Morgunblaðið - 29.09.2012, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012
VIÐTAL
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ótakmarkaðir sjóðir Kínastjórnar
gegna lykilhlutverki í útþenslustefnu
hennar, ekki síst á þessum tímum þeg-
ar fjárhirslur flestra ríkja eru tómar.
Aðferðafræði Kínastjórnar snýst um
að tryggja langtímasamninga um að-
gang að auðlindum og hefja olíu- og
námavinnslu í kjölfarið. Lánafyrir-
greiðsla til fátækra ríkja er liður í
sömu stefnu.
Svona dregur spænski blaðamaður-
inn Juan Pablo Cardenal saman út-
þenslustefnu Kínastjórnar en hann
hefur í félagi við blaðamanninn Her-
iberto Araújo skrifað bókina Hinn
hljóðláti Kínaher, eða China’s Silent
Army eins og hún heitir í enskri þýð-
ingu. Bókin kom fyrst út á spænsku og
er 5. upplagið nú í dreifingu. Bókin
hefur einnig komið út á hollensku og
er pólsk útgáfa væntanleg í haust. Þá
kemur hún út á ensku og frönsku í jan-
úar og á japönsku og kínversku síðar á
næsta ári.
Á vef forlagsins Penguin er bókin
kynnt með þeim orðum að hún sýni
fram á að Kínverjar setji mannrétt-
indabrot ekki fyrir sig. Frelsi í við-
skiptum sé aukaatriði og áherslan sé á
að tryggja aðgang að auðlindum, bæði
til að afla hráefna til framtíðar og
breiða út áhrif Kínverja.
Cardenal og Araújo starfa báðir í
Asíu og ferðuðust til tuga landa í
mörgum heimsálfum við efnisöflun,
líkt og rakið er hér til hliðar.
Cardenal kom í stutta vinnuferð til
Íslands fyrr í mánuðinum eftir við-
komu á Grænlandi og gaf þá kost á við-
tali um bókina.
Útþenslustefnan kortlögð
– Hvaða meginstef hafið þið komið
auga á í greiningu ykkar á fjárfest-
ingum Kínverja erlendis?
„Við vildum skoða allt sem viðkom
kínverskri útþenslustefnu. Bókin nær
því yfir vítt svið: Leitina að náttúru-
auðlindum, útbreiðslu kínversks varn-
ings, fólksflutninga, uppbyggingu Kín-
verja á innviðum, umhverfismál,
aðbúnað verkafólks og nýjar sviðs-
myndir í alþjóðamálum, ásamt öðru.
Við fylgdum slóð Kínverja á tvíþætt-
an hátt. Annars vegar hinni opinberu
útgáfu sem Kínastjórn sýnir út á við,
með ríkiserindrekstri, rekstri ríkisfyr-
irtækja og bönkum í almannaeigu, sem
eru gjarnir á að gera samninga þar
sem Kínastjórn er báðum megin
borðsins. Hins vegar „her“ lítilla frum-
kvöðla og athafnamanna sem eru að
stofna fyrirtæki um allan heim og ná
árangri.
Til að rannsaka hvernig Kínastjórn
tryggir sér aðgang að olíu og gasi til
framtíðar ferðuðumst við til Írans,
Angóla, Venesúela, Súdans og Túrk-
menistans. Alls staðar sáum við sama
mynstrið. Í rannsóknum okkar á hin-
um umhverfislegu áhrifum útþenslu-
stefnunnar skoðuðum við meðal ann-
ars austurhluta Rússlands og
Mósambík, en spilling gegnir þar stóru
hlutverki við að tryggja samninga sem
hafa skelfileg áhrif á umhverfið í för
með sér.“
Kína orðið að banka heimsins
– Einkennir það nálgun Kínverja að
saman fari að treysta hin stjórnmála-
legu og efnahagslegu tengsl við ríkin
sem í hlut eiga? Fylgja stjórnmálin
alltaf fjármagninu?
„Svo sannarlega, einkum nú á tím-
um þegar flest ríki hafa úr litlu að
spila. Segja má að Kína sé orðið að
banka heimsins og það gefur Kína-
stjórn fjölmörg tækifæri til að komast
inn á markaði og tryggja sér eignir og
auðlindir víða um heim sem gegna því
hlutverki að treysta svæðisbundin
áhrif Kína,“ segir Cardenal en sem
kunnugt er hefur Kínastjórn meðal
annars keypt bandarísk skuldabréf í
stórum stíl.
Horfa nú til þróaðra ríkja
– Hvað geturðu sagt mér um ferð
ykkar til Íslands og Grænlands?
„Við fórum til Íslands og Grænlands
til að afla upplýsinga vegna næstu bók-
ar, sem fjallar um Kína og hin þróuðu
ríki (sú fyrri var um Kína og þróun-
arlöndin). Stjórnvöld í Peking horfa nú
til þessa heimshluta og tengist það
áformum þeirra á norðurskautinu. Ís-
land virðist í þessu samhengi vera
strategískt land fyrir Kína, vegna
landfræðilegrar legu sinnar skammt
undan hugsanlegri siglingaleið milli
Evrópu og Asíu um norðurslóðir. Við
munum fylgjast grannt með því hvern-
ig áhugi Kínverja þróast.
Hvað varðar Grænland er landið
enn skammt á veg komið í þróuninni.
Það lítur út fyrir að Kína sé í ákjós-
anlegri stöðu til að verða sá strategíski
bandamaður sem Grænlendingar
þurfa á að halda til að stíga næstu
skref í þróun landsins í átt til efna-
hagslegs sjálfstæðis. Rétt eins og í
Afríku og í fleiri ríkjum eru Kínverjar
tilbúnir að leggja út í áhættusama
langtímafjárfestingu á Grænlandi,
fjárfestingu sem felur í sér náttúru-
auðlindir. Kínastjórn hefur fjármagn-
ið, vinnuaflið og reynsluna til að fylgja
öllum áformunum eftir.“
Kínverjar kaupa sér áhrif og völd
Morgunblaðið/Kristinn
Víðförull Spænski rannsóknarblaðamaðurinn Juan Pablo Cardenal.
Spænskur rannsóknarblaðamaður hefur skrifað bók um fjárfestingastefnu Kínverja á síðustu árum
Telur áhuga Kínastjórnar á Grænlandi lið í útþenslustefnu Vilja tryggja sér auðlindir og ítök
Cardenal segir
þá félaga hafa
byrjað að
vinna að bók-
inni um sum-
arið 2009
þegar þeir átt-
uðu sig á til-
teknu mynstri
í umsvifum Kín-
verja erlendis.
Þeir hafi því
ákveðið að ferðast til 25 þróun-
arlanda sem Kínverjar hefðu
umsvif í til að sjá með eigin
augum hvað væri að gerast og
hver áhrifin væru af umsvif-
unum á hverjum stað.
„Titill bókarinnar á ensku er
Hinn hljóðláti Kínaher og vísar
til hljóðlátra landvinninga Kína
um heim allan. Það er mikil-
vægt að taka fram að þetta eru
landvinningar í þeim skilningi
að umfangið er mikið. Þeir eru
einnig hljóðlátir í þeim skilningi
að hreyfiaflið er peningar sem
streyma hljóðlátt án þess
gegnsæis sem krafist er,“ segir
Cardenal og heldur áfram.
Fóru til fimm heimsálfa
„Við vinnslu bókarinnar tókum
við félagi minn Heriberto
Araújo yfir 500 viðtöl og ferð-
uðumst til 25 landa í Afríku,
Suður-Ameríku, Mið-Austur-
löndum, Mið-Asíu og Suð-
austur-Asíu,“ segir Cardenal
sem hefur aðsetur í Hong Kong.
Cardenal hefur skrifað í þekkt
blöð og tímarit og má þar nefna
El País og Foreign Policy.
Araújo er hins vegar fréttaritari
mexíkósku fréttaveitunnar
Notimex.
Auðurinn er
hreyfiaflið
KÍNVERJAR BREIÐA ÚR SÉR
Kápa bókarinnar
í enskri útgáfu.
ÓDÝRU BÍLALEIGUBÍLARNIR
VORU AÐ KOMA!
Vertu fyrstur, fáðu þann besta!
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | hofdahollin@hofdahollin.is
Eigum allskonar bíla,
langar þig í einn?
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 580 8900 | bilalind.is
Ertu með kaupanda?
Skjalafrágangur frá 14.990 kr.
Löggildir bílasalar tryggja öryggi beggja aðila
Fylgstu með okkur á facebook
Sölulaun
frá 39.900 kr.
„Allir sannir hestamenn fara í Lauf-
skálarétt, það er eins og fyrir mú-
hameðstrúarmann að fara til
Mekka,“ segir Haraldur Þór Jó-
hannsson, hrossabóndi með meiru í
Enni í Viðvíkursveit, en hin árlega
og eftirsótta Laufskálarétt verður í
Hjaltadal í Skagafirði í dag. Harald-
ur, betur þekktur sem Halli í Enni,
var lengi réttarstjóri í Laufskálarétt
en við því kefli hefur tekið Halldór
Steingrímsson í Brimnesi. Réttar-
störf hefjast kl. 13 en byrjað verður
að reka stóðið úr Kolbeinsdal kl. 10
og þangað eru allir sjálfboðaliðar
velkomnir.
Fjörið hófst í gærkvöldi í reiðhöll-
inni Svaðastöðum á Sauðárkróki
með stóðhestasýningu og keppni í
tölti og skeiði. Að loknum réttar-
störfum í dag er svo slegið upp balli í
reiðhöllinni í kvöld með skærum tón-
listarstjörnum. Stóðréttarball verð-
ur einnig í Höfðaborg á Hofsósi.
Halli býst við svipuðum fjölda
hrossa í réttinni og áður, eða 400-500
fullorðnum hrossum, og mannfólkið
muna skipta þúsundum. Veðurspáin
er hin sæmilegasta. „Það gæti vant-
að einn og einn og þá koma bara nýir
í staðinn. Við getum þá bara sagt
eins og Dúddi gamli á Skörðugili
sagði forðum: Þeim verður seint full-
þakkað sem sátu heima.“ bjb@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Laufskálarétt Haraldur Þór Jóhannsson í Enni í Viðvíkursveit mætir að
vanda í Laufskálarétt í dag, vígalegur með stafinn og heimtir stóðið af fjalli.
Laufskálarétt – eins
og að fara til Mekka