Morgunblaðið - 19.07.2012, Page 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2012
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Fataskápar í miklu úrvali
Skólabörn í Suður-Afríku halda á skiltum með
afmæliskveðjum til Nelsons Mandela, fyrrver-
andi forseta landsins, en hann fagnaði 94 ára af-
eyða deginum í rólegheitum í faðmi fjölskyldu
sinnar í þorpinu Qunu en hann hefur dregið sig í
hlé frá opinberu lífi.
mæli sínu í gær. Yfir tólf milljónir skólabarna
hófu daginn á því að syngja afmælislag til heið-
urs leiðtoganum aldna. Sjálfur hugðist Mandela
AFP
Sungu afmælissöng til Mandela
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Fjöldi háttsettra embættismanna
ríkisstjórnar Bashar al-Assad féllu
eða særðust alvarlega í sprengju-
árás á höfuðstöðvar þjóðaröryggis-
ráðs landsins í miðborg Damaskus í
gærmorgun. Ríkissjónvarp Sýr-
lands hélt því fram að um sjálfs-
morðssprengjuárás hefði verið að
ræða.
Bæði Frjálsi her Sýrlands og hóp-
ur jíhadista lýstu yfir ábyrgð á árás-
inni en hinir fyrrnefndur neituðu að
hún hefði verið sjálfsmorðsárás.
Daoud Rajha, herforingi og varn-
armálaráðherra Sýrlands, og Assef
Shawkat, mágur Assads forseta, eru
á meðal þeirra sem liggja í valnum
eftir árásina. Þá var sagt frá því að
Mohammad Ibrahim al-Shaar inn-
anríkisráðherra hefði særst í árás-
inni.
Árásarmaðurinn lét til skarar
skríða þegar ráðherrar og forsvars-
menn öryggissveita komu þar sam-
an til fundar. Fjöldi annarra fund-
argesta særðist í árásinni.
Fregnir herma að sprengjumað-
urinn hafi verið lífvörður meðlims í
innsta hring Assads forseta.
Brýnt að finna lausn
Í tilkynningu sem sýrlenski her-
inn sendi frá sér í gær og lesin var
upp í sjónvarpi sagði að árásin, sem
hann kallaði hryðjuverkaárás, gerði
herinn enn ákveðnari í því að „losa
landið við hópa hryðjuverkamanna“.
Á meðan héldu bardagar áfram í
höfuðborginni, fjórða daginn í röð
og bárust fregnir af því að spreng-
ingar hefðu heyrst nærri bækistöðv-
um herdeildar sem sér um að gæta
öryggis forsetans.
Ýmsir evrópskir leiðtogar á borð
við William Hague, utanríkisráð-
herra Breta, Laurent Fabius, utan-
ríkisráðherra Frakka, og Angelu
Merkel, kanslara Þýskalands, sögðu
að árásin í gær sýndi að brýn þörf
væri á að finna pólitíska lausn á
ástandinu í Sýrlandi og að Samein-
uðu þjóðirnar ályktuðu sem fyrst
um viðbrögð sín í landinu.
Til stóð að atkvæðagreiðsla um
ályktun í málefnum Sýrlands sem
kallaði eftir frekari refsiaðgerðum
færi fram í öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna í gærkvöldi. Allt útlit var
fyrir að henni yrði frestað til dags-
ins í dag þegar blaðið fór í prentun.
Reiðarslag fyrir Assad
Fallinn Daoud Rajha varn-
armálaráðherra sem lést í árásinni.
Sprengjuárás í miðborg Damaskus grandar háttsettum embættismönnum
Varnarmálaráðherrann og mágur Assads forseta eru á meðal hinna látnu Saksóknarar íUngverjalandi
tilkynntu að hinn
97 ára gamli
Lazlo Csatary,
sem er efstur á
lista Simon Wie-
senthal-
stofnunarinnar
yfir eftirlýsta
stríðsglæpamenn nasista, hefði ver-
ið handtekinn og færður til yfir-
heyrslu í gær.
Csatary er sakaður um að hafa
átt þátt í að senda sextán þúsund
gyðinga í útrýmingarbúðirnar í
Auschwitz í seinni heimsstyrjöld-
inni. Breskir blaðamenn komust að
því í síðustu viku að hann væri enn
á lífi og byggi í Búdapest.
Heimildir herma að saksókn-
ararnir falist eftir því að Csatary
verði komið í stofufangelsi en það
myndi gera yfirvöldum kleift að
gera vegabréf hans upptækt. Hann
er sagður við góða andlega og lík-
amlega heilsu miðað við aldur.
Að sögn saksóknara neitar Csat-
ary sök. Hann beri meðal annars
fyrir sig að hann hafi aðeins fylgt
skipunum. Ekki liggur enn fyrir
hvort hann verður ákærður.
kjartan@mbl.is
UNGVERJALAND
Stríðsglæpamaður
nasista færður til
yfirheyrslu
Samþjöppun
valds og afnám
ýmissa mann-
réttindaákvæða í
valdatíð Hugos
Chávez forseta
hafa auðveldað
embættis-
mönnum í Vene-
súela að ógna,
ritskoða og sækja gagnrýnendur
stjórnvalda til saka. Þetta kemur
fram í nýrri skýrslu mannréttinda-
samtakanna Human Rights Watch
(HRW) um landið.
Þar segir ennfremur að mann-
réttindi í Venesúela hvíli á æ
ótryggari grunni. Kosið verður til
forseta í október og býður Chávez
sig fram til endurkjörs. José Migu-
el Vivano, yfirmaður Am-
eríkudeildar HRW, segist hafa
áhyggjur af þróun mála ef nið-
urstöðu kosninganna verði áfrýjað
þar sem dómstólar í landinu hafi
reynst algerlega undirgefnir
stjórnvöldum.
VENESÚELA
Skýrsla segir
Chávez þrengja að
mannréttindum
Hreyfingarleysi
veldur nú eins
mörgum dauðs-
föllum í heim-
inum eins og
reykingar. Þetta
kemur fram í
rannsókn sem
birt er í breska
læknatímaritinu
Lancet.
Samkvæmt henni hreyfir þriðj-
ungur allra fullorðinna sig ekki
nógu mikið og það leiði til 5,3 millj-
óna dauðsfalla á ári hverju. Rekja
þeir eitt af hverjum tíu dauðsföllum
af völdum hjartasjúkdóma, syk-
ursýki og brjósta- og ristilkrabba-
meins til hreyfingarleysis.
Læknarnir sem standa að rann-
sókninni segja að ástandið sé nú svo
slæmt að hægt sé að lýsa því sem
faraldri. Nauðsynlegt sé að vara al-
menning við áhættunni á að hreyfa
sig ekki í stað þess að minna hann
aðeins á kosti þess að hreyfa sig.
NÝ RANNSÓKN
Faraldur hreyfingar-
leysis sagður ganga
yfir heiminn