Morgunblaðið - 29.09.2012, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 29.09.2012, Blaðsíða 68
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 273. DAGUR ÁRSINS 2012 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 699 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Fundu blóð úr Sigrid í hjólhýsi 2. Hákarl elti Stiller í Garðsjónum 3. Stunduðu kynmök undir stýri 4. Leikari myrti konu og dó  Hljómsveitin Todmobile heldur tón- leika í Eldborg 16. nóvember nk. með kammersveitinni sem sá um hljóð- færaleik í sýningu Þjóðleikhússins á Vesalingunum og 40 manna kór. Auk þess verða slagverksleikarar, bak- raddasveit, hljóðgervilsleikari o.fl. hljómsveitinni til fulltingis. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Todmobile með kammersveit og kór  Forsala er hafin á nýjustu breið- skífu Retro Stef- son á vefnum Tón- list.is en platan kemur út 2. októ- ber nk. Þó gæti orðið tveggja til þriggja daga seinkun á plöt- unni vegna framleiðslutafa þar sem fyrsta upplag plötunnar verður tak- markað og með sjö ólíkum fram- hliðum. Platan kemur einnig út á vínyl 22. október nk. Sjö ólíkar framhliðar á plötu Retro Stefson Fyrirsætur í fatnaði úr aukaafurðum FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi austanátt 10-15 m/s og þykknar upp, rigning S- og V- lands í kvöld. Hiti 2 til 11 stig, mildast syðst. Á sunnudag Austan- og norðaustanátt, víða 10-15 m/s, en hvassari um tíma SA-til. Rigning S- eða A-lands, en annars skúrir eða él. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast SV-til. Á mánudag Norðan- og norðaustanátt, 8-15 m/s, hvassast NV-til. Rigning N- og A-lands og slydda til fjalla, en þurrt SV-til. Hiti 2 til 11 stig, hlýjast syðst. Birgir Leifur Hafþórsson átti góðan endasprett á úrtökumótinu á Ítalíu í gær og tryggði sér keppnisrétt á öðru stiginu í Evrópu. „Þetta gekk svona upp og ofan en markmiðinu er náð,“ segir Birgir. Hann gæti átt mikil ferðalög fyrir höndum því hann freistar þess að komast á bæði Evr- ópumótaröðina og á PGA-mótaröðina í Bandaríkjunum. »1 Birgir Leifur flýgur heimsálfa á milli Knattspyrnuþjálfarinn Ejub Purisevic hefur farið með lið Víkings frá Ólafsvík úr 3. deild og upp í úrvalsdeild en þar spilar það í fyrsta skipti á næsta ári. Hann hefur starfað meira eða minna með sömu mönnum frá árinu 2003. „Það er margt sem spilar inn í en þetta ferli er sjálfsagt óvenjulegt mið- að við það sem gengur og gerist,“ segir Ejub. »2-3 Óvenjulegt ferli hjá Ejub í Ólafsvík Einn dáðasti íþróttamaður Frakka, handboltamaðurinn Nikola Karab- atic, er einn af átta leikmönnum meistaraliðsins Montpellier sem talið er að séu viðriðnir veðmálahneyksli. Málið fór í op- inbera rann- sókn í síð- asta mánuði, leikmenn- irnir og fé- lagið eiga þungar refsingar yfir höfði sér ef þeir verða fundnir sekir. »4 Karabatic í kröppum dansi vegna veðmáls Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Þegar ég kem til Reykjavíkur fer ég alltaf niður á höfn og fæ mér pylsu,“ segir fyrrverandi fótbolta- maðurinn og núverandi útvarpsmað- urinn Jógvan Arge, sem er jafn- framt formaður menntamálanefndar Þórshafnar í Færeyjum og sækist eftir endurkjöri í bæjarstjórn fjórða kjörtímabilið í röð. Einn fastur punktur Ísland og Færeyjar léku æfinga- leik í fótbolta á Laugardalsvelli í liðnum mánuði. Þá vakti það athygli samferðamanna Jógvans Arge að þegar ekið var með hópinn að Hörpu gekk hann rakleiðis frá tónlistarhús- inu að Bæjarins bestu og fékk sér eina pylsu. „Þetta hef ég gert á þess- um stað í 50 ár,“ sagði hann við fólk- ið og áréttar það við Morgunblaðið. Hann rifjar upp að þegar hann var í 3. flokki HB sumarið 1962 var farið í þriggja vikna æfinga- og keppn- isferð til Íslands með knattspyrnu- félagið Víking í Reykjavík sem helsta gestgjafa. „Við sigldum með Heklu til Íslands og fórum með Drottningunni heim,“ segir hann. Jógvan bætir við að þetta hafi verið fyrsta utanlandsferð strákaliðs í Færeyjum og þeir hafi jafnframt upplifað fyrstu flugferð sína, þegar þeir hafi flogið til Ísafjarðar til þess að spila við heimamenn. Auk þess hafi þeir siglt með Herjólfi frá Reykjavík til Vestmannaeyja í sömu erindagjörðum. „Það var langur túr, heil nótt,“ segir hann og nefnir að helsta afþreyingin í Reykjavík hafi verið að fara í Hressingarskálann til að fá pönnukökur og kaffi. Jógván Arge hefur ekki tölu á Íslandsferð- unum, sem flestar hafi verið vegna vinnunnar í út- varpinu eða stjórnmálunum, en seg- ir að þær hafi allar verið skemmti- legar enda Íslendingar góðir heim að sækja og hann eigi marga góða ís- lenska vini. Flugvöllurinn mikilvægur Jógvan segir að hann hafi ekki haldið sambandi við mótherjana 1962 en Víkingurinn Dengsi eða Jó- hannes Tryggvason sé eft- irminnilegur og þeir eigi sameig- inlega vini. „Mig langar alltaf aftur til Íslands,“ segir hann og segir sér- lega eftirminnilegt að hafa verið í sumarfríi í Ólafsfirði og á Akranesi auk þess sem tveir bikarúrslitaleikir sonarins Unis gleymist ekki. „Það er líka fínt að flugvélin lendir í Reykja- vík en ekki Keflavík,“ segir hann. Bæjarins bestu í hálfa öld  Jógvan Arge í fótbolta, útvarpi og stjórnmálum Ljósmynd/Hilmar Jan Hansen Fastur liður Jógvan Arge kemur oft til Íslands og í hverri ferð fær hann sér pylsu með öllu á sama stað. Jógvan Arge er sonur færeyska út- varpsstjórans fyrrverandi Niels Ju- els Arge og Petru Gregersen. Bróð- ir hans er Magni Arge, forstjóri færeyska flugfélagsins Atlantic Airways. Uni Arge, sonur Jógvans, lék fótbolta með Leiftri og ÍA, lék m.a. í bikarúrslitum með Ólafs- firðingum 1998 og var bik- armeistari með Skaga- mönnum árið 2000. Jógvan Arge er einn virtasti útvarpsmaður Færeyja. Hann var fastráðinn 1970 og var lengi viðloðandi íþróttirnar, hefur m.a. lýst mörgum landsleikjum Færeyja og Íslands í handbolta og fótbolta, fyrst 1967. Nú er hann með viðtalsþætti, einkum við eldri borgara, fyrir utan starf sitt í bæj- armálunum. Hann hefur skrifað margar bækur, einkum um at- vinnusögu Færeyinga og þar á meðal um Færeyinga í Grænlandi. Sonurinn bikarmeistari með ÍA ÞEKKT ÚTVARPSFJÖLSKYLDA Í FÆREYJUM Uni Arge  Fashion with Flavor nefnist við- burður sem verður á Grand hóteli Reykjavík 12. og 13. október nk. Ís- lensk tíska, matargerð og tónlist verður samtvinnuð og munu fyr- irsætur bera fram íslenska rétti, klæddar fatnaði sem unninn er úr aukaafurðum þess hráefnis sem not- að er í matinn. Má þar nefna flíkur úr selskinni og skó úr lambaleðri. Ís- lensk tónlist verður leikin fyrir gesti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.