Morgunblaðið - 19.07.2012, Side 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2012
Ég mun bara njóta dagsins í faðmi fjölskyldu og vina. Við ger-um okkur kannski glaðan dag og tökum bíltúr um Borgar-fjörð eystri,“ segir Vilborg Ólafsdóttir, en hún er þrítug í
dag.
Vilborg er leikstjóri að mennt og hefur starfað sem slíkur undan-
farin þrjú ár „Þetta er erfitt og þessu fylgir mikið hark. Þetta hefur
samt gengið vel,“ segir Vilborg, en hún tilheyrir listamannahópnum
Kvissbummbang.
Hópurinn sérhæfir sig í því að skapa heim, samfélagslegan strúkt-
úr sem þátttakendur fara inn í og upplifa. Hópurinn er nú staddur
ásamt Vilborgu á Seyðisfirði, en þar vinna þau að verkefni sem kall-
ast „Manngerður raunveruleiki“.
Tilgangurinn með verkefninu er að leitast við að bregða ljósi á
manngerðan og tilbúinn raunveruleika hvers og eins þátttakanda.
„Þetta er einskonar þátttökuleikhús og við sýnum okkar vinnuað-
ferðir,“ segir Vilborg, en hópurinn vinnur einnig að verkefni sem
frumsýnt verður í ágúst og fjallar um vændi í Reykjavík.
Vilborg er nýbúin að eignast barn, en hún á tíu vikna son sem er
nú staddur fyrir norðan ásamt kærasta hennar. „Ég er búin að vera
hérna í nokkra daga. Ég gæti vel hugsað mér að búa hérna ef það
væri ekki fyrir sólarleysið hluta ársins,“ segir Vilborg.
pfe@mbl.is
Vilborg Ólafsdóttir er 30 ára í dag
Leikstjóri Vilborg er leikstjóri að mennt og hefur starfað sem slíkur
undanfarin þrjú ár. Vilborg tilheyrir hópnum Kvissbummbang.
Frumsýnir nýtt
verk í ágúst
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Höfn Sigurður Arnar
Hjálmarsson fæddist
23. ágúst kl. 13. Hann
vó 4.100 g og var 55
cm langur. Foreldrar
hans eru Matthildur
Ásmundardóttir og
Hjálmar J. Sigurðsson.
Nýr borgari
A
rnfinna fæddist að Hlíð-
arvegi 3 á Siglufirði og
hefur átt þar heima alla
tíð. Hún var í Barna-
skóla Siglufjarðar,
Gagnfræðaskóla Siglufjarðar,
stundaði nám við Verslunarskóla Ís-
lands og útskrifaðist þaðan með
verslunarskólapróf 1961.
Arnfinna sinnti skrifstofustörfum
hjá SR á árunum 1961-65, var hafn-
argjaldkeri á bæjarskrifstofu Siglu-
fjarðar 1965-87 og launafulltrúi þar
1987-2003. Þá komst hún á eftirlaun
og lét af störfum.
Eysteinn, eiginmaður Arnfinnu,
hefur starfrækt Fiskbúð Siglu-
fjarðar, fyrst með öðrum, en síðan
einn, frá 1981. Eftir að Arnfinna
hætti á bæjarskrifstofunni, hefur
hún aðstoðað hann í fiskbúðinni sem
löngu er landsfræg fyrir afbragðs
fisk, rykkling, rúgbrauð og síld, ekki
síst á síldarhátíðunum yfir
verslunarmannahelgar.
Arnfinna Björnsdóttir, listakona á Siglufirði, 70 ára
Á vinnustofu Abbýjar Arnfinna við nokkur verka sinna á vinnustofu sinni að Aðalgötu 13 á Siglufirði.
Í fiskbúð og myndlist
Morgunblaðið/Halldór Þ. Hall
Í Fiskbúðinni Eysteinn og Arnfinna í hinni vinsælu Fiskbúð Siglufjarðar.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður
sem hefur hafið göngu sína
í Morgunblaðinu. Þar er
meðal annars sagt frá merkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum, barnsfæðingum
eða öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
360° snúningur
WAVE
Áklæði 257.000.-
Leður 275.000.-