Morgunblaðið - 21.01.2013, Page 2

Morgunblaðið - 21.01.2013, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Alþjóðlegi skíðadagurinn var í gær, sunnudag. Haldið var upp á hann með margvíslegum hætti á þeim skíðasvæðum landsins sem gátu haft opið. Ekki var veður til þess í Bláfjöllum en opið var á stöðum eins og á Ísafirði, Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík, í Tindastóli við Sauðárkrók, Hlíðarfjalli á Akureyri, Stafdal í Seyðisfirði, Oddsskarði og einnig í Selárdal við Steingrímsfjörð. Víðast var ókeypis á skíði fyrir börnin og boðið upp á heitt kakó og með því. Þessi fjölskylda hér að ofan renndi sér í Böggvisstaðafjalli ofan Dalvíkur í gær en áhersla var lögð á að fá krakkana á skíði og kynna þeim íþróttina. Færið var víðast gott og fór dagurinn að mestu vel fram, fyrir utan að sjö ára barn fótbrotnaði í Stafdal. Líf og fjör í Böggvisstaðafjallinu Ljósmynd/Bjarni Gunnarsson Á skíðasvæðum landsins var haldið upp á alþjóðlegan skíðadag í gær Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, segir svör við fyrirspurn sem hann lagði fram á fundi borgarstjórnar í byrjun september á síðasta ári um Hörpu vera ófullnægjandi. „Ég bað m.a. um svar við því hver væri heildarbyggingar- kostnaður við Hörpu og tengd mannvirki á núver- andi verðlagi. Það er hins vegar augljóst að þeir sem svara fyrirspurninni kjósa að svara því ekki heldur setja fram áætlaðan kostnað sem fylgdi því að ljúka byggingu hússins eftir hrun en það er allt annar hlutur,“ segir Kjartan sem telur að kjörnir fulltrúar og almenningur eigi heimtingu á að vita hver heildarbyggingarkostnaður er. Áætlaður kostnaður við að ljúka byggingu Hörpu er 17,5 milljarðar króna samkvæmt svari til Kjart- ans en við það bætist annar kostnaður s.s. nærri 3 milljarða króna kostnaður við glerhjúpinn. Óeðlileg vinnubrögð Stjórn Austurhafnar neitaði Kjartani í sumar um aðgang að úttekt um rekstur Hörpu sem gerð var af KPMG. Þar sem tveir embættismenn borgarinnar sitja í stjórn Austurhafnar fyrir borgina óskaði Kjartan eftir skýringu og á aðkomu borgarstjóra að ákvörðun stjórnarinnar. Borgarstjóri segist ekki hafa gefið stjórnarmönnum fyrirmæli um að neita Kjartani um aðgang að úttektinni en um leið gerir borgarstjóri ekki athugasemd við ákvörðun Aust- urhafnar. „Með þessu svari er borgarstjórinn ein- faldlega að gefa vinnubrögðum Austurhafnar bless- un sína enda ekkert í úttektinni sem mátti ekki líta dagsins ljós,“ segir Kjartan sem bendir á að menntamálaráðuneytið hafi síðar opinberað skýrsl- una í sumar. Kjartan gerir athugasemd við þessi vinnubrögð sem hann telur óeðlileg. „Þegar það gengur ítrekað illa að fá svör við ein- földum spurningum kemur auðvitað upp í hugann hvort ekki sé eðlilegt að fá óháða opinbera nefnd til að rannsaka málið ofan í kjölinn,“ segir Kjartan . Þá kemur fram að launagreiðslur til stjórnarmanna í Hörpu hafi verið rúmar 33 milljónir króna en mest af því fékk Þórunn Sigurðardóttir, eða tæpar 13 milljónir króna. Kostnaðurinn enn hulinn  Fyrirspurn Kjartans Magnússonar um heildarbyggingarkostnað Hörpu ekki svarað  Telur eðlilegt að opinber nefnd rannsaki málið ofan í kjölinn „Með þessu svari er borgar- stjórinn að gefa vinnu- brögðum Austurhafnar blessun sína.“ Kjartan Magnússon Jón Sigurðsson Blönduós „Ég hef aldrei reykt eða drukkið áfengi og létt lund og jákvætt við- horf til lífsins hafa hjálpað mikið,“ segir Ingibjörg Lárusdóttir Berg- mann á Blönduósi, spurð um leiðina að langlífi en hún fagnaði 100 ára af- mæli í gær með vinum og vanda- mönnum í baðstofu Heilbrigðisstofn- unarinnar á Blönduósi. Ingibjörg er nokkuð ern og les ennþá sér til gagns og á náttborðinu hjá henni má finna ævisögu Einars Benediktssonar skálds sem er í miklu uppáhaldi hjá henni. Þá er Ingibjörg mikill „lífskúnstner“ og af- ar músíkölsk. Hún lærði söng hjá Sigurði Birkis í Reykjavík og spilaði á gítar og orgel. Áður fyrr söng hún í mörgum kórum í héraðinu og var um tíma organisti í Þingeyrakirkju. Einnig er Ingibjörg hagmælt og sagði í samtali við Morgunblaðið að hún hefði samið mörg lög og ljóð sem hún hefði aðeins sungið fyrir sjálfa sig. Það mun vera haft eftir henni á 70 ára afmælinu að hún myndi ekki flytja ljóð eftir sig fyrr en hún yrði 100 ára. Í gegnum tíðina hefur mikið verið leitað til Ingibjargar um að syngja og flytja ljóð og kveða rímur við ýmis tækifæri. Þegar fundum hennar og Sigurðar Sigurðarsonar, fyrrverandi dýralæknis, bar saman rétt fyrir afmælisveisluna kváðu þau snarlega eina stemmu með tilþrifum, svona til að hita upp fyrir afmælið. Ingibjörg er fædd á Blönduósi en fór á sjötta aldursári í fóstur til Jóns Jónssonar alþingismanns í Stóradal og konu hans Sveinbjargar. Ingibjörg giftist Guðmundi Berg- mann (f. 18.3. 1909) frá Marðarnúpi á Jónsmessunni 1938 en þá var þre- falt systkinabrúðkaup haldið á Stóru-Giljá þegar systur Guð- mundar, þær Oktavía og Þorbjörg, giftu sig líka. Ingibjörg var fyrst húsmóðir á Stóru-Giljá en Guð- mundur maður hennar stundaði smíðar víða um héraðið. Árið 1965 fluttust þau hjónin að bænum Öxl í Sveinstaðahreppi og bjuggu þar uns þau fluttust á Blönduós. Ingibjörg og Guðmundur eignuðust ekki börn en ólu upp tvö fósturbörn, Borgeyju Jónsdóttur og son hennar Guðmund Arnarson. Mann sinn missti Ingi- björg árið 1987. Létt lund og jákvætt viðhorf til lífsins Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Lífskúnstner Ingibjörg Lárusdóttir Bergmann er hagmælt og söng áður í mörgum kórum. Hún er meðal afkomenda Bólu-Hjálmars.  Ingibjörg Lárusdóttir Bergmann fagnar 100 ára afmæli á Blönduósi „Fyrst og fremst er lækkandi markaðsverði á þorski um að kenna en einnig erum við að borga auðlinda- gjald af þeim hluta sem tekinn er í gegnum áframeldi á villt- um þorski sem við höfum veitt, alið upp og slátrað,“ segir Kristján G. Jóakimsson, vinnslu- og markaðsstjóri hjá Hrað- frystihúsinu Gunnvöru á Ísafirði. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa tekið þá ákvörðun að draga verulega úr þorskeldi sem að undanförnu hef- ur verið með tvenns konar hætti. Annars vegar eldi á seiðum sem klakið er úr hrognum og hins vegar áframeldi á villtum fiski sem nú verður látið af. „Við ætlum samt að reyna að viðhalda áfram þeirri kyn- bótavinnu sem unnin hefur verið undanfarin ár í samstarfi við IceCod og Hafrannsóknastofnun. Og vera þá meira og minna í sjókvíaeldi,“ segir Kristján. Spurður hvort fyr- irtækið muni þurfa að grípa til ein- hverra uppsagna vegna þessarar breyttu stöðu kveðst hann ekki eiga von á slíkum aðgerðum. „Við erum að skoða möguleika á að fara í eldi á laxi eða regnbogasilungi en það er að taka sinn tíma að fá tilskilin leyfi.“ Draga mjög úr þorskeldi HG þarf að draga úr þorskeldi sínu.  HG bindur vonir sínar við laxfiskeldi Opnað var fyrir tilboð í veiðiréttinn í Norðurá síðdegis í gær og bárust einungis þrjú. Tvö þeirra komu frá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur en hið þriðja var ónafngreint fráviks- tilboð undirritað af Gesti Jónssyni lögmanni. SVFR ehf., sölufyrirtæki Stangaveiðifélagsins, átti hæsta boð upp á kr. 83.500.000 en tilboð SVFR hljóðaði upp á kr. 76.500.000. Engin krónutala fylgdi hins vegar fráviks- tilboðinu. Gunnar Bender, ritstjóri Sport- veiðiblaðsins, ritaði færslu á Face- book-síðu sína þar sem hann talaði um stórtíðindi. „Veiðileyfaverð er komið upp í topp og SVFR situr eitt að spúnni. Öll stóru veiðifélögin buðu ekki krónu.“ SVFR eitt um Norðurá

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.