Morgunblaðið - 07.01.2013, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 07.01.2013, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2013 Fyrir þá sem vilja og finnst gaman að fylgjast með því sem er að ger- ast í tískuheiminum er vert að kíkja á vefsíðuna www.theblush.com. Þar er að finna góð tískuráð, hug- myndir að flottum samsetningum fatnaðar og hárgreiðslu sem auðvelt er að gera sjálfur. Það er alltaf gaman að breyta dálítið til og þá sérstaklega í byrjun nýs árs. Þá er um að gera að vera dálítið hugaður og fá sér nýja klippingu eða prófa að ganga í skærbleikum lit af því að mann langar til þess. Inni á theblus- h.com má líka finna krækjur á aðrar skemmtilegar síður. Verum óhrædd við að ganga inn í nýtt tískuár og hafa gaman af því sem framundan er. Vefsíðan www.theblush.com Tískusíða Fréttir úr tískuheiminum, förðun og hár á www.blush.com. Fréttir úr tískuheiminum María Ólafsdóttir maria@mbl.is Þorleifur Geirsson, ætíð kall-aður Tolli, er fæddur oguppalinn í Borgarnesi.Tolli er áhugaljósmyndari og hefur síðastliðin ár tekið fjölda ljósmynda af Borgarnesi. Hann seg- ist helst heillast af gamla bænum þar sem hann tók fyrstu skrefin. En margar mynda hans sýna óvenju- legt sjónarhorn á helstu kennileiti bæjarins. Tolli hefur einsett sér að birta um 16 myndir á mánuði á þar- tilgerðri vefsíðu en hann gefur nú einnig út dagatal með myndum sín- um. Fylgjast með um víða veröld „Þetta byrjaði eiginlega bara óvart hjá mér. Ég á talsvert mikið af vinum erlendis og sérstaklega úti í Hollandi. Þeir hafa eingöngu kom- ið hérna á sumrin og ég ákvað því að taka götumynd að vetrarlagi og senda þeim því þau höfðu aldrei séð þá hliðina á Borgarnesi. Svo setti ég upp vefsíðu í sambandi við leiðsögu- starfið og bjó þá til um leið möppu í henni sem heitir Borgarnes today. Þannig var þetta allt í einu orðið að áhugamáli,“ segir Tolli, sem reynir að setja inn um 16 myndir á mánuði. „Það er mjög gaman að líta inn á teljarann á síðunni og sjá að fastar heimsóknir eru á hana frá IP-tölum í Japan, Hollandi, Bandaríkjunum og fleiri löndum. Fólk er því greini- lega að fylgjast með bænum okkar í gegnum þessa síðu,“ segir Tolli. Með myndavélina í vasanum Myndir Tolla eru flestar af hús- um bæjarins, götumyndir og nátt- Borgarnes frá nýju sjónarhorni Hafnarfjall, Borgarneskirkja og Brákarsundsbrú eru kennileiti sem fólk þekkir hvað best í Borgarnesi og nágrenni. Þorleifur Geirsson, Tolli, er áhugaljósmynd- ari, fæddur og uppalinn í Borgarnesi, og myndar hann bæinn frá skemmtilegu og oft nýstárlegu sjónarhorni. Tolli setur myndirnar á vefsíðu en gefur einnig út dagatal með myndum sem hafa verið vinsæl hjá brottfluttum Borgnesingum. Sumar Mynd tekin úr Englendingavík, Hafnarfjallið skartar fallegri lit. Vetrarlegt Sjórinn er heldur úfinn á þessari mynd og Hafnarfjallið grátt. Á þessum árstíma þegar myrkrið leggst ekki aðeins upp að fjöllum og húsum, eru margir sem berjast við myrkur í sálinni. Skammdegis- þunglyndi er eitt af því sem fólk finn- ur fyrir sem býr hér á Fróni. Sumir eru kannski bara svolítið daprir, en hvort heldur sem er, þá skiptir miklu máli við slíkar aðstæður að eiga góða að. Traustir vinir og fjölskylda sem hægt er að leita til í erfiðleikum eru dýrmæti. Að hafa einhvern til að tala við um það sem leitar á hugann getur skipt sköpum. Það léttir á fólki að tjá sig við þá sem treysta má fyrir leyndarmálum. Eflum vináttuna. Endilega… …styðjið vini ykkar Vinátta Hún er gulli betri. Nú þegar jólin og áramótin eru af- staðin með öllum sínum dásemdum, matarveislum og sætindaáti, er ekki úr vegi að huga eitthvað að því að hemja sig í átinu og ná jafnvel utan af sér einhverju af því sem bæst hefur á skrokkinn. Þá gæti verið gott að glugga í bók sem nýlega kom út hjá Veröld og heitir Sex kíló á sex vikum. Höfundar bókarinnar eru þau Ulrika Davidsson og Ola Lauritzson, en þau ku hafa áralanga reynslu af ráðgjöf á sviði heilsu og næringar. Í bókinni er áætlun fyrir 42 daga, 100 uppskriftir að heilsusamlegum réttum og ábend- ingar. Útgangspunkturinn er sá að fólk þurfi ekki stöðugt að vera að telja hitaeiningar eða sleppa úr máltíðum. Kannski fjúka sex kíló á sex vikum Uppskriftir frá degi til dags Meinholl máltíð Tómata- og mozzarellasalat er létt og ljúffengt. Kvöldmatur Girnilegt laxaflak með fetaostsfyllingu og granatepli. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Veitingastaður / verslun Nethylur 2 • 110 Reykjavík • Sími: 587 2882 • galleryfiskur.is Full búð af spriklandi nýjum fiski alla daga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.