Morgunblaðið - 19.07.2012, Síða 32

Morgunblaðið - 19.07.2012, Síða 32
32 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2012 Hvern ætlar þú að gleðja í dag? Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þótt margt mætti vera öðruvísi en það er núna hefurðu fulla ástæðu til að þakka það sem þú hefur. 20. apríl - 20. maí  Naut Taktu þér pásu seinnipartinn og ein- beittu þér að fallegustu draumsýn sem þú getur hugsað þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Hvað sem þú ert að pæla, færðu það á tilfinninguna að aðrir séu að pæla í öðru. Hverjar sem undirtektirnar verða, máttu vita að þú hefur lagt þitt af mörkum og mátt vel við una. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ert í skapi til að skemmta þér og það skaltu gera. Tilfinningar þínar láta þér líða vel og hugsa um lífið á jákvæðan hátt. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Gerðu þér að reglu að ljúka þeim verk- efnum, sem þú hefur tekið að þér, áður en þú bætir við. Tékkaðu af staðreyndir máls- ins áður en þú lætur til skarar skríða. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Hæfileikar þínir til hugsanaflutnings eru í hámarki. Gefðu þér líka tíma til að eiga samverustundir með fjölskyldunni. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það getur eitt og annað komið upp á þegar menn rökræða málin af fullum þunga. En ef þú hlustar þá heyrirðu að vinir þínir eru að staðfesta það sem liggur þér á hjarta. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Láttu það eftir þér að gera eitthvað óvenjulegt í dag. Þú átt ekki að þurfa að hafa neinar áhyggjur því dugnaður þinn og útsjónarsemi skila þér heilum í höfn. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Reyndu að temja þér ráð- kænsku og háttvísi í samtölum við maka og nána vini í dag. Mundu að aðgát skal höfð í nærveru sálar. 22. des. - 19. janúar Steingeit Pláneturnar vilja hjálpa þér að sýna umburðarlyndi. Lestu smáa letrið og vertu viss um hvað tilheyrir þér og hvað ekki. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Einhver dýrðarljómi virðist um- lykja þig í dag. Sígandi lukka er best og því eru allar sviptingar til lítils, þegar upp er staðið. 19. feb. - 20. mars Fiskar Hver manneskja geymir nokkra per- sónuleika, sem er ástæða þess að fullorðnir haga sér stundum eins og þeir séu tveggja ára. Mundu að reiði skilar engum árangri. Ólafur Einarsson sendi viðbótvið bílavísurnar, sem birtust í gær og á föstudag: „Ort fyrir mörg- um árum þegar menn fóru í aukn- um mæli að aka um hálendið á kraftmiklum bílum. Fjallkonan er alveg æf engin ró né friður. Nú ferðast menn á four wheel drive fjöllin upp og niður.“ Það hrífur hugann að kynnast nýrri menningu og heyra af örlög- um fólks í afskekktri byggð á borð við Skálavík. Jónas Halldórsson var síðasti ábúandi á Minni-Bakka með Sigríði Magnúsdóttur eiginkonu sinni, en flutti svo til Bolung- arvíkur. Hér er gripið niður í kveð- skap hans: Dagsverki er lokið og dvöl minni hér út við sæinn dregur að kvöldi míns síðasta vinnudags. Einyrkja bóndi sem elskaði vorþýðan blæinn er kannske að bíða hér síðasta ævidags. Og hann orti af æðruleysi: Allt á takmark, einhver ræður gerð, allt er hér á einhverskonar ferð, engin skynjar alheims veldistól, enginn veit hver lifir næstu jól. En Pétur Stefánsson hugsar um næstu máltíð: Eftir dagsins ljúfa leik, – að loknum rakstri og þvotti; kraumar í ofni kubbasteik og kartöflur brúnast í potti. Sigrún Haraldsdóttir gekk framhjá spegli og datt í hug: Fyrir mér sá vandi vefst vilja hátt að tróna rækallans því rassinn hefst rétt fyrir ofan skóna. Davíð Hjálmar Haraldsson hug- hreysti hana og benti henni á að horfa á björtu hliðarnar: Saumir þú þér flíkur fyrir jól fjárhagslega ætti það að ganga; þú færð nóg í sætan, síðan kjól úr sirka feti af mjóum efnisstranga. Björg Sigurðardóttir á Geira- stöðum í Mývatnssveit orti á sínum tíma, eins og lesa má um á Vísnavef Skagfirðinga: Ég er ljót í andliti einhver mesti trassinn. Það er ekkert eigandi á mér nema rassinn. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af bílum, kubbasteik, Skálavík og rassavísum G æ sa m a m m a o g G rí m u r G re tt ir S m á fó lk F er d in a n d JÓN, SKIPTU UM STÖÐ FYRIR MIG NÆST Á DAGSKRÁ, NÝ VÍSINDASKÁLDSAGA... „DUGLEGI KÖTTURINN” ÞETTA ER BARA KJÁNALEGT HVERNIG GENGUR MEÐ TEPPIÐ? VIÐ ERUM HÆTT AÐ SLÁST, VIÐ SÖMDUM FRIÐ ÉG LOFAÐI AÐ BRENNA ÞAÐ EKKI OG ÞAÐ LOFAÐI AÐ RÁÐAST EKKI Á MIG SJÁÐU, ÞAÐ HVÆSTI EKKI EINU SINNI Á MIG PABBI, HVAÐ Á ÉG AÐ VERÐA ÞEGAR ÉG VERÐ STÓR? ÞÚ VERÐUR AÐ ÁKVEÐA ÞAÐ SJÁLFUR.. ...EN SAMA HVAÐ ÞÚ VELUR ÞÁ MÁTTU EKKI GLEYMA ÞVÍ AÐ GEFA ÞÉR NÆGAN TÍMA TIL AÐ SKEMMTA ÞÉR EN EKKI SEGJA MÖMMU ÞINNI AÐ ÉG HAFI SAGT ÞETTA ÉG ER ORÐINN SVOLÍTIÐ SVANGUR, HVAÐ MEÐ ÞIG? ÉG ER ORÐINN SVANGUR ÉG ÆTLA AÐ FÁ HJÁ ÞÉR EITT KJÚKLINGALÆRI ÞAÐ HEFUR SÍNA KOSTI AÐ BORÐA Í NÁVIST GAMALS KJARNORKUVERS GRÍMUR OG ATLI ERU STADDIR Í CHERNOBYLSKEMMTIGARÐINUM DA. H ró lf u r h ræ ð ile g i Rithöfundurinn Johnathan Littell,sem skrifaði metsölubókina Hin- ir velviljuðu, hefur verið stríðs- fréttaritari undanfarin ár og dvaldi nokkrar vikur í upphafi árs meðal uppreisnarmanna í Sýrlandi. Hinir velviljuðu var umdeild skáldsaga. Þar lýsir menntaður yfirmaður úr SS- sveitum Þjóðverja morðum og ódæð- isverkum nasista og þar með sínum eigin í Rússlandi í síðari heimsstyrj- öld án minnstu iðrunar. Nú hefur hann gefið frásögn af dvöl sinni í Sýr- landi út á bók. x x x Fyrir skömmu birtist athyglisvertviðtal við Littell um bókina í tíma- ritinu Der Spiegel. Þar segir hann að bók sín, Lýsingar frá Homs, sé ekki bókmenntaverk heldur vitnisburður. Fyrir sér hafi ekki vakað að skrifa ákall til Vesturlanda um hernaðarlegt inngrip. „Mér þætti það kjánalegt,“ segir hann. „það þýðir þó ekki að ég hafi enga skoðun. Hún kemur bara fram á öðrum vettvangi. Í Sýrlandi deyr fólk á meðan annars staðar er setið á rökstólum“. x x x Littell segist ekki hafa áhuga á sið-blindum glæpamönnum og rað- morðingjum, sem fremja ódæðisverk einir síns liðs. Öðru máli gegni um stríð, sem leiði til „afbrota, upplausn- ar, ótrúlegrar grimmdar og kvala- losta“. x x x Hann gagnrýnir hvernig litið hafiverið á einræðisherra á borð við Hafez al-Assad Sýrlandsforseta með velþóknun á meðan til dæmis Kim- arnir í Norður-Kóreu og Moammar Gaddafi í Líbíu hafi verið stimplaðir sem galnir. „Á bak við hvern valdhafa er kerfi,“ segir hann. „Þetta snýst ekki um bilaðan einstakling. Assad tekur ekki ákvarðanir einn. Valda- kerfið í Sýrlandi er mjög ógagnsætt. Stjórnarskipti fela meira í sér en að ýta einum manni til hliðar. Innsti hringurinn í kringum Assad hugsar eflaust skynsamlega og markvisst þótt útkoman sé algerlega galin.“ Lit- tell er ekki bjartsýnn á útkomuna í Sýrlandi og heldur að ákveði Assad að berjast til þrautar gæti landið ein- faldlega leyst upp. víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: Því hungraður var ég, en þér gáfuð mér ekki að eta, þyrstur var ég, en þér gáfuð mér ekki að drekka. (Mt. 25, 42.)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.