Morgunblaðið - 07.01.2013, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2013
Árin segja sitt1979-2012
BISTRO
Laugarásvegi 1 | 104 Reykjavík | Sími: 553 1620 | laugaas.is
750 listamenn taka þátt í árlegri listahátíð í Sydney
AFP
Hafið eitt gríðarstórt baðkar?
Gul gúmmíönd í ofurstærð beið þess á laugardag að
vera fleytt inn í Darling-höfn í Sydney í Ástralíu til
að marka upphaf árlegrar listahátíðar borgarinnar.
Öndin er verk hollenska listamannsins Florentijns
Hofmans en hann er einn af þeim 750 listamönnum
frá 17 þjóðlöndum sem taka þátt í hátíðinni.
Forseti Sýrlands, Bashar al-Assad,
sagði í ávarpi í gær að átökin í land-
inu væru ekki á milli ríkisstjórnar-
innar og stjórnarandstöðu, heldur á
milli þjóðarinnar og óvina hennar.
Hann kallaði andspyrnumenn þræla
Vesturveldanna og sagði erlenda
hryðjuverkamenn, sem styddust við
hugmyndafræði al-Kaída, standa
bakvið uppreisnina.
Assad lagði fram áætlun til að
binda enda á átökin og sagði fyrsta
skrefið að erlend ríki létu af stuðn-
ingi við þá sem vildu steypa honum
af stóli. „Strax í
kjölfarið munum
við láta af hernað-
araðgerðum,“
sagði hann en út-
listaði ekki
hvernig eftirliti
með slíku vopna-
hléi yrði háttað.
Þá sagði for-
setinn að stjórn-
völd myndu stofna til viðræðna við
andstæðinga sína og komast að sam-
komulagi sem síðan yrði sett í þjóð-
aratkvæði. Í kjölfarið yrði stofnað til
þingkosninga og ný ríkisstjórn
myndi taka við.
Talsmaður Sýrlenska þjóðarráðs-
ins sagði ljóst að Assad hygðist ekki
ganga að neinni málamiðlun sem fæli
í sér að hann léti af völdum og að
hann vildi sjálfur velja þá sem sætu
hinum megin við samningaborðið.
Utanríkisráðherra Bretlands,
William Hague, kallaði ræðu Assad
meira en hræsnisfulla. Hann sagði
dauðsföll, ofbeldi og kúgun í Sýr-
landi sköpunarverk forsetans og
sagði að enginn myndi láta blekkjast
af innantómum loforðum.
Guido Westerwelle, utanríkisráð-
herra Þýskalands, hvatti Assad til að
skipa öryggissveitum sínum að láta
af ofbeldinu frekar en að gefa óljósar
yfirlýsingar um vilja til vopnahlés.
Þá sagði talsmaður Catherine
Ashton, yfirmanns utanríkismála hjá
Evrópusambandinu, að sambandið
héldi fast í þá afstöðu að Assad yrði
að fara frá völdum og greiða leiðina
fyrir pólitískum valdaskiptum.
holmfridur@mbl.is
Kynnti eigin friðaráætlun
Lofar að hætta hernaðaraðgerðum láti erlend ríki af afskiptum sínum Segir
uppreisnarmenn þræla Vesturveldanna Hræsni, segir utanríkisráðherra Breta
Bashar al-Assad
Þúsundir bókatitla, sem hafa verið á
bannlista í Tyrklandi í áratugi, voru
síðastliðna helgi teknar af listanum.
Meðal þeirra voru Kommúnistaávarp
Karls Marx og Friedrichs Engels og
verk eftir Joseph Stalín og Vladimír
Lenín, auk teiknimyndasagna, heims-
atlass, skýrslu um ástand mannrétt-
indamála í Tyrklandi og ritgerðar um
Kúrda.
Forsaga málsins er sú að í júlí síð-
astliðnum samþykkti tyrkneska þingið
frumvarp sem kvað á um að allar
ákvarðanir sem teknar voru fyrir árið
2012 um að banna sölu og dreifingu á
útgefnu efni féllu úr gildi ef enginn
dómstóll staðfesti ákvörðunina innan
sex mánaða. Sá frestur rann út á laug-
ardag án þess að nokkur slíkur dómur
félli.
Formaður samtaka útgefenda í
Tyrklandi, Metin Celal Zeynioglu,
sagðist um helgina hafa heimildir fyrir
því frá dómsmálaráðuneyti landsins að
um allt að 23.000 titla væri að ræða,
þótt einhverjir þeirra hefðu reyndar
verið endurprentaðir og seldir í gegn-
um árin án þess að yfirvöld hefðu haft
af því afskipti.
Margir draga í efa að ákvörðun
þingsins um að aflétta ritskoðun af
þessu tagi endurspegli raunverulega
hugarfarsbreytingu og sagði Omer
Faruk, fyrrverandi framkvæmdastjóri
Ayrinti-útgáfufyrirtækisins, í samtali
við AFP að stjórnvöld myndu halda
áfram að gera eins og þeim sýndist.
Hann tók sem dæmi bókina Philo-
sophy in the Bedroom eftir Sade
markgreifa. Hæstiréttur hefði snúið
ákvörðun yfirvalda um að banna bók-
ina en hún væri engu að síður enn gerð
upptæk.
Þrátt fyrir að hafa sínar efasemdir
sagði Zeynioglu að aflétting bannsins
myndi þó hafa a.m.k. ein jákvæð áhrif.
„Mörgum þeirra námsmanna sem
handteknir eru í mótmælum er haldið í
fangelsum af því að þeir hafa undir
höndum ólöglegar bækur. Héðan í frá
munum við ekki geta notað það sem af-
sökun.“
Þúsundir titla
teknar af bannlista
AFP
Bækur Kommúnistaávarpið fæst nú
í bókaverslunum í Tyrklandi.
Efast um að
hugur fylgi verki
Evran knýr nú
fram gríðarmiklar
breytingar innan
Evrópu en til þess
að láta evrusam-
starfið ganga þarf
að koma til auk-
inn samruni evru-
ríkjanna. Þetta
sagði David
Cameron, for-
sætisráðherra Bretlands, í viðtali við
fjölmiðlamanninn Andrew Marr á
BBC í gær og hótaði því að beita neit-
unarvaldi gegn breytingum á Lissa-
bon-sáttmálanum ef Bretar fengju
ekki ákveðnar breytingar í gegn á
sama tíma.
„Þar sem þau þurfa að gera breyt-
ingar þýðir það að þau eru að breyta
eðli þeirra samtaka sem við til-
heyrum. Þess vegna eigum við full-
komlega rétt á því – og eigum ekki
bara rétt á því heldur er okkur það
kleift, af því að þau þurfa á breyting-
unum að halda – að biðja um breyt-
ingar okkur til handa,“ sagði Camer-
on meðal annars.
Forsætisráðherrann sagðist já-
kvæður í garð breytinga á sáttmál-
anum til að styrkja stöðu evrunnar
en sagði að það væri fullkomlega eðli-
legt að ef aðrir fengju breytingar í
gegn fengju Bretar það líka. „Við vilj-
um vera aðilar að Evrópusamband-
inu, sérstaklega hinum innri mark-
aði, en við myndum vilja gera
breytingar,“ sagði hann.
Cameron svaraði engu um það
hvaða breytingar væri um að ræða en
sagði að það væri ýmislegt sem Bret-
ar stæðu betur utan við. Þá staðhæfði
hann að önnur aðildarríki Evrópu-
sambandsins myndu láta undan kröf-
um Breta.
„Ég er ekki forlagatrúar. Fólk
sagði mér að það væri ómögulegt að
gera breytingar á sambandi okkar.
Ég tók við sem forsætisráðherra og
hef þegar áorkað því að koma okkur
út úr þeirri björgunarsveit sem síð-
asta ríkisstjórn valdi að taka þátt í.“
Hótar að
beita neit-
unarvaldi
David Cameron
Vill breytingar
til handa Bretum