Morgunblaðið - 07.01.2013, Side 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2013
Þessir fyrstu dagar ársins eru einskonar aðlögun. Sonur minnog tengdadóttir eru að taka við búskapnum af okkur hjón-unum og nú þarf ég að venjast öðru hlutverki þó ég fari
áfram í fjós, fyrst um sinn,“ segir Páll Pálmason, bóndi á Hjálms-
stöðum í Laugardal, sem er 67 ára í dag. Hann segir afmælisdaginn
tæpast verða öðrum frábrugðinn. Þó sé hugsanlegt að eitthvað
skárra verði með kaffinu, eins og stundum er sagt.
Páll er fæddur og uppalinn á Hjálmsstöðum. Hann nam húsasmíði
og starfaði lengi við þá iðn. „Við bjuggum um tuttugu ár í Reykjavík
og þá vann ég við smíðar hjá Guðbirni Guðmundssyni sveitunga mín-
um. Já, verkefnin voru mörg. Byggðum meðal annars náms-
mannablokkirnar við Suðurgötu, hús Félagsstofnunar stúdenta og
íbúðarhús og blokkir meðal annars í Breiðholtinu. Og nú sé ég bara
til hvort ég fer í smíðina aftur,“ segir Páll sem fluttist að nýju í
Laugardalinn um 1980 þegar að því kom að foreldrar hans, þau
Pálmi Pálsson og Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir, kusu að bregða búi.
„Eitthvað varð að gera í málinu,“ segir Páll sem með eiginkonu
sinni, Fanneyju Gestsdóttur, hefur rekið með myndarlegt bú og ver-
ið með um þrjátíu mjólkandi kýr í fjósi. Saman eiga þau fjóra syni
sem allir eru stúdentar úr Menntaskólanum að Laugarvatni og hafa
látið að sér kveða, hver á sinn hátt.
Páll Pálmason er 67 ára í dag
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bóndi Sé bara til hvort ég fer í smíðina aftur,“ segir Páll Pálmason á
Hjálmsstöðum sem nú eftirlætur syni og tengdadóttur búskapinn.
Er í aðlögun en fer
þó áfram í fjósið
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Akureyri Sigmundur Elvar fæddist 15.
febrúar kl. 1.20. Hann vó 3.755 g og
var 52 cm langur. Foreldrar hans eru
Sunna Eir Haraldsdóttir og Rúnar
Friðriksson.
Nýir borgarar
Hafnarfjörður Hrímnir Bergmann
fæddist 18. desember kl. 7.49. Hann vó
2.935 grömm og var 47,5 cm að lengd.
Foreldrar hans eru Erna Sigríður Gísla-
dóttir og Jóhann Ingi Albertsson.
G
Gústaf fæddist í
Reykjavík 7.1. 1973 og
ólst þar upp fyrstu árin
en síðan á Patreksfirði.
Hann var í Grunnskóla
Patreksfjarðar, lauk verslunarprófi
frá VÍ 1991, lauk EDB-prófi í kerf-
isfræði í Kaupmannahöfn 1992, lauk
prófum í forritun og kerfisfræði við
Rafiðn-aðarskóla Íslands 1998,
verðbréfamiðlun hjá EHÍ 2002 og
prófi í samhæfðum markaðsvið-
skiptum frá HR 2010. Gústaf nemur
einnig heimspeki, hagfræði og
stjórnmálafræði við Háskólann á
Bifröst.
Bleika slaufan og Mottu mars
Gústaf var til sjós frá Patreksfirði
1993-95, vann við tölvur hjá Þór hf í
Reykjavík 1996, hjá Hugbúnaði í
Kópvogi 1996-98, hjá Landsteinum
1998-99, stofnaði, ásamt fleirum,
hug búnaðarfyrirtækið Rhea og
vann við það 1999-2003 og á eigin
Gústaf Gústafsson, forstöðum. Markaðsstofu Vestfjarða – 40 ára
Fjölskyldan Gústaf, eiginkona, börn og foreldrar í laxveiði í Fjarðarhorni á Vestfjörðum.
Mars-mottumaðurinn
Á veiðum Gústaf og kona hans, Sigrún Bragadóttir, á hreindýraveiðum.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
www.skadi.is
Þ. Skorri
Steingrímsson,
Héraðsdóms-
lögmaður
Steingrímur
Þormóðsson,
Hæstaréttar-
lögmaður