Morgunblaðið - 29.09.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 29.09.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Frá því Ísland byggðisthefur fjaran og þær nytj-ar sem þangað var hægtað sækja stórbætt lífskjör Íslendinga og í harðindum oft skilið á milli lífs og dauða bæði húsdýra og manna. Þörungar voru nýttir í margskonar tilgangi t.d. til matar og lækninga en einnig sem fóður fyrir dýr og áburður á tún og garða. Þör- ungar voru einnig nýttir sem elds- neyti og askan svo nýtt í stað salts,“ segir Eydís Mary Jónsdóttir, land- fræðingur og umhverfis- og auð- lindafræðingur. Hún starfar hjá Náttúrustofu Reykjaness og verður með sérstaka kynningu á fjör- unytjum á matarhátíðinni Krásir í Kjósinni í dag. „Brimasemi, sjáv- arhiti og undirlag ræður mestu um hvaða tegundir finnst í fjörum. Í klappar- og grjótfjöru þrífast t.d. þörungar sem verða að geta fest sig við eitthvað. En í sand- og leir- fjörum er minna um þörunga en oft meira um skeldýr, sandmaðk og ým- iskonar smádýr.“ Ferskt í fjöru allt árið Eydís hefur rannsakað fjör- unytjar á Reykjanesi að fornu og nýju bæði í matargerð og iðnaði. „Elsta skriflega heimild í heiminum um að þörungar hafi verið borðaðir eru í Egilssögu þar sem Egill Skall- arímsson lagði sér til munns söl. Söl voru mjög mikilvæg verslunarvara hér áður fyrr, enda eru þau C- vítamínrík og því sótti fólk í sölin ef það fékk skyrbjúg. Fjörugrös voru líka nýtt, en í þeim eru hleypiefni og því voru þau notuð til að þykkja mjólkurgrauta. Þau voru líka nýtt til lækninga. Til eru heimildir um nýt- ingu á marinkjarna sem er stór brúnþörungur, og úr honum var meðal annars búið til svokallað kjarnabrauð. Þörungar falla undir ofurfæðu, enda eru þeir afar ríkir að allskonar vítamínum, málmum og snefilefnum. Auk þess sem þeir eru mjög steinefnaríkir og fullir af an- doxunarefnum. Fjölfenól sem marg- ir brúnþörungar eru ríkir af hafa t.d. mælst með hugsanlega krabba- Gnægtabrunnur í fjörunum okkar Elsta heimild í heiminum um að söl hafi verið borðuð eru í Egilssögu. Söl eru stútfull af C-vítamíni og komu sér því vel fyrir þjóð sem þjáðist af skyrbjúg. Þör- ungar falla undir ofurfæðu, þeir eru ríkir að allskonar vítamínum, mjög stein- efnaríkir og fullir af andoxunarefnum. Fæðan í fjörunni þótti hér áður vera fá- tækramatur en nú er mikil gróska í þörunganytjum. Í fjörunni Eydís Mary Jónsdóttir hefur rannsakað fjörunytjar á Reykjanesi . Vefsíður með fallegum myndum sem gleðja augað og veita manni inn- blástur er skemmtilegt að skoða. Vef- siðan weekdaycarnival.blogspot.com er ein þeirra en þar gefur að líta myndir af kósí heimilum og girnileg- um mat. Það er finnsk kona sem heldur úti vefsíðunni en hún er hönn- uður og ljósmyndari. Það er vel hægt að gleyma sér í drjúga stund yfir þessari vefsíðu sem er full af mynd- um af smart og huggulegum hlutum fyrir heimilið. Ætti einfaldur og klassískur stíllinn í Finnlandi að falla vel í kramið hjá okkur Íslendingum. Vefsíðan www.weekdaycarnival.blogspot.com Sætir Flestir kannast við hina finnsku Múmínálfa sem fást á ýmsu formi. Klassísk og falleg hönnun Fyrstu tónleikar Kammermús- íkklúbbsins á starfsárinu 2012-2013 verða haldnir í Norðurljósasal Hörpu sunnudaginn 30. sept. 2012 kl. 19.30 Á efnisskrá eru; J.N. Hummel: Kvint- ett í es-moll op. 87 R. Glière: Svíta fyrir fiðlu og kontrabassa R. Vaug- han-Williams: Kvintett í c-moll. Flytjendur á tónleikum eru þau Greta Guðnadóttir, fiðla; Guðrún Þór- arinsdóttir, víóla; Margrét Árnadóttir, selló; Þórir Jóhannsson, kontrabassi og Ingunn Hildur Hauksdóttir, píanó. Klúbburinn var stofnaður árið 1957 og hefur á fjórða hundrað tón- listarmanna, innlendra og erlendra, komið fram á tónleikum klúbbsins til þessa. Kammermúsíkklúbburinn Tónleikar í Hörpu Flytjendur Tónleikar á sunnudag í Norðurljósasal Hörpu. Það liggur vel á Eirnýju Sigurðar- dóttur, eiganda Búrsins, þegar blaða- maður slær á þráðinn til hennar. Enda er hún nýbúin að opna 45 kg parmes- anost og heilt serrano-læri í tilefni af fjögra ára afmæli ljúfmetisverslunar- innar nú um helgina. „Reksturinn fer upp og niður og árstíðabundin tímabil eru erfiðari. Maður verður að vera hreinskilinn með það en við gerum þetta af áráttu og ástríðu og gætum ekki hugsað okk- ur að gera neitt annað hér í Búrinu,“ segir Eirný. Afmælishátíð í Búrinu hefst klukk- an 14 í dag, laugardag. Þar gefst fram- leiðendum og viðskiptavinum tækifæri til að hittast, smakka og rabba saman. Maggi og Heiða, hunangsbændur á Svæði sem er nyrsta býflugnabú á Ís- landi, fræða gesti um býflugnarækt og hunangsgerð. Fulltrúar Rjómabúsins á Erpsstöðum kynna ostanýjungar og Stella, mjólkurbóndi á Jörfa í Víðidal, mætir með sæluosta úr sveitinni. Þá býður Vigdís sem rekur Fjóshornið gestum að smakka fetaost og Steph- ane Aubergy kynnir nokkur góð vín sem fyrirtæki hans Vínekran flytur til landsins. „Fólk festist í sínum uppáhalds- ostum en Íslendingar eru þó með opið og jákvætt hugarfar fyrir nýjungum. Það er gott þjóðareinkenni. Við leggj- um áherslu á að spjalla við fólk þegar það kemur til okkar og hvetjum það til að vera óhrætt að smakka. Það er dá- lítið eins og leynilögregluvinna að selja osta. Þú spyrð nokkurra spurninga og fikrar þig áfram eftir svipnum á andlit- inu. Þannig tekst manni að finna það sem hverjum og einum finnst best. Franskir brie-ostar, mjúkir og mildir, eru alltaf vinsælir svo og primadonna og harðir, hollenskir gouda-ostar. Nú er líka mikil vakning í rauðkíttsostum sem eru aðeins fnykkenndari. Þetta er eins og fyrsti espresso-bollinn. Maður verður að smakka sig áfram,“ segir Eirný. Búrið hefur nú stækkað við sig en Ljúfmetisrýmið við hlið verslunar- innar mun hýsa ostaskólann. Þar verð- ur hægt að taka á móti hópum en Eirný vonast einnig til að rýmið verði nýtt fyrir ýmsar matartengdar uppá- komur, t.a.m. tengt Slowfood- hreyfingunni. Búrið fagnar fjögurra ára starfsafmæli Leynilögregluvinna að finna rétta ostinn Stemning Á mörkuðum Búrsins gefst fólki tækifæri á að spjalla og smakka. Smakk Glögg í glasi frá Aubergy. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Klær Stór krabbi kominn á land. Viltu selja eða kaupa fyrirtæki? Firma Consulting, Þingaseli 10, 109 Reykjavík, GSM: (+354) 820 8800 og (+354) 896 6665, Fax: (354) 557 7766, Veffang: firmaconsulting.is Magnús Hreggviðsson viðskiptafræðingur og lög- giltur fyrirtækja-, fasteigna- og skipasali. Magnús er með áratuga reynslu af endurskoðunarstörfum, sem rekstrarráðgjafi, fyrirtækja- og fasteignasali, útgef- andi, fasteignarekandi, „land-developer“ í Smára- hvammi og starfandi stjórnarformaður í nokkrum fyrirtækjum. Er aðalráðgjafi hjá Firma Consulting. (magnus@firmaconsulting.is) Firma Consulting (www.firmaconsulting.is) er ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf við kaup og sölu millistórra og stórra fyrirtækja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.