Morgunblaðið - 07.01.2013, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 07.01.2013, Qupperneq 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2013 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Sumarhús Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Tónlist Tónskóli Guðmundar Seljahverfi - Breiðholti Kennt er á Píanó, gítar og harmo- nikku. Kennsla fyrir full-orðna og börn, jafnt byrjendur sem hina. Allt afskaplega frjálslegt og skemmtilegt. Innritun í síma 5678 150 Tónskóli Guðmundar, Hagaseli 15, 109 Reykjavík. Til sölu Útsala - útsala - útsala, Kristal ljósakrónur, kristal glös, vasar og handgerðar trévörur og matarsett. Á útsölu í nokkra daga Slóvak kristall, Dalvegi 16b, Kópavogi. S. 544 4331. Saumavélar- saumavélaviðgerðir Nýjar og notaðar saumavélar í úrvali. Viðgerðir á flestum gerðum sauma- véla. Skoðaðu úrvalið á saumavelar.is eða hringdu í s. 892 3567 eftir hádegi alla daga. Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bókhald Ýmislegt Meyjarnar, Austurveri, sími 553 3305. TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ Dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stök pör. TILBOÐSVERÐ: 3.900. Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Opið mán. - föst. 10-18. Opið laugardaga 10-14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. ALLTAF FRÁBÆRIR - SAMA GÓÐA VERÐIÐ Teg. 11001 - frábær, nýkominn aftur í C-, D-, E-, F-skálum á kr. 5.800, buxur við á kr. 1.995. Teg. 81103 - léttfylltur í B-, C-skál- um á kr. 5.800, buxur við kr. 1.995. Teg. 370033 - mjög flottur, líka til í svörtu í C-, D-, E-skálum á kr. 5.800, buxur við kr. 1.995. Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-föst. 10-18, laugard. kl. 10-14. Þú mætir - við mælum og aðstoðum. www.misty.is - vertu vinur Bílar Nýr Jeep Grand Cherokee Diesel. Hátt og lágt drif. Stereo með hörðum disk og lita snertiskjá fyrir musik og myndir. Nútíma bíll sem eyðir elds- neyti eins og smábíll. Verð: m/ leðri 10.390 þús. án leðurs 9.690 þús . www.sparibill.is Fiskislóð 16 - sími 577 3344. Opið 12-18 virka daga. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Hjólbarðar Kebek neglanleg vetrardekk Hönnuð í Kanada. Dekk á frábæru verði. Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b, 201 Kópavogi, s. 5444 333. Ökukennsla Kenni á BMW 116i Snorri Bjarnason, sími 892 1451. Bilaskoli.is Glæsileg kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Góður í vetraraksturinn. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Björt og falleg 122fm íbúð til leigu í Bryggjuhverfinu. Upplýsingar í síma 893-1116. Kaupi silfur Vantar silfur til bræðslu og endur- vinnslu. Fannar verðlaunagripir, Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi. fannar@fannar.is, s. 551 6488. Til leigu Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara                      !   "   #!  $   $ % & '%#  ()  $ $    *  +           (,  -& ,       %.  ,    # .  )    /)      )0    1      2 ,   3          %     # -.   4  , - $ ,  *  ! " #  1       & 0   5& , 6    $  -& 0,  & 7    5& !  $   $ (.$0     ,  $   & 3 . &  +  "  $  %  &  2 1  0   35 8  $     (   5      1       #!  !  .$ ,0, ,  , ,  ,6 9 ) 0! .  $   ,  !    )  ,,  )&     & ,   &         $ )     +6 :*  '  (       #   2 ,   *+5& 3:5  :5& , ,   &    ;, , ,    )     !  1<  ,   .   ,    $ =    , $       # &  2     6"&       2 ,   % ,    5  $ $     #) 6 9   ++5 %& )*+  1      %9    5& !    %  +,'+-  /)   3- 2      %     .(    #   > )    $   ?    % =    *63& 0! .,  &   36:     @   55+6 **+  $ AAA   /  & )  #     3   ,   +5 %    %) ,  )    ,   , B  .$   + C      0 &  1  ,    -     1   -0    ?,    #) 9    #  ,    + %  ,  * .  ?,  * .  ?, ) 3 .  9    .  ! ,  .  D      .  D  ! E ,    F  .  ?    6  6  ,  .  #)  0! . + .  D<  ,   ,0    $    556:*+ var spennandi að sjá báta eða götuheiti með nöfnum okkar og svona eftir á að hyggja höldum við að ferðinni hafi ekki lokið fyrr en við sáum okkar eigin nöfn. Hann kenndi okkur líka fugla- og fiskaheiti og sjóferðir voru farnar þó að stumra þyrfti yfir sjóveik- um. Við fórum í sumarfrí og bú- staðaferðir þar sem tækifærin gáfust til að læra heiti á fjöllum og ám, hlaða vörður og ganga nýjar fjörur. Afi eldaði þá hafragraut- inn og þegar við fluttum á Kjal- arnesið mætti afi og eldaði graut- inn þar. Á afmælum var það fast að fá ullarsokka eða vettlinga vafða inn í dagblað, gjafir áttu að vera nyt- samlegar. Hann gaf okkur líka límmiða og bolla sem skreyttir voru rósum og áttum við okkar tímabil þar sem við ætluðum að verða kratar þegar við yrðum stórar. Þrátt fyrir að engin okkar sé flokksbundin í stjórnmála- flokki er samábyrgð og jafnaðar- hugsunin ekki langt undan í huga okkar. Stærsta gjöfin sem afi gaf okk- ur var samveran og hvað það skiptir máli að gefa sér tíma fyrir sína nánustu og sýna starfi, námi og lífi þeirra ósvikinn áhuga. Hvað það skiptir máli að hugsa um náungann og að laun eru ekki endilega talin í krónum. Þau fást með því að hlúa að öðrum, gefa af tíma sínum, rækta fjölskyldu- tengsl, umhverfi og samfélag. Það er langt síðan við kvöddum málglaða afa okkar, við heyrðum hann þagna og hverfa inn í sig þegar heilinn hans veiktist eins og við útskýrðum fyrir langafabörn- um hans. Samræðurnar hættu, gönguferðum fækkaði og erfitt var að átta sig á hvernig afi skynj- aði heiminn. Við skynjuðum samt alltaf væntumþykju hans en hún lifði innra með honum til enda. Bára, Hrönn, Dröfn, Halla, Viktoría og Gróa Rán Birgisdætur. Elsku afi. Það er undarlegt að keyra fram hjá hjúkrunarheim- ilinu Skjóli eftir að þú kvaddir, vitandi að nú situr þú ekki lengur við gluggann sem vísar út á hafið. Það hefur verið sárt að horfa á þig smátt og smátt hverfa vegna sjúkdómsins en við trúum því að nú líði þér betur, að nú hafir þú aftur fundið minningarnar þínar og hugsanir. Þegar við systkinin hripum niður þessi örfáu orð er margt sem rifjast upp frá því að við vorum börn og heimsóttum ykkur ömmu í Skriðustekkinn. Við dáðumst að því með ótta- blandinni hrifningu þegar þú, sitj- andi í hægindastólnum þínum (sem var mjög gaman að stelast til að leika sér í), skaust út úr þér gervitönnunum og varaðir okkur þannig við því að svona færi ef maður tyggði tyggjó, mikið hvað þú þoldir ekki tyggjósmjatt. Við minnumst líka allra nytsamlegu gjafanna, ullarsokkarnir hlýju sem þú pakkaðir inn í dagblöð, jólabingóið sem var alltaf jafn spennandi og að ógleymdum Krata-krúsunum sem þú gaukað- ir oft að okkur. Afa minnumst við þó fyrst og fremst sem sjómanns- ins sterka. Við munum Skjöld afa með öll tattúin sem kynnti okkur fyrir hafinu með því að arka með okkur niður á höfn, sýndir okkur hvernig ætti að gera að aflanum og hversu frábær tilfinning það er að stýra trillu úti á rúmsjó. Við höfum alltaf verið stolt af því að eiga svona afa að. Elsku afi, við þökkum þér fyrir allar stundirnar og minningarnar sem við geym- um sem fjársjóð í hjörtum okkar og kveðjum þig með söknuði. Þórhildur Laufey, Margrét og Matthías Skjöldur. Í dag kveðjum við góðan og einlægan félaga okkar, Skjöld Þorgrímsson. Fyrstu alvöru kynni mín af Skildi urðu þegar við félagarnir gengum til samstarfs við hann um rekstur á m/b Mara RE 79. Allt frá fyrsta degi urðum við Skjöldur miklir og góðir vinir svo að aldrei bar skugga á og fyrir það vil ég þakka. Hann þekkti til margra sjómanna í minni fjöl- skyldu og hafði gaman af að segja sögur af þeim þegar hann sigldi með þeim á Fossunum hér áður fyrr. Skjöldur hafði gaman af að segja sögur af samferðafólki sínu til sjós og lands enda hafði hann gott skopskyn og góða frásagn- arhæfileika. Það verður að segj- ast að við það að kynnast Skildi og ganga til liðs við hann, myndaðist skemmtilegur og góður kjarni manna sem hefur haldið saman óslitið síðan og höfum við átt ómældar ánægjustundir með Skjöld okkar í broddi fylkingar. Skjöldur var glaðlegur og hlýr maður í daglegri umgengni, barn- góður mjög og talaði ekki síður til þeirra en þeirra eldri ef þau voru nærri. Hann var greiðvikinn, vildi fyrir alla allt gera og var ánægð- astur þegar hann var búin að koma nokkrum góðverkum í verk þann daginn. Eitt atvik er mér minnisstætt og lýsir Skildi vel, en það var fyrir nokkrum árum að það komu til hans erlend hjón nið- ur á höfn og spurðu hvort ekki væri möguleiki að komast út í Flóann til að skoða hvali og fugla. Eins og hans var von og vísa sagð- ist hann geta farið með þau núna á bát sínum, ef þau vildu og það varð úr. Þessi ferð tók 3-4 klst. og höfðu hjónin sérstaklega mikla ánægju af ferðinni. Ekki fékkst hann til þess að taka við greiðslu fyrir viðvikið þótt hart væri lagt að honum að gera það. Hann hafði svo mikla þörf og ánægju að gera fólkinu þennan greiða og sýna þeim landið sitt. Svona var Skjöldur. Þessum erlendu hjón- um láðist að fá nafnið á þessum hjálpfúsa og greiðvikna manni svo þau gætu a.m.k. sent honum kveðju eða kort. Svo gerðist það fyrir skömmu að þessi sömu hjón komu með skemmtiferðaskipi til Reykjavíkur og reyndu strax að hafa uppi á þessum góða manni sem gerði fyrstu ferð þeirra hing- að til lands svo eftirminnilega og skemmtilega. Það tókst og var að- alástæðan sú að þau ætluðu að bjóða Skildi og frú með sér á skemmtiferðaskipið og endur- gjalda þessum góðviljaða og fal- lega manni góðverkið sem hann sýndi þeim um árið. Því miður var hann orðinn það veikur, blessað- ur, að hann gat ekki þegið boðið, a.m.k. að þessu sinni. Síðustu ár hefur Skjöldur dregið sig í hlé úr hópnum sökum veikinda og er hans sárt saknað af okkur félögunum. Við kveðjum hann með þökk og virðingu og fyrir samfylgdina. Ég vil fyrir hönd félaga minna votta eigin- konu hans, Þórhildi og fjölskyldu hennar okkar dýpstu samúð á þessari stundu. Thulin Johansen. Ég var að glugga í minningar- grein fyrir nokkrum dögum um systur Skjaldar, þá var mér hugs- að til þess hve öll þessi systkini eru og voru góðhjörtuð og dug- legt fólk, enda faðir þeirra Toggi mari frá Húsavík. Þó mörg árin séu liðin frá því ég umgekkst Skjöld þegar dóttir mín, P. Guðný Þorgrímsdóttir, átti afmæli og Skjöldur afi hennar og kona hans komu og við borð- uðum saman með mínum foreldr- um, þá man ég hve hlýlegur mað- ur Skjöldur var, sagði alltaf frá einhverju skemmtilegu og var alltaf í góðu skapi. Hann var alltaf tilbúinn til að gefa frá sér, kom t.d. með fisk þegar hann fór á sjó á bátnum sín- um og stundum tók hann Togga son sinn með sér á bátinn sinn þegar hann var ekki með vinnu. Ég vildi bara þakka fyrir að hafa þekkt góðan mann sem ég mun ávallt muna eftir og segja barna- börnum frá. Sendi konu hans og öllum börnum hans samúðarkveðjur. Helena Dóra Kojic.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.