Morgunblaðið - 29.09.2012, Síða 64

Morgunblaðið - 29.09.2012, Síða 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012 Opnunarmynd RIFF í ár erfrönsk með sterku ís-lensku ívafi. Áhorfendumbýðst að flandra um með persónum í söguheimi þar sem til- finningar og töfrar ráða för og duttlungafullt háttalag persóna er ekki alltaf rökrétt. Myndin segir af kvikmyndagerðarkonunni Agathe sem snýr heim í úthverfi Parísar eftir að hafa heimt ösku nýlátins eiginmanns síns af erlendri gundu. Hún er buguð af sorg og vart skugginn af sínu fyrra sjálfi. Eins og þruma úr heiðskíru lofti banka framandleg íslensk mæðgin upp á hjá henni í leit að húsaskjóli. Agn- dofa og utangátta býður Agathe þeim inn og með hjálp þeirra nær hún smám saman að vinna sig í gegnum sorgina og enduruppgötva sjálfa sig. Leikstjórinn Sólveig Anspach og íslenska aðalleikkonan Didda hafa starfað náið saman í gegnum tíðina. Sólveig hlaut heiðursverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrir Stormviðri (2003) og fyrir frammi- stöðu sína í þeirri mynd fékk Didda Edduverðlaun. Líf og persóna Diddu sjálfrar urðu svo kveikjan að ævintýrum söguhetjunnar Önnu í næstu mynd þeirra Sólveigar, Skrapp út (2008), og Anna mætir aftur keik í þessari nýjustu mynd. Handritin að myndunum vann Sól- veig í samstarfi við Jean-Luc Gaget og þau, ásamt Diddu og sonum hennar, Úlfi og Krumma, hafa því myndað eins konar söguheim- steymi þar sem skilin milli skáld- skapar og sjálfsævisögulegrar tján- ingar persóna eru glettilega óljós. Skáldið Didda og kvikmyndasjálf hennar, Anna, yrkir óbundin kvæði og gefur sig á vald hugleiðingum um tilveruna og mannlíf í öllum sín- um sérkennilega fjölbreytileika. Hún er algjör andstæða Agathe; pönkuð, lífsglöð og fer ófeimin ótroðnar slóðir. Af vörum hennar hrynja hispurslaust fúkyrði og keðjureykjandi jónur, ratar hún meðal annars upp í risastóran iðn- aðarkrana sem hún tekur til við að stýra án nokkurra vandkvæða. Didda og hinn góðhjartaði og ljúfi Úlfur eru sjálfmenntaðir lífs- ins leikarar en einlæg tjáning þeirra fellur vel að frammistöðu fagmenntaðra mótleikara. Leikur Florence Loiret-Caille er ein- staklega tilbrigðaríkur í gegnum sorgarferil Agathe. Áreynslulaust tjáir hún örvæntingu, bugun, sorg og viðkvæmni á milli þess sem hún stendur algjörlega agndofa frammi fyrir framandlegu hátterni hús- gestanna. Tilfinningalíf Agathe er enn fremur tjáð með myndmáli og áru söguheims. Litatónn, skörp mynd og ljúf tónlist miðla trega- blandinni en samt líflegri sinfóníu fjölmenningarlegrar blöndu per- sóna. Þær eru allar að reyna að finna sig og fóta í lífinu. Tilraunir þeirra til eins konar hamskipta kjarnast í súrrealískasta leikara myndarinnar, sæljóninu Fífí, sem Úlfur finnur í yfirgefnum dýra- garði og flytur inn á baðherbergi Agathe. Í anda þjóðtrúar er hann sannfærður um að sæljónið sé framliðinn eiginmaður Agathe í álögum. Árangurslaust reynir hann að aðstoða það við að endurheimta mannlegt eðli en segja má að Agathe rísi alfarið úr viðjum sorg- arhamsins til lífs og leiks á ný við að horfast í augu við sæljónið og að lokum sleppa þessum strandaglóp lausum út í sjó. RIFF er óvissuferð sem býður upp á mikið og fjölbreytt flandur á töfrandi slóðir. Opnunarmyndin er seiðandi, glettin og kemur sífellt á óvart. Hún slær því hljómfagran og réttan tón að því sem koma skal. Gleðilega hátíð! Seiðandi Opnunarmyndin er seiðandi, glettin og kemur sífellt á óvart. Úlfur Ægisson, Didda og Florence Loiret-Caille í einu atriða myndarinnar. Töfrandi hamskipti RIFF Queen of Montreuil bbbbn Leikstjórn: Sólveig Anspach. Aðal- hlutverk: Florence Loiret-Caille, Didda (Sigurlaug Jónsdóttir) og Úlfur Æg- isson. 87 mín. Frakkland, 2012. Flokkur: Fyrir opnu hafi. HJÖRDÍS STEFÁNSDÓTTIR KVIKMYNDIR London brennur er yfirskrift tón- leika kammerhópsins Nordic Affect í Þjóðmenningarhúsinu á morgun kl. 16. Á tónleikunum heldur Nordic Af- fect til London og 17. aldar og flytur allt frá vinsælum lögum til sónata eftir Purcell og Matteis. „Á milli at- riða verður sagt frá bakgrunni verk- anna en listrænn stjórnandi hópsins, Halla Steinunn Stefánsdóttir, er einnig þáttastjórnandi Girnis, grúsks og gloría, þáttar um tónlist fyrri alda á Rás1. Stungið verður inn nefi á kvöldskemmtanir og inn fyrir veggi hirðarinnar, auk þess sem bruninn mikli í London kemur við sögu. Einnig verður gluggað í dag- bók nautnaseggs nokkurs að nafni Pepys,“ segir m.a. í tilkynningu frá tónleikahöldurum. Flytjendur á tónleikunum eru þrír meðlimir Nordic Affect, þær Halla Steinunn Stefánsdóttir og Sara De- Corso fiðluleikarar og Guðrún Ósk- arsdóttir semballeikari. „Tónleik- arnir eru þeir fyrstu í hinni föstu vetrartónleikaröð hópsins í Þjóð- menningarhúsinu en tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði menntamálaráðuneytisins og Menn- ingarsjóði Reykjavíkurborgar. Á næstu tónleikum sem fara fram í nóvember verður m.a. frumflutt ný tónsmíð eftir Guðmund Stein Gunn- arsson. Meðal verkefna næstu mán- uði auk tónleikahalds er hljóðritun á nýjum geisladiski með verkum eftir íslensk kventónskáld sem styrktur er af Menningarsjóði Hlaðvarpans,“ segir í fréttatilkynningu. Nordic Affect í Þjóð- menningarhúsinu Listakonur Sara, Guðrún og Halla Steinunn leika saman á tónleikunum. HHHH -Þ.Þ., Fréttatíminn HHHHH - J.I., Eyjafréttir.is HHHHH - H.H., Rás 2 HHHHH - H.S.S., Morgunblaðið HHHH - H.V.A., Fréttablaðið HHHH - K.G., DV SAVAGES Sýnd kl. 8 - 10:40 DJÚPIÐ Sýnd kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 THE BOURNE LEGACY Sýnd kl. 10:15 INTOUCHABLES Sýnd kl. 5:50 - 8 PARANORMAN 3D Sýnd kl. 2 - 4 - 6 ÁVAXTAKARFAN Sýnd kl. 2 - 4 LAUGARÁSBÍÓ SýningartímarÍSL TEXTI SÍÐUSTU SÝNINGAR! “Oliver Stone reisir sig (loksins) aftur upp með skemmtilegri, stílískri og spennandi ræmu sem neitar að fara fínt í hlutina.” -T.V - Kvikmyndir.is/Séð og Heyrt -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU 10 7 12 12 L 16 HÖRKU SPENNUMYND TRYGGÐU Þ ÉR MIÐA Á SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS SAVAGES KL. 5.15 - 8 - 10.45 16 DJÚPIÐ KL. 1 - 1.30 - 3.10 - 3.40 - 5.20 - 5.50 - 8 - 10.10 DJÚPIÐ LÚXUS KL. 1 - 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 10 DREDD 3D ÓTEXTUÐ KL. 8 - 10.10 16 RESIDENT EVIL KL. 10.20 16 ÁVAXTAKARFAN KL. 1 (TILBOÐ) - 3 L THE EXPENDABLES 2 KL. 8 16 THE WATCH KL. 5.40 12 ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL. 1 (TILBOÐ) - 3.20 L - Þ.Þ., FRÉTTATÍMINN - J.I., EYJAFRÉTTIR -H.G., RÁS 2 - K.G., DV - H.S.S., MORGUNBLAÐIÐ T.V. - KVIKMYNDIR.IS/SÉÐ OG HEYRT - H.V.A., FRÉTTABLAÐIÐ DJÚPIÐ LAUGARDAG KL. 3.40 - 5.50 - 8.15 - 10.30 10 DJÚPIÐ SUNNUDAG KL. 3.40 - 5.50 - 8- 10.10 10 27. SEPTEMBER - 7. OKTÓBER 2012 SAVAGES KL. 8 - 10.15 16 DJÚPIÐ KL. 6 - 8 - 10 10 DREDD 3D KL. 6 16 - ÍSÖLD 4 3D KL. 4 (TILBOÐ) L ÁVAXTAKARFAN KL. 4 (TILBOÐ) L

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.