Morgunblaðið - 19.07.2012, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.07.2012, Blaðsíða 11
Bingó Emma leiðbeinir Andreu frænku sinni með hvernig skuli spila en Bjarki bíður spenntur eftir að fara af stað. strax að ég varð að gera eitthvað meira með þetta. En það var ekki fyrr en ég fór í fæðingarorlof tveim- ur árum síðar, eða árið 2010, sem ég hafði tíma til að sinna þessu. Þá lét ég prenta fimm þúsund spjöld hjá Svansprenti en ekkert fyrirtæki hér á landi treysti sér til að setja þetta saman, enda mikil handavinna að setja loku fyrir hvern glugga á hverju spjaldi. Ég ákvað því að gera þetta sjálf í höndunum og fékk sjálf- boðaliða til að aðstoða mig. Þetta voru krakkar frá íþróttafélögum sem voru í fjáröflun og þegar mest gekk á var skólastofan sem ég fékk aðstöðu í, eins og lítil verksmiðja.“ Bætti við bíla- tegundum Þegar Guðrún Gyða fór aftur í fæðingarorlof í fyrra, gat hún unnið að þróun spilsins og nú hefur hún búið til nýtt og betra Bílabingó. „Ég endurbætti hönn- unina og Helga Valdís Árnadóttir grafískur hönnuður teiknaði myndirnar. Ég fór ekki aftur út í handa- vinnuna, heldur sendi ég þetta til útlanda í fram- leiðslu,“ segir Guðrún Gyða sem hannaði ekki aðeins bílabingó með myndum úr sveitaumhverfinu held- ur einnig með myndum af bílateg- undum. Systurnar saman í bingói „Þegar ég var lítil átti ég bíla- tegundabingó frá Þýskalandi og við systir mín vorum alltaf í því og höfð- um gaman af. Það er löngu týnt og ég hef lengi leitað að sambærilegu í útlöndum en ekki fundið. Svo ég bjó það bara til sjálf. Bílategundirnar á spjöldunum mínum eru einvörðungu þær sem eru seldar á Ís- landi og ég spilaði þetta við stjúpson minn um daginn á leið okkar yfir Hellisheiðina. Þar var mikil umferð og við skemmtum okk- ur vel. Við hróp- uðum þær bílateg- undir sem við sáum, en settum okkur þá sérreglu að ekki mætti hrópa Toyota, af því þær voru svo margar. Ef annað okkar hrópaði Toyota þá gaf það mínus stig og við- komandi þurfti að opna einn glugga.“ Hver er fyrstur að sjá og fyrstur að hrópa? Bílabingóin bjóða einmitt upp á að fólk setji sínar eigin reglur. „Fim- leikastelpurnar og Evrópumeistar- arnir í Gerplu sem lögðu mér lið með að líma saman spjöldin árið 2010 tóku bílabingó með sér á ferð sinni um landið þegar þær voru að sýna fimleika. Þær höfðu reglurnar þann- ig að sú sem sá og hrópaði fyrst til dæmis „hestur“ þegar sást hestur, hún ein mátti loka fyrir sinn hesta- glugga. Þannig gerðu þær þetta líka að keppni í að vera fyrstur til að sjá og fyrstur til að hrópa.“ Guðrún Gyða segist hafa fengið mjög góð viðbrögð hjá þeim sem hafi prófað að spila bílabingóið, bæði hjá foreldrum og börnum. Hún passaði upp á að hanna fjórar gerðir af spjöldum með sveitamyndum og fjórar gerðir af spjöldum með bíla- tegundum, svo engir tveir í bílnum væru með samskonar spjald. Bílabingó fæst hjá N1, Póstinum og Hótel Eddu um land allt, ásamt fleiri sölustöðum. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2012 Margt er hægt að gera í höfuðborg- inni yfir sumartímann og um að gera að prófa eitthvað af því fyrir þá sem eru staddir þar. Rétt eins og undan- farin ár hefur í sumar verið boðið upp á frábærar og fjölbreyttar fimmtu- dagskvöldgöngur á vegum Borgar- bókasafns, Listasafns, Ljós- myndasafns og Minjasafns Reykja- víkur. Í kvöld ber gangan yfirskriftina „Sjálfstætt fólk“, en þá mun Lista- safn Reykjavíkur í samvinnu við Nýlistasafnið leiða göngu um sögu listamannarekinna rýma í Reykjavík. Lagt verður upp frá Grófarhúsi kl. 20, kostar ekkert og allir velkomnir. Fimmtudagskvöldganga Sagt frá sjálfstæðu fólki Garðar Sl. fimmtudag var gangan „Fyrir ofan garð og neðan“, en þá var gengið um gróna reiti miðbæjarins og dregnar fram bókmenntir sem þeim tengjast. Jamie Oliver BBQ krydd, 65gr............................... 449 498 449 kr. stk. Grísagúllas ......................................................... 898 1.449 898 kr. kg Grísasnitzel ........................................................ 898 1.449 898 kr. kg Nóatún Gildir 19. - 22. júlí verð nú verð áður mælie. verð Grísakótelettur krydd eða marinering .................... 1.198 1.498 1.198 kr. kg Lamba Rib eye kryddað að þínu vali...................... 3.998 4.598 3.998 kr. kg Lambalæri heiðmerkurkryddað............................. 1.438 1.598 1.438 kr. kg Ungnautasnitzel.................................................. 1.998 2.897 1.998 kr. kg Ostakaka blá-, hindberja eða karamellu................ 1.078 1.198 1.078 kr. stk. Ungnauta hamborgari 200 g................................ 298 359 298 kr. stk. Lambborgari 120 g ............................................. 149 169 149 kr. stk. McCain sætar kartöflur sléttar 454 g .................... 566 629 566 kr. pk. Þín Verslun Gildir 19. - 22. júlí verð nú verð áður mælie. verð Ísugl heill kjúklingur ferskur.................................. 839 1.049 839 kr. kg MS sýrður rjómi 18% 180 g ................................. 199 228 1.106 kr. ltr Dalafeta í kryddolíu 325 g ................................... 469 525 1.444 kr. kg Toppur kolsýrður 2 ltr........................................... 239 289 1.120 kr. ltr Trópí Tríó 1 ltr...................................................... 329 419 329 kr. ltr Doritos Cool American 165g................................ 265 299 1.606 kr. kg Fil.Berio tómat/ricotta Pestó 190 g ...................... 398 549 2.095 kr. kg Maryland kex 172g ............................................. 155 179 901 kr. kg Nescafé Red Cup kaffi ......................................... 569 749 5.690 kr. kg Toblerone original 100 g...................................... 239 319 2.390 kr. kg Morgunblaðið/Þorkell Ekki er einvörðungu gengið á fimmtudagskvöldum í borginni við sundin, heldur einnig fyrir norðan. Í kvöld verður afmælisganga um minjasvæðið á Gásum, en Gásir voru helsti verslunarstaður á Norðurlandi á miðöldum og hvergi á Íslandi eru varðveittar jafnmiklar mannvistar- leifar frá verslunarstað. Herdís S. Gunnlaugsdóttir leiðsögumaður leið- ir göngugesti í gegnum sögu kaup- staðarins og svarar spurningum eins og „Hvað áttu Þórður kakali og Guð- mundur dýri sameiginlegt?“ og „Hverjir áttu viðskipti á Gásum og hvaðan komu þeir?“ Gangan hefst kl 20 á bílastæðinu, tekur um klukku- stund og er ókeypis. Gásir eru við Hörgárósa í Eyjafirði, 11 km norðan við Akureyri. Afmælisganga um minjasvæðið á Gásum Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Gásir Mikið um fornleifauppgröft. Þórður kakali og fleira fólk Þú átt betri samskipti Þú verður virkur þáttakandi á mannamótum, getur sinnt vinnu og námi betur og tekið þátt í félagslífinu með ReSound heyrnartækjum því þau hjálpa þér að halda uppi samræðum í hvaða hljóðumhverfi sem er. Fáðu heyrnartæki til reynslu og heyrðu lífið hljóma eins og það er. Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími: 534 9600 · heyrn.is Komdu í greininguhjá faglærðumheyrnarfræðingi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.