Morgunblaðið - 29.09.2012, Side 11
meinsverndandi virkni, andbólgu-
virkni, blóðþrýstingslækkandi
virkni og virkni gegn sykursýki.
Næringarlega séð hafa þörungar því
mikið mikið fram yfir marga aðra
fæðu.“
Írar komu með þekkinguna
Ekki eru til miklar heimildir
um nýtingu fjörufæðis hjá nágrönn-
um okkar í Noregi, en aftur á móti
eru Írar frændur okkar með sterka
menningu í því og talið er að írsku
konurnar sem hingað komu á land-
námsöld hafi borið þessa þekkingu
með sér hingað til lands. Eydís segir
að um aldamótin 1900, þegar Íslend-
ingar fóru að hafa það aðeins betra,
hafi fólk hætt að nýta það sem fjar-
an gaf, nema sölin. „Þetta þótti fá-
tækramatur og ekkert voðalega fínt.
Seinna fékk fólk áhuga á kræklingi
og skelfiski, en í fjörum Suðurnesja
er varla hægt að finna nýtanlegan
krækling. Þó veit ég að sjómenn
reru héðan áður fyrr í Hvalfjörð og
náðu sér í krækling, geymdu hann í
tjörnum og notuðu í beitu.
En ef hart var í ári þá
var hann borðaður, en
þótti mikill fátækra-
matur. Alltaf þegar var
slæmt árferði fór fólk í
fjöruna og nýtti það sem
hægt var, hvort sem það
var fyrir dýr eða menn.
Núna á tuttugustu og
fyrstu öldinni er mikil
gróska í þörung-
anytjum, til dæmis í
snyrtivörum.“
Með beltisþara í baði
Uppáhaldsþarinn hennar Ey-
dísar er beltisþari, en hann er stór,
langur og svolítið rifflaður. „Mér
finnst gaman að fara með hann í bað
því þegar hann er settur í heitt vatn
þá gefur hann frá sér öll þessi æð-
islegu efni sem í honum eru. Ef
maður nuddar sig með honum verð-
ur húðin yndislega mjúk. Ég prófaði
líka að djúpsteikja hann og hann er
bara nokkuð góður. Ég nota hann
mikið sem krydd en það er hægt að
kaupa hann ristaðan hjá Himneskri
hollustu, ég nota hann mikið í stað-
inn fyrir salt, út á fisk, í kjötrétti,
sósur og súpur. Hann gefur mjög
gott bragð. Í þörungum er að finna
svokallað umami, fimmta bragðið,
sem gefur góða fyllingu og dregur
fram bragðið í matnum.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012
Stórsveit Reykjavíkur heldur tónleika
í Kaldalónssal Hörpu á morgun,
sunnudaginn 30. september kl. 16.
Gestur sveitarinnar verður sænski pí-
anóleikarinn og tónskáldið Lars Jans-
son en hann hefur verið í hópi
fremstu djasstónlistarmanna Svía
undanfarna áratugi. Jansson mun
stýra sveitinni í heilli dagskrá eigin
verka, auk þess að leika á píanó.
Tónlist Lars Janssons er bein-
skeytt og aðgengileg en um leið
spennandi og krefjandi fyrir tónil-
starmennina að kljást við. Þetta
verða aðrir tónleikar Stórsveitar
Reykjavíkur í Hörpu eftir að hún flutti
inn í húsið, en opnunartónleikar
sveitarinnar voru Stórsveit Glenn
Miller sem fluttir voru fyrir fullu húsi
í Eldborg á Jazzhátíð Reykjavíkur.
Miðasala á midi.is, harpa.is og í miða-
sölu Hörpu.
Tónleikar Stórsveitar Reykjavíkur
Tónskáld Jansson stýrir sveitinni í heilli dagskrá eigin verka og leikur á píanó.
Einn fremsti djasstónlistarmað-
ur Svía stýrir sveitinni
Málþingið Homo Islandicus er haldið
í dag, laugardag 29. september
klukkan 11-13. Málþingið er í sam-
starfi við Háskóla Íslands á sviði
mannfræði og listfræði í tengslum
við sýningu Ólafar Nordal, Musée Isl-
andique. Á málþinginu verður fjallað
um sýn útlendinga á Ísland og sýn Ís-
lendinga bæði á útlendinga og sjálfa
sig, fyrr á öldum og í samtímanum.
Velt verður upp þeim spurningum
hvernig og hverjir Íslendingar séu?
Afsteypur úr gipsi af íslensku fólki
á 19. öld, sem fundust á Kanaríeyjum,
kveiktu með Ólöfu löngun til að rann-
saka fundinn um nokkurra mánaða
skeið á Mannfræðisafninu í París.
Er sýningin Musée Islandique af-
rakstur þeirrar vinnu en ítarlegt við-
tal við Ólöfu má lesa í sunnudags-
blaði Morgunblaðsins nú um helgina.
Málþingið Homo Islandicus
Afsteypa Framhluti bols, handleggs
og fótleggs Kristjáns Gíslasonar, 23
ára sjómanns frá Reykjavík.
Sýn Íslendinga á sjálfa
sig fyrr á öldum
Í dag, laugardag, verður haldin í
Félagsgarði matarhátíðin Krásir
í Kjósinni. Kjósarstofa stendur
að hátíðinni, sem nú er haldin í
annað sinn, en þar munu mat-
reiðslumeistararnir Ólöf Jak-
obsdóttir og Jakob H. Magn-
ússon töfra fram krásir úr
hráefni beint frá býlum í Kjós.
Hátíðin tókst með afbrigðum
vel í fyrra og var húsfyllir í Fé-
lagsgarði. Grjótkrabbinn var
þá sérstaklega kynntur
og skipar nú enn á ný
heiðurssess á matseðl-
inum. Nú verður Eydís
Mary Jónsdóttir hjá
Náttúrustofu Reykja-
ness með sérstaka
kynningu á fjör-
unytjum.
Húsið verður opnað kl. 19 og
hefst borðhald kl. 20 og mun
kvöldverðurinn kosta kr. 6.500,
án drykkja. Hægt verður að
kaupa drykki á staðnum. Veislu-
stjórn verður í höndum Sig-
urlaugar M. Jónasdóttur út-
varpskonu.
Hjalti Þorkelsson úr Múgsefj-
un sér um tónlistaratriði. Hægt
verður að panta sætaferðir frá
Reykjavík og til baka og kostar
sætið 3.500 báðar leiðir.
Lagt verður af stað frá Hús-
gagnahöllinni á Ártúnshöfða kl.
18 og farið til baka kl. 23.
Miðapantanir í mat og sæta-
ferð óskast sendar á netfangið
kjosarstofa@kjos.is.
Nánari upplýsingar eru á vefn-
um www.kjosarstofa.is
Krásir í Kjósinni
MATARHÁTÍÐ
Þari Til margra hluta nytsamlegur, í heitu vatni er hann góður fyrir húðina en einnig má nota hann sem krydd.
Listavika Bóka-
safns Seltjarnar-
ness stendur yfir
dagana 1. til 5.
október. Dagskrá
verður alla dag-
ana en
,,Tvær á palli
með einum
kalli …“
ríða á vaðið
mánudaginn 1.
október klukkan 17.30. Tríóið skipa
þau Edda Þórarinsdóttir leikkona,
Helga Þórarinsdóttir víóluleikari og
Kristján Hrannar Pálsson píanóleikari
og munu þau flytja uppáhaldslögin
sín úr vinsælum kvikmyndum. Tón-
leikarnir eru samstarfsverkefni bóka-
safnsins og Tónlistarskóla Seltjarn-
arness og er aðgangur ókeypis.
Listavika á
Seltjarnarnesi
Edda
Þórarinsdóttir
Hálftfæðiogallarskoðunarferðirinnifaldar
Aðventan er heillandi tími til að sækja Þýskaland heim. Ljósadýrðin gefur þessum árstíma
birtu og ilmur frá jólaglöggi og hunangskökur koma öllum í jólastemningu. Ferðin hefst
með flugi til Frankfurt, ekið til Eisenach, fæðingarborgar bæði Martins Luthers og Johanns
Sebastians Bachs, og gistum þar í 2 nætur. Þessi heillandi borg með Wartburg-virkinu,
sem telst til merkustu miðaldavirkja landsins, býður upp á líflegan jólamarkað. Þaðan ekið
til Dresden, sem er höfuðborg Saxlands. Borgin varð á 15. öld aðsetur Wettiner-furstanna
og afkomandi þeirra var Ágúst sterki, sem sem átti stóran þátt í að gera Dresden að
hinni undurfögru svokallaðri „Flórens við Saxelfi“. Gistum þar í 4 nætur. Á leiðinni þangað
verður komið til Weimar en borgin skipar stóran sess í þýskri sögu en þar var stjórnarskrá
Weimarlýðveldisins samþykkt. Einnig verður komið til Meissen sem er sérstaklega þekkt
fyrir Meissen-postulínið, eitt elsta og verðmætasta postulín í Evrópu, en þar er líka einn
af fegurstu jólamörkuðum Þýskaland. Endar ferðin á að ekið verður til barokkborgarinnar
Fulda þar sem gist verður síðustu nóttina.
Fararstjóri: Kristín Jóhannsdóttir
Verð: 174.640 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, hálft fæði, allar skoðunarferðir með rútu og
íslensk fararstjórn.
www.baendaferdir.is
Sp
ör
eh
f.
s: 570 2790
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
30. nóvember - 7. desember
Travel Agency
Authorised by
Icelandic Tourist Board
Aðventudýrð í Dresden
AÐVENTA 3
www.baendaferdir.is
Sp
ör
eh
f.
s: 570 2790
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Skíðaferðirnar
okkar 2013 eru komnar í sölu!
Nánari upplýsingar á www.baendaferdir.is
Spennandi ferðir í beinu flugi til München á útvalda staði íAusturríki