Morgunblaðið - 18.09.2012, Page 6
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Tillögurnar hafa verið unnar í nánu
samráði við hagsmunaaðila á svæð-
inu og skipulagsyfirvöld og ganga út
á að styrkja og samhæfa betur
blandaða byggð íbúðar- og þjónustu-
húsnæðis. Byggingarmagnið er einn-
ig töluvert minna en fyrri eigendur
svæðisins áformuðu,“ segir Hannes
Frímann Sigurðsson, bygging-
artæknifræðingur hjá fasteigna-
félaginu Regin og verkefnastjóri
Laugavegsreita ehf. Síðarnefnda fé-
lagið er í eigu Regins sem er eigandi
flestra eigna á Brynjureit og
Hljómalindarreit við Laugaveg.
Skipulags- og byggingarsvið
Reykjavíkurborgar stendur á morg-
un, miðvikudag, fyrir kynningar-
fundum á nýjum deiliskipulagstil-
lögum fyrir þessa tvo reiti. Fara
fundirnir fram að Hverfisgötu 33, 1.
hæð, milli kl. 16 og 18.15.
Reginn hyggst reisa eitthvað af
fyrirhuguðum byggingum á reit-
unum Standa vonir til að klára skipu-
lagsvinnuna fyrir áramót og í kjölfar-
ið verða teknar nánari ákvarðanir
um framhaldið. Vonast er til að fram-
kvæmdir komist í gang næsta sumar.
Göngugata í Brynjureit
Brynjureitur afmarkast af Lauga-
vegi, Vatnsstíg, Hverfisgötu og
Klapparstíg. Þar verður gert ráð fyr-
ir blandaðri byggð íbúðarhúsnæðis
og verslunar-, atvinnu- og þjónustu-
húsnæðis. Samkvæmt tillögunni
verða 12-40 íbúðir á reitnum. Reikn-
að er með nýbyggingum ásamt eldri
byggð við Hverfisgötu 40-46, ný-
byggingum á lóðunum Laugavegur
27a og 27b og nýbyggingu við Lauga-
veg 23 og tengingu við Klapparstíg
31.
Þá gerir tillagan um Brynjureitinn
ráð fyrir göngugötu í miðjunni sem
tengir saman Laugaveg og Hverf-
isgötu. Aðkoma að göngugötunni
verður á milli Laugavegar 25 og 27.
Tenging við Hverfisgötu verður í
gegnum Hverfisgötu 42 með lyftu- og
stigakjarna. Einnig verður aðkoma
að göngugötunni frá Klapparstíg,
milli húsa nr. 29 og 31, og myndast
þannig göngutengsl við Hljómalind-
arreitinn. Undir reitnum kemur bíla-
kjallari með 18 stæðum sem ekið
verður inn í af Hverfisgötu.
Hannes segir áhuga hafa verið fyr-
ir því að skipuleggja göngugötu sem
hægt er að labba inn á af Laugavegi.
Á neðri hæðum nýrra húsa á Brynj-
ureitnum verði verslun og þjónusta
og íbúðir á efri hæð. Þarna sé t.d.
kærkomið tækifæri fyrir verslunar-
eigendur, listamenn, frumkvöðla og
einyrkja til að sameina vinnu- og
dvalarstað.
Stórt hús við Smiðjustíg
Hljómalindarreitur afmarkast af
Laugavegi, Klapparstíg, Hverfisgötu
og Smiðjustíg. Helsta breyting á
deiliskipulagi reitsins er nýtt fimm
hæða hús við Smiðjustíg 4, með íbúð-
um á efri hæðum og verslunum og
skrifstofum á neðri hæðum.
Í miðjum reitnum kemur nokkurs
konar markaðs- og menningartorg,
þar sem hægt verður að setja upp
sölutjöld og aðstöðu fyrir aðra við-
burði. Torgið verður í sömu hæð og
Laugavegurinn og undir því m.a. 25
stæða bílakjallari sem hægt verður
að aka inn í frá Hverfisgötu líkt og á
Brynjureit. Á Hljómalindarreitnum
er reiknað með 15-20 íbúðum.
Samkvæmt tillögunni á síðan að
loka reitnum fyrir almenningi á næt-
urnar en heimilt að hafa opið til kl. 1
um nótt í 12 daga á ári. Lokunin mun
ekki hafa áhrif á aðgengi íbúa þar
sem inngangar munu allir verða frá
götu. Þá hefur Hljómalindarhúsið
við Laugaveg 21 verið friðað og verð-
ur hvorki flutt eða rifið.
„Á samráðsfundum með hags-
munaaðilum, bæði fyrirtækjum,
hverfaráði og íbúasamtökum, höfum
við kallað eftir hugmyndum og vænt-
ingum fólks til svæðanna. Margir
komu með hugmyndir um að setja
upp skjólgóð torg og bjóða upp á
eitthvað óvænt inni í miðborginni.
Arkitektar fengu síðan það verkefni
að draga þessar óskir fólks fram og
keyra byggingarmagnið niður. Við
reynum að viðhalda sem mest yf-
irbragði eldri bygginga sem fyrir
eru. Okkar markmið er að íbúar
þekki borgina sína á ný og séu sáttir
við umhverfið,“ segir Hannes.
Minni byggingar og meira samráð
Nýjar deiliskipulagstillögur fyrir Brynjureit og Hljómalindarreit Tillögur unnar í samráði við
hagsmunaaðila Borgaryfirvöld með kynningarfund á morgun Byggingareitir í eigu Regins
Laugavegur
Kl
ap
pa
rs
tíg
ur
Va
tn
ss
tí
gu
r
Deiliskipulagstillaga fyrir Brynjureit
Grunnmynd: Arkitektur.is
Nýjar byggingar
Ný göngugata
Deiliskipulagstillaga fyrir Hljómalindarreit
Grunnmynd: Arkitektur.is
La
ug
av
eg
ur
Sm
iðjustígur
Hve
rfis
gat
a
Nýjar byggingar
Markaðstorg
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2012
„Við höfum hitt Reginsmenn og séð tillögurnar. Við
fögnum uppbyggingunni og hugmyndum að nýtísku-
legu verslunarrými. Betri nýting mun nást á svæðinu og
við fögnum því einnig að þeir vilja hraða framkvæmdum
á reitunum,“ segir Björn Jón Bragason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka kaupmanna og fasteignaeig-
enda við Laugaveg, um deiliskipulagstillögurnar fyrir
Brynjureit og Hljómalindarreit.
„Það eina sem við höfum áhyggjur af eru bílastæðin
neðanjarðar og hvort þau séu nógu mörg. Það ræðst af
notkuninni Hverfisgötumegin, hvort þar verða íbúðir
eða til dæmis hótel. Annars líst okkur vel á tillögurnar og teljum þær
falla vel að þeirri byggð sem fyrir er þarna,“ segir Björn.
Einnig segir hann samtökin telja nauðsynlegt að taka Hverfisgötuna
um leið í gegn. Fegra hana með trjám, fjölga bílastæðum og gera hana
meira aðlaðandi.
Fögnum uppbyggingunni
SAMTÖK KAUPMANNA OG FASTEIGNAEIGENDA Á LAUGAVEGI
Björn Jón
Bragason
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Anna Kristín Ólafsdóttir, stjórn-
sýslufræðingur, hefur ákveðið að
áfrýja ekki héraðsdómi sem féll í lok
júlí síðastliðnum en með dómnum
voru henni dæmdar skaðabætur er
námu hálfri milljón íslenskra króna
auk dráttarvaxta sökum brots Jó-
hönnu Sigurðardóttur forsætisráð-
herra á jafnréttislögum við ráðningu
á skrifstofustjóra skrifstofu stjórn-
sýslu- og samfélagsþróunar í forsæt-
isráðuneytinu árið 2010.
„Nei og þau [Forsætisráðuneytið]
ákváðu að áfrýja því ekki heldur,“
segir Anna Kristín aðspurð hvort
hún ætli að áfrýja málinu og bætir
við: „Ég vann málið, ég fékk mínu
framgengt, ég fór ekki í málið til
þess að verða rík. Ég fékk það fram
sem ég vildi sem var það að fá stað-
festingu á því að forsætisráðherrann
hefði brotið lögin og það var nið-
urstaða dómarans þannig að ég sá
enga ástæðu til að áfrýja því.“ Rétt
er að taka það fram að skaðabóta-
krafa Önnu Kristínar, sem lögð var
fram fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur,
nam rúmum fimmtán milljónum ís-
lenskra króna auk vaxta.
Íhugar framhaldið
Eins og greint var frá í fjölmiðlum
um síðustu mánaðamót þá hefur
kærunefnd jafnréttismála úrskurð-
að að Ögmundur Jónasson innanrík-
isráðherra hafi brotið jafnréttislög
þegar hann skipaði Svavar Pálsson í
embætti sýslumanns á Húsavík en
ekki Höllu Bergþóru Björnsdóttur
sem álitin hafði verið hæfari í starf-
ið.
Aðspurð hvort hún hyggist fara
með mál sitt fyrir dómstóla og krefj-
ast þar skaðabóta segir Halla Berg-
þóra að hún eigi enn eftir að taka
ákvörðun um slíkt. „Við höfum ekki
talað saman, ég og lögmaðurinn. Við
erum ekkert búnar að ræða þetta en
ég hef svosem alltaf verið að bíða
eftir því að ráðuneytið myndi
hringja í mig,“ segir Halla Bergþóra
og bætir við að hún hafi enn ekkert
heyrt frá ráðuneytinu og að hún hafi
einungis frétt af því í fjölmiðlum að
ráðherrann ætli sér að una úrskurði
nefndarinnar.
Einu jafnréttismáli lokið en
óvíst með framhald annars
Anna Kristín Ólafsdóttir hefur ákveðið að áfrýja ekki
Morgunblaðið/RAX
Kynjagleraugu Ögmundur Jónasson og Jóhanna Sigurðardóttir festu bæði
kaup á kynjagleraugum hjá Stígamótum fyrir tæpum tveim árum.
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
I0
4
3
2
5
9
568 8000 | borgarleikhus.is
Hjóni
n Mar
grét o
g Kris
tján,
Reyk
javíku
rvegi
25
4 sýn
ingar
að eig
in val
i
Áskri
ftar-
kortið
okkar
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
vegna ráðgefandi þjóðaratkvæða-
greiðslu um tillögur stjórnlag-
aráðs að frumvarpi til stjórnskip-
unarlaga og tiltekin álitaefni
þeim tengd sem fram fer 20.
október hófst hinn 25. ágúst síð-
astliðinn. Samkvæmt upplýs-
ingum frá embætti sýslumannsins
í Reykjavík hafa 129 ein-
staklingar kosið utan kjörfundar
í Reykjavík frá því utankjörfund-
aratkvæðagreiðslan hófst 25.
ágúst. Það er minna en í forseta-
kosningunum en á sama tíma
höfðu 169 kosið utan kjörfundar í
forsetakosningunum sem fram
fóru í sumar. Það kann þó að
skýrast af því að forsetakosning-
arnar fóru fram á helsta sum-
arleyfistíma landsmanna en alls
kusu 25 prósent Garðbæinga utan
kjörfundar í forsetakosningunum.
vilhjalmur@mbl.is
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer rólega
af stað miðað við forsetakosningarnar