Morgunblaðið - 19.07.2012, Síða 29

Morgunblaðið - 19.07.2012, Síða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2012 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara                      !             "   #     $  %& # '    !  ()*% ++  , '+    !!  ()   , '+          ()     %'-   $ . # # !$$   ///    0       1  '     !  "    23        Eftirfarandi minningargrein er birt hér aftur þar sem mistök áttu sér stað við birtingu grein- arinnar í gær, miðvikudaginn 18. júlí. Hlutaðeigendur eru beðnir velvirðingar á mistökunum. Elsku afi, nú ert þú farinn upp til himna og Guð tekið vel á móti þér. Þú kenndir mér margt og sagðist ætla, þegar ég hefði aldur til, að fræða mig meira um heims- málin. Ungir menn eins og ég skildu ekki þegar þú og pabbi þráttuðu um alþingismenn og vísitölur. Þið fullyrtuð þó að til- finningar væru ekki mældar í vísitölum, heldur birtust þær í mannlegum samskiptum. Þú varst svo mikill vinur minn og lagðir alltaf áherslu á að ég lærði Hrafnkell Ásgeirsson ✝ Hrafnkell Ás-geirsson, hrl. lést á Landakoti 10. júlí 2012, f. 4. apríl 1939 í Hafnarfirði. Útför Hrafnkels fór fram í Þjóð- kirkjunni í Hafn- arfirði, 18. júlí 2012. góða siði. Vinátta þín og leiðsögn mun veita mér styrk í framtíðinni. Ógleymanleg er stundin við fána- stöngina á Lárus- töðum, þar fékk ég það hlutverk að draga íslenska fán- ann að húni. Mikið var ég stoltur þegar það tókst. Ég hefði viljað hafa þig miklu lengur. Eitt skil ég ekki afi, af hverju skiptu læknarnir ekki um rafhlöðu í hjartanu á þér? Þá hefðir þú lifað lengur. Ég er búinn að spyrja mömmu og pabba að þessu en þau segja að þú hafir þurft að hvíla þig og ég veit að þú ert kom- inn á góðan stað. Allt í einu er röddin þín þögn- uð. Þú flaugst í burtu eins og far- fuglarnir og ég sit eftir sorg- mæddur eins og hrafninn, nafni minn, sem horfir á farfuglana fara á haustin. Afi, ég veit að við hittumst öll seinna. Ég mun alltaf minnast þín. Höskuldur Hrafn Valbjörnsson og Valbjörn Höskuldsson. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsend- ingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja við- eigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birt- ingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar ✝ AðalbjörgOddgeirsdóttir fæddist á Sand- felli, Stokkseyri 13. ágúst 1918. Hún lést á Dvalar- heimilinu Kumb- aravogi á Stokks- eyri 7. júlí 2012. Foreldrar henn- ar voru hjónin Að- albjörg Jónsdóttir, f. í Framnesi í Hraunshverfi 22. október 1889, húsfrú á Sandfelli síðar á Tjörn á Stokkseyri, d. 6. október 1976, og Oddgeir Magnússon verkamaður, f. í Miklaholtshelli í Flóa 8. októ- ber 1884, d. 29. september 1948. Systkini Aðalbjargar voru Haraldur Georg Odd- geirsson, f. 3. febrúar 1911, d. 26. ágúst 1999, Magnea Ágústa Oddgeirsdóttir, f. 18. september 1916, d. 22. apríl 1989 og Baldur Oddgeirsson, f. 9. desember 1925, d. 7. apríl 1996. Hinn 21. desember 1940 giftist Aðalbjörg Jónasi Lars- syni verslunarmanni frá Út- stekk við Reyðarfjörð, f. 26. ágúst 1907, d. 18. apríl 2002. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Halldórsdóttir, f. 1885, d. 16. janúar 1908 og Lars Sören Jónasson, f. 30. 6) Jenný Lára, f. 24. ágúst 1954, börn hennar Jónas Geir, f. 2. apríl 1976 og Helena Sif, f. 12. september 1978. 7) Sig- rún Anný, f. 29. október 1957, gift Björgvini Þór Steinssyni, f. 10. ágúst 1960, dætur þeirra Þórdís Björg, f. 27. september 1984 og Stefanía Fanndís, f. 9. júlí 1991. Barnabarnabörn Að- albjargar og Jónasar eru 26 og barnabarnabarnabörnin 2. Aðalbjörg ólst upp á Sand- felli hjá foreldrum sínum og systkinum. Um tvítugt fer hún til Vestmannaeyja og starfaði þar sem ráðskona. Í Vest- mannaeyjum kynnist hún Jón- asi Larssyni verðandi eig- inmanni sínum. Árið 1939 flytur hún aftur heim til Stokkseyrar ásamt Jónasi og hófu þau búskap þar fyrst að Vinaminni og síðar í Nýja- Kastala þar sem þau bjuggu saman til ársins 1992 en þá fer Jónas á Dvalarheimilið Kumbaravog sökum lasleika. Aðalbjörg flytur að Sólvöllum 4 árið 1994 og hélt þar heimili þar til heilsa hennar brast í júní sl. Á sínum yngri árum starfaði Aðalbjörg við ýmis störf sem til féllu, m.a. sem ráðskona og einnig við fisk- vinnslu. Seinna starfaði hún við ræstingar í Barnaskól- anum á Stokkseyri. Aðalstarf Aðalbjargar var þó að sjá um rekstur heimilisins enda fjöl- skyldan stór og oft gest- kvæmt. Útför Aðalbjargar fer fram frá Stokkseyrarkirkju í dag, 19. júlí 2012 kl. 14. október 1873, d. 6. október 1952. Börn Aðalbjargar og Jónasar eru: 1) Geir, f. 14. júní 1940, d. 18. janúar 1970, kvæntur Mörtu Bíbí Guð- mundsdóttur, f. 9. nóvember 1932, barn þeirra Geirný Ósk. f. 26. ágúst 1970. Fóst- urdætur Geirs dætur Mörtu Bíbíar, eru Hjördís Erlings- dóttir, f. 24. október 1959 og Jóhanna Erlingsdóttir ,f. 14. desember 1962. 2) Guðrún, f. 24. ágúst 1941, gift Jens Arne Petersen, f. 15. mars 1943, börn þeirra eru Aðalbjörg, f. 3. júlí 1963 og Guðmundur, f. 3. febrúar 1969. 3) Ingibjörg, f. 23. ágúst 1943, gift Henning Frederiksen, f. 2. desember 1936, d. 3. júní 2007, synir þeirra eru Jónas, f. 1. sept- ember 1963 og Vilhelm, f. 6. júní 1966. 4) Bára, f. 29. apríl 1945, gift Sæmundi Guð- mundssyni, f. 30. júní 1946, barn þeirra Guðrún Jóna, f. 28. apríl 1973. 5) Helga, f. 30. júní 1946, gift Elfari Guðna Þórðarsyni, f. 17. október 1943, dætur þeirra Valgerður Þóra, f. 18. júní 1965 og Elfa Sandra, f. 28. nóvember 1970. Elsku mamma, nú þegar komið er að leiðarlokum langar okkur að minnast þín með nokkrum orðum. Við vorum sjö systkinin, sex dætur og einn sonur, Geir sem drukknaði tæplega þrítugur að aldri. Okkar æska einkenndist af þeim tíðaranda sem þá ríkti, mamma heima að sinna börnum og búi en pabbi útivinnandi. Það eru mikil forréttindi að fá að njóta þess að eiga foreldra sem ná jafn háum aldri og þið pabbi gerðuð. Og ekki síst þar sem þið hélduð góðri heilsu og gátuð verið þátttakendur í lífi okkar og starfi allt til loka. Það var ekki auðvelt starf að vera húsmóðir á stóru heimili um miðja síðustu öld, þá voru ekki komin öll þau tæki og tól sem létta nútíma húsmæðrum lífið í dag. Engu að síður virtist þú alltaf hafa tíma fyrir alla og gekkst til þinna verka með jafn- aðargeði, lundin var létt og stutt í hláturinn þegar við átti. Vinir okkar systkinanna voru oft dag- legir gestir heima og urðu kynni þeirra við þig það góð að vin- skapur hélst alla tíð. Ekki var lífið þó alltaf dans á rósum hjá þér. Eitt mesta áfall í lífi þínu var þegar einkasonur þinn og bróðir okkar Geir drukknaði við innsiglinguna á Stokkseyri ásamt tveimur öðr- um sjómönnum en allir voru þeir skipstjórar á bátum Hrað- frystihúss Stokkseyrar á þeim tíma. Æðruleysið sem þú sýndir þá og styrkur var ótrúlegur, það þurfti að hugga og hlúa að öllum öðrum í kringum þig. Ekki var farið að tala um áfallahjálp á þeim tíma og hver og einn varð að vinna úr sínu. Lífið einkenndist líka af gleði og ánægju. Þú eignaðist dágóð- an fjölda af afkomendum og tengdabörnum sem öll hafa komist vel til manna. Allt fólkið þitt heimsótti þig jafnt og þétt, stundum var gantast með það að þú hefðir ekkert næði fyrir öllu þessu fólki. Allir afkomendurnir sóttu í að heimsækja ömmu í Nýjó eins og sagt var enda vel tekið á móti öllum bæði stórum og smáum. Þú þekktir allt þitt fólk vel og fylgdist með daglegu lífi allra, samgladdist yfir því sem vel var og veittir stuðning ef á móti blés. Það verður stórt tómarúm í lífi okkar nú þegar þú er fallin frá en við eigum þó öll ynd- islegar minningar til að ylja okkur við í framtíðinni. Elsku mamma, við biðjum Guð að blessa þig og varðveita, hafðu þökk fyrir allt og allt. Guðrún, Ingibjörg, Bára, Helga, Jenný og Anný. Þegar ég kom til Stokkseyrar sem símstöðvarstjóri bjuggu Að- albjörg Oddgeirsdóttir og Jónas Larsson í Nýja Kastala, öðru tveggja húsa sem stóðu á kamb- inum ofan við fjöruna. Það var átakasamt að flytja á ókunnan stað með tvær litlar dætur í kjölfar erfiðs skilnaðar en þessi öðlingshjón áttu eftir að reynast okkur mæðgum einstaklega vel. Jónas er fallinn frá fyrir mörg- um árum en Lalla, eins og fjöl- skylda og vinir kölluðu hana, var 94 ára þegar hún lést. Lalla og Jónas eignuðust sex dætur og einn son. Við Geir einkasonur þeirra urðum hjón og tíminn sem við áttum saman á Stokkseyri var góður og ham- ingjuríkur. Það var mér líka mikils virði hvað hann reyndist dætrum mínum vel og hversu hændar þær urðu að honum. Þegar Geir fórst í hörmulegu sjóslysi utan við Stokkseyrar- höfn deildum við Lalla djúpri sorg en jafnframt mikilli gleði þegar dóttir okkar Geirs fæddist nokkrum mánuðum seinna. Geirný Ósk fæddist á afmæl- isdegi Jónasar afa síns og varð afa og ömmu sérstakt óskabarn. Lalla passaði hana þegar ég var að vinna og alla tíð síðan hefur samband þeirra verið einstaklega ástúðlegt og náið. Geirný kveður kæra ömmu í dag og þakkar hennar miklu ást og umhyggju gegnum árin. Hjördís og Jóhanna eignuðust í Löllu og Jónasi ömmu og afa sem aldrei voru öðruvísi við þær og seinna þeirra börn en önnur barnabörn sín. Bæði Lalla og dætur hennar komu alltaf fram við okkur eins og við værum áfram í fjölskyldunni. Lalla fylgdist vel með sínu fólki og lét sig varða hvernig hverjum og einum reiddi af. Það átti líka við um mig og mínar dætur alveg til hennar hinstu stundar. Lalla var mikil mannkosta- manneskja og hún var sterk kona og mjög ern. Síðustu ár bjó hún í lítilli íbúð á Sólvöllum og sá um sig sjálf með aðstoð dætra sinna. Eftir að hún veikt- ist treysti hún sér ekki til að búa ein í vetur og var því flutt af sjúkrahúsinu á Selfossi yfir á Kumbaravog á Stokkseyri sem átti að verða nýja heimilið henn- ar en hún lést eftir stutt veik- indi. Kæra Lalla. Á kveðjustund vil ég þakka þér hvað þú reynd- ist mér og stelpunum mínum alltaf vel. Þakka þér umhyggj- una sem þú sýndir mér eftir að þú hafðir misst einkasoninn í hafið. Þakka þér sérstaklega hvað þú varst stelpunum mínum góð amma. Ljúf minning um þig mun ávallt fylgja okkur. Marta Bíbí Guðmundsdóttir. Það er mikil tómleikatilfinn- ing sem maður finnur fyrir þeg- ar ástkær tengdamóðir mín, Að- albjörg Oddgeirsdóttir, hefur kvatt þennan heim. Lalla, eins og Aðalbjörg var oftast kölluð, var ekki bara tengdamóðir mín heldur einnig góður vinur minn. Ég datt inn í tilveru hennar fyr- ir rétt tæpum þremur áratugum þegar ég kynntist yngstu dótt- urinni á heimilinu. Sjómennsku minni fylgdu miklar fjarverur og í fjarveru minni reyndust Lalla og Jónas okkur frábærlega. Sannaðist þá hvað var gott að eiga góða tengdaforeldra að. Heimili okkar var ekki langt frá Nýja-Kastala og mörg spor átti Lalla vestur úr heim til okkar, eða við til hennar. Dætur okkar sóttu mikið til ömmu allt til loka, það var margt sem hún kenndi þeim og leiðbeindi með enda var sambandið þannig að öllu þurfti að deila með ömmu bæði sigrum og sorgum. Þrátt fyrir að fjarlægðin á milli okkar væri lengri eftir að við fluttum í Mosfellsbæ þá hélst nándin áfram. Vel fylgdist Lalla með afla- brögðum og fannst henni gaman að heyra um hvað við hefðum verið að fiska. Við hjónin höfum það áhugamál að veiða fiska á stöng í frítímum og var það við- kvæði Löllu að þegar lítið fékkst þá sagði hún oft: „Af hverju fór- uð þið ekki bara út í Hraunsá“. En Hraunsá er lítil á sem renn- ur vestan við Stokkseyri þar sem oftast má slíta upp ein- hverja fiska. Hinsvegar sam- gladdist hún okkur þegar vel fiskaðist og fékk þá oftast ein- hverja fiska í soðið. Minni Löllu var einstakt og gat hún brugðið upp myndræn- um lýsingum af mönnum og at- burðum. Stokkseyri þekkti hún eins og hendurnar á sér og fróð um örnefni og búskaparhætti var hún svo að unun var á að hlusta. Þessari náðargáfu hélt hún allt fram á síðasta dag. Heimili Löllu og Jónasar var gestkvæmt og þaðan fór enginn svangur. Ég minnist þess ekki að hafa komið til þeirra hjóna og hennar eftir að hún varð ein að ekki væru bornar kræsingar á borð fyrir okkur hjónin og virt- ist alltaf vera til biti fyrir fleiri aukamunna dytti einhver inn á matmálstíma. Uppáhald mitt, grjónagrautur, var á borðum þegar gera átti vel við tengda- soninn, einnig sá hún alltaf til þess að Dísu kex væri til. Löllu þótti alltaf vænt um Vestmannaeyjar enda átti hún stóran hóp ættmenna í Eyjum. Oft vorum við búin að tala um að skreppa þangað. Með tilkomu Landeyjahafnar varð þetta mun auðveldara og fyrir tveimur ár- um létum við verða af þessu og fórum við fjölskyldan þangað í dagsferð á yndislegum ágúst- degi og voru Eyjarnar eins fal- legar og hugsast gat. Lalla naut dagsins og hitti ættingja og vini, og fór í góðan skoðunartúr um Heimaey. Jónas fór á Kumb- aravog árið 1992 og fljótlega flutti Lalla að Sólvöllum 4, enda Nýi-Kastali of stórt hús fyrir eina konu. Þar hélt hún heimili þangað til núna í júní sl. en þá fór hún í hvíldarinnlögn á Foss- heima á Selfossi og þaðan á Kumbaravog þar sem hún lést að kvöldi þann 7. júlí eftir stutt veikindi. Ég og fjölskylda mín viljum þakka yndislegri tengda- móður fyrir samfylgdina en minning hennar lifir hjá okkur öllum. Þinn tengdasonur, Björgvin. Lalla amma og Jónas afi í Nýja Kastala. Þannig munum við systur eftir Stokkseyrarár- unum. Amma í eldhúsinu í Nýja Kastala, nýbakaðar kleinur og mjólk, hádegismatur með fólk- inu sem var í matarpásu úr frystihúsinu, afi heima í hádeg- ismat og við stelpurnar að kýta um hver fái að sitja í eldhús- króknum. Matjurtagarðurinn, kartöflukofinn og hlýjan, alltaf góð og ljúf. Afi kaupfélagsstjóri í Kaupfélaginu Höfn, stelast þangað og spjalla, hann hafði nú ekki alltaf tíma fyrir okkur en það mátti nú reyna. Þau voru yndisleg hjón, ströng en réttvís og alltaf reiðubúin til að taka á móti okkur. Við eldri systur vorum ekki gamlar þegar við urðum heima- vanar í Nýja Kastala. Minning- arnar um tilhugalíf mömmu og Geirs, sem við vorum stór hluti af, eru sterkar – við vorum yfir okkur ástfangnar af þessum hægláta og ljúfa manni. Hið hörmulega fráfall þessa elskaða manns, sem gekk okkur i föð- urstað, færði okkur nær Löllu ömmu og Jónasi afa. Amma tók okkur eins og öðrum barnabörn- um sínum þó að við værum ekki blóðtengdar en við áttum sorg- ina sameiginlega. Eftir fráfall Geirs tók amma sig að okkur eldri stelpunum meðan mamma var að vinna og sérstaklega Geirnýju sem fæddist eftir frá- fall pabba síns. Mikið var brall- að en alltaf tók amma vel á móti okkur og var ekkert að þrasa í okkur. Stokkseyri hefur alltaf verið tengt ömmu og afa. Við vorum ungar þegar við fluttum frá Stokkseyri en amma og afi voru okkar tenging við þorpið. Að skreppa austur í kaffi til ömmu var alltaf jafn yndislegt, spjalla um ættingja, börn og barna- börn, fara í fjöruna með okkar eigin börn og þá aðallega fyrir neðan Kastala – það eru alltaf sérstakar tilfinningar þegar far- ið er í þá fjöru. Þó fjarlægðin hafi aukist síð- ustu árin, en um tíma bjuggum við allar erlendis, þá var alltaf amma með okkur í huga. Við heyrðum af henni frá mömmu, því þær spjölluðu reglulega saman og alltaf var amma með á nótunum – hún vissi alltaf ef eitthvað bjátaði á og hringdi. Ömmu verður sárt saknað, þessi erna kona sem ekki eldist neitt í hugum okkar; frá kleinu- bakstri barndómsins til stuttrar veru á Kumbaravogi. Að vaxa úr grasi með Löllu ömmu og Jónasi afa sér við hlið hefur verið ómetanlegt vega- nesti. Lalla amma, við eigum eftir að sakna þín og ferðir á Stokks- eyri verða aldrei þær sömu. Hvíl í friði. Geirný Ósk, Jóhanna og Hjördís. Aðalbjörg Oddgeirsdóttir HINSTA KVEÐJA Til ömmu. Þú ert eins og blóm í brjósti mér, ég geymi þig í huga mér. Um alla eilífð er ég þín, elsku amma mín. Þó rigni og blási verð ég hér, og hvíli í fangi þér. En samt svo blíð og góð rigningin er ég kúri á kodda hjá þér. En opna ég augun brátt, ég finn að þú ert farin. En núna finn ég styrkinn minn, er ég kveð þig hér um sinn. Kveðja, Stefanía Fanndís Björgvinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.