Morgunblaðið - 18.09.2012, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 18.09.2012, Qupperneq 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2012 Íslandsbanki gaf út skýrslu um íslenska orkumarkaðinn hinn 14. september síðast- liðinn. Skýrslan veitir aðgengilegt yfirlit yfir orkumarkað landsins í dag, stöðu hans og mögulega þróun. Hún fjallar einnig um helstu fyrirtækin á ís- lenska orkumark- aðnum, tækifæri og hindranir. Orkuskýrslan er öllum aðgengileg og er sem slík hugsuð sem innlegg í umræðu um framtíð orkumála hér á landi. Í viðtali RÚV við umhverf- isráðherra í fréttum sjónvarps hinn 16. september síðastliðinn var haft eftir ráðherra að skýrsla bankans einkenndist af gömlum draugum og yfirboðum. Taldi ráðherra bankann vera að þrýsta á um einstaka fram- kvæmdir og fullyrti jafnframt að með því væri bankinn að dæma sig úr leik í umræðunni. Þessi gagnrýni um- hverfisráðherra virðist vera á misskilningi byggð þar sem hvergi í skýrslunni er þrýst á um einstakar virkj- anaframkvæmdir held- ur eru einungis taldir upp mögulegir virkj- unarkostir, stærð þeirra og væntanleg fjárfestingarþörf. Allar þær upplýsingar sem þar liggja til grundvall- ar eru byggðar á traustum heimildum meðal annars frá opinberum aðilum í orkugeiranum. Það er mat bankans að samanlögð áætluð fjárfestingarþörf þessara virkjanakosta sé um 300 milljarðar króna en ekki er tekin afstaða til þess í skýrslunni hvort ráðast eigi í þessar framkvæmdir. Það kemur skýrt fram í skýrslunni að þessir virkjunarkostir eru sannarlega háð- ir niðurstöðu rammaáætlunar. Íslandsbanki hefur verið virkur þátttakandi í umræðu um orkumál og hefur á síðustu fjórum árum gefið út skýrslur um jarðhitaorkumark- aðinn, bæði á Íslandi og í Bandaríkj- unum. Með útgáfunni er lögð áhersla á að fjalla um málefni af fagmennsku. Hjá bankanum starfar öflugur hóp- ur sérfræðinga á sviði orkumála sem leggja áherslu á að stuðla að og taka virkan þátt í umræðu um orku- og virkjanamál með bæði fagaðilum og stjórnvöldum. Í þeim efnum er eng- inn aðili hafinn yfir gagnrýni en mik- ilvægast er að hún sé málefnaleg og byggist ekki á sleggjudómum, á hvorn veginn sem er. Eftir Hjört Þór Steindórsson Hjörtur Þór Steindórsson » Gagnrýni umhverf- isráðherra virðist vera á misskilningi byggð þar sem hvergi í skýrslunni er þrýst á um einstakar virkj- anaframkvæmdir. Viðskiptastjóri orkumála hjá Íslandsbanka. Upplýst umræða um orkumál „Íslenskan er drottning tungumál- anna,“ sagði einn nem- andi minn á tölvu- námskeiði fyrir allmörgum árum, þeg- ar ég notaði orðið „software“ í stað ís- lenska orðsins „hug- búnaður“. Svo fylgdi löng ræða hjá nemand- anum um kosti þess að nota íslensk orð í stað erlendra. Ég var strax sammála þessari virðingu fyrir drottningunni, ekki bara til þess eins að halda mál- inu hreinu, heldur miklu fremur vegna þess að nýyrðið „hugbúnaður“ nær hugtakinu miklu betur en „software“. Ég skrifa og tala sænsku, ensku, portúgölsku og spænsku, auk ís- lensku, og get fullyrt að íslenskan er langbest þegar nauðsyn er á því að tjá sig á einfaldan og rökfastan hátt, svo að meiningin sé ótvíræð. Íslensk- an er skír eins og gull. En íslenska drottingin er hvikul, eins og aðrar drottningar. Í höndum kunnáttumanna er hægt að snúa hlutunum upp í andhverfu sína án þess að mikið beri á. Gott dæmi er það sem þessi grein snýst um: Það er rökvilla á kjörseðlinum sem notaður verður við þjóðaratkvæðagreiðsluna í október en fáir hafa komið auga á hana eða a.m.k. haft orð á henni. Þetta er gildra sem mun leiða til þess að nýju drögin að stjórnarskrá verða að öllum líkindum samþykkt. Á kjörseðlinum eru sex spurn- ingar. Fyrsta spurningin er: „Viltu að tillögur stjórnlagaráðs verði lagð- ar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá?“ Næstu spurning- arnar eru um einstök atriði í framtíð- arstjórnarskrá. Þeim sem svarar fyrstu spurningu neitandi ber vita- skuld ekki að svara hinum, en í leið- beiningunum á kjörseðlinum stendur einungis: „Kjósandi getur sleppt því að svara einstökum spurningum.“ En hvort sem kjósandinn segir já eða nei við seinni spurningunum, verður litið svo á að hann hafi sam- þykkt drögin. Þessari rökvillu hefði verið hægt að kippa í lag með einföldum hætti með því að hafa setningu á eftir fyrstu spurningunni, svohljóðandi: „Svarir þú „Já“ við fyrstu spurningu, máttu svara hinum fimm.“ En þessa setningu vantar á kjörseðilinn. Það verður því á valdi stjórnvalda að túlka kjörseðilinn að eigin vild. Til að útskýra betur þessa rök- villu, skulum við taka einfalt dæmi. Segjum sem svo að þér sé gert að svara eftirfarandi sex spurningum: Viltu gosdrykk? Viltu Kók? Viltu Pepsi? Viltu Sprite? Viltu Fanta? Viltu App- elsín? Það sér hver maður að hér er rökvilla. Það vantar setningu eftir fyrstu spurningu: „Ef þú svarar fyrstu spurn- ingu játandi, vinsam- lega svaraðu þá hinum.“ En nú vandast málið. Segjum sem svo, að kjósandinn svari „Nei“ við fyrstu spurningunni en „Já“ við öllum hin- um. Hvernig á að túlka vilja hans? Þrír möguleikar koma til greina: Atkvæðið er ógilt. Kjósandinn fær engan gosdrykk. Kjósandinn fær fimm gosdrykki. Rökréttur að mínu mati er val- kostur b, þ.e. fyrst maðurinn vill ekki gosdrykk, þá fær hann engan. Ég hef hins vegar áreiðanlegar heimildir fyrir því að stjórnvöld muni nota túlkun c. Kjósandinn fær því fimm gosdrykki án þess að vilja neinn! Niðurstaðan er þessi: Ef þú vilt að drögin að nýrri stjórnarskrá verði notuð af Alþingi, svararðu fyrstu spurningu játandi og einnig hinum, að vild. Ef þú ert hins vegar andvíg- ur tillögunum, þá svararðu fyrstu spurningu neitandi en sleppir alger- lega að svara hinum. Með því móti geturðu forðast gildruna. Flestir eru sammála um að margt mætti betur fara í núverandi stjórn- arskrá. Allur ferillinn til að bæta nú- verandi stjórnarskrá er sorgarsaga. Á sínum tíma tók ég þátt í framboði til stjórnlagaþings. Það var skemmtileg barátta en ég komst ekki á þingið. Seinna dæmdi Hæsti- réttur kosningarnar ólöglegar, en Alþingi hundsaði álit Hæstaréttar og setti á laggirnar stjórnlagaráð. Nú er kosið um tillögur stjórnlagaráðs án þess að Alþingi hafi sjálft boðað til þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem nú stendur fyrir dyrum. Það er dap- urlegt að Alþingi sjálft fari ekki að landslögum heldur reyni að þröngva fram vilja sínum og fá í þokkabót áritun frá þjóðinni um skoðun á til- lögum frá ókjörnu stjórnlagaráði, úr ólöglegri þjóðaratkvæðagreiðslu og með órökréttum kjörseðli. Ég hvet alla til að taka þátt í þjóð- aratkvæðagreiðslunni. Sjálfur mun ég mæta á kjörstað og merkja „Nei“ við fyrstu spurningunni en láta hin- um ósvarað. Rökvilla á kjörseðli Eftir Kristján Ingvarsson Kristján Ingvarsson » Það verður því á valdi stjórnvalda að túlka kjörseðilinn að eigin vild. Höfundur er verkfræðingur. Nýlega las ég að Gísli Marteinn borg- arfulltrúi og Hjálmar Sveinsson, varafor- maður skipulagsráðs, óttast mengun vegna mikillar umferðar á framkvæmdatíma byggingar sjúkrahúss við Hringbraut. Gísli segir að furðu lítil grein hafi verið gerð fyrir umferð- araukningunni og vill – að mér skilst – fara hægar í framkvæmdirnar. Í því sambandi er rétt að benda á að þeim mun lengri byggingartíminn – þeim mun meir verður farið fram úr kostnaðaráætluninni. Hjálmar er með ráð undir rifi hverju og hyggst leysa vandann með gjaldskyldu í öll bílastæði við há- skólann og spítalann. Fróðlegt verð- ur að fylgjast með hvernig það geng- ur. Haft er eftir Gísla „Þetta eru nátt- úrulega svakalegar framkvæmdir og ég veit ekki hversu mörgum tonnum af … verður mokað upp og ekið í burt.“ Þetta er rétt hjá Gísla að öðru leyti en því að við Hring- braut verður ekki mokað. Við Hringbraut verður sprengt. Það er dýrt að sprengja og keyra grjótinu nokkra km til uppfyllingar úti í Ör- firisey. Lækningatæki eru viðkvæm fyrir titringi af sprengingum. Sér- staklega ef þau eru úr sér gengin og hanga jafnvel saman á límbandi, eins og lýst hefur verið. Svo munu sprengingarnar hafa truflandi áhrif á sjúklinga og íbúa í nágrenninu. Ég vil taka undir áhyggjur þeirra félaga og bendi þeim góðfús- lega á að í Fossvogi þarf ekki að sprengja. Í Fossvogi verður mokað upp gróð- urmold án mikillar truflunar fyrir sjúk- linga og íbúa. Gróð- urmold eru verðmæti, sem má lagera nokkur hundruð metrum neð- ar í Fossvoginum. Lag- er sem kemur sér vel fyrir borgina og ná- granna, þegar mold vantar í garða og vegaxlir. Þannig verður nánast engin mengun á byggingartímanum og minni mengun við að sækja mold í framtíðinni, því Fossvogurinn er miðsvæðis. Eitt er það enn, sem ég gleymdi að nefna í grein um samanburð á byggingu við Hringbraut og í Foss- vogi. Það er lóðakostnaður. Sagt er að Vatnsmýri og nágrenni sé eitt verðmætasta byggingasvæðið í borginni. Hefur verið gerður sam- anburður á lóðakostnaði við Hring- braut miðað við að nýta lóðina, sem Borgarspítalinn stendur á? Hvernig væri að reikna heild- arkostnað í Fossvogi og bera saman við Hringbrautina? Það er kostnað við lóð, hönnun, byggingu og rekstr- arkostnað. Síðast en ekki síst stysta mögulega byggingatíma, því mikið sparast hvern dag, sem byggingin er tekin fyrr í notkun. Miðað við tilsvör allsherj- arráðherra í útvarpsþætti nýlega er lítil von til að ákvörðun verði breytt, hversu vitlaus sem hún er. Hann var spurður, hvernig hægt væri að byggja hátæknisjúkrahús fyrir tugi milljarða á sama tíma og ekki væri hægt að kaupa bráðnauðsynleg lækningatæki. Svarið var eitthvað á þá leið, að ekki væri hægt að setja ný tæki inn í þessi hrörlegu hús. Okkur vantar hátækni-háskólasjúk- arahús og finnum peninga, því rekstur á einum stað borgar svo fljótt upp lánin. Miðað við svona rök- semdafærslu og vita ekki að í Foss- vogi væri þetta líka á einum stað er lítil von til að málin snúist til betri vegar. Ekki eitt heldur allt Eftir Sigurð Oddsson » Lækningatæki eru viðkvæm fyrir titr- ingi af sprengingum. Sérstaklega, ef þau eru úrsérgengin og hanga jafnvel saman á lím- bandi, eins og lýst hefur verið. Sigurður Oddsson Höfundur er byggingaverkfræðingur. „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Við höfum sameinað starfsemi okkar á einn stað Skemmuvegi 48

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.