Morgunblaðið - 19.07.2012, Blaðsíða 31
Fjölþjóðlegt gallerý
Arnfinna fór einnig að sinna hugð-
arefni sínu til margra ára sem er
myndlistin. Hún fór á kvöld-
námskeið í myndlist í þrjá vetur hjá
Örlygi Kristinssyni, upphafsmanni
og safnstjóra Síldarminjasafnsins.
Hún festi kaup á húsi við Aðalgötu
á Siglufirði, árið 2005, kom sér upp
gallerýi, Vinnustofu Abbýjar,
Aðalgötu 13, vinnur þar að list sinni
sem einkum eru klippimyndir, og
hefur þar opið frá 14.00-18.00 alla
virka daga frá 20.5.-20.9. og stund-
um um helgar þegar margt er í
bænum.
Arnfinna hefur auk þess haldið
myndlistasýningar á Akureyri,
Hjalteyri og í Þelamerkurskóla.
„Ég er nú aðallega að þessu til að
skemmta sjálfum mér og fá
skemmtilegt fólk í heimsókn“ segir
Arnfinna. „Um næstsíðustu helgi
var hér Þjóðlagahátíð sem haldin
hefur verið á hverju sumri um ára-
bil. Þá var hér stanslaus gestagang-
ur og fólk frá Egyptalandi, Svíþjóð,
Króatíu, Kanada, Englandi og Dan-
mörku. Þetta er orðið allt annað
mannlíf hér eftir að göngin komu.
Það minnir mig á gamla daga þegar
Siglufjörður var fjölþjóðlegur síld-
arbær.“
Arnfinna söng í Kvennakór Siglu-
fjarðar í 30 ár, spilar á gítar þegar
stórfjölskyldan kemur saman, en
móðir hennar, sem er 95 ára, spilar
þá á harmónikku.
Arnfinna sat í stjórn Norræna fé-
lagsins á Siglufirði í fjölda ára og
vann þá að undirbúningi fyrir vina-
bæjarmót, sat í stjórn kvenfélagsins
Von, í stjórn slysavarnafélagsins
Vörn á Siglufirði, í stjórn Lionessu-
klúbbs Siglufjarðar og í stjórn
Starfsmannafélags Siglufjarð-
arkaupstaðar.
Fjölskylda
Eiginmaður Arnfinnu er Eysteinn
Aðalsteinsson, f. 18.5. 1941, fisksali.
Hann er sonur Aðalsteins Jónatans-
sonar, kyndara hjá Síldarverk-
smiðjum ríkisins, og Sigríðar Gísla-
dóttur fiskverkakonu.
Dóttir Arnfinnu og Eysteins er
Aðalheiður Eysteinsdóttir, f. 23.6.
1963, myndlistarkona í Freyjulundi í
Eyjafirði en maður hennar er Jón
Laxdal myndlistarmaður og á hún
þrjú börn.
Uppeldissonur Arnfinnu og Ey-
steins er Jóhann Friðfinnur Sigurðs-
son, f. 19.2. 1965, yfirvélstjóri hjá
Eskju í Hafnarfirði og á hann einn
son.
Systkini Arnfinnu: Unnur Björns-
dóttir, f. 25.2. 1937, húsmóðir á Ak-
ureyri; Guðrún Björnsdóttir, f.
18.10. 1943, húsmóðir á Siglufirði;
Ólafur Björnsson, f. 17.10. 1944, d.
15.9. 1985, var kokkur á Siglufirði;
Ólína Björnsdóttir, f. 11.8. 1946,
fyrrv. starfskona við leikskóla; Rósa
Björnsdóttir, f. 9.12. 1947, húsmóðir
í Reykjavík; Birna Björnsdóttir, f.
4.5. 1949, ráðskona með mötuneyti í
Reykjavík; Elín Sigríður Björns-
dóttir, f. 9.9. 1952, fyrrv. skrif-
stofukona; Steinunn Helga Björns-
dóttir, f. 29.11. 1956,
skrifstofumaður í Reykjavík.
Foreldrar Arnfinnu: Björn Ólafs-
son, f. 10.7. 1917, d. 4.11. 1965, bif-
vélavirki á Siglufirði, og k.h., Hólm-
fríður Steinþórsdóttir, f. 25.7. 1917,
húsfreyja og saumakona í Reykjavík
og á Siglufirði.
Úr frændgarði Arnfinnu Björnsdóttur
Stefán Björnsson
b. á Litlu-Laugum, af Buchsætt
Elín Þorsteinsdóttir
af Reykjahlíðarætt
Guðrún Jónasdóttir
frá Sílalæk, af Sílalækjarætt
Halldór Þorgrímsson
b. á Hólmavaði, af Hraunkotsætt
Sólveig Ólafsdóttir
frá Deplum í Stíflu
Björn Stefán Olsen
smiður og málari á Akureyri
Marselía Arnfinnsdóttir
húsfr. á Akureyri
Arnfinna
Björnsdóttir
Björn Ólafsson
bifvélavirki á Siglufirði
Hólmfríður Steinþórsdóttir
húsfr. og saumak. í Rvík og á Sigluf.
Guðrún Halldórsdóttir
húsfr.
Steinþór Stefánsson
múraram. í Rvík.
Ólína S. Björnsdóttir
húsfr. á Siglufirði
Ólafur K. Gottskálksson
bílstj. og dýral. á Siglufirði
Gottskálk Gottskálksson
b. á Húnastöðum í Stíflu
Rögnvaldur Ólafsson
hárskeri á Sauðárkróki
Guðrún Þorgrímsdóttir
húsfr. á Helgastöðum
Jónas Friðriksson
b. á Helgastöðum
Reynir Jónasson
tónlistarmaður
Ljósmynd/Guðmundur Skarphéðinsson
Í speglinum Afmælisbarnið hefur
sig til á vinnustofunni.
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2012
Kristinn fæddist á Steðja íFlókadal í Borgarfirði 19.7.1922, og ólst þar upp. For-
eldrar hans voru Björn Ívarsson,
bóndi þar, og k.h., Pálína Sigríður
Sveinsdóttir húsfreyja.
Björn var bróðir Jóns, alþm. og
kaupfélagsstjóra á Höfn, og Sig-
urbjargar, ömmu Jóns
Magnússonar, lögmanns og fyrrv.
alþm.. Björn var sonur Ívars, b. á
Snældubeinsstöðum, hálfbróður
Gunnhildar, ömmu Kristins Guð-
mundssonar rithöfundar.
Pálína var dóttir Sveins, b. í
Lundi í Þverárhlíð Gíslasonar, og
Oddrúnar Pálsdóttur frá Ártúni á
Kjalarnesi, af Bergsætt.
Kristinn lauk stúdentsprófi frá
MR 1946, lauk embættisprófi í sál-
fræði frá Oslóarháskóla 1953, stund-
aði framhaldsnám í sálsýkisfræði
barna við Ríkisspítalann í Osló og
við Geðverndarstöð barna 1953-54,
og stundaði nám við Michigan-
háskólann í Bandaríkjunum 1960-
61.
Kristinn vann við athugun á
starfsgetu öryrkja og leiðbeindi um
starfsval fatlaðra hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins 1954-61, vann
við Sálfræðideild skóla í Reykjavík
1961-91 og var forstöðumaður deild-
arinnar frá 1971. Þá var hann sál-
fræðingur við áfengisvarnardeild
Heilsuverndarstöðvarinnar 1955-59,
sálfræðilegur ráðgjafi Lyngáss
1961-78 og kennari við Hjúkr-
unarskóla Íslands 1959-60.
Óhætt er að segja að Kristinn hafi
verið málsvari einstaklinga sem á
einn veg eða annan áttu undir högg
að sækja í tilverunni. Hann var m.a.
formaður Geðverndarfélags Íslands
1962-66, Landssambands íslenskra
barnaverndarfélaga 1967-77, Ör-
yrkjabandalags Íslands 1968-70 og
Öldrunarráðs BHM 1990-94.
Meðal rita Kristins eru Starfs-
fræði, leiðbeiningar um náms- og
stöðuval, útg. 1966; Greindarpróf
Wechslers fyrir fullorðna (þýtt og
staðfært), útg. 1961; Sálfræðiþjón-
usta skóla – þáttur hagnýtrar sál-
fræði, útg. 1991.
Kristinn lést 26.12. 2004.
Merkir Íslendingar
Kristinn
Björnsson
90 ára
Alda B. Hansen
85 ára
Anna Jónasdóttir
Helgi Júlíus Hálfdánarson
Hrefna Arngrímsdóttir
Inga Ísaksdóttir
Sigmar Ingvarsson
80 ára
Erla Kristjánsdóttir
Sigríður Þóra Gísladóttir
Þorvaldur K. Hafberg
75 ára
Elisabeth B. Nielsdóttir
Elísabet Ólafsdóttir
Hörður A. Guðmundsson
Ragnhildur Hafliðadóttir
70 ára
Elsa Óskarsdóttir
Jóhanna S. Jóhannesdóttir
Jón M. Magnússon
Marsilína Hermannsdóttir
Valur H. Einarsson
Þórey Sveinbergsdóttir
60 ára
Guðbjörn Jóhannsson
Jens Guðmundur Jensson
Jóhanna Th. Þorleifsdóttir
Kristjana B. Þórarinsdóttir
Magnús Karlsson
Nadezda Lapenko
Sigrún Bjarnarson
Þorgeir Þorsteinsson
Þórður Eric Hilmarsson Er-
icson
50 ára
Anna Marie I. Stefánsdóttir
Árni Ólafur Reynisson
Ásberg Einar Ásbergsson
Ásgrímur Bragi Konráðsson
Guðmundur Daníelsson
Guðrún Sigríður
Gunnarsdóttir
Kristinn Hannesson
Kristján Sigurður
Pétursson
Rúna Ósk Garðarsdóttir
Signý Magnfríður
Jónsdóttir
Steinar Agnarsson
40 ára
Guðmunda Guðjónsdóttir
Hálfdán Lárus Pedersen
Inga Rún Björnsdóttir
Jing Zhang
Jón Karl Árnason
Maciej Szczesny
Pétur Aðalsteinsson
Róbert Viðar Bjarnason
Sigurbergur Sveinsson
Stefán Arnalds
30 ára
Anna Rut Ingvadóttir
Daniel Turowski
Einar Karl Valmundsson
Guðmar Valþór Kjartansson
Ívar Örn Elefsen
Magnús Þór Sigmundsson
Róbert Árni Sigþórsson
Sveinn Guðmundsson
Til hamingju með daginn
30 ára Erla ólst upp í
Vesturbænum, er sál-
fræðingur og er í dokt-
orsnámi í sálfræði.
Maki: Hálfdán Stein-
þórsson, f. 1976, við-
skiptafræðingur.
Synir: Steinþór Snær, f.
2004, Björn Diljan, f.
2006, og Frosti, f. 2011.
Foreldrar: Anna Sig-
urveig Ólafsdóttir, f. 1952,
hjúkrunarfræðingur, og
Björn Magnússon, f. 1947,
læknir.
Erla
Björnsdóttir
30 ára Kristjana ólst upp
á Þingeyri og í Namibíu,
er viðskiptafræðingur og í
MA-námi í menntunarfr.
Maki: Karl Óskar Krist-
bjarnarson, f. 1982, við-
skiptafræðingur hjá N1.
Börn: Hildur Tanja, f.
2004, Dagný Katla, f.
2007, og Skúli Arnbjörn,
f. 2012.
Foreldrar: Skúli A. Elías-
son, f. 1953, skipstjóri, og
Jóhanna Gunnarsdóttir, f.
1945, hótelstýra.
Kristjana S.
Skúladóttir
30 ára Unnur ólst upp í
Njarðvík og er nú hús-
móðir þar á leið í nám.
Maki: Árni Grétar Ósk-
arsson, f. 1979, bílstjóri.
Börn: Elísabet Sara
(stjúpd.) f. 1998; Auðunn
Lárus, f. andvana 2000,
Auðunn Snorri, f. 2000,
Þórunn Kolbrún, f. 2002,
og Bergþóra Sif, f. 2005.
Foreldrar: Sigurveig
Long, f. 1958, sjúkraliði,
og Snorri Jóhannesson, f.
1957, smiður.
Unnur Helga
Snorradóttir
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
Hádegisverðartilboð
Tvíréttað í hádegi frá 1.890,-
Fljót og góð þjónusta
Veitingastaður / verslun
Nethylur 2 • 110 Reykjavík • Sími: 587 2882 • galleryfiskur.is