Morgunblaðið - 21.01.2013, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 21. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Ísland úr leik eftir hörkuleik
2. Myndir af Vilborgu á pólnum
3. Einhleypum konum fjölgar
4. Bjargað eftir að hafa verið þrjá …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Í tilefni af því að skáldsagan Góði
elskhuginn kom út á þýsku í fyrra
hefur höfundurinn Steinunn Sigurð-
ardóttir lesið úr þýðingunni víðs veg-
ar um Þýskaland og komið fram í
sjónvarpi og útvarpi. Fyrirhugaður er
upplestur úr bókinni á Freud-safninu
í Vínarborg, en ein af söguhetjunum
er sálgreinandi.
Morgunblaðið/Kristinn
Les úr Góða elskhug-
anum á Freud-safni
Næstu fimm
mánudagsmorgna
kl. 8:10 verður
boðið upp á hálf-
tíma jógahug-
leiðslu í tengslum
við sýningu Bjark-
ar Viggósdóttur,
Aðdráttarafl,
hringlaga hreyf-
ing, í Hafnarborg. Helga Einarsdóttir
jógakennari hefur umsjón með tím-
unum sem verða byggðir á öndunar-
æfingum, léttum jógastöðum og hug-
leiðslu.
Jógahugleiðsla í
Hafnarborg
Fyrsti þátturinn í þriðju þáttaröð-
inni af Hæ Gosi verður forsýndur í
Bíó Paradís á miðvikudaginn en sýn-
ingarnar hefjast á SkjáEinum þann
31. janúar. Þáttunum
hefur verið lýst sem
sprenghlægilegum
en óþægilegum og
var önnur þáttaröð-
in, sem fór í loftið í
fyrra, vinsælasti
þáttur stöðv-
arinnar það ár-
ið.
Fyrsti þátturinn af
Hæ Gosi forsýndur
Á þriðjudag og miðvikudag Austlæg átt, yfirleitt 5-10 m/s en allt
að 15 með suðurströndinni. Skúrir eða él með suðurströndinni en
annars skýjað með köflum. Frost víða 0 til 6 stig, en frostlaust við
suðurströndina.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Skúrir eða él, en skýjað með köflum norð-
anlands. Hiti 0 til 5 stig, en frystir víða norðantil.
VEÐUR
„Við féllum úr leik með
ákveðinni virðingu og
sæmd. Þetta var að vonum
gríðarlega svekkjandi. Við
ákváðum fyrir leikinn að
leggja líf og sál í hann og
það gerðum við svo sann-
arlega,“ sagði Aron Krist-
jánsson, þjálfari íslenska
landsliðsins, meðal annars
við Morgunblaðið eftir ósig-
urinn gegn Frökkum í 16-
liða úrslitum á heimsmeist-
aramótinu. »1
Féllu úr leik með
virðingu og sæmd
Aníta Hinriksdóttir er búin að
tryggja sér keppnisrétt á
Evrópumeistaramóti fullorðinna í
frjálsíþróttum, nýorðin 17 ára, en
hún bætti Íslands-
met sitt í 800 m
hlaupi innan-
húss á
Reykjavíkur-
leikunum á
laugardaginn
þrátt fyrir að
hún fengi
litla sem
enga sam-
keppni í
hlaupinu. »3
Aníta á EM þrátt
fyrir litla samkeppni
„Þegar ég skrifaði undir samning við
félagið þá var það til þriggja ára, færi
svo að þeir myndu kaupa mig fyrir 1.
mars. Ég vil halda áfram hérna og líð-
ur mjög vel hér,“ sagði Birkir Bjarna-
son, landsliðsmaður í knattspyrnu,
meðal annars við Morgunblaðið í gær.
Ítalska liðið Pescara hefur ákveðið að
kaupa hann frá Standard Liege í
Belgíu. »1
Birkir ánægður með
gang mála hjá Pescara
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Um helgina kom saman tíu manna
hópur kunnra rakarameistara úr
Reykjavík. Hópurinn kallar sig
Spice Guys sem vísar til þess að allir
hafa þeir annaðhvort selt eða notað
Old Spice-rakspíra en einnig vísar
það í bresku hljómsveitina Spice
Girls sem sló í gegn á sínum tíma.
Allir eiga rakarameistararnir það
sameiginlegt að hafa í gegnum tíðina
lært eða starfað á Rakarastofu Sig-
urðar Ólafssonar í Eimskipafélags-
húsinu sem stofnuð var árið 1921 og
rekin allt til ársins 1988. Einn þeirra
er Trausti Thorberg Óskarsson, rak-
arameistari og tónlistarmaður.
Hann hóf störf á stofunni árið 1943,
þá 17 ára gamall, og er enn að.
Vinsælt að koma í rakstur
„Við vorum þannig staðsettir að
við vorum í hringiðunni og hittum
mikið af fólki auk þess sem mikið var
að gerast í Reykjavík og borgin að
vaxa og dafna. Á þessum árum var
mjög vinsælt að menn létu raka sig á
rakarastofum og mættu þá prúðbún-
ir til þess á stofuna til okkar. Við
vorum fimm að vinna í einu og rök-
uðum oft fimm menn hver fyrir há-
degi. Þetta lagðist að mestu af í
kringum 1950 og nú eru menn al-
gjörlega hættir að láta raka sig á
þennan hátt þótt ungu mönnunum
finnist gaman að því einstöku sinn-
um,“ segir Trausti og bætir við að
hann hafi klippt og rakað flesta ef
ekki alla þá menn sem unnu á Morg-
unblaðinu í Aðalstræti þau tíu ár
sem hann starfaði í Eimskipafélags-
húsinu. Samtals hafi hann rakað
nokkur þúsund menn um ævina.
Músíkalskur rakari
Trausti hóf snemma störf í bakaríi
föður síns við Laugaveg en var sem
áður segir 17 ára þegar hann hóf
störf á Rakarastofu Sigurðar og seg-
ir þau ár sem hann starfaði þar hafa
verið bestu ár ævi sinnar.
„Maður gerði lítið annað fyrsta ár-
ið en að sápa en við þurftum að
þeyta stykki í litlu fati til að fá það til
að skúma. Eins var með raksturinn;
fyrsta hálfa árið rakaði ég miða af öl-
flöskum til að æfa mig og hlaut
styrka leiðsögn. Það var heilmikið
mál að hugsa um sína rakhnífa og
við notuðum vandaða þýska hnífa
sem þurfti að passa upp á og slípa á
sérstakan hátt,“ rifjar Trausti upp.
Hann hefur komið víða við á
starfsævinni og vann m.a. um tíma í
Danmörku. Þá starfaði hann lengi
sem gítarleikari samhliða rakara-
starfinu, m.a. með KK sextett. Enn í
dag fær Trausti til sína nokkra
fastakúnna í klippingu.
Mættu prúðbúnir í rakstur
Spice Guys-rak-
arameistararnir
rifja upp gamla tíð
Morgunblaðið/Golli
Rakarameistarar Kári Elíasson og Trausti Thorberg (fyrir aftan) rifja hér upp gamla takta við raksturinn.
Trausti á frá fyrri tíð gnægð ljós-
mynda, sem nánast spanna heila
sögu um starf rakarastéttarinnar,
en ein sú allra merkasta er þessi
hér til hliðar. Hér má sjá þá félaga
Trausta og Kára Elíasson standa
hlið við hlið á Rakarastofu Sig-
urðar Ólafssonar og raka við-
skiptavini upp á gamla mátann líkt
og þá tíðkaðist. Myndin er frá
árinu 1943 en á rakarastofuna
komu margir þekktir menn úr
samfélaginu.
Ungir rakarar
70 ÁRA GÖMUL MYND
Rakarameistarar Kári og Trausti.