Morgunblaðið - 21.01.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2013
Hafi einhver verið í vafa þá ligg-ur nú fyrir að stjórnarliðar á
þingi eru algjörlega búnir að
klúðra þessu
síðasta þingi
sínu. Þeir
hafa komið
öllu í hnút
með slóða-
skap, röng-
um áherslum og lélegum vinnu-
brögðum og sjá nú enga leið út úr
vandanum.
Þá grípa þeir til þess ráðs aðboða fund með stjórnarand-
stöðunni á þingi og fréttir af þeirri
boðun herma meðal annars að þar
eigi að „kortleggja“ afstöðu stjórn-
arandstöðunnar til stjórnarskrár-
frumvarpsins.
Um leið er ljóst að stjórnarliðarætla sér að halda ótrauðir
áfram með það mál og keyra það nú
í gegnum nefndir þingsins og boða
aðra umræðu um það í vikunni.
Þó hafa nefndirnar ekki fengiðað hitta þá sérfræðinga sem
þingmenn hafa óskað eftir auk þess
sem ljóst er að Feneyjanefndin
verður ekki einu sinni búin að skila
bráðabirgðaáliti sínu, hvað þá loka-
niðurstöðu, sem mun ekki vera
væntanleg fyrr en í mars.
Þetta mál er orðið slíkur farsi aðengu tali tekur og með ólík-
indum að til Alþingis hafi náð kjöri
fólk sem telur sjálfu sér og þinginu
sæmandi að vinna með þessum
hætti að gerð nýrrar stjórnarskrár.
Og að detta í hug að dragastjórnarandstöðuna inn í þessa
endaleysu er ekki síður furðulegt.
Hvers vegna í ósköpunum ætti hún
að aðstoða afvegaleiddan stjórn-
armeirihlutann í þessari aðför að
Alþingi og stjórnarskrá?
Furðuleg
fundarboðun
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 20.1., kl. 18.00
Reykjavík 3 heiðskírt
Bolungarvík 3 heiðskírt
Akureyri 3 skýjað
Kirkjubæjarkl. 3 skýjað
Vestmannaeyjar 6 skýjað
Nuuk -7 snjókoma
Þórshöfn 2 skýjað
Ósló -3 skýjað
Kaupmannahöfn -5 heiðskírt
Stokkhólmur -3 léttskýjað
Helsinki -7 skýjað
Lúxemborg -2 þoka
Brussel -3 þoka
Dublin 2 skýjað
Glasgow 2 skýjað
London 0 snjókoma
París -2 snjókoma
Amsterdam -3 snjókoma
Hamborg -2 skýjað
Berlín -3 skýjað
Vín 0 þoka
Moskva -12 snjókoma
Algarve 15 skýjað
Madríd 7 léttskýjað
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 12 skúrir
Aþena 15 skýjað
Winnipeg -27 upplýsingar bárust ek
Montreal 2 þoka
New York 10 heiðskírt
Chicago -8 skýjað
Orlando 16 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:39 16:40
ÍSAFJÖRÐUR 11:07 16:22
SIGLUFJÖRÐUR 10:51 16:04
DJÚPIVOGUR 10:14 16:04
Björgunarsveitir Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar voru kallaðar út
síðdegis á laugardag vegna göngu-
manns sem villst hafði á Esjunni.
Eftir víðtæka leit fundu björg-
unarmenn manninn um klukkan
hálfníu sama kvöld en þá var hann
staddur efst í Gunnlaugsskarði.
Samkvæmt upplýsingum frá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörg var mað-
urinn ágætlega á sig kominn, miðað
við aðstæður, þegar björgunarmenn
komu að honum.
Fyrr um daginn var göngumað-
urinn, ásamt félaga sínum, staddur
á Kerhólakambi þegar þeir ákváðu
að ganga hvor sína leið niður af
fjallinu. Þegar hinn týndi skilaði
sér ekki niður hringdi félagi hans í
hann. Kom þá í ljós að maðurinn
hafði tapað áttum og kvartaði um
kulda en úrkoma var á svæðinu og
þoka í hlíðum.
Í kjölfarið var haft samband við
Neyðarlínuna þar sem óskað var
eftir aðstoð björgunarmanna. Við
tók umfangsmikil leit að göngu-
manninum þar sem allt kapp var
lagt á að finna hann fyrir nóttina.
Alls tóku um 120 björgunar-
sveitamenn af höfuðborgarsvæðinu,
úr Borgarfirði og af Suðurnesjum
þátt í leitinni. Jafnframt var óskað
eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslu
Íslands við leitina.
Ljósmynd/Kolbeinn Guðmundsson
Leit Björgunarmenn leggja af stað
upp Gunnlaugsskarð.
Umfangs-
mikil leit
á Esjunni
Yfir 100 björg-
unarmenn tóku þátt