Morgunblaðið - 29.09.2012, Side 1
L A U G A R D A G U R 2 9. S E P T E M B E R 2 0 1 2
Stofnað 1913 228. tölublað 100. árgangur
FJÖLBREYTTAR OG
ÁHUGAVERÐAR
MYNDIR Á RIFF
LAUS VIÐ
LÁTLAUSAN
HÖFUÐVERK
FERSKAR FJÖRU-
NYTJAR ALLT
ÁRIÐ UM KRING
SUNNUDAGSBLAÐIÐ ÞÖRUNGARNIR OFURFÆÐA 10MÁLÞING OG LJÓSMYNDASÝNING 62
Finna má dæmi um að koffín-
innihald í orkudrykkjum hafi auk-
ist mikið undanfarin ár. Minnst þrír
orkudrykkir á mark-
aði innihalda meira en
320 mg af koffíni á
hvern lítra en um er
að ræða meira en tvö-
falt hámark þess
magns sem reglugerð
árið 2007 sagði til um.
Takmörkunum á koff-
íninnihaldi var aflétt
2008.
Í umfjöllun Sunnu-
dagsblaðs Morgun-
blaðsins kemur fram að koffín geti
valdið mörgu, allt frá hjartsláttar-
truflunum til kvíða auk þess sem
það hefur áhrif á öndun og melt-
ingu. Það að horfið var frá reglum
um hámark koffíns í orkudrykkjum
má rekja til álits sem Vísindanefnd
Evrópusambandsins um matvæli
sendi frá sér. Þar sagði að neysla
orkudrykkja ætti að vera full-
orðnum skaðlaus en bent var á
mögulega skaðsemi fyrir börn og
barnshafandi konur. Flókið getur
verið að meta heildarkoffínneyslu
þar sem koffín er einnig að finna í
lyfjum og snyrtivörum.
Ekkert há-
mark á koff-
íninnihaldi
Flókið að meta
heildarneysluna
Dæmi um hækkanir
» Kílóverðið á kindabjúgum
var 674 krónur í ágúst í fyrra
en var 725 kr. í ágúst sl.
» Hækkunin er um 8%.
» Kílóverð á skinku hefur
hækkað úr 2.683 krónum í
2.820 krónur eða um 5%.
» Þá kostar lítri af kókómjólk
7% meira en í fyrra.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Verð á kjöti, fiski og mjólkurvörum
hækkar milli ára og nemur hækk-
unin allt að tugum prósenta. Svína-
kótelettur hafa hækkað um 27% á
einu ári og rækja um 21%.
Þetta kemur fram í tölum Hag-
stofu Íslands en þær sýna að verðið
hefur í mörgum tilfellum hækkað
langt umfram verðlagsþróun.
Aðalsteinn Á. Baldursson, formað-
ur Framsýnar – stéttarfélags, segir
marga eiga erfitt með framfærslu.
„Því er reglulega haldið fram að
láglaunafólk eigi fyrir verðhækkun-
um enda hafi kaupmátturinn aukist.
Þetta er bara falskt. Launin eru í
mörgum tilfellum svo lág að sífellt
fleiri ráða ekki við hækkanirnar.“
Þrýstingur á verkalýðsfélögin
Hann segir vaxandi þrýsting á
verkalýðshreyfinguna vegna þessa.
„Reglulega kemur til okkar fólk
og spyr hvort verkalýðshreyfingin
ætli ekki að fara að vekja athygli á
þessum hækkunum. Ofan á þær bæt-
ist að flutningskostnaður hefur
hækkað og það ýtir undir vöruverð á
landsbyggðinni sem var hátt fyrir.“
Björn Snæbjörnsson, formaður
stéttarfélagsins Einingar-Iðju, segir
umsaminn kaupmátt í kjarasamn-
ingum hafa gengið eftir en að verð-
hækkanir hafi slegið á áhrifin.
Vegur á móti kjarasamningum
„Verðlagið hefur hækkað meira en
margir áttu von á. Mánaðarkaupið
endist verr. Margir eiga erfitt með
að láta enda ná saman.“
Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur
Bændasamtakanna, segir verð á að-
föngum til bænda hafa hækkað.
MVerð á kjöti og fiski »6
Matarverð er á uppleið
Kjöt og mjólkurvörur hækka í verði milli ára Rækja 21% dýrari en í fyrra
Formaður Framsýnar telur kaupmáttinn of lítinn Útlit fyrir hátt matarverð
Almenningi gafst kostur á að hitta fjölda vís-
indamanna og nemenda í Háskóla Íslands á vís-
indavöku Rannís sem haldin var í Háskólabíói í
gær. Þemað í ár var kraftur jarðar og gat fólk
kynnt sér fjölbreyttar rannsóknir og horft á sýn-
ingar Sprengjugengisins, hóps efnafræðinema.
Kynntu sér kraft jarðar á vísindavöku
Morgunblaðið/Golli
Útgjöld Land-
helgisgæslunnar
(LHG) á fyrstu
átta mánuðum
þessa árs jukust
um 672 milljónir
króna, miðað við
sama tímabil í
fyrra, og voru
300 milljónir um-
fram heimildir. Útgjöldin, að frá-
dregnum sértekjum, voru um þrír
milljarðar kr. Helstu skýringar á
auknum kostnaði eru stór þyrlu-
skoðun í Noregi fyrr á árinu og ein-
greiðsla á tryggingum fyrir loftför-
in. »20
672 milljónum meiri
kostnaður LHG
Samkvæmt auglýsingu í Lögbirt-
ingablaðinu hefur verið lýst eftir
kröfum í þrotabú félagsins Brooks
Trading Ltd., sem skráð er á Tor-
tola á Bresku Jómfrúaeyjunum. Fé-
lagið er í eigu Sheikh Mohammed
bin Khalafi Al-Thani sem fékk 50
milljóna dollara lán frá Kaupþingi
skömmu fyrir hrun. Lán tengist Al-
Thani fléttunni svonefndu sem
stjórnendur Kaupþings voru
ákærðir fyrir. Fyrirtaka í því máli
fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur
eftir helgi. »6
Kröfum lýst í félag
í eigu Al-Thanis
„Mér finnst þetta fráleit ákvörðun hjá
Birni Val og meirihluta fjárlaga-
nefndar. Það er augljóslega uppi
ágreiningur um tiltekið álitamál, eins
og stundum hefur komið upp áður í
samskiptum þingnefnda og Ríkisend-
urskoðunar en Ríkisendurskoðun er
engu að síður sá aðili í kerfinu sem
hefur þá lögbundnu skyldu að vera
þinginu til ráðgjafar um fjárhagsmál-
efni ríkisins, þ. á m. að gefa umsagnir
um frumvörp til fjárlaga, fjárauka-
laga, ríkisreikning og lokafjárlög,
sem og staðfesta að bókhald ríkisins
sé rétt,“ segir Birgir Ármannsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um
þá ákvörðun meirihluta fjár-
laganefndar að vísa fjáraukalögum
ekki til Ríkisendurskoðunar til um-
sagnar sökum trúnaðarbrests.
Að sögn Birgis hefur stofnunin
verið afar gagnrýnin varðandi ýmsa
liði í reikningum ríkisins. „Þar af leið-
andi finnst meirihlutanum kannski
þægilegast að geta með þessum hætti
komist hjá því að fá umsögn Rík-
isendurskoðunar um þau frumvörp
sem nú eru til meðferðar á Alþingi.“
Veigra sér ekki við að gagnrýna
Að sögn Sveins Arasonar ríkisend-
urskoðanda hefur stofnunin aldrei
veigrað sér við að gagnrýna það sem
hún telur rétt að gagnrýna. Aðspurð-
ur hvort hann telji þetta útspil meiri-
hluta fjárlaganefndar vera einhvers
konar pólitískan leik í ljósi fyrri gagn-
rýni stofnunarinnar á fjárlagafrum-
vörp og fjárlög síðustu ára segir
Sveinn: „Ef ég finn ekki neitt annað
hjá okkur þá náttúrulega getur hver
sem er spurt sig hvort þetta er ekki
eitthvað annað heldur en gefið er í
skyn.“ »22
Kannski þægilegast að losna við umsögn
Birgir Ármannsson gagnrýnir ákvörðun meirihluta fjárlaganefndar að senda
ekki Ríkisendurskoðun fjáraukalög til umsagnar sökum meints trúnaðarbrests