Morgunblaðið - 07.01.2013, Side 4
Dólgslæti Flugáhafnir þurfa ekki oft að takast á við
farþega sem láta ófriðlega en það kemur þó upp árlega.
Icelandair íhugar að leggja fram kæru á hendur mann-
inum sem þurfti að binda niður í vél félagsins á leið til New
York sl. fimmtudagskvöld. Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Icelandair, segir að í ljósi sérstakra aðstæðna
hafi verið ákveðið að bíða með frekari ákvarðanir í málinu
um helgina.
Maðurinn var lagður inn á sjúkrahús í Queens við kom-
una til New York. Hann var útskrifaður á laugardaginn og
er nú frjáls ferða sinna. Hann hefur verið nafngreindur í
erlendum miðlum, er með lögheimili á Barbadoseyjum.
Flogið með nýja áhöfn til New York
Þegar mál sem þetta koma upp er tekin skýrsla af áhöfn
flugvélarinnar. Venju samkvæmt þurfti að fljúga með
nýja áhöfn til New York með tilheyrandi kostnaði fyrir
flugfélagið. Guðjón var spurður hvort flugfélagið myndi
standa straum af þeim kostnaði: „Sá kostnaðarliður verð-
ur tekinn með í reikninginn þegar og ef kæra verður lögð
fram.“
Guðjón sagði að allt væri komið í fastar skorður hjá
flugfélaginu eftir atvikið, flug á áætlun og annað þess hátt-
ar. Hann sagði flugáhafnir ekki oft þurfa að takast á við
farþega sem létu ófriðlega en það kæmi þó upp um það bil
einu sinni á ári.
Mikið hefur verið fjallað um málið í erlendum fjölmiðl-
um og greinir The New York Post frá því í gær að ætt-
ingjar mannsins séu miður sín vegna hegðunar hans.
thorunn@mbl.is
Icelandair með til skoðun-
ar að leggja fram kæru
Flugdólgurinn útskrifaður
af spítala og frjáls ferða sinna
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2013
Skákþing Reykjavíkur hófst í gær í húsakynnum
Taflfélags Reykjavíkur, TR. Alls taka 64 þátt í
mótinu, sem stendur til 25. janúar og er jafnan
fjölmennasta félagsmótið á ári hverju. Skák-
þingið nefnist nú Kornax-mótið og tefldi Kjartan
Már Másson, fulltrúi Kornax, fyrsta leikinn í
skák Vignis Vatnars Stefánssonar gegn FIDE-
meistaranum og stigahæsta keppanda mótsins,
Davíð Kjartanssyni.
Fjölmennasta félagsmótið á hverju ári
Morgunblaðið/Kristinn
Skákþing Reykjavíkur hófst í gær í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Þetta er bæði sérhæfður mælibún-
aður fyrir rekstur álvera og eins ör-
yggisbúnaður,“ sagði Ingi Borgþór
Rútsson, yfirmaður sölu- og mark-
aðsmála hjá VHE, um búnað sem
fyrirtækið kynnti nýlega fyrir Hydro
Aluminium í Noregi. Búnaðurinn
mælir m.a. einangrunargildi raf-
kerfa kerskála með tilliti til öryggis.
„Það er mikill rafstraumur í ker-
skálum og mikilvægt að hann sé vel
einangraður svo ekki myndist hætta
á að starfsmenn fái í sig straum. Við
höfum þróað viðnámsmælibúnað
sem hefur verið notaður um tölu-
verðan tíma hjá Alcan í Straumsvík.
Menn eru að vakna til vitundar um
öryggismálin og mikilvægt að menn
geti ekki fengið straum þegar þeir
vinna við kerin,“ sagði Ingi.
VHE tók nýlega þátt í vörusýn-
ingum í Katar og í Düsseldorf varð-
andi tækni og búnað til álvera.
Nokkur samdráttur hefur verið í ál-
iðnaði í heiminum vegna markaðs-
aðstæðna.
„En við sjáum að þetta ár er mjög
mikið bókað og erum að vinna í að
auka söluna erlendis og vera komnir
á góðan skrið í árslok,“ sagði Ingi.
„Við ætlum að auka hlutdeild okkar
erlendis og vera komnir með styrk-
ari stöðu þar árið 2014. Við sjáum
þetta sem næsta vaxtarbrodd.“
Mikil aukning á Reyðarfirði
Höfuðstöðvar VHE eru í Hafnar-
firði en félagið rekur einnig stóra
starfsstöð á Reyðarfirði. Heildar-
fjöldi starfsmanna er um 340 manns
og eru þá dótturfélög ekki talin með.
Auk vélsmiðju er VHE með verk-
fræðideild, rafmagnsdeild, renni-
verkstæði og rafeindabúnaðardeild.
VHE er stærsta stoðfyrirtæki álver-
anna á Íslandi og líklega stærsti
birgir Alcoa í Evrópu fyrir utan hrá-
efnis-, kola- og raforkubirgja.
Starfsemin á Reyðarfirði jókst
mjög í fyrra þegar reglubundið við-
hald kera hjá Alcoa-Fjarðaáli hófst.
„Við erum að bæta þar við 50-70
starfsmönnum og heildarfjöldi
starfsmanna VHE á Reyðarfirði
verður 180-190 manns,“ sagði Ingi.
Meðan kerin voru ný þurfti ekkert
viðhald. Í framtíðinni verða þau tek-
in reglulega upp, hreinsuð og klædd
á ný að innan. Þá verður stálkápan
utan um kerin lagfærð eftir þörfum
og þeim komið í rekstur á ný.
VHE vinnur nú að smíði stórrar
vélasamstæðu í tengslum við stækk-
unina hjá Alcan í Straumsvík. Bún-
aðurinn sem tengist skautsmiðju ál-
versins verður settur upp í maí nk.
Vaxtarbroddur VHE ytra
VHE hefur náð góðum árangri með tæki sín og tækni erlendis Mikill vöxtur í
starfsemi VHE á Reyðarfirði Starfsmönnum VHE fjölgað um 50-70 fyrir austan
Ljósmynd/VHE
Kragavél VHE smíðaði tækið fyrir
álver Qatar Aluminium í Katar.
„Gömlu stjórn-
arflokkarnir hafa
hvorki endurnýj-
að sig né gert upp
við stefnu sína í
aðdraganda
hrunsins. Þeir eru
ekki valkostur í
mínum huga. Nú-
verandi stjórn-
arflokkar eru það
ekki heldur. Þeir
hafa sýnt yfirgengileg óheilindi í
stærsta málinu sem þeir börðust fyr-
ir; sjávarútvegsmálum. Sviðið blasti
svona við mér og því leit ég til nýja
framboðsins; Dögunar,“ segir Krist-
inn H. Gunnarsson, fv. þingmaður,
sem genginn er í stjórnmálasamtökin
Dögun. Hann hefur ekki tekið end-
anlega ákvörðun um hvort hann ætl-
ar í framboð fyrir alþingiskosning-
arnar í vor. Fyrsta skrefið sé að taka
þátt í málefnastarfi Dögunar, þá
einkum efnahags- og atvinnumálum.
„Það skiptir miklu máli um mína af-
stöðu hvernig þau lenda,“ segir Krist-
inn og bendir á að brýnasta málefni
þjóðarinnar sé fjárhagslegt sjálf-
stæði. Ef vel gengur segir hann ekki
loku fyrir það skotið að hann sækist
eftir að leiða listann í NV-kjördæmi.
Dögun yrði þá fjórði flokkurinn
sem Kristinn færi í framboð fyrir og
sjöunda skiptið sem hann byði sig
fram. Hann sat á Alþingi fyrst fyrir
Alþýðubandalagið, þá Framsókn-
arflokkinn og svo fyrir Frjálslynda
flokkinn. thorunn@mbl.is
Myndi
vilja leiða
lista í NV
Kristinn H.
Gunnarsson
Kristinn H.
Gunnarsson í Dögun
Umboðsmanni skuldara hefur verið
gert af úrskurðarnefnd um upplýs-
ingamál að afhenda Hagsmuna-
samtökum heimilanna fundargerðir
og önnur gögn samráðshóps fjár-
málafyrirtækjanna og Dróma ehf.
vegna gengislánadóms Hæstaréttar.
Samráðshópurinn lauk störfum í
júní á liðnu ári og óskuðu Hags-
munasamtök heimilanna í kjölfarið
eftir því við umboðsmann skuldara
að fá aðgang að fundargerðum og
öðrum gögnum samráðshópsins. Því
var hafnað og var sú ákvörðun kærð
til úrskurðarnefndar.
Ber að af-
henda gögn