Morgunblaðið - 07.01.2013, Side 32

Morgunblaðið - 07.01.2013, Side 32
MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 7. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. Nauðgunarákæra klýfur smábæ 2. DNA fannst í fötum mannanna 3. „Þetta gengur ekki lengur“ 4. Flugdólgurinn frjáls ferða sinna »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Norræna hátíðin „Nordic Cool 2013“ verður í Washington í Banda- ríkjunum 19. febrúar til 17. mars nk. og hefur Kennedy Center boðið nokkrum Íslendingum að taka þátt í henni. Þar á meðal eru Víkingur Heið- ar Ólafsson, Sinfóníuhljómsveit Ís- lands og Sunna Gunnlaugs. Morgunblaðið/Ómar Víkingur Heiðar á „Nordic Cool 2013“  Einar Kárason rithöfundur segir söguna af skáld- inu Sturlu, allt frá uppvextinum í Reykholti í aka- demíu Snorra Sturlusonar, föð- urbróður hans, í Landnámssetri Ís- lands í Borgarnesi 12. janúar nk. og hefst frásögnin kl. 20.00. Einar Kárason og Sturla í Borgarnesi  Kynningarhátíð um samskipti við Vestur-Íslendinga, í boði Þjóðrækn- isfélags Íslendinga í samvinnu við Vesturfarasetrið á Hofsósi og Bændaferðir, verður kl. 14-16 á Ice- landair Hótel Reykjavík Natura 12. janúar nk. Erindi flytja m.a. Atli Ás- mundsson, aðalræðis- maður í Winnipeg, Andri Freyr Viðarsson dag- skrárgerðarmaður, Elín Hirst og Svavar Gestsson. Kynna samskipti við Vestur-Íslendinga Á þriðjudag Suðaustan 5-13 m/s og rigning eða slydda, en snjó- koma inn til landsins. Vestlægari og léttir til síðdegis. Hiti um eða rétt ofan frostmarks. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægt vaxandi suðaustanátt og þykknar upp S- og V-til, 10-15 og rigning á SV-horninu í kvöld. Hiti víða 1 til 6 stig, en vægt frost inn til landsins. Heldur svalara en í gær. VEÐUR Haukakonur urðu fyrstar til að vinna Keflavík í úrvals- deild kvenna í körfubolta. Keflavík hafði unnið fjór- tán fyrstu leiki sína á tíma- bilinu fyrir tapið gegn Hauk- um á heimavelli um helgina. Jafnt var á með liðunum í byrjun fjórða leikhluta en þá stungu gestirnir af. Siarre Evans fór gjörsam- lega á kostum fyrir Hauka; skoraði 34 stig og tók 14 fráköst. »2 Haukar fyrstir til að vinna Keflavík Íslenskt íþróttafólk undir tvítugu, sem enn er löglegt í unglingaflokka í sínum greinum, náði eftirtektarverð- um árangri á síðasta ári. Sérstaklega létu kraftlyftingamaðurinn Júlían Jóhannsson, hlauparinn Aníta Hinriksdóttir, kylfingurinn Ragnar Már Garðarsson og sundkonan Eygló Ósk Gústafs- dóttir að sér kveða. »8 Mikil afrek hjá ungu íþróttafólki 2012 Stjarnan, Grindavík og Snæfell tryggðu sér í gær sæti í undan- úrslitum Powerade-bikars karla í körfuknattleik. Grindavík og Snæfell unnu örugga sigra á fyrstudeildarlið- unum Reyni Sandgerði og Val en Stjarnan vann ÍR á heimavelli. Þar mættust öflug bikarlið því Stjarnan varð bikarmeistari árið 2009 og ÍR vann keppnina árið 2007. »3 Fyrstudeildarliðin sleg- in út úr bikarnum ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Þetta voru ekki þær aðstæður sem ég hefði kosið en samt gekk þetta ótrúlega vel,“ segir Tinna Ýr Tryggvadóttir, 28 ára húsmóðir á Sauðárkróki, sem ól barn á milli jóla og nýárs. Það væri svo sem ekki í frásögur færandi nema að faðirinn, Skagstrendingurinn Jón Oddur H. Hjálmtýsson, þrítugur sjómaður á frystitogaranum Arnari HU, tók á móti barninu í framsætinu á jeppa- bifreið þeirra hjóna. Höfðu þau stoppað á planinu fyrir framan verslun Kaupfélags Skagfirðinga í Varmahlíð, á leið sinni til Akureyrar til að fæða barnið á sjúkrahúsinu þar. Með þeim í för var móðir Tinnu, Helga Steinarsdóttir, sem sat í aft- ursætinu og var dótturinni og tengdasyninum til halds og trausts. „Sem betur fer var hún með,“ segir Jón Oddur en Helga tók þarna í orðsins fyllstu merkingu á móti sínu sjöunda ömmubarni. Með Neyðarlínuna í símanum Þegar nær dró Varmahlíð sáu þau í hvað stefndi og hringdu á Neyð- arlínuna til að fá sjúkrabíl á eftir sér. „Ég var með mann á Neyðarlínunni í símanum allan tímann, sem gaf okk- ur ráðleggingar, síðan var sjúkrabíll kominn frá Króknum um fimm mín- útum eftir að strákurinn fæddist,“ segir Jón Oddur en þau höfðu útbúið sig til fararinnar með teppi og hand- klæði, greinilega við öllu búin ef Tinna færi að fæða á leiðinni. Farið var með þau til baka á sjúkrahúsið á Króknum og á leiðinni í sjúkrabíln- um fékk Jón Oddur að klippa á naflastrenginn. Móður og syni heils- ast vel og voru þau komin til síns heima um sólarhring eftir fæðing- una og hafa fengið þar heimaþjón- ustu ljósmóður. Drengurinn er þriðja barn þeirra hjóna, fyrir eiga þau tíu ára stelpu og fjögurra ára strák. „Við höfum sem betur fer aldrei lent í þessu áð- ur,“ segir Jón en fyrri börn þeirra fæddust á Akureyri og Sauðárkróki. Tinna hafði verið skrifuð inn í dag, 7. janúar, en sá litli lét ekkert bíða eftir sér. Um kvöldmatarleytið hinn 27. desember fann Tinna að eitthvað var að gerast og upp úr klukkan átta hringdi hún í ljósmóður. Hún gaf henni ráðleggingar og ef þær dygðu ekki skyldi hún hringja í lækni á vakt. Það gerði Tinna korteri síðar, þar sem hríðarverkirnir hurfu ekki, og eftir skoðun læknis á Heilbrigðis- stofnuninni á Sauðárkróki var ákveðið, í samráði við ljósmæður á Akureyri, að þau skyldu leggja af stað. „Okkur grunaði samt ekki að þetta myndi gerast svona fljótt,“ segir Tinna Ýr. Fæðing á kaupfélagsplaninu  Faðirinn tók á móti með aðstoð tengdamömmu Morgunblaðið/Björn Björnsson Fjölgun Fjölskyldan hamingjusöm á Ægisstígnum á Sauðárkróki, sá litli í fangi föður síns. Frá vinstri Birta Líf, tíu ára, foreldrarnir Tinna Ýr og Jón Oddur, þá Tristan Tryggvi, fjögurra ára, og loks amman, Helga Steinarsdóttir. „Við vorum alveg eins farin að bú- ast við því að þetta gæti orðið fyrsta barn ársins en þetta kom ekkert svo mikið á óvart því ég fæddi stelpuna tveimur vikum fyr- ir settan dag,“ segir Tinna Ýr en drengurinn þeirra Jóns Odds var þó ekki síðasta barn ársins í Skagafirði. Hinn 29. desember varð kona að fæða á Króknum þar sem ófært var til Akureyrar þann daginn. Fæðingum á Heilbrigðisstofn- uninni á Sauðárkróki hefur stór- fækkað á seinni árum og var form- lega hætt árið 2010. Er verðandi mæðrum beint til Sjúkrahússins á Akureyri en tvær ljósmæður eru þó á vöktum alla virka daga til kl. 20 og sinna mæðraskoðunum og ungbarnaeftirliti í Skagafirði. Á síðasta ári fæddu 49 mæður úr Skagafirði á Akureyri og þrjár á Sauðárkróki. Ófært fyrir síðasta barn ársins FÆÐINGUM Í SKAGAFIRÐI BEINT TIL AKUREYRAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.