Morgunblaðið - 18.09.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 18.09.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2012 Íslandsdeild Evrópusambands sjóstangveiðimanna stendur fyrir Evrópumeistaramóti í strand- stangveiðum í Eyjafirði dagana 24.- 29. september. Er þetta fyrsta mót sinnar teg- undar sem haldið er í landinu. Sextíu og sex veiðimenn frá átta Evrópulöndum taka þátt í mótinu. Löndin eru: Gíbraltar, Holland, Þýskaland, England, Skotland, Wa- les, Írland og Ísland. Mótið sjálft tekur þrjá daga og veitt er á ýmsum stöðum við Eyja- fjörð. Á fyrsta degi mótsins er þannig veitt meðfram Drottning- arbrautinni á Akureyri allt frá Höfner- að Torfunefsbryggju. Keppnin felst í að veiða sem flesta fiska yfir ákveðinni lág- marksstærð. Keppt er í ýmsum flokkum á mótinu. Stangveiðimenn við Drottningarbraut. Evrópumót í sjó- stangveiði í Eyjafirði Á ferðavef International Business Times segir að Skaftafell og Vatnajökulsþjóðgarður séu á meðal bestu þjóðgarða heims; garða sem fólk hafi aldrei heyrt um en vilji heimsækja eftir að hafa lesið um þá. Meðal annarra garða sem tald- ir eru upp í umfjölluninni er Westland-garðurinn á Nýja- Sjálandi og Conguillio-garðurinn í Síle. Um Skaftafell og Vatnajökuls- þjóðgarð segir m.a.: „Lokaðu augunum og ímyndaðu þér Ís- land. Hvað sérðu? Grösuga hæð? Íshettu á tindum? Skriðjökla? Eldfjöll? Allt þetta og meira til getur þú fundið með því að keyra í um fjórar klukkustundir austur af Reykjavík, í þjóðgörðunum við Vatnajökul og í Skaftafelli.“ Eru á meðal bestu þjóðgarða í heimi Stjórnarskrárfélagið stendur fyrir borgarafundi í Iðnó á miðvikudags- kvöldið klukkan 20 undir yfirskrift- inni Stjórnmálaspilling og nýja stjórnarskráin. Fjallað verður um þá spurningu hvort ný stjórnarskrá geti spornað gegn spillingu í stjórnmálum og stjórnsýslu. Fundarstjóri er Helgi Seljan fréttamaður. Borgarafundur um stjórnarskrá STUTT V/Reykjalund - Mosfellsbæ - Sími 562 8500 - www.mulalundur.is Múlalundur - fyrir betri framtíð 40 litir af mismunandi efnum sem hægt er að framleiða úr eftir óskum. Einnig er hægt að velja mismunandi fjölda af ísoðnum vösum og skávösum. Áletrum eftir óskum Sigurður Már Jónsson skrifar frá Lúxemborg Málflutningur í máli Eftirlitsstofnun- ar EFTA (ESA) gegn íslenska ríkinu fer fram hér í Lúxemborg í dag. Tals- verður hópur Íslendinga er kominn hingað með átta manna lögfræði- teymi frá Íslandi í broddi fylkingar. Kristján Andri Stefánsson, sendi- herra, fer fyrir íslenska hópnum. Sömuleiðis eru hér staddir fulltrúar InDefence hópsins sem meðal annars hafa átt fund með þýskum blaða- mönnum en talsverður áhugi er á málinu meðal evrópskra fjölmiðla. ,,Þetta er búið að eiga sér langan aðdraganda þar sem málflutningur er að stórum hluta skriflegur,“ segir Kristján Andri. Hann taldi undirbún- ing íslenska hópsins eins góðan og kostur væri og tiltók sérstaklega að mikill fengur væri í þeim Tim Ward og prófessor Miguel Poiares Maduro. Ward hefði mikla reynslu af málflutn- ingi sem þessum og Maduro væri einn fremsti fræðimaður Evrópu í evrópu- rétti. Páll Hreinsson í dómnum Málflytjendur fá nú tækifæri til að flytja mál sitt milliliðalaust fyrir dóm- stólnum og draga fram veigamestu atriðin í þeim gögnum sem þeir hafa áður lagt fyrir dómstólinn. Málið dæma Carl Baudenbacher dómsfor- seti, sem jafnframt stýrir meðferð þessa máls (judge rapporteur), Páll Hreinsson sem er í leyfi frá Hæsta- rétti og Ola Mestad varadómari frá Noregi, en reglulegi norski dómarinn, Per Christansen, vék sæti vegna skrifa um Icesave í Aftenposten, sem hann hafði látið frá sér fara áður en hann tók við dómaraembætti. Íslenska sendinefndin hyggst standa fyrir blaðamannafundi eftir málflutninginn sem hefst kl. 9 að stað- artíma og er gert ráð fyrir að hann standi fram til kl. 14. Ræða hvers mál- flytjanda tekur á bilinu 15-45 mínút- ur, en auk þess má búast við að dóm- arar spyrji spurninga um atriði sem þeim finnast óskýr eða óska álits á vafaatriðum. Gert er ráð fyrir að dómur í málinu geti legið fyrir á næstu mánuðum. Ef tekið er mið af öðrum málum sem dómstóllinn hefur fengist við nýlega ætti það að geta orðið fyrir árslok. ESA hefur óskað eftir því að EFTA dómstóllinn skeri úr um hvort Íslandi hafi tekist að uppfylla nokkrar af skuldbindingum sínum samkvæmt EES samningnum. Staðfesti EFTA dómstóllinn einhvern hluta af mála- tilbúnaði ESA taka lögfræðingar, sem haft var samband við, fram að það feli ekki í sér greiðsluskyldu gagnvart íslenska ríkinu. Slík niður- staða felur heldur ekki í sér skyldu á hendur ríkinu til að semja við einn né neinn. Krafa ESA er aðeins sú að Trygg- ingasjóður innstæðueigenda tryggi innstæður upp að 20.887 evrum. Mál- ið snýst ekki um allar innstæðuskuld- bindingar Icesave og kom það ýmsum á óvart að ESA skyldi ekki stefna fyr- ir öllum innstæðum. Það ætti að bæta stöðu Íslands að þrotabú Landsbank- ans á fyrir Icesave kröfunni og búið er að greiða 66% af forgangskröfunni nú þegar. Sömuleiðis er búið að greiða tæpan helming af heildarupphæð Ice- save innistæðnanna út úr þrotabúi Landsbankans eða 594 milljarða króna. Þar af hafa 2/3 þess sem greitt hefur verið farið til greiðslu á for- gangskröfunni sem dómsmálið tekur til. Kjarninn í málstað Íslands er að eignir þrotabús Landsbankans standi að baki greiðslum en ekki skattgreið- endur. ESA tekur það sérstaklega fram að þess sé ekki krafist að fjár- munirnir komi af fé almennings. Tek- ur ESA þannig undir rökstuðning Ís- lands. Aðild ESB að málinu hefur alvarlegar afleiðingar Það kom á óvart að Evrópusam- bandið skyldi fara fram á meðalgöngu í málinu og þekkja menn hér í Lúx- emborg ekki fordæmi fyrir því. ,,Evrópusambandið óskaði beinnar aðildar að málinu og gerir kröfu um að innstæðutilskipunin feli í sér rík- isábyrgð. Með því óskar ESB eftir staðfestingu Evrópudómstóls á ríkis- ábyrgð innstæðutrygginga í löndum ESB og þar með beiðni um að ESB ríkin beri ábyrgð á innstæðum. Slík niðurstaða hlýtur að lækka lánshæf- ismat Evrópuríkja verulega, sérstak- lega ríkja sem höllum fæti standa þar sem líkur eru á hruni fjármálakerf- isins. Viðurkenni EFTA dómstólinn ríkisábyrgð á innstæðum hefur því sú niðurstaða alvarlegar afleiðingar fyr- ir ríki Evrópusambandsins,“ sagði Ei- ríkur S. Svavarsson hrl. sem er stadd- ur hér úti í Lúxemborg að fylgjast með málflutningnum fyrir hönd InDefence-hópsins. Samkvæmt upplýsingum sem fengust úr íslenska hópnum munu verða lagðir fram útreikningar sem sýna hvaða afleiðingar það hefði fyrir ríkissjóði Evrópuríkja ef dómurinn telur að ríkisábyrgð hvíli á innstæðu- tryggingasjóðum. Eftir því sem kom- ist verður næst myndu ríkisskuldir á evrusvæðinu þrefaldast við það. Þegar spurt er um hugsanlega nið- urstöðu er talað varlega. ,,Sá sem seg- ist vita það, veit ekki hvað hann er að tala um,“ eru einu svörin sem fást. Augljóst er þó að menn hafa frekar áhyggjur af mismununarþætti máls- ins en beinlínis því hvort tilskipunin, sem hér liggur til grundvallar, hafi verið innleidd rétt. Ef dómur fellur Íslandi í vil lýkur Icesave málinu en nú eru fjögur ár síðan það varð að erf- iðustu milliríkjadeilu sem Íslendingar hafa glímt við. Krafa ESA snýr aðeins að lágmarkstryggingunni  Málflutningur í máli Eftirlitsstofnunar EFTA gegn íslenska ríkinu hefst í dag Morgunblaðið/Ómar Málflutningur Munnlegur málflutningur í máli Eftirlitsstofnunar EFTA gegn íslenska ríkinu fer fram í Lúxemborg í dag. Breskur mál- flytjandi með víðtæka reynslu og þjálfun í mál- flutningi fyrir Evrópudóm- stólnum,Tim Ward QC, var ráðinn aðal- málflytjandi Ís- lands í janúar sl. og flytur hann málið hér í Lúxemborg. Honum til aðstoðar hefur starfað málflutningsteymi skipað lög- fræðingum með víðtæka reynslu og fjölbreyttan bakgrunn. Af hálfu utanríkisráðuneytis hefur Kristján Andri Stefánsson sendiherra, fv. stjórnarmaður í ESA, leitt teymið, en auk hans eiga í því sæti f.h. atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins Þóra M. Hjaltested, fv. skrif- stofustjóri í efnahags- og við- skiptaráðuneytinu, Einar Karl Hallvarðsson ríkislögmaður, Jó- hannes Karl Sveinsson hæsta- réttarlögmaður, Reimar Pét- ursson hæstaréttarlögmaður og Kristín Haraldsdóttir, for- stöðumaður Auðlindarétt- arstofnunar Háskólans í Reykja- vík, en hún er jafnframt fv. aðstoðarmaður dómara við EFTA-dómstólinn. Auk þess hefur starfað með hópnum Miguel Maduro, pró- fessor við háskólana í Flórens og Yale og fv. aðallögsögumaður (Advocate General) við Evr- ópudómstólinn, og Dóra Guð- mundsdóttir, kennari við laga- deild Háskóla Íslands, en hún er jafnframt fv. varadómari við EFTA-dómstólinn og fv. aðstoð- armaður dómara við sama dóm- stól. Öll þessi eru aðalmálflytj- andanum til ráðgjafar við málflutninginn í Lúxemborg. Aðalmálflytj- andinn og málflutn- ingsteymið VÍÐTÆK REYNSLA OG FJÖL- BREYTTUR BAKGRUNNUR Kristján Andri Stefánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.