Morgunblaðið - 07.01.2013, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2013
Skógarhlíð 18 sími 595 1000 www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
• •
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á allra síðustu sætunum
16. janúar til Tenerife. Þú bókar flugsæti og gistingu og 3
dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Frá aðeins kr. 109.900 með
allt innifalið í 14 nætur
Tenerife
16. janúar
stökktu til
Kr. 109.900 með „öllu inniföldu“
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn. Verð á mann í tvíbýli með allt innifalið kr.
139.900.-
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Flotinn er orðinn frekar gamall.
Það hefur verið mikil endurnýjun í
þeim hluta flotans sem boðinn hefur
verið út. En okkar eigin vagnar eru
orðnir 8-9 ára gamlir að meðaltali,“
segir Reynir Jónsson, framkvæmda-
stjóri Strætó bs., en um helmingur
alls aksturs er í höndum verktaka.
Varavagnar 14 ára gamlir
Að sögn Reynis eru gerðar þær
kröfur að þeir bílar sem eru í fullum
rekstri séu ekki eldri en tíu ára gaml-
ir. „Eftir að þeir ná 10 ára aldri má
nota þá sem auka-, eða varavagna
upp í 14 ár. En þá þurfa þeir að sjálf-
sögðu að uppfylla allar öryggiskröf-
ur,“ segir Reynir.
Hann segir að heildarakstur allra
vagna hér á landi sé um 9 milljón
kílómetrar á ári.
„Það er hending ef strætisvagnar
fara yfir 100 þúsund kílómetra á ári.
Þeir sem eru eknir mest fara í 120-
130 þúsund kílómetra á ári. Ætli
mest eknu bílarnir okkar séu ekki
komnir í 1.800 þúsund kílómetra í
heild.“
Reynir segir stefnt að því að end-
urnýja vagnana í bráð. Til stóð að
hefja útboð í fyrrahaust en útboðs-
ferlið var kært og því verður einhver
töf á endurnýjun vagnanna.
Að sögn Reynis eru 86 vagnar í
eigu Strætó bs. „Þar af eru 65-66
bílar í daglegum rekstri. Hitt eru
auka- eða varavagnar. Varavagnar
eru t.a.m. liðvagnar en við notum þá
einungis þegar álagið er mest á
morgnana og á miðjum degi,“ segir
Reynir.
Strætó bs keypti á dögunum þrjá
vagna. Tveir þeirra voru liðvagnar
sem komu frá Þýskalandi og eru þeir
árgerð 2003 og eru eknir um 400 þús-
und kílómetra. Þriðji vagninn kemur
frá Danmörku og er árs gamall.
Strætóflotinn orðinn gamall
Floti Strætó 8-9 ára gamall að meðaltali Ekki eldri en 10 ára vagnar í rekstri
Elstu strætisvagnarnir eknir 1.800 þúsund km Keyptu nýlega þrjá vagna
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Strætó Strætisvagnar í eigu Strætó bs. eru komnir til ára sinna, að sögn
Reynis Jónssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
Þrettándagleðin var mikil í Skautahöllinni í Laug-
ardal í gær en Skautafélag Reykjavíkur fagnar 120
ára afmæli sínu í dag, 7. janúar. Yngsta kynslóðin lét
til sín taka í leikjum innanhúss. Aðstæðurnar eru
gjörólíkar því sem var þegar félagið var stofnað.
Fyrstu heimildir um félagið eru frá 19. öld þegar
nemar í Latínuskólanum stunduðu skautahlaup á
Tjörninni.
Morgunblaðið/Kristinn
Skautafélag Reykjavíkur fagnar 120 ára afmæli sínu í dag
Skautað af list á þrettándagleði
Fjögur framboð höfðu borist fyrir
forval VG í Norðvesturkjördæmi í
gærkvöldi.
„Við þykjumst vita að það séu
fleiri framboð á leiðinni,“ sagði Frið-
rik Aspelund, formaður kjör-
stjórnar.
Framboðsfresti lýkur á miðnætti í
kvöld. Nöfn frambjóðenda verða til-
kynnt fljótlega eftir það. Kosið verð-
ur um sex efstu sætin á listanum í
póstkosningu. Atkvæði verða talin 2.
febrúar næstkomandi.
Þegar hefur komið fram að Lilja
Rafney Magnúsdóttir alþing-
ismaður, sem var í 2. sæti 2009, sæk-
ist eftir 1. sæti á listanum. Jón
Bjarnason alþingismaður hefur ver-
ið oddviti VG í kjördæminu. Ekki
náðist í hann í gær. Lárus Ástmar
Hannesson hefur gefið kost á sér í 2.
sæti en hann var í 10. sæti á lista VG
í kjördæminu fyrir síðustu kosn-
ingar. Þá hefur Þóra Geirlaug Bjart-
marsdóttir boðið sig fram í 3.-6. sæti.
Ásmundur Einar Daðason, sem var í
3. sæti 2009, gekk til liðs við Fram-
sóknarflokkinn. gudni@mbl.is
Framboðsfrestur
hjá VG í NV-kjör-
dæmi til miðnættis
Lilja Rafney
Magnúsdóttir
Jón
Bjarnason
Vilborg Arna
Gissurardóttir
átti í gær um
200 kílómetra
eftir ófarna að
suðurpólnum. Í
dag eru 49 dag-
ar frá því hún
hóf 1.400 km
ferð frá Hercu-
les Inlet.
Vilborg áætlaði að vera um 50
daga á ferð en ljóst er að hún
mun ekki ná því markmiði. Á
bloggsíðu sinni lífsspor.is vill hún
koma því á framfæri að hana
muni ekki skorta mat þrátt fyrir
að ferðin verði lengri en áætlað
var og hún muni fá birgðasend-
ingu. Vilborg Anna þarf að neyta
um 6.000 hitaeininga á dag á ferð
sinni. vidar@mbl.is
Enginn skortur hjá
Vilborgu á pólnum
Vilborg Arna
Gissurardóttir
„Við fengum um 400 tonn í einu
kasti norður af Langanesi. Það er
ekkert rosalega mikið af loðnu að
sjá en það er eitthvað,“ segir Arn-
þór Hjörleifsson, skipstjóri á Lund-
ey NS 14, sem var við loðnuveiðar í
gær. Mun skipið koma til löndunar
á Vopnafirði í dag.
Telur Arnþór að 15-16 skip hafi
verið á veiðum út af Langanesi í
gær. Sveinn Sveinbjörnsson, fiski-
fræðingur hjá Hafrannsóknastofn-
un, er leiðangursstjóri á Árna Frið-
rikssyni RE 200, sem var við
mælingar út af Langanesi í gær.
„Við erum að hefja mælingar og
erum ekki komnir með nægilegt
magn upplýsinga til þess að segja
til um hversu mikið magn loðnu er
um að ræða,“ segir Sveinn.
Hann segir menn hafa vitað af
loðnunni eilítið vestar um hríð en
hún hafi legið of djúpt fyrir nótina.
Eftir að hún hafi komið austar hafi
veiðar hafist. Mælingar munu halda
áfram næstu daga. Að sögn Sveins
er notast við bergmálsmælingar.
vidar@mbl.is
Loðnan út af Langanesi
15-16 skip á loðnu-
veiðum í gær, að
sögn skipstjóra
Ljósmynd/Börkur Kjartansson
Loðinn um lófana Sævar Jónsson kampakátur með fyrstu loðnuna um borð
í Lundey NS í gær, og að baki honum er Guðmundur Vilhjálmsson.
„Við vissum ekki betur en umsóknin
okkar um lyfið væri í kerfinu en
ekki týnd,“ segir Guðmundur Skúli
Halldórsson, tæplega þrítugur
Borgnesingur. Hann og bróðir hans
greindust nýverið með svonefndan
Fabry-sjúkdóm, sama sjúkdóm og
dró móður þeirra til dauða í desem-
ber sl. Fleiri í ættinni hafa greinst
með sjúkdóminn.
Bræðurnir stóðu í þeirri meiningu
að umsókn þeirra um lyf til að halda
sjúkdómnum niðri hefði verið tekin
fyrir á samráðsfundi lyfjanefndar
og Sjúkratrygginga Íslands, 20.
desember sl. Sú varð ekki raunin.
„Aðstoðarmaður Guðbjarts lofaði
mér því að hann skyldi athuga á
morgun [í dag], hvar umsóknin
hefði stoppað. Hann sagði einnig að
stefnt yrði að því að koma á fundi
þessarar nefndar sem tekur ákvörð-
un um að veita okkur lyfin,“ segir
Guðmundur vongóður en hann hef-
ur bloggað um stöðu mála á vefsíð-
unni skuli.blog.is.
thorunn@mbl.is
Umsókn
um lyf týnd
í kerfinu
Bíða lyfja við
Fabry-sjúkdómi