Morgunblaðið - 29.09.2012, Blaðsíða 53
MINNINGAR 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012
Elsku amma, það er með sorg í
hjarta sem ég skrifa þessi orð.
Ég á svo margar góðar og
skemmtilegar minningar um okk-
ur tvær og það hjálpar manni
mikið þessa dagana.
Við tvær röltandi upp á fjall að
taka á móti rollunum. Við gátum
spjallað um allt milli himins og
jarðar á leiðinni og jiminn hvað
við gátum hlegið hvor að annarri,
það er sko ekki alltaf auðvelt að
ganga upp í móti.
Stundirnar á Esjubrautinni
þegar við sátum og spiluðum á
skemmtarann og sungum hin
ýmsu lög, en oftast var hummað
Undir bláhimni, sem var uppá-
haldslagið þitt, og ég man svo vel
þegar þú baðst mig að syngja
Snert hörpu mína, þér fannst það
svo rosalega fallegt lag.
Það voru alltaf allir velkomnir í
kaffi til þín, alveg sama hvaðan
fólk kom eða hvert það var að
fara. Aðalmálið hjá þér var að öll-
um liði vel og allir væru brosandi
og glaðir. Þú hafðir áhrif á líf svo
margra og stóðst eins og klettur
með okkur öllum en við verðum
dugleg að standa við bakið hvert á
öðru og afa núna.
Ég á eftir að sakna þín mikið,
amma mín, en ég veit að það verð-
ur sko tekið vel á móti þér hinum
megin.
Snert hörpu mína, himinborna dís,
svo hlusti englar guðs í Paradís.
Við götu mína fann ég fjalarstúf
og festi á hann streng og rauðan skúf.
(Davíð Stefánsson)
Þín ömmustelpa,
Nanna Mjöll.
Elsku amma „mamma“, nú
kveðjum við þig með sorg í hjarta
en minningin um þig lifir alltaf í
huga okkar. Við söknum þess að
standa við hliðina á þér, þú varst
okkar stoð og stytta í mörg ár og
það er þér að þakka að við munum
alltaf standa saman. Amma, þið
afi tókuð að ykkur að ala okkur
systur upp í mörg ár og fyrir það
erum við ykkur ævinlega þakklát.
Nú ert þú, elsku amma okkar,
stjarna á himnum og umvafin
englum og við vitum að þú munt
alltaf vaka yfir okkur. Minning
þín er ljós í lífi okkar.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Þínar ömmustelpur
Valgerður og Tanja.
Það er ótrúlegt og sárt að
hugsa til þess að við skulum vera
að skrifa minningarorð um þig,
elsku Nanna. Þú sem varst „klett-
urinn“ í fjölskyldunni og ljósið í
minningunni. Þrátt fyrir veikindi
þín áttum við von á að hafa þig
miklu lengur á meðal okkar.
Skyndilegt brotfall þitt sker
hjörtu okkur og minningarnar
hrannast upp.
Í örfáum orðum, það sem efst
er í huga okkar á þessari stundu.
Alltaf leið ömmu Nönnu best með
stórfjölskylduna í kringum sig.
Hún var með eindæmum hjálp-
söm með að líta til með stelpunum
okkar, hvort sem var í leik eða
starfi, og þá sérstaklega með
þeim tveim elstu, Nönnu og
Eddu. Þolinmæði hennar átti sér
engin takmörk og það var hreint
Nanna Sigfúsdóttir
✝ Nanna Sigfús-dóttir fæddist í
Hvammi í Þistilfirði
22. nóvember 1940.
Hún lést á heimili
sínu, Höfðabraut 5,
Akranesi, 18. sept-
ember 2012.
Útför Nönnu var
gerð frá Akra-
neskirkju 27. sept-
ember 2012.
með ólíkindum
hverju hún kom til
leiðar þegar aðrir
gáfust upp. Hún var
sérstaklega ósér-
hlífin og fordóma-
laus, eins og sýndi
sig þegar hún tók að
sér uppeldi tveggja
barnabarna sinna og
ól þau upp sem sín
eigin í sex ár, eða
þar til hún veiktist.
Ekki þótti henni leiðinlegt að
„rápa“ um búðir og hvað við syst-
ur gátum hlegið að hvað hún
þurfti að skoða og helst að „kákla“
á hverri flík. Eða eins og hún
komst svo oft að orði: „Ég keypti
þetta bara að gamni mínu.“
Nanna var mikil prjónakona og
prjónaði mikið á ömmu- og lang-
ömmubörn, á milli þess sem hún
las ástarsögur.
Þau segja kannski allt sem
segja þarf um mömmu, tengda-
mömmu og ömmu og hversu stór-
an sess hún skipaði í hjarta okkar
orð Öldu og Yrsu eftir andlátið:
„Hvað verður um jólin?“
Minning þín er ljós í lífi okkar.
Hugrún, Eyjólfur og dætur.
Að kvöldi fagurs haustdags
lést vinkona mín, hún Nanna, eft-
ir langvinn veikindi, ég átti ekki
von á að andlát hennar bæri svona
brátt að, hún hafði í sínum veik-
indum oft sýnt ótrúlegt baráttu-
þrek og þrautseigju.
Mér er bæði ljúft og skylt að
minnast hennar með nokkrum
orðum, þakka henni vináttuna og
alla viðkynningu.
Okkar leiðir lágu saman fyrir
tuttugu árum þegar Marteinn
yngsti sonur hennar og dóttir mín
Kristín fóru að vera saman. Þau
voru bæði ung þá og mér fannst
dóttir mín alltof ung. Fljótlega
var hún nánast flutt inn til Nönnu
og Sigga. Ekki leið á löngu áður
en þeim fæddist dóttir. Ekki var
þá amalegt fyrir unga parið að
vera í skjóli þeirra hjóna Nönnu
og Sigga sem voru margreynd í
öllu sem viðkom börnum og
barnauppeldi og sýndu þeim ein-
staka hlýju og veittu þeim ómet-
anlegan stuðning og hjálp. Þau
eignuðust svo aðra dóttur þremur
árum seinna.
Marteinn varð einstæður faðir
með tvær barnungar dætur á sínu
framfæri sem ekki var mjög al-
gengt á þeim tíma og aftur reyndi
á hjálpsemi þeirra hjóna. Barna-
börnin mín Valgerður og Tanja
voru fyrstu árin hjá ömmu sinni
og afa ásamt pabba sínum. Eins
og gefur að skilja lá leið mín oft til
þeirra að heimsækja stelpurnar.
Alltaf var einstaklega vel tekið á
móti mér og mínu fólki enda átt-
um við velferð þeirra stúlkna að
sameiginlegu áhugamáli.
Heimili Nönnu var oft eins og
umferðarmiðstöð, þau hjón áttu
sex börn sem voru dugleg að
koma í heimsókn, svo bættust við
tengdabörn, barnabörn, ættingj-
ar og vinir svo oft var glatt á
hjalla og mikið skrafað í eldhús-
inu.
Nanna var mjög hógvær kona
og vildi ekki hafa mörg orð um
sína miklu mannkosti og ljúf-
mennsku. Hún reyndist dóttur-
dætrum mínum einstaklega vel
og fyrir það er ég henni eilíflega
þakklát. Aldrei sagði hún stakt
styggðaryrði um dóttur mína þótt
eflaust hafi oft verið ástæða til
heldur reyndist hún henni alltaf
vinur í raun. Og þannig minnist
ég hennar sem einstaklega já-
kvæðrar konu sem tókst á við alla
erfiðleika lífsins, og þeir voru ófá-
ir og óvægnir, með bjartsýni og
æðruleysi að leiðarljósi.
Að leiðarlokum vil ég senda
eftirlifandi eiginmanni, Sigga, og
börnum þeirra, tengdabörnum,
barnabörnum og barnabarna-
börnum innilegar samúðarkveðj-
ur, þeirra er missirinn mestur og
sárastur.
Fari hún í friði, með þökkum
fyrir allt sem hún gerði fyrir mig
og mína.
Mæt minning, mildi og mann-
gæska mikilhæfrar konu lifir í
hjörtum okkar sem þekktum
hana.
Guðjóna Kristjánsdóttir.
Elsku Nanna mín. Ég vil þakka
þér fyrir allar góðu samveru-
stundirnar og dásamleg ferðalög.
Oft áður fórum við í veiðiferðir
í Hólmavatn á Arnarvatnsheiði.
Þá var farið á föstudegi og verið
fram á sunnudag. Við gistum í
veiðikofa með kojum og útikamri.
En hvað með það, í ferðina fórum
við a.m.k. einu sinni á ári og alltaf
um verslunarmannahelgi. Þetta
voru eins og jólin, svo spennt
varstu að fara og byrjaðir að und-
irbúa ferðina af miklum móð. Að
sjá tilhlökkunar- og gleðiglamp-
ann í augum þínum var alveg ynd-
islegt. Þá var að sjóða hangikjötið
og sviðakjammana og kæla í nest-
ið og svo bakaðir þú heil ósköpin
öll af kökum, jú ekki mátti gleyma
fjölskylduhefðinni, súkkulaðitert-
unni góðu ummm. Því enginn
mátti svangur vera og svo ætluð-
um við að vera heila helgi, var það
ekki? Jæja voru ekki allir að
verða tilbúnir að leggja í hann?
Tíndar voru til veiðistangir, orm-
arnir að sjálfsögðu, sængurfötin
og útigallarnir og ekki mátti
gleyma börnunum, smáum sem
stórum því jú allt voru börnin þín,
frá ungbörnum upp í þá fullorðnu.
Þessu vildir þú öllu sinna, af þín-
um lífs- og sálarkröftum, allir með
í ferð. Þegar á áfangastað var
komið fóru herramennirnir að
gera sig klára að fara að veiða og
við konurnar að sinna börnum og
að elda matinn. Síðan voru öll her-
legheitin dregin fram og át hver
eins mikið og hann gat í sig látið
af kræsingum. Erfitt var oft að
undirbúa uppvaskið því sækja
þurfti vatnið úti í læk og hita á
gastækjum í stórum potti og
standa vörð um börnin, því ekki
máttu þau hlaupa pottinn um koll
með sjóðandi heitu vatninu í. Á
kvöldin var svo spilað og sungið
eftir því sem hver vildi. Þessar
ferðir eru mér og mínum ógleym-
anlegar og meira að segja í fyrra
fórum við að veiða í Hólmavatn-
inu góða og þá spjölluðum við
mikið og fórum að rifja upp hve
yndislegar og skemmtilegar
veiðiferðirnar í kofann á Hólma-
vatni voru. Við töluðum meira
segja um það í þeirri veiðiferð að
gaman væri nú ef það væri hér
kominn kofi til að sofa í og borða
hangikjötið góða og súkku-
laðitertuna þína. Og manstu,
myndirnar sem teknar voru í t.d.
Setbergsánni þar sem Ómar þinn
stiklaði stórum skrefum í stór-
grýttri ánni með stóra laxinn sinn
á stönginni í annarri hendinni og
þungan veiðikassa í hinni hend-
inni og hvað við hlógum dátt en
aldrei fengum við leið á að skoða
þessar myndir og Siggi Ari og
Guðmundur voru bara 2ja og 3ja
ára. Ja hérna, manstu þegar og
allt það. Takk fyrir allt, elsku
Nanna mín, og að taka mér eins
og þínu eigin barni.
Elsku Siggi minn, ég bið góðan
Guð að varðveita þig á þessum
erfiðu tímum.
Kveðja.
Þín
Jórunn.
Elsku Nanna mín, á kveðju-
stundu koma upp ótal minningar
um þig sem allar eru fallegar og
góðar.
Við sátum við eldhúsborðið hjá
þér og ég hugsaði að best væri að
koma mér, búin að stoppa lengi,
þá sagðir þú oft ef ekki bara alltaf
„þér liggur ekkert á, fáðu þér
meira kaffi“ og áfram sat ég. Ekki
að ég hefði þörf fyrir meira kaffi,
langt því frá, heldur vildi ég sitja
lengur og spjalla, okkur leiddist
það nú ekki. Þarna er þér rétt lýst
því þú hafðir alltaf tíma fyrir aðra.
Þegar við hittumst fyrst var ég
bara 16 ára, þú tókst mér opnum
örmum, við urðum strax vinkon-
ur, þú varst syni mínum frábær
amma, fyrir það er ég þakklát. Þú
felldir aldrei dóm á aðra, fórst í
gegnum þrautir lífsins með æðru-
leysið og þolinmæðina að leiðar-
ljósi, mikið dáðist ég oft að þér.
Eitt sinn fórum við til Reykja-
víkur að versla og kíktum á kaffi-
hús, mikið var sú ferð skemmtileg
hjá okkur og við endurtókum
kaffihúsaferðina, gleymdum okk-
ur alveg í spjallinu enda lá okkur
svo sem ekkert á.
Það er ekki langt síðan við hitt-
umst síðast úti í búð og það var í
fyrsta skipti sem þú kvartaðir yfir
heilsunni, þá er nú mikið sagt
hugsaði ég. En nú hefur þú staðið
upp frá eldhúsborðinu til að
kveðja og ég vildi að ég hefði get-
að sagt „þér liggur ekkert á, fáðu
þér meira kaffi“ en svo var ekki,
því þú hefur kvatt í hinsta sinn.
Elsku Nanna, minningin um
þig lifir áfram og mun ég varð-
veita hana um ókomin ár með
þökk fyrir allt sem þú varst mér.
Þú varst svo heil í huga
og hafðir mikla sál.
Með þreki og dáð að duga
og drýgja kærleiksmál.
Hjá manni þínum mætum,
í margri stóðstu raun.
Í himinsölum háum,
þið hljótið sigurlaun.
Hér kem ég þig að kveðja
já, kveðja í hinsta sinn.
Þú baðst guð mig að geyma
og greiða veginn minn.
Með dauðans hjör í hjarta
þú hafðir þrek og ró.
Og ásýnd engilbjarta
þá önd til hæða fló.
(Magnús Sigurðsson)
Ég votta Sigga, börnum og
fjölskyldum þeirra samúð mína.
Arnbjörg Jónsdóttir (Abba).
Þær eru ekki margar konurnar
sem ég hef hitt á minni leið sem
voru betri manneskjur en hún
Nanna mín, og með mikilli sorg í
hjarta kveð ég þessa fallegu konu.
Ég var bara 14 ára gömul þegar
ég flutti heim til þeirra hjóna
Nönnu og Sigga, mér leið aldrei
öðruvísi en ég ætti heima á Esju-
brautinni. Hún reyndist mér
óskapleg vel og stóð alltaf með
mér í gegnum allt mitt og fyrir
það mun hún alltaf eiga mjög sér-
stakan stað í mínu hjarta. Á okkar
bestu stundum hlógum við og
sungum saman „Undir bláhimni“
en á mínum verstu grétum við
saman.
Hún gekk stelpunum mínum í
móðurstað og ég hefði ekki getað
hugsað mér betri stað fyrir þær
að alast upp á en einmitt hjá þeim
hjónum.
Elsku Nanna, í dag eru svo
margir sem eiga um sárt að binda
því þú gerðir líf svo margra rík-
ara, en minningin lifir og ég mun
geyma hana í hjarta mér. Ég bið
algóðan Guð að opna faðm sinn og
umvefja þig sínum mjúku hönd-
um um leið og ég vil þakka þér
fyrir allar þær góðu stundir sem
við áttum saman.
Undir bláhimni blíðsumars nætur
barstu’ í arma mér rósfagra mey.
Þar sem döggin í grasinu grætur,
gárast tjörnin í suðrænum þey.
Ég var snortinn af yndisleik þínum,
ástarþráin er vonunum felld.
Þú ert ljósblik á lífshimni mínum,
þú ert ljóð mitt og stjarna í kveld.
Ég vil dansa við þig meðan dunar
þetta draumblíða lag sem ég ann.
Meðan fjörið í æðunum funar,
og af fögnuði hjartans sem brann.
Og svo dönsum við dátt, þá er gaman
meðan dagur í austrinu rís.
Og svo leiðumst við syngjandi saman
út í sumarsins paradís.
(Magnús K. Gíslason)
Siggi minn, mikið valdir þú vel
þegar þú valdir hana Nönnu þér
við hlið og mikið er ég þakklát fyr-
ir að hafa fengið að vera með í
mörgum góðum minningum. Ég
bið Guð að styrkja þig í dag og
alltaf.
Elsku Marteinn, Siddi, Hurra,
Ella, Omar, Maggi og aðrir að-
standendur, ég bið Guð að styrkja
ykkur í sorginni núna og alltaf.
Kristín Björk.
Elsku amma
Rósa, þín mun verða
sárt saknað.
Megi þú hvíla í friði.
Blessuð sértu sveitin mín!
sumar, vetur, ár og daga.
Engið, fjöllin, áin þín
– yndislega sveitin mín! –
heilla mig og heim til sín
huga minn úr fjarlægð draga.
Blessuð sértu sveitin mín!
sumar, vetur, ár og daga.
Yndislega ættarjörð,
ástarkveðju heyr þú mína,
þakkarklökkva kveðjugjörð,
kveð ég líf þitt, móðir jörð.
Móðir bæði mild og hörð,
mig þú tak í arma þína.
Yndislega ættarjörð,
ástarkveðju heyr þú mína.
Fagra, dýra móðir mín
minnar vöggu griðastaður
nú er lífsins dagur dvín,
dýra, kæra fóstra mín,
búðu um mig við brjóstin þín.
Bý ég þar um eilífð glaður.
Fagra, dýra móðir mín,
minnar vöggu griðastaður.
Faðir lífsins, faðir minn,
fel ég þér minn anda í hendur.
foldin geymi fjötur sinn.
Faðir lífsins, Drottinn minn,
hjálpi mér í himin þinn
heilagur máttur, veikum sendur.
Faðir lífsins, faðir minn,
fel ég þér minn anda í hendur.
(Sigurður frá Arnarvatni)
Helgi Óskar, Rúna og börn.
Fáein kveðjuorð til Rósu
minnar – frábærrar konu. Rósa
var svilkona mín og vinkona. Við
vorum giftar bræðrum og áttum
yndisleg samskipti í gegnum ára-
tugina. Rósa var dugmikil kona.
Rósa
Sveinbjarnardóttir
✝ Rósa Svein-bjarnardóttir
var fædd 26. janúar
1926 á Fremri-
Hálsi í Kjós. Hún
lést 12. sept. 2012.
Útför Rósu fór
fram frá Bústaða-
kirkju 18. sept-
ember 2012.
Hún missti Helga
manninn sinn ung
og ól önn fyrir sér
og sínum börnum af
miklum dugnaði.
Hún var bráðgreind
og hafði sterkar
skoðanir á þjóð-
félaginu og því sem
fram fór á hverjum
tíma í landinu. Hún
tók virkan þátt í
félagsmálum og
lagði sitt af mörkum til að stuðla
að réttlæti og jöfnuði í samfélag-
inu.
Ég þakka Rósu samfylgdina
og bið börnum hennar og afkom-
endum blessunar.
Halldóra Jónsdóttir.
Látin er mikil heiðurskona,
Rósa Sveinbjarnardóttir, sem
lést hinn 12. september sl. Hún
var ein af stofnendum Kven-
félags Bústaðasóknar og einnig
heiðursfélagi. Hún var mikilvirk í
störfum, hugmyndarík og alltaf
boðin og búin til hverra þeirra
starfa sem þörf var á til hagsbóta
fyrir félagið og sóknina. Hún sat í
stjórn kvenfélagsins um árabil.
Hún hafði ákveðnar skoðanir og
lét þær í ljós ef hún taldi þess
þurfa. Hún sótti fundi kven-
félagsins alveg fram undir það
síðasta og fylgdist vel með starf-
inu. Við kvenfélagskonur leituð-
um oft til hennar ef skrá þurfti
ýmsa atburði úr sögu félagsins og
hún var einnig mjög vel hagmælt.
Allra hennar hæfileika nutum við
kvenfélagskonur og gestir okkar.
Fyrir hönd Kvenfélags Bú-
staðasóknar vil ég þakka allt
hennar mikla og góða starf í þágu
félagsins og samveruna í gegnum
árin.
Hvenær sem kallið kemur,
kaupir sig enginn frí,
þar læt ég nótt sem nemur
neitt skal ei kvíða því.
(Hallgrímur Pétursson)
Við vottum fjölskyldu hennar
innilega samúð og biðjum Guð að
blessa minningu hennar.
Laufey E. Kristjánsdóttir,
formaður Kvenfélags
Bústaðasóknar.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri greinar
eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu
kveðju, 5-15 línur.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda
inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist,
hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram.
Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka
og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal
senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið
sent má senda myndina á netfangið minning@mbl.is og gera umsjón-
arfólki minningargreina viðvart.
Minningargreinar
MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Í tilefni af 60 ára starfsafmæli okkar bjóðum
við fría uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu og
fría pökkun á legsteinum sem fara út á land
Mikið úrval - Vönduð vinna - Gott verð