Morgunblaðið - 29.09.2012, Side 60

Morgunblaðið - 29.09.2012, Side 60
60 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012   75 Á R A 1936 2011 Ryksugur Gólfþvottavélar Háþrýstidælur Þrif á herbergi eða heilli borg hefur svarið FÖNIX Raftækjaverslun • Hátúni 6a • 105 Reykjavík Sími 552 4420 • Fax 562 3735 • fonix@fonix.is • www.fonix.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er til lítils að þvæla um hlutina fram og aftur endalaust. Kauptu eitthvað sem gerir lífið þægilegra. Raunverulegir vinir vilja að maður finni stuðning og hamingju. 20. apríl - 20. maí  Naut Láttu ekki hugfallast þótt samskipti þín og vinnufélaga þinna gangi ekki snurðu- laust með öllu. Hripaðu niður hugmyndir, hugsanir, drauma. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Búðu þig undir að þurfa að leggja heilmikið á þig á komandi árum. Stattu upp og vertu ákveðinn, aðeins þannig áttu mögu- leika til að breyta stöðunni þér í hag. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ert einhvern veginn ekki alveg með sjálfum þér og þarft því að taka þér tak. Það þýðir ekkert annað en fylgjast með nýj- ungum á sem flestum sviðum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Hlutirnir ganga oft betur og hraðar fyr- ir sig ef þú reynir að verja þig fyrir umhverf- inu. Láttu ekkert slá ryki í augun á þér, held- ur haltu þínu striki. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Sýndu þolinmæði í atvinnumálum næstu mánuði. Leitaðu sátta því þetta ann- ríki líður og hjá og þá gefst betra næði til góðra stunda. 23. sept. - 22. okt.  Vog Leyfðu sköpunarþrá þinni að fá útrás þótt þér finnist ekki mikið til um afrakst- urinn. Liðsandinn sem þú miðlar á eftir að smita frá sér. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Ígrundaðu á hvern máta þú get- ur bætt heilsuna í dag. Skapandi verkefni eru upplögð og ekki væri vitlaust að taka sér frí. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það getur verið bæði fræðandi og skemmtilegt að hlýða á það sem eldra fólk hefur til málanna að leggja. Sýndu þol- inmæði og hlustaðu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú finnur til aukinnar orku í dag og þér finnst aðrir vilja ráðskast um of með þín mál. Hér gildir að hafa opinn huga og aldrei að segja aldrei. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Vertu viðbúinn því að tölvur eða annar búnaður bili í dag. Fólk er tilbúið að hjálpa þér og veita þér allan þann stuðning sem þú þarft til að ljúka ákveðnu verki. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er auðvelt að sjá sannleikann eft- ir á, en á tilteknu augnabliki í dag áttu ekki eftir að geta það. Gott ráð er að leita skjóls hjá trúnaðarvini sem þarf engin látalæti. Góður vinur Vísnahorns sendimér bréf svohljóðandi: „Í Mogga í dag er vísa, sem mig rám- aði í að hafa séð og fann ég eina álíka, en ekki eins, í V. hefti af Ís- lenzkri fyndni. Tilefnið er talið vera það, að Lárus H. Bjarnason hefði ráðist harkalega á Þorstein Gísla- son á kosningafundi, hann ekki svarað neinu, en hins vegar skamm- að Lárus í næsta tölublaði Lögréttu óbótaskömmum. Vísan er svona: Mælti nokkur með fyrir nokkrum árum lygara, montrass, leigurót, lubbamenni og idíót? Ekki veit ég hvort réttara er, en sendi þér þetta til gamans. Ég er þakklátur fyrir bréfið. Vafalaust er þetta sama vísan. Mér hefur tekist að rekja hana til kosn- ingablaðs Ísafoldar, sem út kom í apríl 1914, en þar er önnur hend- ingin „mælti nokkur með fyrir þremur árum“. Þessi vísa er í stutt- um bálki sem kallast „Kosninga- kantate!“ og lýkur þannig: Lögrétta er mín yngismær. Eitt er í dag, en hitt í gær. Á höfðinu fækkar nú hárum, því samviskan liggur í sárum. Ég hef í höndum lítið kver með þingvísum sem ortar voru á fyrstu áratugum síðustu aldar. Gallinn er sá, að tilefna er ekki getið og fyrir vikið missa vísurnar marks, þótt vissulega séu margar listilega vel gerðar. Þannig er um þessa, sem ber með sér að hún er ort um Björn Sigfússon á Kornsá, sem á árunum 1908-1911 var þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn eldri: Kornsárgoðinn gómavoðir þenur, orðagnoð á gjálfurmar gnötra á boðum flónskunnar. Eins og sést á þessari vísu liggur stuðlaaflið vel við tækifærisvísunni. Andrés Björnsson orti: Eyrnamörk eru óþörf hér í salnum. Þekkist allur þingsins fans á þessum hluta líkamans. Og ekki má gleyma hinum svarta þjófi Jóni Hreggviðssyni, sem sest- ur var tvívega uppá þekjuna með fæturna framanaf gaflinum og kvað Pontusrímur eldri: Ei mun sjóli armi digrum kjósa netta að spenna nittisbrík nema hún sé ung og rík. Og: Aldrei skal ég armi digrum spenna yrmlíngs sængur únga brík utan hún sé feit og rík. Og að síðustu: Áfram meður sveinum geisar sínum jöfur lands og jómfrúrnar, járnmél bruddu graðhestar. HalldórBlöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Eitt í dag en hitt í gær Í klípu „VIÐ ÆTTUM AÐ FÁ SVAR FLJÓTLEGA, HANN ER AÐ RÁÐFÆRA SIG VIÐ YFIRSTJÓRNINA.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „SYSTIR HENNAR ÞÉNAR 5.000 KALL Á VIKU.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ...að halda fast í það sem skiptir máli - hvort annað. Auglýstu hér !!! NEI LÍSA, OG ÞAR VIÐ SITUR! Ó? ALLT Í LAGI ÞÁ. ÉG ER AÐ FARA Í BÚÐIR. AF ÞVÍ AÐ MIG LANGAR! KOMDU MEÐ FULLORÐINS- KORTIÐ ÞITT. ÞÁ ER KOMINN APRÍL OG ÞAR MEÐ VOR! FYRSTA LÓAN KEMUR ÖRUGGLEGA FLJÓTLEGA TIL LANDSINS. EF HÚN KEMUR ÞÁ VERÐUR HÚN ÖRUGGLEGA Í DÚNÚLPU OG MEÐ SNJÓÞRÚGUR. Sá kuflklæddi spekingur semheimsbyggðin tekur mikið mark á er Dalai nokkur Lama. Hvert orð sem hrýtur fram af vörum þessa ská- eygða tíbetska munks ratar ósjaldan á síður sjálfshjálparbóka. Og skal engan undra. Sannleiksgildi þeirra er nánast sligandi. x x x Á borði Víkverja lá skyndilega lausnallra vandamála – enn ein sjálfs- hjálparbókin hafði ratað þangað. Á titilsíðunni var að finna tilvitnun. Bingó. Víkverji var afhjúpaður: „Það sem kemur mest á óvart í mannlegri tilveru er að maðurinn fórnar heilsu sinni til að eignast pen- inga. Svo fórnar hann peningum til að ná aftur heilsu sinni. Á sama tíma er hann svo spenntur fyrir framtíð sinni að hann nýtur ekki augnabliksins. Af- leiðingin er sú að hann lifir hvorki í nútíð né framtíð. Og hann lifir eins og hann muni aldrei deyja – og svo deyr hann án þess að hafa lifað“ – Dalai Lama. x x x Lestri lauk þrátt fyrir að lausninværi handan hornsins (síðunnar) og fælist í því að fylgja eftir ströngum leiðbeiningum bókarinnar. x x x Af hverju nær þessi mannvera utanum heiminn í nokkrum setn- ingum, jafnvel einstaka orðum? Kannski hefur það eitthvað með það að gera að þessi Dalai Lama sem heit- ir réttu nafni Tenzin Gyatso varð út- lægur úr Tíbet, heimalandi sínu, og hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1989 fyrir baráttu sína fyrir friðsamlegri lausn á deilu þjóðar sinnar við Kín- verja. Bara pæling ... x x x Annars lætur Víkverji, kápur, titlaog ekki síst tilvitnanir á titilsíðu bókarinnar stjórna því hvort bókin er þess verð að vera lesin. Tilvitnanir eiga ríkan þátt í því að skapa ákveðna stemningu. Iðulega er tilvitnun lesin og melt í nokkra stund áður en óhætt er að halda áfram. Á sama tíma birtist fræðibók um konur, kvenlíkama og tilheyrandi skapabarmapælingar en engin tilvitnun var á titilsíðu og því varð ekkert úr lestrinum. víkverji@mbl.is Víkverji Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hvert annað eins og ég hef elskað yður. (Jóh. 15:12)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.