Morgunblaðið - 07.01.2013, Blaðsíða 26
Hjónin Eitt af fyrstu verkunum sem Sossa málaði á námsárunum í Boston.
þekkt þau vel þá lagðist hún yfir þau
aftur og varð margs vísari. „Ég
ákvað að rifja þau öll upp aftur bæði
á frummálinu og í íslenskri þýðingu
og las og endursagði fyrir barna-
börnin. Ég komst að því að mörg æv-
intýranna enda svo illa og mér fannst
það ekki gott. Ég ákvað því að ein-
blína á ævintýrin sem enda vel.“ Ein-
fætti tindátinn stendur keikur í
bréfabátnum á mynd Sossu , Þum-
alína hefur fangað fiðrildið með mitt-
isbandi sínu og prinsessan sefur
vært á bauninni. Næturdrottningin
er einnig komin á striga og í huga
Sossa brjótast ævintýrin um Óla
lokbrá, Eldfærin og Smalastúlkuna
og sótarann. „Ég vil að verkin passi
vel saman svo að ég geri jafnvel fleiri
en eina útgáfu og vel svo.“ Þannig
fékk fyrsta túlkun á Þumalínu að
víkja fyrir annarri og hana hefur
Sossa parað við tindátann. „Mér
ina. Á undanförnum árum hefur hún
haft húsnæði undir vinnustofu á
besta stað í miðbænum og er einn af
listamönnunum í Galleri Sct. Gert-
rud, sem rekið er af Kurt Svendsen.
Blaðamaður spyr Sossu hvort Danir
séu hrifnir af henni? „Já, þeir eru
það. Ég heyri það að mörgum líkar
vel að verkin mín eru öðruvísi og ég
veit um Dani sem safna verkum eftir
mig.“ Meðal kaupenda í Danmörku
er listaverkasjóður stórfyrirtækisins
Mærsk og forsagan þar leiddi til
þessa verkefnis sem Sossa vinnur nú
fyrir fyrirtækið. „Þannig er að í ár
eru 100 ár liðin frá fæðingu fyrrver-
andi eiganda fyrirtækisins, Mærsk
Mc-Kinney Møller, sem lést í hárri
elli í fyrra. Það var ákveðið að halda
upp á þessi tímamót og þetta varð
niðurstaðan. Þeir höfðu samband við
Kurt og ég var beðin um að mála 6
myndir innblásnar af ævintýrum
H.C. Andersen. Ævintýrin áttu að
vera þekkjanleg út frá verkunum en
valið á ævintýrunum og útfærsla
verkanna var að öðru leyti algjörlega
frjáls. Myndirnar verða hengdar upp
í höfuðstöðvum fyrirtækisins nú í
janúarlok,“ sagði Sossa.
Einblínir á ævintýrin
sem enda vel
Heiðurinn er mikill og hugmyndin
er skemmtileg. Ævintýri Andersen
eru Íslendingum vel kunn og hafa
verið lesin áratugum saman af bæði
börnum og fullorðnum. Þó Sossa hafi
VIÐTAL
Svanhildur Eiríksdóttir
svei@simnet.is
Ævintýri H.C. Andersen lifna við á
striganum hjá myndlistarkonunni
Sossu. Á vinnustofu hennar í Reykja-
nesbæ má m.a. sjá einfætta tindát-
ann, næturdrottninguna og prinsess-
una á bauninni. Forsvarsmenn
danska skipafyrirtækisins Mærsk
komu að máli við Sossu á síðasta ári
og báðu hana að mála 6 myndir úr
verkum ævintýraskáldsins góða til
að skreyta höfuðstöðvarnar með.
Margrét Soffía Björnsdóttir er
aldrei kölluð annað en Sossa og hefur
hún haft það gælunafn síðan hún var
lítil stúlka enda auðvelt að stytta
Soffíu í Sossu. Fyrstu árin eftir
Myndlistar- og handíðaskólann vildi
hún þó aldrei merkja myndirnar sín-
ar með gælunafninu, taldi fólk halda
að hún væri að búa sér til lista-
mannsnafn og henni fannst það ekki
smart. Hún fékk líka að heyra það
hjá dönskum listaverkasafnara, sem
sýndi henni safnið eftir að hafa keypt
af henni fyrstu myndina, að hann
ætti mynd eftir einhverja Margréti,
sem hann vissi ekkert hver væri. Stíll
Sossu hefur líka tekið nokkrum
breytingum á listamannsferlinum,
sem nú spannar bráðum 30 ár.
Sossa nam svartlist í Kaupmanna-
höfn snemma á níunda áratugnum og
hefur alla tíð haldið tryggð við borg-
finnst ævintýrið um tindátann stað-
fasta vera það fallegasta og ég held
að ég geti sagt að það sé mitt uppá-
haldsævintýri. Það er af því að end-
irinn er svo fallegur. Tinhjartað er
það eina sem finnst í öskustónni eftir
að tindátinn og dansmærin hafa
brunnið til ösku. Kærleikurinn sigr-
aði.“ Sossa tekur jafnframt fram
hversu ánægjulegt það hafi verið að
rifja sögurnar upp, þær séu svo mikl-
ar dæmisögur og af þeim megi draga
ýmsan lærdóm.
Verkefnið fyrir Mærsk er þó ekki
það eina sem Sossa er að vinna að
þessa stundina, því framundan er
listamessa í Herning á Jótlandi, sam-
sýning á Jótlandi og með færeyskri
vinkonu í Færeyjum með vorinu, Art
Copenhagen í haust og síðan auðvit-
að hjá Kurt. Sossa segir ekki koma
að sök þó hver viðburðurinn reki
annan „Þannig er að þegar ég dvel á
vinnustofunni minni í Kaupmanna-
höfn mála ég mjög mikið. Þar er ekk-
ert áreiti og ég mála jafnvel í náttföt-
unum ef andinn kemur yfir mig. Svo
er ég nýlega búin að halda jólaboð
hér á vinnustofunni minni og á nokk-
ur verk eftir það. Annars er ég alltaf
mjög vinnusöm og tek mér sjaldan
frí, hvorki um helgar né á sumrin.
Ákveðin rútína hentar mér vel og ég
held mig við hana.“ Viðtalið fer fram
á vinnustofu Sossu í Reykjanesbæ og
úr viðtækinu hljómar útvarpssagan á
Rás 1. Blaðamann rennir grun í að
það sé ekki tilviljun að útvarpið sé
opið og spyr Sossu hvort hún viðhafi
ákveðnar venjur þegar hún er að
mála. „Já, ég þarf alltaf að hlusta.
Það er oft mjög einmanalegt að vera
listmálari og þess vegna finnst mér
gott að hafa félagsskap frá útvarpinu
eða úr tónlist. Það fer alveg eftir því í
hvernig skapi ég er hvað ég hlusta á.
Listakonan Sossa við fjögur af fullkláruðum verkum úr ævintýrum H.C. Andersen.
Sossa málar ævintýri H.C. Ander
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2013
- merkt framleiðsla
yfir 30 ára reynsla á Íslandi•
hurðir úr áli — engin ryðmyndun•
hámarks einangrun•
styrkur, gæði og ending — langur líftími•
háþróuð tækni og meira öryggi•
möguleiki á ryðfríri útfærslu•
lægri kostnaður þegar fram líða stundir•
Sveigjanlegar lausnir og fjölbreytilegt útlit hentar
mismunandi tegundum bygginga.
IÐNAÐAR- OG
BÍLSKÚRSHURÐIR
idex.is - sími: 412 1700
Byggðu til framtíðar
með hurðum frá Idex
Iðnaðar- og bílskúrshurðir úr áli