í fróð-
leiksmolum að lundinn sé algeng-
astur fugla á Íslandi og að talið sé að
í Vestmannaeyjum séu um 4 milljónir
lunda. Lundi er einkvænisfugl og
heldur tryggð við maka sinn og
heimabyggð ævilangt, þau endurnýja
hjúskap sinn hvert vor þegar þau
hittast við hreiðurholuna sem þau
grafa með nefi og löppum.
Vefsíðan www.saeheimar.is
Morgunblaðið/Eggert
Lundi Fagur fugl og litríkur og mikið af honum í Vestmannaeyjum.
Spennandi Sæheimar í Eyjum
Enginn ætti að láta framhjá sér fara
Errósýninguna sem nú er í Hafnar-
húsinu, Listasafni Reykjavíkur, en
frítt verður inn á safnið í dag milli
klukkan 10 og 20 í tilefni þess að
Erró fagnar 80 ára afmæli. Sýningin
ber yfirskriftina Teikning og er yfir-
gripsmikil, spannar allan feril Errós,
en hann hefur verið afkastamikill um
ævina í listsköpun sinni. Teikningin
er sú grein Errós sem hann er hvað
minnst þekktur fyrir, en á sýningunni
eru sýnd um 200 slík verk.
Verkin vann Erró frá árinu 1944 til
dagsins í dag og beitti fjölbreyttri
tækni og aðferðum við gerð þeirra.
Endilega…
…kíkið á Erró-
sýninguna
Morgunblaðið/Kristinn
Erró Listamaður og lífskúnstner.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Fjarðarkaup
Gildir 19. - 21. júlí verð nú verð áður mælie. verð
Nautagúllas úr kjötborði ...................................... 1.798 2.298 1.798 kr. kg
Nautainnralæri úr kjötborði .................................. 2.798 3.398 2.798 kr. kg
Svínalundir úr kjötborði ....................................... 1.598 2.198 1.598 kr. kg
Svínahnakki úr kjötborði ...................................... 1.198 1.498 1.198 kr. kg
Nautahamborgarar 2x115gr m/brauð .................. 420 504 420 kr. pk.
Egils appelsín 2l ................................................. 198 298 198 kr. stk.
Pepsi/pepsi max/appelsín 500ml dósir................ 98 139 98 kr. stk.
Hagkaup
Gildir 19. - 22. júlí verð nú verð áður mælie. verð
SS rifsberjalambalæri ......................................... 1.874 2.498 1.874 kr. kg
Gott kjúklingasteik .............................................. 2.319 2.899 2.319 kr. kg
Fabrikku BBQ svínarif .......................................... 1.356 1.695 1.356 kr. kg
Hagkaup lambalærissneiðar úr miðlæri................. 2.398 2.998 2.398 kr. kg
Holta Texas kjúklingaleggir ................................... 699 998 699 kr. kg
Holta Bratwurst kjúklingapylsur 280 g................... 318 398 318 kr. pk.
Rex súkkulaði 40 g.............................................. 59 129 59 kr. stk.
Nýbakað Verona brauð 420 g .............................. 299 409 299 kr. stk.
Nýbakaðar Berlínarbollur ..................................... 99 239 99 kr. stk.
Myllu heimilisbrauð 770 g ................................... 299 344 299 kr. stk.
Kjarval
Gildir 19. - 22. júlí verð nú verð áður mælie. verð
SS Ítalskar lambalærissneiðar ............................. 2558 3198 2558 kr. kg
SS Mexico grísakótelettur .................................... 1838 2298 1838 kr. kg
Holta kjúklingabringur ......................................... 2289 2898 2289 kr. kg
AB-mjólk............................................................ 207 259 207 kr. ltr
Quickbury marmarakaka ..................................... 269 299 269 kr. stk.
Maryland kex, 172 gr, 4 tegundir.......................... 149 169 149 kr. pk.
Homeblest 300 g................................................ 229 249 229 kr. pk.
Krónan
Gildir 19. - 22. júlí verð nú verð áður mælie. verð
Lambalæri kryddað ............................................. 1.398 1.498 1.398 kr. kg
Grísahnakki á spjóti hvít&rósm./NewY .................. 1.189 1.698 1.189 kr. kg
Lambalærisneiðar kryddaðar ............................... 1.498 1.889 1.498 kr. kg
Gríshnakki úrbeinaður erlendur ............................ 1.119 1.598 1.119 kr. kg
Ungnauta innralæri erlent .................................... 2.279 3.798 2.279 kr. kg
Sætar kartöflur ................................................... 242 269 242 kr. kg
Vatnsmelónur rauðar........................................... 104 148 104 kr. kg
Helgartilboðin
Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150
60 ára reynsla á Íslandi
Vinsælu heilsugrillin
væntanleg í september