Morgunblaðið - 18.09.2012, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2012
Á sama tíma og Stóra-Bretland,gamla heims- og flotaveldið, set-
ur tvö helstu stolt sín í brotajárn sjó-
setur Kína hvert skipið á fætur öðru.
Sagt er að hið vax-andi flotaveldi
geri nú kröfur um yf-
irráð á sjó upp í land-
steina hjá nágrönn-
um sínum og tilkall
til allra eyja og
skerja sem á því mikla hafsvæði eru.
Bretar kynntust því að fall-byssukjaftar ná ekki alltaf öllu
sínu fram.
Þeir Eiríkur Kristófersson og Guð-mundur Kjærnested og slíkir
sýndu þeim fram á það með eft-
irminnilegum hætti.
En heimsveldi, sem leggur svomikið upp úr landi sem stendur
upp úr hafi, hlýtur að skilja að það
getur ekki hent fjalllendi í 400 metra
hæð í fjarlægu landi í innkaupakörf-
una sína eins og hrísgrjónapakka.
Ekki síst þegar jarðarparturinn sáer jafnstór ESB-ríkinu Möltu og
helmingurinn af stærð Borgundar-
hólms, sem er drjúgur hluti af Dan-
mörku.
Væri ekki betra að Núbó svifi umsker og smáeyjar þar eystra
með sitt úttroðna veski áður en hann
opnar golfvöll á Grímsstöðum á Fjöll-
um?
Hann kæmi þar eystra í veg fyrirstyrjöld stórþjóða á milli og
stuðlaði um leið að friði á milli Stein-
gríms og Ögmundar. Tvær holur í
einu höggi. Eins og gera verður á
golfvellinum nyrðra til að nýta þær
þrjár vikur sem hann verður opinn ár
hvert.
Núbó
Nú gæti Núbó
notið sín
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 17.9., kl. 18.00
Reykjavík 8 skýjað
Bolungarvík 6 alskýjað
Akureyri 4 rigning
Kirkjubæjarkl. 7 skýjað
Vestmannaeyjar 7 skýjað
Nuuk 7 léttskýjað
Þórshöfn 8 skýjað
Ósló 13 léttskýjað
Kaupmannahöfn 17 heiðskírt
Stokkhólmur 17 heiðskírt
Helsinki 17 skýjað
Lúxemborg 22 heiðskírt
Brussel 17 skýjað
Dublin 13 léttskýjað
Glasgow 12 léttskýjað
London 17 léttskýjað
París 22 léttskýjað
Amsterdam 18 léttskýjað
Hamborg 17 skýjað
Berlín 21 léttskýjað
Vín 23 skýjað
Moskva 16 heiðskírt
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 31 heiðskírt
Barcelona 25 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 23 léttskýjað
Aþena 22 skúrir
Winnipeg 8 skýjað
Montreal 20 léttskýjað
New York 23 heiðskírt
Chicago 21 alskýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
18. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:01 19:43
ÍSAFJÖRÐUR 7:05 19:50
SIGLUFJÖRÐUR 6:47 19:33
DJÚPIVOGUR 6:30 19:13
Síðasta stóra skemmtiferðaskip
sumarsins er væntanlegt til hafnar í
Reykjavík í dag.
Skipið heitir Emerald Princess
og er 113.561 tonn að stærð og tek-
ur liðlega 3.000 farþega. Áætlað er
að það leggist að Skarfabakka
klukkan 11.30 og haldi úr höfn
klukkan 23 í kvöld. Emerald Prin-
cess var smíðað árið 2007 og hefur
áður komið hingað til lands.
Þrjú skemmtiferðaskip eru vænt-
anleg til viðbótar í september. Það
síðasta kemur kemur hingað laug-
ardaginn 29. september.
Alls var 81 skip bókað til Reykja-
víkur í sumar. Þrjú þeirra voru
samtímis í höfn í gær.
Nú þegar hafa 75 skemmti-
ferðaskip verið bókuð hjá Faxaflóa-
höfnum næsta sumar.
Stærsta skipið heitir Adventure
of the Seas og er 137.276 brúttó-
tonn. sisi@mbl.is
Síðasta risa-
skipið kem-
ur í dag
Prinsessan Glæsifley kemur í dag.
Toyota rafmagns- og dísellyftarar
Gerðu verðsam
anburð
Eigum til nýja rafmagns- og dísellyftara á lager,
tilbúna til afhendingar.
Vertu í sambandi við sölumenn okkar og fáðu tilboð í tæki sem hentar
þínu fyrirtæki. Nánari upplýsingar má finna á www.kraftvelar.is.
Þýska tímaritið „DHF Intralogistik“ hefur mælt veltu allra lyftaraframleiðanda heims um árabil, og
samkvæmt þeim mælingum hefur Toyota Industrial verið stærsti lyftaraframleiðandi heims undanfarin 9 ár.
Dalvegi 6-8
201 Kópavogur
Sími 535 3500
www.kraftvelar.is
kraftvelar@kraftvelar.is
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Sjö hreintarfar voru óveiddir af
kvóta ársins í lok veiðitímabilsins
sem lauk um miðnætti á laugardag-
inn var. Þar af voru fjórir tarfar á
svæðum eitt og tvö og þrír á svæði
níu, að sögn Jóhanns G. Gunn-
arssonar, sérfræðings Umhverf-
isstofnunar á Egilsstöðum.
„Það tókst ekki að úthluta þeim,“
sagði Jóhann um tarfaleyfin sem
gengu af. Í fyrra tókst að veiða all-
an tarfakvótann enda var veður
mjög hagstætt þá. „Það virkar ekki
að vera með svona mörg óúthlutuð
leyfi í byrjun veiðitímans, eins og
var nú,“ sagði Jóhann.
Hann taldi að skil á leyfum vegna
skotprófa, sem nú var krafist í
fyrsta sinn, væri aðalskýringin á
því hvers vegna eftir var að endur-
úthluta svo mörgum leyfum þegar
veiðar hófust. Eins reyndist það
tefja endurúthlutun þegar veiði-
menn þurftu fyrst að fara í skot-
próf. Jóhann sagði að skotfélögin
ættu hrós skilið fyrir að hafa tekið
veiðimenn í próf með stuttum fyr-
irvara. Slæm veðurspá fyrir síðustu
tarfadagana varð einnig til að draga
úr áhuga manna á að taka leyfin
sem reynt var að endurúthluta.
Veiði á hreinkúm lýkur á mið-
nætti á fimmtudag, 20. september.
Í gær voru um 50 kýr óveiddar.
Ekki var búið að endurúthluta öll-
um lausum leyfum. Illa viðraði til
veiða á hreindýraslóðum í gær,
snjókoma á heiðum eins og á
Fljótsdalsheiði þar sem var bylur.
Spáin var ekki góð fyrir næstu
daga en þó gæti glaðnað til á morg-
un.
Sjö tarfar voru óveiddir af kvótanum
Morgunblaðið/RAX