Morgunblaðið - 29.09.2012, Síða 32
32 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Nýjustu fylgiskannanir benda til
þess að forskot Baracks Obama
Bandaríkjaforseta hafi aukist veru-
lega í landinu í heild eftir að hafa
verið lengi innan skekkjumarka.
Ef marka má kannanirnar hefur
forskotið aukist í þremur ríkjum sem
geta ráðið úrslitum í kosningunum,
Ohio, Flórída og Pennsylvaníu. For-
skot forsetans meðal líklegra kjós-
enda mælist nú 10 prósentustig í
Ohio, níu stig í Flórída og tólf stig í
Pennsylvaníu. Mitt Romney, for-
setaefni repúblikana, hefur að
undanförnu lagt kapp á að auka fylgi
sitt í Ohio. Enginn repúblikani hefur
verið kjörinn forseti án þess að sigra
þar.
Í könnunum, sem ná til allra
Bandaríkjanna, var forskot Obama
innan skekkjumarka mánuðum sam-
an en flestar þeirra benda nú til þess
að munurinn sé orðinn verulegur.
T.a.m. bendir könnun Pew Research
Center til þess að forskot Obama sé
átta prósentustig, en það er sex stig
ef marka má kannanir Gallup.
Hversu mikil er skekkjan?
Repúblikanar draga þessar niður-
stöður í efa og segja að þær séu ekki
marktækar vegna skekkju í úrtök-
unum sem valdi því að fylgi Obama
sé ofmetið. Skekkjan byggist á því að
þeir sem skilgreina sig sem demó-
krata séu hlutfallslega fleiri í úrtök-
unum en meðal þeirra sem mæta á
kjörstað. Í könnunum Rasmussen
Reports er reynt að leiðrétta þessa
skekkju og þá bregður svo við að
fylgi Obama og Romneys er hníf-
jafnt.
Stjórnmálaskýrendur segja að
gera megi ráð fyrir slíkri skekkju en
erfitt sé að segja til um hversu mikil
hún sé. Þeir efast um að skekkjan sé
eins mikil og repbúblikanar telja og
segja að hún geti verið u.þ.b. 3-5 pró-
sentustig. Ef skekkjan er svo mikil
myndi Obama samt sigra, sam-
kvæmt flestum skoðanakönnunum.
265 191
Heimild: RealClearPolitics
Obama með forskot í baráttunni um kjörmenn
Hawaii
Massachusetts
Rhode Is.
Connecticut
Wash. DC
Oregon
Vermont
Í kosningunum velja kjósendurnir kjörmenn sem kjósa forsetann endanlega.
Fjöldi kjörmanna í hverju ríki ræðst af íbúafjölda
Maine
New Hampshire
Illinois
New
York
New Jersey
Delaware
Maryland W.Virg.
Pennsylvania
Ohio
Nebraska
Nýja
Mexíkó
Utah
Alaska
Nevada
Kalifornía
Wyoming
Suður-
Dakóta
Norður-
DakótaMontana
Idaho
Virginía
Norður-Karólína
Suður- Karólína
Georgía
Tennessee
Kentucky
Michigan
Wisconsin
Louisiana
Arkansas
Missouri
Iowa
Oklahoma
Kansas
Arizona
Colorado
Texas
Indiana
Washington
Mississippi Alabama
Flórída
Minnesota
179
Óákveðnirtraustur stuðningur líklegur
stuðningur
líklegur
stuðningur
traustur stuðningur
15086 82 41
Kjörmennirnir eru alls 538
Frambjóðandi þarf atkvæði 270
kjörmanna til að ná kjöriBarack Obama Mitt Romney
Fylgiskannanir sem gerðar voru 18.-26. september. Í prósentum
Obama með forystu í lykilríkjum
Ohio
23. ágúst 26. sept.
Pennsylvanía
5453
4242
Heimildir: Quinnipiac-háskóli/CBS News/New York Times
Repúblikanar
23. ágúst 26. sept.
5350
4344
Barack Obama Mitt Romney
Enginn hefur sigrað í forsetakosningum
frá árinu 1960 án þess að sigra í a.m.k.
tveimur af þessum þremur ríkjum
Banda-
ríkin
Flórída
23. ágúst 26. sept.
5349
4446
Demókratar
Forskot Obama vel
yfir skekkjumörkum
Fylgið ofmetið
vegna skekkju í
úrtökum?
Viðhorfskannanir í þremur af lykil-
ríkjunum í forsetakosningunum,
Flórída, Ohio og Virginíu, benda til
þess að meirihluti kjósendanna sé
andvígur þeim breytingum sem
repúblikanar hafa boðað á Medi-
care, sjúkratryggingakerfinu fyrir
65 ára og eldri.
Ef marka má kannanirnar telja
eldri borgarar í ríkjunum þremur
að framtíð Medicare og efnahags-
málin almennt séu mikilvægustu
kosningamálin og allt að 70%
þeirra vilja halda sjúkratrygg-
ingakerfinu óbreyttu að mestu
eins og Obama hefur boðað, að
sögn The Washington Post.
Stuðningurinn við Medicare er
mestur í Flórída þar sem fimmti
hver kjósandi í síðustu forseta-
kosningum var 65 ára eða eldri.
The Washington Post segir að því
meiri áherslu sem kjósendurnir
leggi á óbreyttar sjúkratryggingar
því líklegri séu þeir til að kjósa
Obama.
Mikill stuðningur við Medicare
SJÚKRATRYGGINGAR OFARLEGA Á BAUGI Í LYKILRÍKJUM
LAGERSALA
allt að 80% afsláttur
Laugardag &
sunnudag 11-16
Laugavegi 178
Rúmföt - margar stærðir
Úrval af barnarúmfatnaði
Handklæði og margt fleira
M
argar
gerðir
Eldhúsvörur
Púðar & dúkarEin
nig
Löberar
Rúmteppi
140x200
140x220
200x200
220x220