Morgunblaðið - 18.09.2012, Side 36

Morgunblaðið - 18.09.2012, Side 36
ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 262. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. Hættur hjá DV 2. Kasólétt í hlébarðakjól… 3. Enn í lífshættu 4. Maðurinn lést af sárum sínum »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Nýtt myndband hljómsveitarinnar Steed Lord við lag hennar „Hear Me Now“ má nú finna á vef MTV, nánar tiltekið undirvefnum MTVIGGY. Myndbandið var frumsýnt á vefnum imfmag.com 14. ágúst síðastliðinn. Myndband Steed Lord á vef MTV  Tónleikamynd Led Zeppelin, Ce- lebration Day, verður sýnd í kvik- myndahúsum víða um heim og þá m.a. í Háskólabíói 17. október næst- komandi. Í mynd- inni er fylgst með endurkomutónleikum hljómsveit- arinnar í 02 höllinni í Lundúnum þann 10. desember árið 2007 en þá voru 27 ár liðin frá því hún hætti. Endurkomutónleikar Led Zeppelin í bíó  Sýning á verkum myndlistarmann- anna Haralds Jónssonar, Ívars Brynj- ólfssonar, Magnúsar Pálssonar og Arnar Alexanders Ásmundssonar var opnuð í listasafni í Lundi í Svíþjóð, Lunds konsthall, 15. sept- ember sl. Sýningin ber heitið Spela med, stöpa om eða Að leika með og um- steypa. Henni lýkur 18. nóv- ember. Haraldur, Magnús, Ívar og Örn í Lundi Á miðvikudag Norðvestan 8-15 m/s við austurströndina, annars hæg breytileg átt. Stöku skúrir eða slydduél norðaustantil, en bjartviðri í öðrum landshlutum. Víða næturfrost. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Heldur hvassari um landið austanvert en í gær, einkum við ströndina, og stöku skúrir eða slydduél NA-til, en víða léttskýjað í öðrum landshlutum. Hiti 0 til 9 stig, hlýjast syðst. VEÐUR „Því meiri athygli sem mitt lið fær og leikirnir verða stærri því betur spilar liðið. Leikmenn þrífast á því að spila svona leiki, fá athygli og vera sýnilegir fyrir ís- lensku þjóðinni. Ég held að þetta verði til þess að stelp- urnar hlaupi meira, berjist og leggi sig ennþá meira fram,“ segir Sigurður Ragn- ar Eyjólfsson landsliðsþjálf- ari kvenna um stórleikinn við Noreg annað kvöld. »2-3 Þær þrífast á að spila svona leiki „Það er alltaf frábær tilfinning að vinna Íslandsmeistaratitilinn. Ég bjóst samt aldrei við því að vinna tit- ilinn þegar þrjár umferðir væru eftir. Þetta er svolítið skrítið. En við erum búnir að leggja hart að okkur í vetur og erum að uppskera núna,“ segir Freyr Bjarnason sem varð Íslands- meistari með FH í sjötta sinn í fyrra- kvöld. » 2-3 Vorum búnir að leggja hart að okkur í vetur ÍR-ingar eru líklega sterkustu nýliðar sem mætt hafa til leiks í efstu deild karla í handbolta um nokkurt skeið. Þeir urðu Reykjavíkurmeistarar á dögunum og hafa endurheimt öfluga leikmenn sem voru í sterku liði þeirra um miðjan síðasta áratug. Einn þeirra, Sturla Ásgeirsson, segir að uppgangur sé í félaginu en markmiðið sé þó að halda sér í deildinni. »4 Nýliðar ÍR mæta sterkir til leiks í vetur ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is. Gunnar Beinteinsson, starfs- mannastjóri hjá Actavis og fyrr- verandi landsliðsmaður í hand- knattleik, hljóp Jungfraufjalla- maraþon sem fram fór í svissnesku ölpunum í síðustu viku. Um leið safnaði hann áheitum fyrir söfnun- arátakið Á allra vörum sem fram fór á föstudag til styrktar lang- veikum börnum. Alls söfnuðust 2,5 milljónir fyrir tilstilli Gunnars. Kom ekki til greina að safna bumbu eftir ferilinn Gunnar hætti að leika hand- knattleik árið 2002, 36 ára að aldri. Hann hefur ávallt haldið sér í góðu formi. „Ég stoppaði aldrei og er í raun ofvirkur. Hvort sem það eru hlaup eða crossfit hef ég alltaf æft mikið og geri á hverjum degi. Það kom ekki til greina að fara að safna bumbu,“ segir Gunnar og bætir við: „Ég gæti spilað með hvaða handboltaliði sem er á Ís- landi.“ Hann segist ekki hafa undirbúið sig mikið fyrir hlaupið. „Ég skráði mig bara þremur vikum fyrir hlaupið og var ekki kominn í neitt maraþonform,“ segir hann. Hlaupið var jafnframt heims- meistaramótið í fjallahlaupi og því voru hlauparar hvaðanæva úr heiminum komnir til að reyna sig. „Þetta er einn fallegasti staður í heimi til að hlaupa á og það voru forréttindi að fá að taka þátt í þessu. Hvergi var ský á himni og upplifunin í einu orði æðisleg.“ Setur hlutina í samhengi Gunnar tognaði á kálfa skömmu fyrir hlaupið en segir að málstað- urinn hafi hjálpað sér. „Ég meiddi mig í hverju skrefi en fólk var búið að heita á mig og ég vissi að þetta var fyrir gott málefni. Það hjálpaði mér mikið. Þótt þetta hafi verið erfitt var þetta fyrst og fremst gam- an og gefandi,“ segir Gunnar. „Í hlaupinu var maður að sjálf- sögðu með hugann hjá þeim sem berjast við erfið veikindi. Ég er svo lánsamur að geta gert þetta. Án þess að ætla sér að vera væminn, þá fer allur sársauki, eins og sá sem fylgir svona hlaupi, út um gluggann þegar maður setur hann í samhengi við þjáningu barnanna. Sérstaklega þegar maður hugsar til barna sem geta ekki einu sinni borðað matinn sinn. Eða foreldranna sem komast ekki út úr húsi þar sem þeir eru að sinna börn- unum,“ segir Gunnar. Gæti spilað með hvaða liði sem er  2,5 milljónir söfnuðust fyrir tilstilli Gunnars Nærri endamarki Gunnar Beinteinsson nærri endimörkum Jungfrau-fjallamaraþonsins. Hlaupið var í 25 stiga hita. Gunnar Beinteinsson lék 85 handboltalandsleiki og skoraði í þeim 141 mark. Gunnar lék allan sinn feril með FH og er þriðji leikjahæsti leik- maður félagsins frá upphafi með 591 leik að baki. Hann segir bakgrunn úr íþróttum hafa hjálpað sér alla tíð, hvort heldur sem er í leik eða starfi. Á lokametrum Jungfrau-maraþonsins var hann við það að bugast af þreytu. „Þegar fjórir kílómetrar voru eftir var brattinn hvað mestur. Ég var kominn með krampa í kálfana of- an á tognunina og var orðinn efins um að ná þessu. Stuttu síðar komst maður á toppinn og það er ekki laust við að ég hafi orðið hálfklökkur þegar ég sá fyrir endann á þessu,“ segir Gunnar. Hálfklökkur undir lokin GUNNAR BEINTEINSSON VAR LANDSLIÐSMAÐUR Í HANDBOLTA Láréttur á lofti Gunnar Beinteins- son í leik með FH.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.