Morgunblaðið - 07.01.2013, Qupperneq 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2013
✝ Guðlaug Mar-teinsdóttir
(Lóló) fæddist í
Reykjavík 31. októ-
ber 1931. Hún lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 17. desem-
ber 2012.
Guðlaug var
dóttir hjónanna
Marteins Halldórs-
sonar bifreiða-
stjóra, f. 24.11.
1898, d. 28.6. 1963, og Katrínar
Hólmfríðar Jónasdóttur, hús-
móður, f. 7.2. 1904, d. 4.6. 1987.
Systkini Guðlaugar eru: Matt-
hildur (Stella) Marteinsdóttir, f.
13.4. 1930, d. 25.10. 2012, maki
Árni Ólafsson, f. 25.8. 1930, d.
2.2. 2003. Þau skildu. Halldór
Marteinsson, f. 29.10. 1932, maki
Anna K. Aradóttir, f. 19.4. 1932,
Jónas H. Marteinsson, f. 15.10.
1947, maki Björg B. Marísdóttir,
f. 17.6. 1948.
Guðlaug giftist 27.10. 1951 Jó-
hanni Braga Eyjólfssyni raf-
virkja og bifreiðastjóra, f. 20.11.
1930, d. 18.6. 1977. Börn Guð-
laugar og Jóhanns Braga eru 1)
Katrín Margrét ljósmóðir, f.
14.8. 1949, gift Oddi Fjalldal
1972, maki Stefán Már Magn-
ússon, f. 28.7. 1971. Börn þeirra
eru: Kolbeinn Daði, f. 2003 og Ís-
old Elsa, f. 2012. 3) Stella ritari,
f. 26.8. 1958, maki Michael
George Whalley framkv.stjóri, f.
29.11. 1953, börn þeirra eru:
Katrín Georgina, f. 31.1. 1980 í
sambúð með Tómasi Skúlasyni,
f. 1.4. 1977, börn þeirra eru:
Benjamín Daniel, f. 2005 og
Tómas Jóhann, f. 2010. Christine
Linda, f. 16.4. 1981, maki Lefter-
is Voulgarakis, f. 10.8. 1972,
börn þeirra eru: Yiannis, f. 2002
og Michail, f. 2005. Michael
Bragi, f. 14.6. 1983, í sambúð
með Úrsúlu Lindu Jónasdóttur,
f. 26.6. 1982, hennar barn er
Guðrún Elín, f. 2001. 4) Þórir
Valgarð vinnslustj., f. 28.5. 1961,
í sambúð með Hönnu Rúnu
Harðardóttur launafulltrúa, f.
3.9. 1969, börn þeirra eru: Tóm-
as Orri, f. 2004 og Hörður Már, f.
2006. Eftirlifandi sambýlis-
maður Guðlaugar er Gísli Ferd-
inandsson, f. 13.10. 1927.
Guðlaug lauk námi frá
Kvennaskólanum, starfaði síðan
við verslunarstöf. Eftir að hún
lauk námi sem sjúkraliði 1978
starfaði hún á Landspítalanum
Hátúni og í Fossvogi. Þá starfaði
hún um árabil við heilsugæsluna
í Árbæ við heimahjúkrun þar til
hún fór á eftirlaun.
Útför Guðlaugar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 7. janúar
2013, kl. 13.
lækni, f. 5.8. 1950.
Börn þeirra eru: Jó-
hann Bragi, f. 25.4.
1974, maki Krist-
jana Sigurbjörns-
dóttir, f. 10.8. 1974,
börn þeirra eru:
Freyja María, f.
2007, Katrín Mar-
grét og Sigurbjörn
Kári, f. 2011. Sig-
ríður Bára, f. 16.9.
1978, maki Sig-
urður Hlíðdal, f. 31.12. 1977,
börn þeirra eru: Oddur Hrann-
ar, f. 2008 og Örn Þór, f. 2012.
Halldór, f. 30.7. 1979, í sambúð
með Oddnýju Björgvinsdóttur, f.
14.7. 1984. 2) Eyjólfur Einar
arkitekt, f. 19.2. 1953, maki
Kristín Kristmundsdóttir fé-
lagsráðgjafi, f. 22.5. 1954. Börn
þeirra eru: Pétur Örn, f. 12.2.
1980, í sambúð með Elínu Ösp
Gísladóttur, f. 9.4. 1982. börn
þeirra eru: Grímur Nói, f. 2008
og Lóa Björk, f. 2010. Elísabet
Björt, f. 19.6. 1986, í sambúð
með Jónasi Inga Jónassyni, f.
9.4. 1983. Börn þeirra eru: Ísa-
bella Fanney, f. 2008 og Hjördís
Saga, f. 2012. Fyrir átti Eyjólfur
dótturina Eddu Björgu, f. 14.7.
Hlýleiki, nægjusemi og réttlæt-
iskennd er það fyrsta sem mér
dettur í hug þegar ég hugsa til
tengdamóður minnar Guðlaugar
Marteinsdóttur. Þá eiginleika
hafði hún greinilega fengið með
sér úr foreldrahúsum og bar þá
áfram í ríkum mæli. Matthildur
systir Guðlaugar kvaddi þennan
heim fyrir aðeins 2 mánuðum síð-
an. Þær voru á svipuðum aldri og
mjög samrýmdar. Það má segja
að þær hafi farið saman.
Guðlaug eða Lóló var glæsileg
kona. Ung giftist hún Jóhanni
Braga Eyjólfssyni og eignaðist
með honum 4 börn. Oft var þröngt
í búi á þessum árum, barist við að
koma þaki yfir höfuðið og lífsbar-
áttan almennt hörð fyrir stóra
fjölskyldu. Ský dró fyrir sólu árið
1977 þegar Bragi lést aðeins 46
ára gamall eftir erfið veikindi. Þá
reyndi mikið á Lóló og fjölskyld-
una og þar kom styrkur hennar
vel fram. Þegar komið var yfir erf-
iðasta hjallann dreif hún sig á
miðjum aldri í sjúkraliðanám og
átti eftir það langa starfsævi á
Borgarspítalanum þar sem hún
átti marga vini sem héldu sam-
bandi við hana löngu eftir að hún
hætti störfum.
Ég tengdist Lóló fyrir rúmlega
40 árum síðan þegar ég kynntist
Katrínu dóttur hennar og var hún
eftir það bundin okkur og síðar
börnum okkar sterkum böndum.
Sína góðu eiginleika innprent-
aði hún börnum sínum og barna-
börnum. Hún var vel gefin og
hafði sterka réttlætiskennd. Hún
kynntist aldrei veraldlegu ríki-
dæmi og fannst ávallt lítið til þess
koma. Þeir sem minna máttu sín
voru henni ofar í huga. Hún var
einstaklega skapgóð, glaður og
hlýlegur persónuleiki sem var sér-
staklega lagin við að sjá jákvæðu
hliðarnar þótt í móti blési. Það var
margt hægt að læra af henni
ömmu Lóló. Hún var ung í anda
og alltaf tilbúin að prófa eitthvað
nýtt. Um tíma rak hún gistiþjón-
ustu fyrir ferðamenn og svaf sjálf
á eldhúsgólfinu ef þess þurfti.
Litlar sögur fóru af gróðanum
enda Lóló þjótandi um allan bæ
við að aðstoða túristana langt um-
fram það sem samið var um. Já
amma Lóló var bæði heimsborg-
ari og hippi, eignaðist alls staðar
vini og var stóra barnahópnum
sínum bæði amma, vinur og félagi.
Allir í stórfjölskyldunni tengdust í
gegnum hana. Hjá henni urðu allir
eins og heima hjá sér um leið og
þeir komu inn fyrir dyrnar. Það
var oft kátt á hjalla í Rauðalækn-
um.
Síðustu árin rugluðu Lóló og
Gísli Ferdínandsson saman reyt-
um sínum. Það var gott samband.
Gísli hefur verið mikill vinur okk-
ar allra og félagi gegnum árin.
Börnin og barnabörnin eiga þar
aukaafa sem öllum þykir mjög
vænt um.
Falleg minning lifir áfram með
okkur um ástríka ömmu Lóló sem
ekki þekkti nein kynslóðabil, hafði
svo mikil áhrif á líf okkar og
kenndi okkur óafvitandi svo
margt gott. Blessuð sé minning
hennar.
Oddur Fjalldal.
Elsku Lóló mín, ég þakka þér
af öllu hjarta þau 11 ár sem ég var
tengdadóttir þín. Alltaf sýndir þú
mér elsku, vináttu og væntum-
þykju. Strákarnir okkar fengu þá
dýrmætu gjöf að eiga þig fyrir
ömmu. Einnig var yndislegt að
fylgjast með hversu fallegt og gott
samband var á milli þín og Þóris
míns. Þú sýndir reyndar öllum í
fjölskyldunni mikla ást og um-
hyggju, varst alveg einstök. Ég
lofa að gæta strákanna okkar og
kyssa þá frá þér.
Þín tengdadóttir,
Hanna Rúna.
Elsku amma Lóló
Við vorum ekkert smá heppnir
að eiga þig fyrir ömmu. Alltaf að
knúsa okkur og fá að vita hvað við
vorum að gera í skólanum eða á
fótboltaæfingu. Stundum varstu
búin að safna í baukana okkar og
oft fengum við ís þegar við komum
í heimsókn. Söknum þín, elsku
besta amma.
Þínir ömmustrákar
Tómas Orri og Hörður Már.
Elsku amma Lóló, það er svo
skrýtið að þú skulir ekki lengur
vera hjá okkur. Þú gafst okkur
svo margar góðar minningar sem
við munum ávallt geyma. Minn-
ingar frá Rauðalæknum þar sem
við barnabörnin lékum okkur
saman, komum inn rjóð í kinnum
og stálumst stundum með puttana
í sykur- og hveitiskúffurnar í eld-
húsinu. Við fengum Cheerios í
skál og Svala sem var ekki til í
Danmörku og svo fengum við að
kaupa boltaís í búðinni á Brekku-
læknum. Fjölskyldumótin í sum-
arbústaðinum eru eftirminnileg
og þegar þú passaðir okkur heima
í Bakkaseli og eldaðir alltaf kjöt-
súpu þegar pabbi og mamma
komu heim frá útlöndum. Það var
líka svo gott að koma í heimsókn
til þín og Gísla í Löngumýrina og
fá plokkfiskinn þinn góða. Það var
alltaf svo mikil hlýja í kringum þig
og gott að vera hjá þér.
Þú varst engin venjuleg amma
því okkur fannst þú aldrei vera
gömul. Þú keyrðir lengi um á
bleiklituðum Polo og áttir það til
að hlusta á Rottweiler rappa, þess
vegna kölluðum við þig stundum
ömmu polo og ömmu rapp. Þú
varst nefnilega flottasta amma
sem maður gat hugsað sér. Síðan
má ekki gleyma hversu góð þú
varst við alla sem þú hugsaðir um í
starfi þínu sem sjúkraliði, það vita
allir sem þig þekkja hversu dug-
leg þú varst að prjóna lopapeysur
á okkur öll. Færri vita að þú varst
mikil vinkona gamla fólksins sem
þú hugsaðir um í heimavitjunum
og áttir það til að prjóna hlýja
sokka á þá sem voru einstæðingar
og færa þeim heim. Þegar maður
las bókina um Súperömmuna fyrir
Odd Hrannar í fyrsta sinn hugsaði
maður ósjálfrátt til þín, þú varst
nefnilega dálítil súperamma.
Amman sem hugsaði um allar hin-
ar ömmurnar og afana, og var
aldrei gömul sjálf.
Núna ertu komin á góðan stað,
þú og Stella frænka eru fallegustu
stjörnurnar á himninum. Hún
Sigga þín og hann Dóri þinn eiga
eftir að sakna þín mikið. Sofðu
rótt, elsku amma.
Sigríður Bára og Halldór.
Elsku amma Lóló,
Það er erfitt að venjast því að
þú sért raunverulega farin frá
okkur. Þú skilur eftir þig skarð
sem aldrei verður fyllt vegna þess
að þú varst alveg einstök mann-
eskja. Svo sterk, svo falleg, svo já-
kvæð, svo skilningsrík og svo full
af einlægri ást og umhyggju.
Þótt sorgin sé mikil og miss-
irinn svíði sárt þá sitjum við líka
eftir með þakklæti í huga fyrir
þann langa tíma sem við fengum
að njóta þín og fyrir allt það góða
sem þú skilur eftir þig í hjörtum
okkar sem þú elskaðir.
Þú hefur alla tíð verið svo
skemmtilega ung í anda – þú hafð-
ir þennan einstaka eiginleika að
tala alltaf við fólk eins og jafn-
ingja. Þú varst svo mikið meira en
amma mín, þú varst vinur minn.
Það skipti engu hvort ég var
fimm, tíu, tuttugu eða þrjátíu og
fimm ára. Alltaf gat ég leitað til
þín og alltaf skildirðu mig. Ég hef
alltaf verið alveg sérstaklega
stoltur af þér – þú varst svo ung
og flott amma og alltaf að bralla
eitthvað sniðugt. Flestir vinir
mínir hafa heyrt minnst á hana
ömmu Lóló. Það voru ekki margir
samferðamenn mínir í MH sem
gátu státað af ömmu sem prjónaði
á þá óaðfinnanlegar, nýtískulegar
lopapeysur og bruggaði vín þess á
milli.
En fyrst og fremst varstu okk-
ur öllum fyrirmynd í lífinu.
Hvernig þú gekkst upprétt gegn-
um alla þá erfiðleika sem lífið lagði
í götu þína. Hvernig þú elskaðir
öll börn þín og barnabörn jafnt og
hugsaðir alltaf um alla aðra fyrst
og sjálfa þig síðast. Hvernig þú
lifðir með reisn og elskaðir með
hjartanu. Ef allir væru eins og þú
væri heimurinn mun betri en
hann er – og nú þegar þú ert farin
er hann mun fátækari fyrir vikið.
Þegar ég sagði henni Freyju
minni að amma Lóló væri dáin og
ekki væri hægt að hitta hana aftur
spurði hún í gegnum tárin hvort
við værum búin að láta forsetann
vita að amma Lóló væri dáin – og
þar hitti hún naglann á höfuðið.
Amma Lóló er dáin og heimurinn
verður aldrei samur – fólk á rétt á
því að vita það.
Elsku amma Lóló – ég sakna
þín á hverjum degi, en ég mun
geyma þig alla tíð í hjartanu mínu.
Þú ert loksins komin til afa Braga
og ömmu Siggu og allra hinna sem
okkur þykir svo vænt um. Nú þarf
ég að taka á honum stóra mínum
og vera þessi góði drengur sem þú
kenndir mér að vera svo ég fái nú
alveg örugglega að hitta þig aftur
þegar ég fer sömu leið.
Þinn
Bragi.
Elsku amma Lóló, þetta eru
skrítnir tímar, við erum mikið að
rifja upp gamlar minningar, þær
eru sko margar og góðar. Það er
margs að minnast, við systkinin
urðum þess njótandi að fá að búa
hjá þér á Rauðalæknum þegar við
fluttum til Íslands, áttum við
margar góðar stundir þar. Ég
gæti skrifað heila bók bara með
góðum minningum um þig, þannig
að ég ætla að færa þér þakkir hér.
Takk, elsku amma Lóló, fyrir
að vera alltaf til staðar, fyrir að
hjálpa mér með málfræði og staf-
setningu á skólaritgerðum, fyrir
að prjóna svo fallegar peysur, ég
geymi þær sem gull. Takk fyrir að
sýna mér að dugnaður og góð-
mennska skilar sér margfalt til
baka og ef ég hef brot af þínum
eiginleikum fer ég sátt út í lífið.
Ég þakka fyrir að ég hafi fengið
þig sem ömmu og drengir mínir
fengu að kynnast þér. Elsku fal-
lega amma Lóló, nú ertu komin í
góðan hóp og fylgir okkur inn í
framtíðina í hjörtum okkar og
huga, hvíl í friði, elsku amma Lóló.
Þín,
Katrín.
Þegar ég hugsa um hana ömmu
Lóló mína þá kemur strax til hug-
ar hvað hún var alltaf góð, hvað
hún vildi alltaf hjálpa til þegar
þess var þörf. Þegar ég flutti til
útlanda var hún svo yndisleg að
koma og heimsækja mig og litlu
fjölskylduna mína og alltaf þegar
ég kom heim beið hún eftir mér á
flugvellinum, það var ekkert betra
en að fá faðmlag og koss á kinn frá
ömmu Lóló minni.
Það er svo margt sem kemur til
hugar þegar ég hugsa um ömmu
Lóló, en það sem ég vil að komi
helst fram er að hún amma Lóló
var ein af þeim yndislegustu kon-
um sem ég hef kynnst. Ég er svo
þakklát fyrir það að guð hafi gefið
mér hana sem ömmu. Ég mun
aldrei gleyma þér, þú varst engill
hér á jörðu og ég veit að þú munt
passa upp á okkur jafn mikið á
himninum og þú gerðir hér á jörð-
inni.
Þín,
Christine.
Elsku amma mín, nú eru farin í
þitt ferðalag en eftir sitja svo
margar góðar minningar. Ein
minning sem er mér minnisstæð-
ust er helgin okkar uppi í bústað,
bara við tvö, göngutúrarnir sem
við fórum í, tíndum ber, og allar
sögurnar sem þú sagðir mér um
fjölskylduna þína. Þótt ég hafi
bara verið tíu ára þá man ég
ennþá allt sem fór fram þessa
helgi og mun ég heldur aldrei
gleyma bílferðinni heim um Hval-
fjörðinn þar sem þú ákvaðst að
leita að tyggjói handa mér sem
var í hanskahólfinu á fullri ferð í
krappri beygju. En bestu stundir
mínar með þér voru sitjandi við
eldhúsborðið heima hjá þér, það
var alltaf jafn notalegt að sitja þar
og tala við þig og mun ég sakna
þess mest.
Þú varst alltaf svo góð við mig
og studdir við bakið á mér hvað
sem ég gerði og ég veit að þú
munt styðja við mig í því sem ég
mun gera í framtíðinni. Ég er
ánægður að hafa fengið að vera
hjá þér seinustu stundina þína og
fá að sjá fallegu augun þín og
kveðja þig í síðasta skiptið, því
mun ég aldrei gleyma svo lengi
sem ég lifi. Mun alltaf sakna þín
og elska.
Þinn,
Michael.
Amma, góða amma, ást mín til þín er
óendanleg, lúin og þreytt þú sefur svo
vel. Tíminn er liðinn, ó hvað hann leið
hratt, tárin þau falla, þau falla svo bratt.
Amma, besta amma, alltaf svo sæt, allt-
af svo fín, í hjarta mér þú ávallt, þú
ávallt ert mín. Leggðu nú af stað, þinn
tími er hér, hann afi bíður, hann afi bíður
eftir þér.
Með söknuð í hjarta ég kveð þig, elsku
amma mín, þar til við hittumst, þar til
við hittumst á ný.
(Christine Linda Whalley)
Með saknaðarkveðju
Katrín, Christine, Michael
Whalley og fjölskyldur.
Mig langar að minnast hennar
ömmu minnar í örfáum orðum.
Hún Guðlaug amma, eða amma
Lóló, eins og hún var oftast kölluð,
var sú besta amma sem nokkur
getur óskað sér. Ég man eftir
heimsóknum til hennar á Rauða-
lækinn, amma kom og sótti mig á
Skódanum sínum. Stundum tók-
um við líka langömmu Katrínu
með.
Í útidyrahurðinni hennar
ömmu á Rauðalæk var gluggi
settur saman úr fjólubláum og
brúnum tíglum. Ekki alls fyrir
löngu ók ég þar framhjá og sá
þennan gamla glugga, það var góð
tilfinning. Ég man að amma var
alltaf með bleikan varalit, ég man
líka hvað henni þótti það fallegur
litur. Ég man eftir skúffunni í eld-
húsinu, sem opnaðist í tvær áttir.
Amma sagði mér hvernig hún
hefði stundum óvart klemmt afa
Braga þegar hann var að sækja
sér teskeið í kaffið. Ég man að
amma átti sérstök form, sem hún
notaði til að búa til frostpinna úr
djús. Ég man eftir teppinu inni í
stofu þar sem maður sat á gólfinu
fyrir framan plötuspilarann og
hlustaði á Dr. Hook. Ég man þeg-
ar amma fór með mig í sund.
Amma Lóló bjó nefnilega við hlið-
ina á sundlauginni. Fyrst fórum
við og keyptum rosalega fallegt
bikini, brúnt og appelsínugult. Ég
man eftir ferð sem við fórum í Sæ-
dýrasafnið. Afi Bragi og Stella
frænka komu með. Þar skoðuðum
við ísbjörninn og hin dýrin og ég
fékk popp, ég man að að svarta
kindin borðaði allt poppið. Ég
man líka að þegar við hjónin eign-
uðumst son okkar Kolbein Daða,
þá kom amma á hverjum degi og
gætti drengsins meðan foreldr-
arnir skruppu til vinnu og ég man
hvað henni þótti vænt um að vera
með langömmubarninu að spáss-
era með vagninn um Þingholtin.
Ég man hvað amma Lóló fylgdist
vel með öllu sem maður tók sér
fyrir hendur, stóð með manni og
hvatti óspart til dáða.
Í sameiningu sendum við amma
upp margar óskir til langömmu
Katrínar og afa Braga og allar
þær óskir rættust. Síðasta óskin
rættist nú í haust þegar okkur
Stefáni fæddist lítil stúlka. Ég
man hvað kortin hennar ömmu
voru falleg, hvernig hún óskaði
manni alltaf alls hins besta og bað
guð að geyma. Þessi kort geymi
ég öll og mun ávallt halda uppá.
Umfram allt man ég hvað hún
amma Lóló var góð, svo óendan-
lega hlý og góð og hvernig hún átti
alltaf nóg af ást og kærleik handa
okkur öllum í kringum sig.
Elsku amma Lóló, þakka þér
fyrir allt það góða sem þú gafst
mér. Ég veit að þú ert núna engill
sem vakir yfir okkur. Hér læt ég
svo fylgja bænina sem þú kenndir
mér.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Guð geymi þig, elsku amma
mín. Edda Björg Eyjólfsdóttir.
Nú er komið að kveðjustund,
elsku amma Lóló mín. Ég er svo
þakklát fyrir að hafa haft þig sem
ömmu, allar skemmtilegu minn-
ingarnar sem ég á með þér eru
mér svo dýrmætar. Allar leikhús-
ferðirnar sem við fórum saman,
mér fannst það alltaf svo gaman,
bara þú og ég, yngsta barnabarn-
ið, þetta var okkar stund. Þær eru
líka ótal minningarnar heima í
Guðlaug
Marteinsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
RANNVEIG ÁRNADÓTTIR,
Sólheimum 23,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir þann 21.
desember s.l. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey, að ósk hinnar látnu.
Bragi Halldórsson,
synir, tengdadætur, barnabörn,
og barnabarnabörn.
Elsku móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN G. JOHNSON,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 9. janúar kl. 13. Blóm og
kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Barnaspítala
Hringsins.
Friðþjófur Ó. Johnson, Sigurlaug Sigurðardóttir,
Gunnlaugur Ó. Johnson, Hjördís Bjartmars Arnardóttir,
Ólafur Ó. Johnson, Bjarndís Pálsdóttir,
Helga Guðrún Johnson, Kristinn Gylfi Jónsson,
og barnabörn.