Morgunblaðið - 07.01.2013, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Skilaboð sem þér berast kunna að
reynast áhrifamikil ef þú ákveður að fara eftir
þeim. Gefðu þér því góðan tíma.
20. apríl - 20. maí
Naut Hamingjan bíður þín á næsta leiti en þú
þarft að sýna dirfsku, en um leið þolinmæði
til þess að finna hana. Trúðu á sjálfan þig og
hlustaðu ekki um of á aðra.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ef útlitið virðist of gott til þess að
vera satt er alltaf eitthvað hæft í því. Kannski
áttu möguleika á því að vinna keppni eða
heyrir af því að fólk er að tala vel um þig.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert fróðleiksþyrstur og skalt gefa
þér tíma til að kynnast menningu ólíkra
heima. Þú ættir að láta eftir þér að leita hug-
svölunar í góðri bók, kvikmynd eða tónlist.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur mikla þörf fyrir að flýja raun-
veruleikann. Vertu ekkert að hafa áhyggjur af
því og haltu áfram með lífið. Nú er ekki rétti
tíminn til að standa í orðræðum á vinnustað.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Hafðu sanngirnina að leiðarljósi, þeg-
ar þú ferð fyrir vinnufélögum þínum. Að sama
skapi skaltu vera varkár þegar kemur að fjár-
hagslegum smáátriðum og viðskiptasamn-
ingum um þessar mundir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert til í að leggja sitthvað á þig til
þess að koma umbótum og breytingum til
leiðar í vinnunni. Fáðu leyfi áður en lengra er
haldið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert afar þrautseig/ur, það er
bæði blessun og bölvun. Farðu á þínar uppá-
haldsslóðir og finndu þann frið og þá ró sem
endurnýja þig til frekari athafna.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur sambönd í nánast öllum
stéttum þjóðfélagsins. Mundu að sá er vinur,
sem í raun reynist og hann/hún er bara ekki
eitthvað sem hægt er að tína af trjánum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þótt erfiðleikar skjóti upp kollinum
hér og þar eru þeir bara til að sigrast á og þú
hefur gaman af þeirri glímu. Ekki láta þau
reka á reiðanum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú átt erfitt með að gera það upp
við þig hvort þú eigir að setja sjálfa/n þig eða
aðra í forgang í dag. Það er óvenjumikil við-
kvæmni í loftinu í dag og því hætt við deilum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það getur verið erfitt að hafa augað
stöðugt á framtíðinni en mundu að störf þín í
dag leggja grunninn að morgundeginum.
Draumórar og dagdraumar taka völdin.
Ég hitti karlinn á Laugaveginumeftir messu í Dómkirkjunni,
óskaði honum gleðilegs árs og
þakkaði fyrir það gamla. Hann lét
vel yfir sér og þegar ég spurði um
heilsuna svaraði hann:
Af heilsu sterkri ég státað get
þótt stirðni fótur og gráni hárið.
Varlega tek ég fet fyrir fet
mín fyrstu skref inn í nýja árið,
og þagði við eins og til að leggja
áherslu á síðustu orðin. Spurði síð-
an hvort ég hefði séð kryddsíldina á
gamlársdag. „Nei, ég var í afmæli
dótturdóttur minnar,“ svaraði ég.
„Jóhanna var á sömu nótum og vant
er og talaði illa um íhaldið,“ sagði
hann þá og brosti skrítilega þegar
hann bætti við: „En þið voruð sam-
an í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar,
þeirri fyrstu sem innleiddi frjáls-
hyggjuna, var það ekki? Og fór vel
á með ykkur í íhaldinu og henni,
sérstaklega Davíð og henni, ef ég
man rétt!“
Vondlega henni varð svo meint
af vinstri þæfingu.
að ætti að fara, – en er of seint, –
í endurhæfingu.
Þorvaldur Thoroddsen fór um
Snæfellsnes sumarið 1890 og komst
svo að orði að yfir hin eyðilegu
hraun mæna Lóndrangar eins og
stórkostleg bygging með risavöxn-
um turnum, það er satt sem stendur
í hinni alkunnu vísu:
Um Lóndranga yrkja má
eru þeir Snæfells prýði
yst á tanga út við sjá
aldan stranga lemur þá.
Þorvaldur segir, að í dröngunum
sé fugl og geti menn gengið upp á
hinn stærri, – „í hann hafa ein-
hvern tíma til forna verið reknir
járnfleinar í móbergið, krækja
menn á þá kaðli og handstyrkja sig
upp. Á vestari dranginn er ekki
hægt að komast upp, því ekki er
hægt að reka þar nagla í bergið, þó
er það í munnmælum að maður hafi
komist þar upp og hlaðið þar
vörðu, en síðan hefur enginn kom-
ist þangað eins og segir í gamalli
vísu:
Enginn þorir upp á drang
að yngja upp hruninn vörðu bing,
gengið er þeim frægð í fang
sem fingrar við þá spásseríng.“
Það er fallegt undir Jökli. Stein-
grímur Thorsteinsson orti:
Grundin vallar glitruð hlær,
glóir á hjalla og rinda;
sólarhalla blíður blær
blæs á fjallatinda.
Látum skotið fari á flot
á fagran græði,
vindur lotinn varpar mæði,
varla er brot á Ránar klæði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af Lóndranga og spássering
Í klípu
„ÉG ER FYLGJANDI NÁTTÚRULEGUM
FÆÐINGUM, AÐ HJÁLPA BARNINU BLÍÐ-
LEGA Í HEIMINN. EF ÞAÐ KLIKKAR NOTA
ÉG GJARNAN OFBELDI OG HÓTANIR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG ER SVO VONDUR MÁLARI AÐ ÉG FÉKK
RÍKISSTYRK TIL AÐ HÆTTA AÐ MÁLA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... hlý og notaleg.
„HÚN SVEIFLAÐI SPROT-
ANUM SÍNUM OG FLAUG
UPP ÚR MÚSAHOLUNNI...“
„OG BEINT UPP Í GINIÐ Á
GLORSOLTNUM KETTI.“
„MÝSNAR FÖGNUÐU ÞEGAR
OSTAÁLFADÍSIN KVADDI...“
NEEEEEEI!!!
HVAÐ DREKKUR ÞÚ
MARGA BJÓRA Á
DAG?
TJA, SVONA
TVO EÐA
ÞRJÁ.
ÉG SKIL. HÉR VIRÐIST
VERA UM TÚLKUNARATRIÐI
AÐ RÆÐA.
Í vina- og kunningjahópi Víkverjaeru meðal annars nokkrir ein-
staklingar sem hafa mikið dálæti á
loftstokkalímbandi (e. duct tape).
Telja það jafnvel geta komið í stað-
inn fyrir flest önnur verkfæri ef
eitthvað bjátar á fjarri manna-
byggðum.
Einu sinni var Víkverja sýnt
flæðirit sem sýndi að vandamál
gætu verið tvenns konar, ann-
aðhvort væri eitthvað að hreyfast
sem ætti ekki að hreyfast eða að
eitthvað hreyfðist ekki sem ætti að
hreyfast. Lausnin við fyrra vanda-
málinu væri loftstokkalímband, en
við því seinna undraefnið WD 40.
x x x
Fréttir síðustu viku voru af ýmsumtoga. Olíuleit er formlega hafin í
íslenskri lögsögu, barátta einnar
konu við facebook skilaði loks
árangri og annarri var bannað að
heita það sem hún heitir. Og svo var
það flugdólgurinn.
x x x
Reyndar voru tvær flugdólga-fréttir, en sökudólgarnir í ann-
arri þeirra voru kallaðir kven-
dólgar, ekki flugdólgar. Sem Vík-
verji skilur ekki alveg. Láti karl
dólgslega í flugvél er það umhverfið
sem skiptir máli, en geri konur það
er fréttapunkturinn fólginn í kyni
þeirra. Dálítið eins og kalla helming
Íslendinga kven-Íslendinga.
x x x
Í tilfelli flugdólgsins sem var umborð í íslenskri flugvél var við-
komandi svo ölvaður að við komuna
til New York þurfti að flytja hann á
sjúkrahús. Áður hafði hann slegið til
annarra í flugvélinni, hrækt á þá og
tekið einn hálstaki. Þegar hér var
komið sögu aðstoðuðu farþegarnir
áhöfnina við að yfirbuga manninn
og fjötra með límbandi við flugsæti.
Fyrrnefnt flæðirit virðist því hafa
sannað sig. Ef eitthvað hreyfist, en
á ekki að hreyfast, skal nota lím-
band.
x x x
Eðlilegt næsta skref væri kannskiað reyna að finna leið til að nota
WD 40 á mannanafnanefnd, því hún
er sannarlega óhagganleg!
víkverji@mbl.is
Víkverji
Allt megna ég fyrir hjálp hans sem mig
styrkan gerir. (Filippíbréfið 4:13)
Ertu þreytt
á að vera
þreytt?
Nánar á heilsa.is
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum