Morgunblaðið - 18.09.2012, Page 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2012
✝ Magnús Ein-arsson fæddist
í Reykjavík 26.
maí 1947. Hann
lést á sjúkrahúsi
Akraness 11. sept-
ember 2012.
Foreldrar
Magnúsar voru
Einar Garðar
Guðmundsson, f.
16. nóv. 1923, d. 8.
sept. 1981 og Mar-
grét Magnúsdóttir, f. 19. ágúst
1922, d. 14. des. 1990. Bróðir
Magnúsar samfeðra er Sig-
urjón Einarsson, f. 5.1. 1943.
Alsystkin eru Guðmundur Júl-
íus Einarsson, f. 5.8. 1946,
Garðar Þröstur Einarsson, f.
23.3. 1954, Sverrir Einarsson,
f. 13.11. 1955, Guðrún Margrét
Einarsdóttir, f. 11.5. 1962.
Magnús eignaðist dóttur,
b) Steinunn Birna lögfræð-
ingur, f. 22.9. 1982. Sambýlis-
maður hennar er Stefán
Bjarnarson, sölumaður, dætur
þeirra eru Sara Fanney, f.
29.6. 2009 og Eva Rakel, f.
4.10. 2011.
Magnús ólst upp í Reykja-
vík. Á sumrin var hann í sveit
á Sleitustöðum í Skagafirði.
Hann var messagutti á varð-
skipinu Ægi 15 ára gamall. Að
loknum grunnskóla gekk hann
í Verslunarskóla Íslands og
vann við bókhald hjá ýmsum
fyrirtækjum um ævina. Magn-
ús bjó í nokkur ár á Húsavík
og síðar á Ísafirði, en lengst af
bjó hann og starfaði á Akra-
nesi. Hann var nokkrar grá-
sleppuvertíðir með Steinari
tengdaföður sínum og þær
voru meðal hans ánægjuleg-
ustu stunda.
Útför Magnúsar fer fram
frá Akraneskirkju í dag, 18.
september 2012 og hefst at-
höfnin kl. 14.
Margréti, f. 17.6.
1965. Barnsmóðir
Magnúsar er Sig-
ríður Valdimars-
dóttir. Margrét er
grunnskólakenn-
ari, gift Aðalsteini
Júlíussyni skip-
stjóra, f. 19.11.
1966. Börn þeirra
eru: Stefán Júlíus,
f. 16.6. 1994, Guð-
björg Helga, f.
9.11. 1998 og Magnús Orri, f.
15.5. 2001.
Magnús kvæntist þann 24.
nóv. 1973 Helgu Stein-
arsdóttur frá Reistarnesi, Mel-
rakkasléttu, f. 16.4. 1953. Þau
skildu. Foreldrar Helgu voru
Steinar Kristinsson og Jó-
hanna Vilhelmsdóttir. Börn
þeirra eru a) Einar Snorri
sjúkranuddari, f. 7.9. 1975 og
Elsku pabbi minn.
Ég trúði því ekki hversu
hverfult lífið getur í raun verið
og hversu takmarkaða stjórn við
höfum á því fyrr en á reyndi. Í
byrjun sumars vorum við saman
á Langasandi með stelpurnar og
allir hressir og kátir, nema jú þú
varst frekar þollítill, en það var
nú svo sem ekkert nýtt. Nú rúm-
lega þremur mánuðum síðar á að
leggja þig til þinnar hinstu hvílu
og ég stend frammi fyrir því að
skrifa minningargrein um pabba
minn. Ég næ engan veginn utan
um þetta og á eflaust langt í land
með það, enda hraðinn verið
ótrúlegur þessar síðustu vikur.
Lífið heldur áfram er sagt og ef-
laust er það rétt, en mikið óskap-
lega á ég eftir að sakna þín mik-
ið.
Þú varst mikið búinn að tala
um Sumarlandið og varst viss
um að það biði þín eitthvað þarna
hinum megin. Einhverja huggun
finn ég þó í því að telja að þú haf-
ir haft rétt fyrir þér og sitjir nú á
hressingarhælinu og maulir Sæ-
mund með kaffinu yfir léttu grá-
sleppuspjalli við afa, því ég veit
að hann hefur tekið vel á móti
þér. Húmorinn er eflaust ekki
langt undan frekar en áður og
spilastokkurinn væntanlega við
höndina.
Mér svíður það svo sárt að þú
verðir ekki hér til að deila með
okkur öllu því sem framundan
er, hvort sem það eru stórir
áfangar, hátíðir eða hversdags-
lífið. Ég þykist þó vita fullvel að
þú fylgist vel með okkur þarna
að handan.
Það var mér afskaplega mikils
virði að þú gætir verið með okk-
ur á útskriftardaginn minn í
byrjun mánaðarins og fagnað
áfanganum með okkur. Mikið
var búið að bíða eftir þessum
degi og stoltið mikið hjá þér þeg-
ar dagurinn loks rann upp. Þá
minningu á ég eftir að halda fast
í þegar sorgin reynist mér mikil.
Minningarnar um þig eru marg-
ar, pabbi minn, og óþarft að rifja
þær upp hér, ég geymi þær á
góðum stað. Stelpurnar eiga eft-
ir að heyra mikið um afa sinn og
skoða margar myndir. Missir
þeirra er mikill og það verður
erfitt að útskýra þennan hluta
tilverunnar fyrir þeim. Sara
Fanney á eftir að sakna þess
mikið að geta ekki gefið „afa
Magglúsi“ sínum kaffi og aðrar
þykjustu kræsingar eða kubbað
heilu háhýsin með þér. Þið Stef-
án voruð miklir félagar og ég veit
að hann á eftir að sakna þín mik-
ið. Þið voruð með nokkurskonar
bandalag sem fór oft gríðarlega í
taugarnar á mér, svona ekki síst
þegar þið stóðuð saman gegn
mér og vernduðuð hvor annan út
í eitt, enda þýddi ekkert að
kvarta yfir öðrum ykkar við
hinn. Það var þó alltaf í góðlát-
legu gríni og var mér mikils virði
hversu vel þið náðuð saman þrátt
fyrir að vera erkifjendur í enska
boltanum. Hans missir er ekki
síður mikill, hver á nú að taka við
fótbolta sms-unum og borða með
honum ís í tíma og ótíma?
Elsku pabbi minn, ég veit að
við sjáumst síðar en þangað til
geymi ég minninguna um þig í
hjarta mínu og veit þú ert með
okkur öllum stundum. Mér þykir
endalaust vænt um þig.
Þín dóttir,
Steinunn Birna.
Elsku pabbi.
Mig langar í örfáum orðum að
þakka þér fyrir lífið með þér,
samfylgdina, góðu stundirnar og
allt það sem þú varst mér, þrátt
fyrir að lengstum væri langt á
milli okkar í kílómetrum talið. Þú
varst börnunum mínum ómetan-
lega góður afi, þolinmóður og
yndislegur við þau og óspar á að
leika við þau og spila þegar þú
komst og varst hjá okkur fjöl-
skyldunni á Húsavík og að því
munu þau búa svo lengi sem þau
lifa.
Þú gast stundum reynt á þol-
rifin í mér en oftast nær hafði ég
nú sigur í því að tala þig inn á eitt
og annað sem verið var að plan-
leggja og þá sérstaklega norður-
ferðirnar, ásamt fleiru, hvenær
þú ætlaðir að koma, hversu lengi
þú ætlaðir að vera og svo fram-
vegis. Þú treystir oftast á mig
með upplýsingar um hvað börnin
vanhagaði um, áður en þú komst.
Þau voru spennt að fá þig í heim-
sókn, því þú komst alltaf færandi
hendi. Þú varst góður gestgjafi
og tókst vel á móti okkur þegar
við komum við á Skaganum og
oftast var hakk og spaghettí í
boði fyrir svanga ferðalanga.
Ótöluleg eru símtölin sem við
áttum, vangaveltur um eitt og
annað, lífið og tilveruna. Takk
fyrir að koma til okkar nú síð-
ustu ár um jólin. Það var okkur
Adda og börnunum mikils virði
og ég veit að þú naust þín vel og
leið vel hjá okkur þessar stundir.
Mig langar að síðustu að
minnast þín með eftirfarandi
ljóði.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Þín dóttir,
Margrét (Gréta).
Mig langar í nokkrum orðum
að minnast tengdaföður míns,
Magnúsar Einarssonar.
Maggi var mér góður tengda-
faðir, leiðbeinandi sem ungum
manni sem var að hefja búskap
með dóttur hans Grétu, um eitt
og annað, þó sérstaklega fjár-
mál, skattamál og allt það er
hann hafði kosið að gera að ævi-
starfi sínu, bókhald fyrir ein-
staklinga og fyrirtæki, stór og
smá.
Það voru ófáar stundirnar
sem við áttum yfir kaffibolla og
mjólkurkexi, eða þá mjólkurglasi
og fyrrnefndu kexi að kvöldi
dags eða þá þegar við vöknuðum
báðir milli hálffjögur og fjögur
að nóttu, alveg í spreng af kaffi-
og mjólkurdrykkju, hvar sem við
vorum staddir og héldum um-
ræðunni frá því fyrr um kvöldið
áfram. Rætt var um pólitík, dæg-
urmál eða bara um allt og ekk-
ert. Þetta voru gæðastundir sem
ég bý að alla tíð og fæ seint full-
þakkað. Hann hafði ákveðnar
skoðanir sem hann lá ekki á og
stundum höfðum við hátt, svo að
þurfti að sussa á okkur þegar hiti
færðist í umræðuna.
Þegar ég hóf eigin útgerð fékk
ég hann til að taka að sér bók-
haldið, sem hann fékk ævinlega
afhent í haldapoka eða sem snifsi
úr rassvasa. Hann tók þessu „ut-
anumhaldi“ um bókhaldið með
stakri ró og sagðist vanur að fást
við svona rassvasaútgerðarmenn
og -iðnaðarmenn. Mér þótti vænt
um að þegar ég hætti þessu
brölti mínu sendi hann mér
pappírana sem ég fékk sérstaka
skipun um að geyma í sjö ár, í
möppu sérstaklega útbúinni með
stórum stöfum að framan þar
sem stóð ÚA. Ég hélt að hann
hefði ruglast eitthvað og fundið
gamla möppu frá Útgerðarfélagi
Akureyringa, en hann hló mikið
og sagði að þetta væri fyrir Út-
gerð Aðalsteins.
Ég minnist góðra stunda af
Einigrundinni, þar sem Maggi
bjó með Helgu sinni og Einari og
Steinunni börnum þeirra, skjóls-
húss fyrir námsmann, aðstoðar
við sælgætisútkeyrslu, einangr-
unar á bílskúr, aðstoðar við eitt
og annað varðandi heildsöluna
hans, Lukku að sníkja mat við
eldhúsborðið og Bangsa bestask-
inns að kyrja í herbergi Stein-
unnar. Gullfiskar hjá Einari og
Helga að lesa í sjónvarpssófan-
um. Kaffi og mjólkurkex.
Elsku Maggi minn, takk fyrir
að koma til okkar öll þau jól sem
þú varst hjá okkur, takk fyrir að
vera svona góður við börnin okk-
ar Grétu, Stefán Júlíus, Guð-
björgu Helgu og Magnús Orra
nafna þinn og besta afastrák.
Takk fyrir síðustu dagana okkar
saman, þú áttir kímnigáfu sem
var engu lík og þrátt fyrir ókleif-
an hamar veikinda þinna varstu
æðrulaus svo aðdáunarvert er og
brostir kankvísu brosi og nikk-
aðir til mín þegar öll sund voru
orðin lokuð. Ég náði að þakka
þér samfylgdina, merkilegt að
það þurfi alltaf að gera slíkt á
síðustu stundu, heldur en að
segja ástvinum slíkt reglulega og
oft.
Elsku Gréta mín, Einar
Snorri og Steinunn Birna, systk-
ini, allir ástvinir, tengdafólk, vin-
ir og ættingjar. Sorg okkar er
sár, en minningin um góðan vin,
umfram allt, lifir í hjörtum okk-
ar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Þinn tengdasonur,
Aðalsteinn (Addi).
Magnús Einarsson
HINSTA KVEÐJA
Elsku afi „Magglús“.
Við eigum eftir að sakna
þín svo mikið en við vitum
að englarnir passa þig
núna.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson)
Þínar,
Sara Fanney og Eva Rakel.
HINSTA KVEÐJA
Elsku frændi, við viljum
kveðja þig með þessum
orðum:
Margt er hér að muna og þakka
– mjúklát þögnin geymir allt.
Innst og dýpst í okkar vitund
áfram heill þú lifa skalt.
(Jóhannes úr Kötlum)
Kristrún, Magnús,
Þröstur og Jóhanna.
Fleiri minningargreinar
um Magnús Einarsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát
Þórarins Sveinbjörns Jakobssonar.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Landspítala
Háskólasjúkrahúss.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Nanna Jakobsdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur vináttu, hlýju og samúð við andlát
elskulegs eiginmanns míns, föður, tengda-
föður, afa og bróður,
ARNÓRS ÞÓRHALLSSONAR.
Sérstakar þakkir viljum við senda starfsfólki
deildar 11E á Landspítalanum við Hringbraut
fyrir hlýtt viðmót og einstaka umönnun.
Ingibjörg Hrund Björnsdóttir,
Lilja Birna Arnórsdóttir, Guðjón Karl Reynisson,
Þórhallur Arnórsson, Sigríður Sunna Ebenesersdóttir,
Björn Lárus Arnórsson, Arnheiður Leifsdóttir,
Birgir Már Arnórsson,
barnabörn og systkini.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir og tengda-
faðir,
JÓN MAGNÚSSON
járnsmiður,
Hlaðhömrum 2,
Mosfellsbæ,
sem lést þriðjudaginn 11. september verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 19. september
kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á líknarfélög.
Guðrún Hjaltalín Jónsdóttir,
Ingibjörg H. Jónsdóttir, Jóhann G. Ögmundsson,
Magnús Þór Jónsson, Sigríður Erlingsdóttir,
Jón Gunnar Jónsson, Sigríður Ríkharðsdóttir.
✝
Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
NÍELS FRIÐBJARNARSON,
sem lést á Heilbrigðisstofnuninni á Siglufirði
föstudaginn 7. september, verður jarðsunginn
frá Siglufjarðarkirkju föstudaginn 21. septem-
ber kl. 14.00.
Ólöf Margrét Ólafsdóttir, Jón Torfi Snæbjörnsson,
Guðrún Þóranna Níelsdóttir, Sigurður Kjartan Harðarson,
Friðbjörn Níelsson,
afabörn og langafabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
EVA ÚLFARSDÓTTIR LÍNDAL
Sléttuvegi 13,
Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítala
föstudaginn 7. september verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 19. september kl. 13.00.
Þórhildur Líndal, Eiríkur Tómasson,
Jón Úlfar Líndal,
Björn Líndal, Sólveig Eiríksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar,
EGILL Á. KRISTBJÖRNSSON,
Aflagranda 40,
Reykjavík,
sem lést á Droplaugarstöðum laugardaginn
8. september verður jarðsunginn miðviku-
daginn 19. september nk. kl. 13:00 frá
Fossvogskirkju.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem
vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Auður Egilsdóttir, Einar Guðlaugsson,
Kristbjörn Egilsson, Ólafur Guðbrandsson,
Guðbjörg Egilsdóttir, Steingrímur Þormóðsson,
Logi Egilsson, Anna Guðmundsdóttir
og fjölskyldur.
Elskulegur sonur minn, bróðir okkar, mágur
og frændi,
REGINN BJARNI KRISTJÁNSSON,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju
fimmtudaginn 20. september kl. 13.00.
Valgerður Kristjánsdóttir,
Guðrún Kristjánsdóttir,
Elfa Hörgdal Stefánsdóttir, Ólafur Jóhannsson,
Vésteinn Guðmundsson, Dagfríður Pétursdóttir,
Kristján Salvar Davíðsson,
Valgarð Bjartmar Davíðsson,
Ingibjörg Ósk Ólafsdóttir, Atli Thor Fanndal,
Stefán Hlynur Hörgdal Ólafsson,
Guðmundur, Davíð, Hafdís og Hrafnhildur.