Morgunblaðið - 19.07.2012, Side 16

Morgunblaðið - 19.07.2012, Side 16
SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Ég sé um bókhaldið og bý um rúmin. Mér kemur illa saman við þvottavél- ina og fleiri heimilistæki, þetta bilar bara ef ég kem þar nálægt,“ segir Jón Jónsson, þjóðfræðingur og menning- arfulltrúi Vestfjarða með meiru, í gamansömum tón um ferðaþjón- ustureksturinn hjá þeim Ester Sig- fúsdóttur á bænum Kirkjubóli við Steingrímsfjörð á Ströndum. Eins og Jón lýsir þessu lítur hann meira á sig sem aðstoðarmann Esterar í ferða- þjónustunni, sem þau hjón hafa rekið frá árinu 2001. Jörðina keyptu þau árið 2000 eftir að hafa búið í borginni í nokkur ár. Áður bjuggu þau á Hólma- vík um tíma en Jón er Strandamaður að ætt og uppruna; frá Steinadal við Kollafjörð, en Ester er Siglfirðingur í húð og hár. Ester segir sumarið hafa gengið mjög vel og þar hafi einmuna veð- urblíða haft sitt að segja. Erlendir ferðamenn eru komnir í meirihluta gesta á Kirkjubóli, sérstaklega eftir hrunið, en Íslendingar eru einnig duglegir að ferðast um Strandirnar. Á Kirkjubóli eru átta herbergi með gistingu fyrir alls 15 manns, ásamt morgunverði. „Við erum miðsvæðis á Ströndunum og hingað koma gestir bæði til að hvíla sig á norður- eða suð- urleið og ekki síður til að skoða sig um í nágrenninu. Fuglalífið er fjöl- skrúðugt og selirnir spóka sig í fjör- unni hér fyrir utan. Héðan er einnig vinsælt að fara í dagsferðir norðar á Strandirnar. Öll ferðaþjónusta hér styður hver við aðra,“ segir Ester. Sauðfjársetur í tíu ár Hún er einnig framkvæmdastjóri Sauðfjársetursins á Ströndum, sem frá árinu 2002 hefur verið starfrækt í Sævangi, gömlu félagsheimili Strandamanna, nánast í göngufæri frá Kirkjubóli. Þar er sauðfjárbúskap landsmanna í fortíð og nútíð gerð góð skil, gamlir munir sýndir sem tengj- ast þeim búskap og vinnubrögðin rifj- uð upp í máli og myndum. Einnig er kaffihúsið Kaffi Kind rekið á setrinu og handverk er til sölu tengt sauð- kindinni, s.s. ullarvörur og margs konar gjafavörur. Meginsýningin á setrinu nefnist „Sauðfé í þágu þjóðar“ en á setrinu eru sömuleiðis settar upp minni sýn- ingar. Í sumar er myndlistarkonan Aðalheiður S. Eysteinsdóttir með sýninguna Áningarstaður, sem er lið- ur í verkefninu „Réttardagur 50 sýn- inga í röð“. Settar eru upp 50 sýn- ingar frá júní 2008 til júní 2013 sem á einn eða annan hátt fjalla um sauð- kindina og tengda menningu. Þá var í tilefni 10 ára afmælis Sauðfjárseturs- ins fyrr í sumar opnuð sýning á út- skornum munum og verkfærum hag- leiksmannsins Þorsteins Magnússonar. Að sögn Esterar koma um þrjú þúsund manns í Sauðfjársetrið á hverju ári og á tíu árum eru þetta því orðnir um og yfir 30 þúsund manns. Hún segir gestina á öllum aldri en mikið er lagt upp úr því að laða ungu kynslóðina að setrinu. Heimalningar eru á vappi fyrir utan setrið á sumrin og krökkunum þykir fátt skemmti- legra en að fá að gefa þeim mjólk úr pela. Gömul leikföng eins og leggur og skel eru á setrinu, sem og nýrri af- þreying á borð við sjónvarpsþætti um hrútinn Hrein. Er þá fátt eitt upptalið sem Sauðfjársetrið hefur upp á að bjóða. Jón tekur sem fyrr segir til hend- inni heima á Kirkjubóli eða við Sauð- fjársetrið þegar þörf er á. Ásamt fleiri áhugamönnum um rekstur set- ursins tók hann sér hamar og önnur verkfæri í hönd þegar skipt var ný- verið um þak á Sauðfjársetrinu og næsta verk er að halda áfram að end- urnýja Sævang að utanverðu eftir því sem fjármagn fæst til. Bræður „berjast“ Dags daglega gegnir Jón starfi menningarfulltrúa Vestfjarða og ferðalögin því mikil um fjórðunginn. „Það er gríðarleg uppbygging í menningarlífi Vestfjarða, bæði í menningartengdri ferðaþjónustu og listalífi almennt,“ segir Jón og nefnir viðburði eins og Aldrei fór ég suður, heimildarmyndahátíðina Skjaldborg á Patreksfirði, leiklistarhátíðina Act Alone og klassísku tónlistarhátíðina Við Djúpið. Jón er jafnframt í sveitarstjórn Strandabyggðar, stjórn Fjórðungs- sambands Vestfjarða og fleiri nefnd- um. Jón leiddi lista VG í síðustu kosn- ingum og „keppti“ þar við bróður sinn, Jón Gísla Jónsson, oddvita J- lista félagshyggjufólks. J-listinn náði meirihluta í sveitarstjórn en listarnir, með bræðurna í broddi fylkingar, gerðu með sér meirihlutasam- komulag sem fleiri sveitarfélög mættu eflaust taka sér til fyr- irmyndar. „Við glímum lítið og sam- komulagið er gott,“ segir Jón og brosir. Þau Ester eiga fjögur börn á aldr- inum 12-19 ára og nýlega búin að ferma það næstyngsta. Segja má að fimmta „barnið“ hans Jóns sé Galdra- sýningin á Ströndum sem hann kom á fót fyrir 12 árum á Hólmavík með fleiru góðu fólki. Síðar bættist við Kotbýli kuklarans að Klúku í Bjarn- arfirði, sem er hluti af sýningunni. „Þetta er eitt af því sem maður vill ekki að klúðrist en sýningin hefur svo sannarlega virkað eins og hún átti að gera. Hún er orðin eitt helsta aðdráttarafl ferðamanna á Vest- fjörðum og getið um hana í flestum helstu ferðabókum heims,“ segir Jón, sem til viðbótar öllu fyrrnefndu heldur úti héraðs- fréttavefnum strandir.is. Það er þó aðeins áhugamál Jóns, sem hann segir hafa legið örlítið niðri að undanförnu vegna anna við önnur störf! Kirkjubólshjónin önnum kafin  Jón Jónsson og Ester Sigfúsdóttir á Kirkjubóli á Ströndum hafa í nógu að snúast  Hún sér um ferðaþjónustuna og Sauðfjársetrið á Ströndum  Hann er menningarfulltrúi Vestfjarða með meiru Morgunblaðið/Björn Jóhann Ferðaþjónustan Ester Sigfúsdóttir og Jón Jónsson hafa búið á Kirkjubóli á Ströndum frá árinu 2000. Sauðfjársetrið Ester og Jón tilbúin í Dráttarvélaleikana sem fram fara á sunnudaginn. Framkvæmdir standa yfir á Sævangi að utanverðu. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2012 Árlegir Dráttarvélaleikar fara fram á Sauðfjársetrinu að Sæ- vangi nk. sunnudag, þar sem keppt verður í ökuleikni á drátt- arvélum. Einnig verður opnuð sýning um dráttarvélar í sauð- fjárbúskap, byggð á texta og myndum. Dagskráin hefst kl. 14 og kaffihlaðborð verður sömu- leiðis í boði fyrir gesti. Dráttarvélaleikarnir hafa jafnan verið vel sóttir en enginn viðburður á setrinu slær þó út Íslandsmeistaramótið í hrúta- dómum sem fram fer við Sauðfjársetrið laugardag- inn 18. ágúst nk. Þar spreyta vanir sem óvanir hrútaþuklarar sig á að raða vænum Stranda- hrútum í rétta röð eftir gæðum. Dráttarvélar og hrútaþukl SAUÐFJÁRSETRIÐ Heimalningum gefið á Sauðfjársetrinu. grilljón hugmyndir á gottimatinn.is Á uppskriftavef Gott í matinn er að finna fjöldann allan af girnilegum grilluppskriftum og aðrar sumarlegar uppskriftir sem kitla bragðlaukana í sólinni.HVÍTA H Ú SI Ð / SÍ A

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.