Morgunblaðið - 18.09.2012, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 18.09.2012, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2012 GLUGGAR OG GLERLAUSNIR idex.is - sími: 412 1700 - merkt framleiðsla • tré- eða ál/trégluggar og hurðir • hámarks gæði og ending • límtré úr kjarnaviði af norður skandinavískri furu • betri ending — minna viðhald • lægri kostnaður þegar fram líða stundir • Idex álgluggar eru íslensk framleiðsla • hágæða álprófílakerfi frá Schüco • Schüco tryggir lausnir og gæði • Þekking og þjónusta • Áralöng reynsla Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga Byggðu til framtíðar með gluggum frá Idex Þessi vara er laus við: Mjólk Glúten Sykur Soja Rotvarn- arefni 10 0% NÁ TTÚRULEG T •100% NÁTTÚRU LE G T • N Ý T T O G E N N B E T R A Góð melting er undirstaða að góðu dagsformi PRÓGASTRÓ -inniheldur m.a. hinn öfluga DDS1 asídófílus sem er bæði gall- og sýruþolin. PRÓGASTRÓ -er sannkölluð himnasending fyrir meltinguna, bætir og byggir meltingarflóruna og hefur reynst vel þeim sem þjást m.a. af meltingarkrampa, uppþembu, kandíta, lausri og tregri meltingu. PRÓGASTRÓ kemur í 100 hylkja glerglösum með íslenskum leiðbeiningum Fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna www.gengurvel.is 3DDS PLÚS® 3DDS PLÚS® P R E N T U N . I S UPPLIFÐUMUNINN! Evrópuþingið hefur nú samþykkt tillögu þess efnis að beita eigi Íslendinga refsiað- gerðum vegna þess að ósamið er um skipt- ingu veiða úr makríl- stofninum í Norður- Atlantshafi. Ráðherra- ráð ESB á eftir að staðfesta tillöguna en það breytir því ekki að um er að ræða ófyrirleitna hótun gegn Íslend- ingum sem líta ber alvarlegum augum. Ásakanir ESB um að Íslendingar stundi ósjálfbærar veiðar úr mak- rílstofninum eru afar haldlitlar og ákaflega óskammfeilnar. Hafa ber í huga að krafa okkar Íslendinga um sanngjarna hlutdeild í makrílstofn- inum byggist á lögmætum grunni og er studd vísindalegum rökum. Veiðarnar hafa mikla þýðingu fyrir íslenskt atvinnulíf og því talsverðir hagsmunir í húfi fyrir þjóðina. Haldi ríkisstjórn Jó- hönnu Sigurðardóttur áfram aðildarvið- ræðum við ESB þrátt fyrir tillögu Evrópu- þingsins verður óhjá- kvæmilega að telja hana vanhæfa til að gæta hagsmuna Ís- lendinga í makríldeil- unni. Ástæðan er sú að ekki verður hægt að treysta því að rík- isstjórnin fórni ekki samningsstöðu Íslend- inga í deilunni til að þóknast ESB við aðildarviðræðu- borðið. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í ræðu sinni við setningu Alþingis að undir engum kringumstæðum yrði fisk- veiðihagsmunum okkar fórnað vegna hótana og bolabragða ESB. Undir þau orð er rétt að taka. Eðli- leg viðbrögð íslenskra stjórnvalda við tillögum um refsiaðgerðir væru að draga umsókn um aðild að sam- bandinu til baka. Léttvægari við- brögð, en um leið þá valkostur sem gæti frekar hugnast sundraðri rík- isstjórn, væri að frysta aðild- arviðræðurnar svo lengi sem ESB hótar eða beitir þvingunar- aðgerðum útaf makríldeilunni. Færi þá svo að makríldeilan leyst- ist fyrr en seinna væri ekki úr vegi að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda bæri aðild- arviðræðum áfram eða slíta þeim. En ef ríkisstjórnin ætlar að láta duga að lýsa bara yfir vonbrigðum með áætlaðar refsiaðgerðir í dipló- matískri orðsendingu bæri það vott um ömurlegan undirlægjuhátt gagnvart ESB og væri niðurlægj- andi fyrir ríkisstjórn Íslands á al- þjóðavettvangi. Refsiaðgerðir og aðildarviðræður Eftir Teit Björn Einarsson »Um er að ræða ófyr- irleitna hótun gegn Íslendingum sem líta ber alvarlegum augum Teitur Björn Einarsson Höfundur er lögmaður og formaður utanríkismálanefndar Sjálfstæð- isflokksins Nýlega keypti Sam- herji útgerðarfyr- irtækið Berg-Hugin í Vestmannaeyjum og sölsaði þar með undir sig um 5.000 tonn í aflaheimildum. Í kjöl- farið spratt upp um- ræða um svonefnd krosseignatengsl Sam- herja og Síldarvinnsl- unnar í Neskaupstað en samanlögð afla- heimild fyrirtækjanna í síld og loðnu er mun meiri en lög heimila. Krosseignatengslin eru fyrir hendi. Í viðtali í sjónvarpi 5. september sl. segir Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra „… brýnt að lögum um fisk- veiðistjórn verði breytt til að koma í veg fyrir að aflaheim- ildir safnist á hendur tengdra félaga og þann ágalla á lögum lengi hafa legið fyrir. Til hafi staðið að taka á þeim samhliða heild- arendurskoðun á lög- um um stjórn fisk- veiða.“ Og bætir við: „Brýnt að lögin verði skýrð og skerpt svo þau virki sem skyldi.“ Hér gæti maður sagt „góður Steingrímur“ ef forsagan truflaði ekki trúverðugleikann. Ákvæði voru um krosseignatengsl í frum- varpi um fiskveiðistjórn sem lagt var fyrir Alþingi vorið 2011. Frumvarpið varð ekki að lögum. Í drögum að nýju frumvarpi, sem Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kynnti rík- isstjórn, hagsmunaaðilum og al- menningi í nóvember 2011, voru krosseignatengslum gerð nákvæm- ari skil, gildandi ákvæði fisk- veiðistjórnunarlaga skerpt og sett ítarleg ákvæði um hámarks- hlutdeild í öllum tegundum. Orðrétt segir í athugasemdum um viðkom- andi frumvarpsgrein: „Greinin er að öðru leyti að mestu efnislega samhljóða 13. gr. gildandi laga. Þó hefur nú verið tekið upp hugtakið samstarf um yf- irráð í 2. tl. 5. gr. í stað hugtaksins „raunveruleg yfirráð“. Við fram- kvæmd gildandi laga hafa komið í ljós erfiðleikar við að staðreyna að um tengda aðila sé að ræða þar sem kveðið er á um raunveruleg yfirráð. Þannig sýnir reynslan að jafnvel þótt sterkar vísbendingar séu til staðar, svo sem veruleg eigna- tengsl, samstarf, sami maður í lyk- ilstöðum í tveimur fyrirtækjum o.s.frv., hefur Fiskistofa ekki talið gerlegt, gegn andmælum aðila, að sanna að um raunveruleg yfirráð sé að ræða. Af þessum sökum er lagt til að sú breyting sem gerð var á lögum nr. 108/2007, um verðbréfa- viðskipti, sbr. lög nr. 22/2009, sé einnig gerð hér. Þar er farin sú leið að leggja áherslu á samstarf milli aðila og sönnunarbyrði snúið við, þannig að þegar aðstæður eru með tilteknum hætti beri að líta svo á að um samstarf sé að ræða nema sýnt sé fram á hið gagnstæða.“ Ljóst var að frumvarpsgreinin tók til Samherja og tengdra fyr- irtækja. Steingrímur J. Sigfússon tók við embætti sjávarútvegs- ráðherra um síðustu áramót og það kom í hans hlut að leggja fyrir Al- þingi nýtt frumvarp til laga um fiskveiðistjórn. Þegar það var loks lagt fram vor- ið 2012 brá svo við að fyrrnefnd frumvarpsgrein Jóns Bjarnasonar um krosseignatengsl var horfin. Sömuleiðis ákvæði um hámarks- aflahlutdeild í einstökum teg- undum. Það vandamál að aflaheimildir safnist á of fáar hendur hefur lengi verið þekkt og jafnframt baráttu- mál margra okkar sem höfum viljað breyta fyrirkomulagi fisk- veiðistjórnunar. En stórfyrirtækin hafa átt sína pólitísku bandamenn. Það er ekki tilviljun að í núverandi frumvarpi til breytinga á stjórn fiskveiða hafi fyrrnefnd ákvæði verið felld brott. Það er ámælisvert að atvinnu- vegaráðherra sé hvað eftir annað staðinn að því að fara rangt með. Dapurlegt en satt. Í þessu tilviki eru allar staðreyndir skjalfestar og borðleggjandi. Steingrímur J. segir blákalt í orði að brýnt sé að lögin verði skýrð og skerpt svo þau virki sem skyldi, en breytir þveröfugt við það. Eftir Atla Gíslason » Það er ámælisvert að atvinnuvegaráð- herra sé hvað eftir ann- að staðinn að því að fara rangt með. Atli Gíslason Höfundur er þingmaður. Miskunnsami Samherjinn Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.