Morgunblaðið - 07.01.2013, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.01.2013, Blaðsíða 23
vegum 2003, var sölu- og markaðs- stjóri við-burðardeildar hjá Fróða (síðan Birt-ingur) 2004-2006, var markaðs- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélags Íslands 2006- 2010 og byggði þá upp átakið Bleiku slaufuna og Mottu mars (Karlmenn og krabbamein) og hefur verið for- stöðumaður Markaðs-stofu Vest- fjarða 2010-2012. Gústaf hefur haft ýmis áhugamál um dagana: „Ég byrjaði í golfi árið 1993 þegar ég og félagi minn byggðum fyrsta golfvöllinn á Patreksfirði. Sá völlur er enn við lýði, var upphaflega sex holur en er nú níu holu völlur. Ég lék síðan golf í Reykjavík og vann bikar í 3 flokki hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Ég fór niður í 6,9 í for- gjöf en hætti í golfinu og snéri mér að flugveiði árið 2007. Nú hnýti ég eigin flugur, er með vídeóblogg um fluguveiði og þvælist um landið þvert og endilagt í veiðiferðum. Þá hef ég haft áhuga á skotveiði svo lengi sem ég man, reyni að kom- ast sem oftast í rjúpu og á gæsa- veiðar og að sjálfsögðu hreindýr. Ég veiði í raun allt sem er ætt og hef þess vegna engan áhuga á að skjóta tófu. Hins vegar drap ég einu sinni mink þegar ég var að spila golf í Leirunni. En það var hann sem byrjaði. Hann lét ófriðlega og steinlá fyrir níunni minni.“ Fljúgandi, fjarstýrð myndavél Einhver önnur áhugamál? „Ó já. Hann afi minn kom mér í kynni við fjarstýrð módel, s.s. flug- módel þegar ég var á unglingsárun- um og ég hef haft áhuga á slíkum fyrirbrigðum síðan. Ég segi ekki að ég hafi legið yfir flugmódelum alla tíð. En þessi áhugi blundar alltaf með mér. Stundum hafa það verið flugvélar og önnur loftför, stundum áhugi á fjarstýrðum bátum og nú hef ég ný lokið við að hanna átta hreyfla fjarstýrðan myndavélapall með FPV tækni sem gerir mér mögulegt að sjá það sem pallurinn „sér“. Þetta er afskaplega skemmti- legt áhugamál.“ Fjölskylda Eiginkona Gústafs er Sigrún Bragadóttir, f. 8.3. 1970, viðskipta- fræðingur við endurskoðunarskrif- stofu á Ísafirði. Hún er dóttir Braga Ragnarssonar vélstjóra og Maríu Haraldsdóttur, starfsmanns hjá ASÍ, en stjúpfaðir Sigrúnar er Sig- mundur Steinarsson, fyrrv. íþrótt- aritstjóri við Morgunblaðið. Börn Gústafs frá fyrra sambandi eru Hilmar Gústafsson, f. 21.4. 1994, nemi við Tækniskóla Íslands, og Soffía Gústafsdóttir, f. 15.1. 1997, nemi. Fóstursonur Gústafs og sonur Sigrúnar er Sigmundur Bragi Gúst- afsson, f. 11.9. 1996, nemi við MÍ. Börn Gústafs og Sigrúnar eru Gústaf Már Gústafsson, f. 4.2. 2005, og María Dís Gústafsdóttir, f. 21.12. 2006. Bræður Gústafs: Haraldur Gúst- afsson, f. 22.3. 1970, verkstjóri hjá Fjarðaráli á Reyðarfirði, og Ófeigur Gústafsson, f. 26.11. 1997, d. 6.10. 2012, var starfsmaður við Fjarðarál. Foreldrar Gústafs: Gústaf Gúst- afsson, f. 10.2. 1954, kennari og að- stoðarskólastjóri á Patreksfirði, og Rannveig Haraldsdóttir, f. 10.8. 1954, kennari á Patreksfirði. Úr frændgarði Gústafs Gúsafssonar Gústaf Gústafsson Sigrún Siguðardóttir húsfr. á Syðri-Grund Jón Þorsteinsson b. á Syðri-Grund í Svarfaðardal Sigríður Dagmar Jónsdóttir húsfr. í Rvík Haraldur Ágústsson húsasmíðam. í Rvík Rannveig Haraldsdóttir kennari á Patreksfirði Rannveig Einarsdóttir húsfr. í Þykkvabæ Ágúst Jónsson skáld og kennari í Þykkvabæ Soffía Jakobsdóttir húsfr. á Patreksfirði Helgi Einarsson rafstöðvarstj. á Patreksfirði Ásdís Helgadóttir húsfr. í Rvík Gústaf Ófeigsson leigubílstj. í Rvík Gústaf Gústafsson aðstoðarskólastj. á Patreksfirði Kristín Ó. Einarsdóttir húsfr. í Rvík Örn Gústafsson fyrrv. framvæmdastj. VÍS Einar Gústafsson símvirki hjá Gufunesradíói Dagmar Haraldsdóttir viðburðarstjóri Afmælisbarnið Gústaf Gústafsson. ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2013 Jón Sigurðsson fæddist í Stykk-ishólmi 7.1. 1912, sonur Sigurð-ar Ágústs Kristjánssonar, úr- smiðs á Ísafirði Vigfússonar, frá Öxney og Margrétar Oddfríðar Skúladóttur frá Fagurey á Breiða- firði. Jón ólst upp í Stykkishólmi og var átta sumur hjá ömmu sinni úti í Fagurey á Breiðafirði. Jón flutti ungur til Reykjavíkur og lenti þar í slagtogi með skáldum, slæpingjum og gáfumönnum af ýms- um toga. Hann varð ofdrykkjumaður og deildi þá kjörum með útigangs- mönnum sem þá voru nefndir rónar. En þrátt fyrir slarkið var Jón yf- irleitt fínn í tauinu og hvers manns hugljúfi, sökum gáfna sinna og ljúf- mannlegrar framkomu. Hann var auk þess prýðilegur hagyrðingur, ef ekki skáld. Lífshlaup Jóns einskorðast ekki við Hafnarstrætið. Það varð mun viðburðaríkara. Hann var alla tíð mjög trúaður maður, gekk í Hjálp- ræðisherinn og boðaði fagnaðar- boðskapinn á Lækjartorgi. Eftir það háðu Bakkus og Hjálpræðisherinn langvinnt einvígi um sál þessa dánu- manns. Jón gekk í herskóla Hjálpræðis- hersins í Englandi, lauk þaðan próf- um með miklum ágætum og gegndi síðan ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Herinn. Hann gekk einnig í breska herinn, þjónaði þar um skeið og gerð- ist síðan liðhlaupi sem var lífshættu- legt brot. Reyndar flæktist hann víða um heim og upplifði ótrúleg ævintýri eins og lesa má um í einni skemmti- legustu ævisögu sem skráð hefur verið á íslensku: Syndin er lævís og lipur, ævisaga Jóns, skráð af Jónasi Árnasyni og útg. fyrst 1962. Jón var góðvinur Steins Steinars sem orti um hann tvö þekkt kvæði: Þegar Jón Kristófer Sigurðsson lét úr höfn, stóð Herinn á bryggjunni og söng, en það kvæði birtist í ljóðabók- inni Spor í sandi, og Hjálpræðisher- inn biður fyrir þeim synduga manni Jóni Sigurðssyni fyrrverandi kadett, sem birtist í Ýmsum kvæðum. Jón varð áttræður, lést í Reykjavík 29.5. 1992. Merkir Íslendingar Jón kadett Sigurðsson 95 ára Magnús Jónsson 90 ára Jóhanna Arnmundsdóttir 85 ára Þóra Björgvinsdóttir 80 ára Erla Hrólfsdóttir Ingibjörg Sigurðardóttir Patricia Ann Jónsson 75 ára Elsa Finnsdóttir Erna Guðný Þórðardóttir Laufey Einarsdóttir 70 ára Bára Sigurbergsdóttir Elísabet Matthíasdóttir Erla Jóna Sigurðardóttir Hrefna Pétursdóttir Jón Kristinn Ríkarðsson Óðinn Geirsson 60 ára Einfríður Þ. Aðalsteinsdóttir Guðrún Kristófersdóttir Jakob Jónatan Möller Lárus Einarsson Stefán Hákonarson Steinþór Gunnarsson Trausti Kristjánsson 50 ára Ásgerður Baldursdóttir Ásmundur Bergmann Þórðarson Ásmundur Magnússon Brynja Jónsdóttir Daði Gils Þorsteinsson Ellert Jón Gunnsteinsson Hugrún Sigurðardóttir James I. Alexandersson Stefán Guðmundsson Óskarsson 40 ára Friðrik Þór Snæbjörnsson Guðjón Víglundur Helgason Halla Dís Hallfreðsdóttir Hanna Gréta Pálsdóttir Hilmar Páll Jóhannesson Jón Rafn Valdimarsson Prasit Tipmanee Sólveig Birna Gísladóttir 30 ára Alma Tryggvadóttir Atli Þór Gunnarsson Hulda María Newman Vilhelm Arnar Kristjánsson Þóra Dögg Júlíusdóttir Þórlaug Sæmundsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Tinna ólst upp á Ísafirði, lauk kennaraprófi frá Menntavísindasviði HÍ og er nú leikskólakennari við leikskólann Eyrarskjól á Ísafirði. Maki: Friðrik Hagalín Smárason, f. 1983, vél- stjórakennari við MÍ. Börn: Elvar Ragnarsson, f. 2006, og Helga Diljá Friðriksdóttir, f. 2011. Foreldrar: Arnór Magn- ússon, f. 1955, og Dagný Jónsdóttir, f. 1957. Tinna Arnórsdóttir 30 ára Helga ólst upp á Vopnafirði en er nú búsett á Egilsstöðum og starfar þar við leikskóla. Systkini: Svandís, f. 1965; Margrét, f. 1966; Hreiðar, f. 1970; Gunn- hildur Inga, f. 1979, og Guðrún Sigríður, f. 1981. Foreldrar: Geir Frið- björnsson, f. 1943, fyrrv. vörubílstjóri, og Laufey Leifsdóttir, f. 1944, hús- freyja sem starfaði við umönnun á Vopnafirði. Helga Kristjana Geirsdóttir 30 ára Hjálmar er búsett- ur í Kópavogi og stundar húsamálun. Maki: Hafdís Dögg Bragadóttir, f. 1988. Synir: Ernir Snær, f. 2005; Sigurgeir Máni, f. 2007 (stjúpsonur), og Örn Einar, f. 2011. Foreldrar: Guðrún B. Ein- arsdóttir, f. 1960, bókari, og Leifur Hjálmarsson, f. 1955, d. 1989. Stjúpfaðir er Þorsteinn Garðarsson, f. 1962, kerfisfræðingur. Hjálmar Örn Leifsson mbl.is/islendingar islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Skráðu bílinn þinn frítt inn á diesel.is Kletthálsi 15 · 110 Reykjavík · Sími: 578 5252 þegar þú ætlar að selja bílinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.